Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Frá ráðgjöf fyrir Sameinuðu þjóðirnar í skúringar

Frá ráðgjöf fyrir Sameinuðu þjóðirnar í skúringar
Birt­ingur

Libertad Venegas er með BA-próf í fjöl­miðla­fræði og meistara­gráðu í félags­fræði. Í heima­landi sínu Mexíkó vann hún meðal ann­ars sem blaða­maður, sjón­varps­frétta­maður og ráð­gjafi hjá fjöl­þjóð­legri nefnd á vegum Sam­ein­uðu þjóð­anna. Þegar hún flutti til Íslands til að hefja búskap með íslenskum eig­in­manni sínum var eina vinnan sem henni stóð til boða skúr­ingar. Hún seg­ist hafa sætt sig við það, enda vitað að til þess að fá betri vinnu þyrfti hún að læra tungu­málið.

Síðan eru liðin sjö ár og Libertad er farin að tala ágæta íslensku, enda hefur hún lokið öllum nám­skeiðum í tungu­mál­inu sem Mála­skól­inn Mímir býður upp á. Í dag vinnur hún sem leið­bein­andi á leik­skóla, vinnu sem hún segir að sé vissu­lega gef­andi og skemmti­leg en kaupið er ekki hátt og þrátt fyrir að Libertad hafi fengið háskóla­gráður sínar metnar til launa­hækk­unar í leik­skól­anum langar hana eðli­lega til að fá starf sem teng­ist því sem hún mennt­aði sig til. Hún seg­ist hafa sótt um allar stöður sem hún hafi séð aug­lýstar og teng­ist hennar menntun en aldrei fengið svar við nokk­urri umsókn.

„Mig langar í íslensku­nám í Háskóla Íslands til að bæta stöðu mína á vinnu­mark­aðnum,“ segir Libertad þegar hún er spurð hvað hún geti gert til að kom­ast í vinnu sem hæfi menntun hennar. „En þar er ein­göngu boðið upp á dag­kennslu og ég hef ekki efni á að hætta að vinna til að fara í nám. Ég skil ekki hvers vegna það er ekki boðið upp á íslensku­nám við Háskól­ann á kvöldin. Það þýðir eig­in­lega bara að námið stendur ein­göngu þeim sem eru vel stæðir til boða og við sem ekki höfum efni á að hætta að vinna sitjum eftir. Það finnst mér ekki sann­gjarnt. Mér finnst það þurfi að breyta því til að koma til móts við fólk af erlendum upp­runa sem virki­lega vill læra íslensku og kom­ast inn á íslenskan vinnu­markað.“

Eftir að hafa unnið við skúr­ingar um tíma fékk Libertad vinnu á frí­stunda­mið­stöð og síðan á leik­skóla. Hún seg­ist margoft áður hafa sótt um vinnu á leik­skóla en ekki fengið svar, það hafi verið vin­skapur sem kom henni loks í atvinnu­við­tal við leik­skóla­stjór­ann.

„Vinkona mín þekkir leik­skóla­stjór­ann og í gegnum hana fékk ég atvinnu­við­tal og var ráðin. Annars hefði ég ekki fengið þetta starf,“ segir hún ákveðin.

Háskólamenntaðir útlendingar vinna allir á leikskólum

Hvaða áhrif hefur það á sjálfs­mynd­ina og sál­ar­lífið að eiga ekki mögu­leika á að fá vinnu í sam­ræmi við menntun þína?

„Það er mjög þreyt­andi til lengdar,“ við­ur­kennir Libertad. „Ég skil auð­vitað að íslensku­kunn­áttan stendur mér fyrir þrifum en á hinn bóg­inn virð­ist það vera land­lægt hér að erlent fólk með háskóla­menntun fái ekki vinnu við sitt hæfi. Allir háskóla­mennt­aðir útlend­ingar sem ég þekki vinna á leik­skólum. Það er mik­ils­vert starf og okkur er boðið upp á alls konar nám­skeið í sam­bandi við vinn­una en það er vissu­lega skrýtið að það skuli vera eina starfið sem maður á mögu­leika á að fá. Ég er orðin fer­tug og sé ekki fram á að þetta ástand breyt­ist neitt héðan af, svo ég er jafn­vel að hugsa um að fara í leik­skóla­kenn­ara­nám til að hafa mögu­leika á betri launum.“

Libertad segir það ekki hjálpa sér að kom­ast inn á íslenskan vinnu­markað að vera gift Íslend­ingi.

„Hann hefur engin sam­bönd við fólk í mínum geira,“ segir hún og hlær. „Það virð­ist skipta miklu máli til að fá vinnu á Íslandi að þekkja rétta fólkið og við erum bara ekki rétt tengd, greini­lega.“

Verður að koma til móts við útlendinga

Spurð hvort hún hafi upp­lifað það að Íslend­ingar hafi for­dóma fyrir erlendu fólki á vinnu­mark­aði dregur Libertad við sig svarið.

„Já, stundum,“ segir hún og þagnar svo. „Mér finnst vinnu­veit­endur dálítið tregir til að ráða fólk sem ekki talar full­komna íslensku, meira að segja í störf sem ekki krefj­ast íslensku­kunn­áttu. En mér finnst mér ekki mis­munað vegna upp­runa míns, alls ekki. Mér finnst hins vegar að íslensk yfir­völd þurfi að koma betur til móts við útlend­inga sem vilja læra íslensku og setj­ast að hér. Það eru voða­lega fáir mögu­leikar í boði eins og staðan er núna.“

Libertad á fimm ára dóttur og meðal ann­ars hennar vegna segir hún ekki koma til greina að flytja aftur heim til Mexíkó til að fá betra starf. Fjöl­skyldan sé íslensk og hafi byggt upp líf sitt hér, það sé ekki inni í mynd­inni að rífa hana upp með rótum.

„Mér hefur stundum dottið það í hug að flytja aftur til Mexíkó,“ segir hún. „En mað­ur­inn minn talar ekki spænsku svo hann ætti erfitt með að fá vinnu þar og það gengi ekki. Dóttir mín talar auð­vitað bæði spænsku og íslensku en hún er samt Íslend­ingur og á sínar rætur hér, svo ég held það yrði allt of erfitt að skipta algjör­lega um umhverfi og byrja upp á nýtt í landi sem er fram­andi fyrir hana og mann­inn minn. Hann á líka ynd­is­lega fjöl­skyldu hér sem við erum mjög tengd þannig að við viljum vera hér áfram og byggja líf okkar upp hér. Ef það kostar að ég fái aldrei tæki­færi til að nýta menntun mína og vinna við það sem ég hef mestan áhuga á, þá verð ég bara að sætta mig við það og finna aðrar leiðir. Ég vildi samt óska að það væri ekki svona flókið að kom­ast inn í háskóla­nám í íslensku til að eiga mögu­leika á að kom­ast inn á vinnu­mark­að­inn í krafti mennt­unar sinnar. Það er það sem helst þarf að breyta, held ég, til að gefa fólki af erlendum upp­runa sömu mögu­leika og öðrum. Ég vona að það breyt­ist sem fyrst.“

Fólk af erlendum upp­runa sem flyst til Íslands til að setj­ast hér að og skapa sér líf á erfitt með að fá vinnu við sitt hæfi. Háskóla­menntun ann­ars staðar frá er ekki metin til jafns við íslenska háskóla­menntun og gjarnan fest­ist þetta fólk í lág­launa­störfum.

Mannlíf ræddi við þrjá útlend­inga sem hafa búið á Íslandi árum saman án þess að fá vinnu við sitt hæfi um reynslu þeirra af íslenskum vinnu­mark­aði og fékk inn­sýn í bar­átt­una sem það kostar að kom­ast í vinnu sem hæfir menntun þeirra. Lesa má alla úttekt­ina í nýjasta tölu­blaði Mannlífs sem kom út í morgun.

Myndir / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina