Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Að klúðra fyrstu skiptunum sínum er fullkomlega eðlilegt“

Leikarar og höf­undar leik­verks­ins Fyrsta skiptið segja að í upp­hafi hafi verið erfitt að deila vand­ræða­legum reynslu­sögum með mót­leik­urum sínum.

Á sunnu­dag­inn verður fyrsta verk árs­ins í Gafl­ara­leik­hús­inu frum­sýnt, grín­leik­ritið Fyrsta skiptið. Höfundar eru fimm, þau Berglind Alda Ást­þórs­dóttir, Inga Steinunn Henn­ings­dóttir, Arnór Björns­son, Mikael Emil Kaaber og Óli Gunnar Gunn­ars­son og leika þau sjálf í verk­inu. Leik­stjóri er Björk Jak­obs­dóttir.

„Fyrsta skiptið er fyrst og fremst grín­leik­rit. Við segjum frá fyndnum reynslu­sögum ásamt því að hoppa inn á milli í leiknar senur. Við not­umst mikið við mynd­lík­ingar og tæklum þar af leið­andi umræðu­efnið á hlægi­legan hátt. Við túlkum til dæmis fyrsta kyn­lífið sem íþrótt og fyrsta sleik­inn túlkum við í dans,“ útskýra þær Berglind og Inga þegar þær eru beðnar um að lýsa verk­inu.

„Við túlkum til dæmis fyrsta kyn­lífið sem íþrótt og fyrsta sleik­inn túlkum við í dans.“

„Verkið fjallar fyrst og fremst um alls konar vand­ræða­leg fyrstu skipti sem allir ættu að kann­ast við. Til dæmis fyrsta koss­inn, fyrstu kyn­lífs­reynsl­una, fyrstu sjálfs­fró­un­ina og fyrstu sam­bands­slit. Við fjöllum síðan um þessi fyrstu skipti á skemmti­legan og snyrti­legan máta þar sem við gerum mikið grín af hug­mynd­inni um þessi týpísku full­komnu fyrstu skipti. Þessi snilld­ar­hug­mynd kom upp­runa­lega frá leik­stjór­anum okkar,“ segir Berglind.

Höfundar verks­ins byggja verkið á sinni eigin reynslu og sögum frá vinum. „Leik­ritið er fyrst og fremst byggt á sönnum sögum og þá aðal­lega frá okkur sjálfum og góðum vinum. Okkur finnst mik­il­vægt að sög­urnar sem við segjum frá í verk­inu séu sannar því mark­mið okkar er einmitt að sýna áhorf­endum að ekk­ert fyrsta skipti er í raun og veru full­komið, lífið er ekki Hollywood-bíósena þar sem er alltaf róm­an­tísk rign­ing og dúfur út um allt! Við vonum líka að fólk sjái að þetta þarf alls ekki að vera svona mikið feimn­is­mál…að klúðra fyrstu skipt­unum sínum er full­kom­lega eðli­legt og í stað­inn fyrir að skamm­ast sín þá ætti maður frekar að hlæja að þessu,“ útskýrir Inga.

„Leik­ritið er fyrst og fremst byggt á sönnum sögum og þá aðal­lega frá okkur sjálfum og góðum vinum.“

Berglind og Inga við­ur­kenna að það hafi verið erfitt að deila reynslu­sögum sínum í upp­hafi ferl­is­ins. „Þegar við byrj­uðum að skrifa leik­ritið var fyrsta skrefið að deila okkar eigin sögum og það var örugg­lega erf­ið­asti hlut­inn af ferl­inu. Maður þurfti ein­hvern veg­inn að opna sig alger­lega og drita út vand­ræða­legum reynslu­sögum. En okkur tókst svo sann­ar­lega að tækla þetta vel því við tókum þessar vand­ræða­legu sögur og gerðum úr þeim spreng­hlægi­legar senur. Maður lærði því fljót­lega að hafa húmor fyrir sjálfum sér og það skemmti­leg­asta sem leik­hóp­ur­inn gerir núna er að liggja í hlát­ur­skasti yfir þessum sögum okkar.“

Þess má geta að sýn­ingin er ætluð fyrir 12 ára og eldri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina