Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þau urðu stjörnur í hruninu

Þau urðu stjörnur í hruninu
bús­á­halda­bylt­ingin hrunið mót­mæli aust­ur­völlur

Þegar íslenska efna­hagsund­rið varð að íslenska efna­hags­hrun­inu spruttu fram á sjón­var­sviðið fjöl­margir ein­stak­lingar sem létu til sín taka í þjóð­fé­lags­um­ræð­unni sem var með frjóasta móti á þessum tíma. Mannlíf rifjar upp nokkra af þeim ein­stak­lingum sem urðu þjóð­þekktir í tenglsum við atburði í kringum hrunið. Sumir hurfu af sjón­var­svið­inu jafn­hratt og þeir stigu fram á meðan aðrir standa enn á víg­vell­inum.

Ragnar Þór Ingólfsson

Margir þeirra sem hér eru nefndir eiga það sam­merkt að hafa komið fram í Silfri Egils sem eftir hrun varð einn helsti vett­vangur hrun­um­ræð­unnar. Einn þeirra er Ragnar Þór sem hóf her­ferð gegn líf­eyr­is­sjóða­kerf­inu og verð­trygg­ing­unni. Hann var einn stofn­enda Hags­muna­sam­taka heim­il­anna sem á tíma­bili varð einn öfl­ug­asti þrýsti­hópur lands­ins þótt heldur hafi fjarað undan sam­tök­unum. Ragnar hefur síðan bæst í hóp aðsóps­mestu verka­lýðs­leið­toga lands­ins eftir að hann stóð fyrir hall­ar­bylt­ingu í VR þar sem hann gegnir nú for­mennsku.

Eva Hauksdóttir

Eva er vafa­laust þekkt­asti aðgerðasinni lands­ins og lík­lega eina mann­eskjan á Íslandi sem er sjálftitluð norn. Hún rak litla norna­búð fyrir hrun og hefur um ára­bil haldið úti blogg­inu norn.is. Eva lét mikið til sín taka í bús­á­halda­bylt­ing­unni. Frægust er ræða hennar fyrir utan lög­reglu­stöð­ina á Hverf­is­götu þar sem hún var í hópi fólk sem gerði áhlaup á stöð­ina eftir að sonur hennar, Haukur Hilm­ars­son, var hand­tek­inn fyrir að flagga Bónus fána á þaki alþing­is­húss­ins. Eva heldur áfram að berj­ast fyrir bættum heimi og stundar nú nám í alþjóð­legri mann­rétt­inda­lög­fræði í Glasgow. Á sama tíma berst hún við kerfið þar sem hún hefur ítrekað reynt að upp­lýsa um afdrif Hauks sem sagður er hafa fallið í bar­daga í Sýrlandi.

Katrín Oddsdóttir

Þann 22. nóv­em­ber steig ungur laga­nemi upp á svið á Aust­ur­velli og hélt þrumu­ræðu yfir lýðnum þar sem hún hót­aði að bera rík­is­stjórn­ina út úr opin­berum bygg­ingum ef ekki yrði boðað til kosn­inga innan viku. Ræðan var svo eld­fim að hópur sam­nem­enda hennar við Háskól­ann í Reykja­vík sagði hana hafa hótað ofbeldi og valdaráni og krafð­ist þess að frétt á vef háskól­ans, þar sem vísað var í ræð­una, yrði fjar­lægð. Katrín hefur æ síðan verið áber­andi í þjóð­mála­um­ræð­unni, sat meðal ann­ars stjórn­laga­ráði og starfar nú sem lög­maður.

Hörður Torfason

Þegar þjóðin var á botn­inum fann Hörður Torfason henni far­veg fyrir reið­ina þegar hann, ásamt Röddum fólks­ins, skipu­lagði fjölda­fundi á Aust­ur­velli sem síðan þró­uð­ust út í bús­á­halda­bylt­ing­una. Þar fékk hann alls konar fólk til að messa yfir lýðnum og eru sumir þeirra nefndir hér á nafn. Hörður dró sig þó í hlé eftir óvið­ur­kvæmi­leg ummæli í garð Geirs H. Haarde sem þá hafði nýlokið við að til­kynna þjóð­inni að hann glímdi við alvar­leg veik­indi.

Borgarahreyfingin

Borg­ara­hreyf­ingin var það and­spyrnu­fram­boð sem náði mestum árangri í þing­kosn­ing­unum 2009. Þar söfn­uð­ust saman þeir sem höfðu haft sig hvað mest frammi í bús­á­halda­bylt­ing­unni og komust þau Birgitta Jóns­dóttir, Margrét Tryggva­dóttir, Þór Saari og Þráinn Ber­tels­son á þing. Flokk­ur­inn lifði þó ekki lengi því hann splundrað­ist á miðju kjör­tíma­bili þar sem þau þrjú fyrst­nefndu stofn­uðu Hreyf­ing­una á meðan Þráinn sat utan flokka. Birgitta fór síðan fyrir Pírötum, Margrét gekk í Sam­fylk­ing­una á meðan Þór hefur bæði gengið í og sagt sig úr Dögun og Píra­ta­flokknum.

Ragna Árnadóttir

Fæstir lands­menn höfðu heyrt Rögnu Árna­dóttur getið þegar vinstri stjórn VG og Sam­fylk­ingar var kynnt til leiks í árs­byrjun 2009. Hún hafði gegnt emb­ætti skrif­stofu­stjóra í dóms­mála­ráðu­neyt­inu og var settur ráðu­neyt­is­stjóri þegar hún var óvænt skipuð dóms­mála­ráð­herra utan þings. Með þessi vildi vinstri stjórnin auka fag­legt yfir­bragð rík­is­stjórn­ar­innar enda voru hluta­bréf stjórn­mála­manna nær verð­laus á þessum tíma. Svo vel þótti Rögnu takast vel upp að hún var sterk­lega orðuð við for­seta­fram­boð árið 2016. Hún lét ekki freist­ast og hefur starfað hjá Lands­virkjun síðan hún fór úr ráðu­neyt­inu, fyrst sem skrif­stofu­stjóri og nú aðstoð­ar­for­stjóri.

Eva Joly

Traust á íslenskum stofn­unum var í lág­marki eftir hrunið og margir töldu að best væri að fá erlendan sér­fræð­ing til að stýra rann­sókn­inni á falli bank­anna. Um svipað leyti hafði Egill Helgason boðið Evu Joly til sín í Silfrið, en hún hafði áður stýrt rann­sókn á umfangs­miklu fjársvika­máli í Frakk­landi. Mál­flutn­ingur frú Joly heill­aði þjóð­ina og var hún á end­anum fengin til að vera sér­stakur ráð­gjafi við rann­sókn­ina. Hún fór mik­inn í fjöl­miðlum en eign­að­ist um leið óvild­ar­menn í röðum þeirra sem gættu hags­muna þeirra sem rann­sóknin beind­ist að. Hún er í dag þing­kona á Evr­ópu­þing­inu og flytur einmitt fyr­ir­lestur um hrunið í Háskóla Íslands í dag.

Björn Bragi Mikkaelsson

Verk­tak­inn Björn Bragi Mikka­els­son varð alþýðu­hetja í skamma stund þegar hann eyði­lagði hús sitt á Álftan­eis auk þess að urða bíl sín. Kenndi hann óbil­girni banka­stofn­ana um enda hafði hann skömmu áður misst húsið í hendur Frjálsa fjár­fest­inga­bank­ans. En hetju­ljóm­inn hvarf fljótt þegar í ljós kom að Björn Bragi hafði svikið all­nokkurn fjölda fólks um háar fjár­hæðir í starfi sínu sem verk­taki. Árið 2012 var hann svo dæmdur í 18 mán­aða fang­elsi fyrir að hafa ekki staðið skil á skatt­greiðslum, fjár­svik og brot á bók­halds­lögum og ári síðar var hann úrskurð­aður gjald­þrota. Engar eignir voru í búinu til að mæta 114 millj­óna króna kröfum í það.

Lilja Mósesdóttir

Ný kyn­slóð álits­gjafa spratt fram eftir hrunið enda höfðu hinir klass­ísku álits­gjafar fallið tölu­vert í verði, af aug­ljósum ástæðum. Lilja mós­es­dóttir var ein þeirra og kom hún vel fyrir, enda bæði með góða menntun og starfs­reynslu. Það fleytti henni á þing fyrir VG í kosn­ing­unum 2009 og naut hún þar tals­verðrar hylli. Hún til­heyrði hins vegar hópi villikatta innan VG, eins og Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir komst að orði, og fór svo að hún var einn af fjórum þing­mönnum VG sem yfir­gaf flokk­inn á miðju kjör­tíma­bili. Hún hugði á sér­fram­boð undir merkjum Sam­stöðum og nokkrum mán­uðum fyrir kosn­ingar mæld­ist fram­boðið með yfir 20 pró­senta fylgi, en sökum skorts á sam­stöðu leys­ist fram­boðið upp áður en til kosn­inga kom.

Ólafur Þór Hauksson

Ekki var hlaupið að því að ráða í stöðu sér­staks sak­sókn­ara, þess er stýra átti rann­sóknum gegn stjórn­endum föllnu bank­anna. Enda um mjög van­þakk­látt starf að ræða. Í fyrstu lotu sótti eng­inn um stöð­una en þegar umsókn­ar­frestur var fram­lengdur bár­ust tvær umsóknir. Þar af upp­fyllti annar aðil­inn ekki skil­yrði. Eftir sat Ólafur Þór Hauksson, lítt þekktur sýslu­maður af Akranesi. Í kjöl­farið fylgdu hús­leitir, hand­tökur, ákærur svo og fræg störu­keppni við Sigurð Ein­ars­son sem neit­aði að snúa aftur til Íslands frá London og var á tíma eft­ir­lýstur af Interpol. Embætti sér­staks sak­sókn­ara reynd­ist veg­tylla fyrir Ólaf sem nú gegnir emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina