Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Orð eins legókubbar tungunnar

Orð eins legókubbar tungunnar
stein­gerður vikan 80 ára

Þann út 21. nóv­em­ber árið 1938 kom fyrsta tölu­blaðið af Vikunni út og blaðið fagnar því 80 ára afmæli á árinu. Vikan hélt hins vegar upp á afmælið í gær með veg­legu partíi og útgáfu afmæl­is­blaðs. Við tókum rit­stjóra Vikunnar, Stein­gerði Stein­ars­dóttur, tali í til­efni af þessum merki­legu tíma­mótum.

„Afmæl­is­blaðið er átta­tíu síður að sjálf­sögðu og þar lítum við um öxl en njótum líka augna­bliks­ins,“ segir Stein­gerður glöð í bragði. Á for­síðu afmæl­is­blaðs­ins er Birgitta Haukdal sem átti eft­ir­minni­lega end­ur­komu með hljóm­sveit sinni Írafári í sumar. „Okkur fannst hún skemmti­legur full­trúi þeirra kvenna sem hafa í gegnum tíð­ina skreytt for­síð­una en þetta er ekki í fyrsta sinn sem Birgitta er á for­síðu Vikunnar. Sigríður Bein­teins­dóttir söng­kona er líka í stóru við­tali um það sem er efst á baugi hjá henni. Hljóm­sveit hennar Stjórnin átti líka stóraf­mæli í ár og svo heyrum við í Svövu Johansen um sveifl­urnar í tísk­unni og hvernig hún fer alltaf í hringi. Báðar þessar konur hafa líka oft áður verið í blað­inu. Við töl­uðum við alla fyrr­renn­ara mína sem voru enn ofar moldu og fengum þeirra sýn á blaðið. Það var mjög fróð­legt og skemmti­legt. Talað var við Pál Helgason í Vest­manna­eyjum, jafn­aldra Vikunnar og hennar trygg­asta áskrif­anda. Við lögð­umst svo yfir gam­alt efni og drógum fram það sem ein­kennt hefur Vikuna í gegnum tíð­ina, gert hana leið­andi og sífellt mark­verða. Það er gaman að vera hluti af ein­hverju sem á sér mikla sögu en er alltaf síungt.“

Stein­gerður segir að ýmis­legt hafi breyst í blað­inni í áranna rás. „Helst hefur breyst hvað við­töl eru miklu stærri hluti blaðs­ins. Efn­is­tökin eru líka breytt en núna er fólk óhrædd­ara við að tala um til­finn­ingar en áður var og opna sig um erf­iða hluti. Margt lá áður falið í þögn­inni en við höfum til allrar lukku lært að það gerir mann­eskjum ekk­ert gott að byrgja allt inni. Þegar þú stígur fram og talar eins og þér býr í brjósti og ert þú sjálfur sýna aðrir þér oft­ast meiri skiln­ing en þú áttir von á. Ég finn oft fyrir mik­illi gleði þegar fólk segir mér að í kjöl­fari við­tals hjá okkur hafi verið hægt að byggja aftur brýr sem höfðu brotnað og bera smyrsl á gömul sár.“

Oft sker í hjartað að sjá sársaukann

Stein­gerður tók við rit­stjórn Vikunnar í maí 2013. Hún skrif­aði hins vegar fyrst í blaðið í lausa­mennsku 1994 og sum­arið 1998 fékk hún fast­ráðn­ingu sem blaða­maður. „Ég vann svo á Vikunni til árs­ins 2006 en þá bauðst mér starf sem rit­stjóri á tíma­rit­inu hann/hún sem var nýstofnað og mér fannst það tæki­færi of spenn­andi til að sleppa því. Svo sneri ég aftur á Vikuna fyrir fimm árum,“ segir Stein­gerður og aðspurð seg­ist hún gegna besta starfi í heimi. „Flestir dagar fljúga hjá og oft finnst mér ég ekki einu sinni hafa verið í vinn­unni svo gaman var. Sér­staðan felst í því að við erum alltaf að fara með sögur fólks og mér finnst mik­il­vægt að gera það af trú­mennsku og virð­ingu við við­mæl­and­ann.

Áhuga­verð­ast við starfið er allt fólkið sem við hittum og skemmti­leg­ast að sjá verða til fal­legt blað með góðum texta og lif­andi myndum. Ég hef alltaf verið heilluð af blaða­manns­starf­inu. Bæði hef ég yndi af að vinna með orð og fólk hefur alltaf vakið áhuga minn. Fyrir mér eru orð eins legókubbar sem hægt er að raða saman á ótal vegu til að skapa and­rúms­loft, draga upp mynd af mann­eskju og ná fram til­finn­inga­við­brögðum. Fátt er skemmti­legra nema ef vera skyldi að heyra fólk segja frá, upp­lif­unum sínum, til­finn­ingum og lífi. Lifandi sögur sem fá enn meira gildi af því að þær eru sannar. Af þessu er svo hægt að draga marg­vís­legan lær­dóm um hvað rekur fólk áfram, hvernig til­finn­inga­líf okkar er ólíkt en samt svo ótrú­lega líkt. En það getur líka verið erfitt að hlusta á mann­eskju segja frá átak­an­legri lífs­reynslu. Oft sker það í hjartað að horfa upp á sárs­auk­ann og skynja hve stutt er enn inn í opna kviku þótt hrúður hafi sest á sárið,“ segir Stein­gerður.

Törn framundan

Þrátt fyrir mikla mikla vinnu að und­an­förnu og allt húll­um­hæið sem fylgdi afmæl­is­veislu fimmtu­dags­ins slá blaða­menn Vikunnar hvergi slöku við enda stærstu blöð árs­ins framundan. „Kökublað, jóla­blað og völvu­blaðið sívin­sæla. Völva Vikunnar varð til á átt­unda ára­tug síð­ustu aldar og hefur síðan verið ómissandi hluti af ára­mót­unum hjá mörgum,“ segir Stein­gerður að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina