Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Veikir flugliðar mæta þögninni

Gagnrýna við­brögð Icelandair og stétt­ar­fé­lags.

Veikir flugliðar mæta þögninni

Fjórir flug­liðar Icelandair leit­uðu á sjúkra­hús eftir að hafa fundið fyrir veik­indum í flugi frá Edmonton á laug­ar­dag. Mannlíf fjall­aði í síð­asta tölu­blaði um fjölda flug­at­vika frá árinu 2016 þar sem starfs­fólk flug­fé­lags­ins hefur jafn­vel verið óvinnu­fært í lengri tíma eftir að hafa fundið fyrir svip­uðum ein­kennum á flugi.

Blaða­maður hafði sam­band við starfs­menn sem leit­uðu á sjúkra­hús eftir flugið frá Edmonton en þeir vildu ekki tjá sig um atvikið, lýsa ein­kennum eða hvort þeir væru á bata­vegi og bentu blaða­manni á að ræða við Icelandair.

Mannlíf hefur stað­festar heim­ildir fyrir því að í a.m.k. einu til­felli hafi fund­ist eit­ur­efnið TCP í hár­sýni flug­liða sem veikt­ist í flugi.

Jens Þórð­ar­son, fram­kvæmda­stjóri rekstr­ar­sviðs Icelandair, vildi ekki tjá sig sér­stak­lega um mál­efni ein­stakra starfs­manna. „Það virð­ist vera sem flestir séu að jafna sig, ég veit ekki betur,“ sagði hann í sam­tali við Mannlíf. Hann sagði jafn­framt að ekk­ert væri hægt að úti­loka um orsakir slíkra atvika og benti á að þau komi reglu­lega upp hjá flestum flug­fé­lögum og megi yfir­leitt rekja til lélegs loft­flæðis vegna stífla í loft­ræsti­kerfi.

Mannlíf hefur stað­festar heim­ildir fyrir því að í a.m.k. einu til­felli hafi fund­ist eit­ur­efnið TCP í hár­sýni flug­liða sem veikt­ist í flugi.

Fékk engar upp­lýs­ingar
Mannlíf hefur rætt við fjölda starfs­manna Icelandair í tengslum við málið m.a. flug­liða sem ekki hafa getað snúið aftur til vinnu eftir að hafa fundið fyrir svip­uðum ein­kennum í flugi. Einn starfs­maður gagn­rýnir flug­fé­lagið fyrir léleg við­brögð í hans til­felli. Hann hafi ekki fengið neina aðstoð eða upp­lýs­ingar frá vinnu­veit­anda sínum um hvert ætti að leita með sín mál. Þá seg­ist við­kom­andi hafa mætt háði og m.a. verið spurður hvort mögu­lega væri um þynnku að ræða.

„Það er ekki sagt eitt auka­tekið orð, það eru allt of miklir hags­munir,“

Starfs­mað­ur­inn kallar eftir vit­und­ar­vakn­ingu meðal almenn­ings og Icelandair um veik­indi flug­á­hafna vegna meng­aðs lofts í rýmum flug­véla sem tekið er í gegnum hreyfla. Fyr­ir­bærið hafi verið þekkt í flug­heim­inum ára­tugum saman og sé kallað Airotoxic-heil­kennið.

Vill að Flug­freyju­fé­lagið stígi fram
Flugliði sem Mannlíf ræddi við er harð­orður í garð Flug­freyju­fé­lags Íslands (FFÍ) og vill að stétt­ar­fé­lagið sé leið­andi í umræð­unni um þessi mál þannig að bæði almenn­ingur og flug­á­hafnir séu upp­lýst um hætt­una sem getur stafað af lélegum loft­gæðum um borð í flug­vélum. „Það er ekki sagt eitt auka­tekið orð, það eru allt of miklir hags­munir,“ segir starfs­mað­ur­inn og bendir á að stjórn­endur stétt­ar­fé­lags­ins séu einnig starfs­menn flug­fé­lag­anna.Fyrir tveimur vikum sagð­ist Berglind Haf­steins­dóttir, for­maður FFÍ, ekki vilja tjá sig um málið þegar eftir því var leitað. Síðan þá hefur hvorki ítrek­uðum sím­tölum né tölvu­pósti verið svarað.

Nýr tölvu­póstur sendur á starfs­fólk
Eftir að Mannlíf ræddi við Icelandair í tengslum við dul­ar­full veik­indi flug­liða sendi félagið starfs­mönnum sínum til­kynn­ingu í tölvu­pósti.
Farið er yfir aðgerðir flug­fé­lags­ins til að tryggja öryggi starfs­manna og tekið fram að atvikin séu mis­jöfn og teng­ist ekki ein­stökum flug­vélum. Skoðanir hafi ekki sýnt fram á skert loft­gæði.
Staðfest er eitt til­felli þar sem sýni úr áhafn­ar­með­limi var jákvætt fyrir TCP (rok­gjarnt líf­rænt efna­sam­band) sem má finna í mörgum teg­undum smur­olíu. Upptök efn­is­ins í sýn­inu hefur ekki verið stað­fest. Tekið er fram að ekki hefur mælst TCP um borð í vélum félags­ins sem nota slíkar teg­undir olíu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina