Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Miklu meira en bara Eurovision

Hin goð­sagna­kennda pólska rokk­hljóm­sveit Kult heldur stór­tón­leika í Eldborg í Hörpu á sunnu­dag.

Miklu meira en bara Eurovision

„Það eru um 16.000 pólskir inn­flytj­endur á Íslandi. Okkur fannst kom­inn tími til að þeir fengju að berja Kult augum á tón­leikum í nýja heima­land­inu og gætu um leið sýnt íslenskum vinum og ætt­ingjum um hvað pólskt rokk snýst. Íslend­ingar þurfa að heyra alvöru­gæð­arokk frá Póllandi. Pólsk tón­list er svo miklu meira en það sem þið heyrið í Eurovision,“ segir plötu­snúð­ur­inn og tón­leika­hald­ar­inn Pjøtr Wasylik, sem stendur fyrir tón­leikum sveit­ar­innar Kult í Eldborg í Hörpu næst­kom­andi sunnu­dag.

Tón­leik­arnir eru þeir fyrstu sem Kult heldur á Íslandi en Pjøtr segir sveit­ina vera goð­sögn í heima­landi sínu. „Kult er horn­steinn­inn í pól­skri dæg­ur­menn­ingu og hefur blásið anda­gift í brjóst Pólverja í yfir þrjá­tíu ár. Lög og textar sveit­ar­innar hafa til dæmis hjálpað pólsku þjóð­inni að takast á við róstu­sama tíma á 9. og 10. ára­tugnum og eiga því sinn sess í þjóð­fé­lags­sögu lands­ins. For­sprakki sveit­ar­innar, Kazik Staszewski, er eins konar páfi rokks­ins í Póllandi og hefur enn mikil áhrif á unga tón­list­ar­menn þrátt fyrir að yfir þrjá­tíu ár séu liðin frá því að hann steig fyrst fram á sjón­ar­sviðið,“ útskýrir Pjøtr. „Og þar sem stór hópur Pólverja býr nú á Íslandi er mikil eft­ir­vænt­ing í loft­inu fyrir því að fá þessar rokk­goðsagnir í heim­sókn.“

Beðinn um að lýsa tón­list­inni sem sveitin leikur segir Pjøtr að það sé svo­lítið erfitt að stað­setja hana nákvæm­lega en hún sé eins­konar sam­bland af rokki, jassi og pönki og undir vissum áhrifum frá Sex Pistols, Elvis Presley og tón­list frá Balkan-skaga. Hann segir að ef að líkum lætur megi búast við kraft­miklum tón­leikum á sunnu­dag og hann er þess full­viss að íslenskir, ekki síður en pólskir, rokka­að­dá­endur muni skemmta sér á þeim. „Það að text­arnir eru á pólsku ætti ekki að skipta neinu máli því tón­list er alþjóð­legt tungu­mál, eins og sagt er,“ segir hann. Til marks um það sé hann sjálfur mik­ill aðdá­andi íslensks rokks, sveita á borð við MAMMÚT, Fufanu, Vök, Árstíðir, Þey og Q4U og finnst í raun ótrú­legt hvað lítil þjóð eins og Ísland hefur alið af sér mikið af skap­andi og hæfi­leik­a­ríku tón­list­ar­fólki.

„Og þar sem stór hópur Pólverja býr nú á Íslandi er mikil eft­ir­vænt­ing í loft­inu fyrir því að fá þessar rokk­goðsagnir í heim­sókn.“

Spurður hvort honum finnst vera gott fram­boð af pól­skri tón­list á Íslandi, segir Pjøtr að það sé alls ekki slæmt en gæti verið betra. „Það eru nokkrir aðilar sem hafa verið að skipu­leggja pólska tón­list­ar­við­burði hérna á Íslandi og sumir þeirra hafa staðið fyrir íslenskum tón­leikum í Póllandi líka, þannig að það er ein­hver menn­ing­ar­miðlun í gangi á milli þjóð­anna. Hins vegar er munur á þekk­ingu Pólverja á íslenskri tón­list og þekk­ingu Íslend­inga á pól­skri tón­list. Vonandi munu tón­leik­arnir á sunnu­dag bæta úr því. Vonandi verða þeir fyrstu pólsku tón­leik­arnir af mörgum. Sjáum til,“ segir hann hress í bragði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina