Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Töldu veikindi flugfreyja ekki tengjast flugvélunum

Að minnsta kosti þrjár flug­freyjur hjá Icelandair eru óvinnu­færar eftir að hafa veikst í flugi í sumar. „Við höfum allar verið með svaka­legan þrýst­ing í höfði, eins og það sé að springa,“ segir flug­freyja hjá Icelandair sem telur eit­ur­gufur í far­ang­urs­rými orsök alvar­legra veik­inda hennar. Fleiri úr sömu áhöfn veikt­ust.

Sam­bæri­legt mál kom upp árið 2016 þar sem flug­liðar kvört­uðu undan veik­indum eftir að hafa flogið í til­teknum félags­ins. Rann­sókn­ar­nefnd flug­slysa tók málið til rann­sóknar og stendur sú rann­sókn yfir.

Ragnar Guð­munds­son, rann­sak­andi hjá Rann­sókn­ar­nefnd sam­gönguslysa, stað­festir að rann­sókn sé opin á þessum og fleiri flug­at­vikum.  Hann segir umrædd til­vik séu ekki skil­greind sem alvar­leg flug­at­vik vegna þess að öryggi flug­vél­ar­innar og flugs­ins hafi ekki verið stefnt í hættu þar sem ekk­ert þeirra átti sér stað í flug­stjórn­ar­klef­anum. Hins vegar séu þetta end­ur­tekin flug­at­vik sem ástæða þykir að skoða.

„Við höfum látið skoða flug­vélar og ýmis­legt hefur verið gert en að öðru leyti vil ég ekki tjá mig um opna rann­sókn,“ segir Ragnar og bendir á að ekki sé hægt að styðj­ast við gögn úr flug­ritum sem gerir málið flókn­ara.

Töldu veikindin ekki tengjast flugvélunum

Ekki náð­ist í Guðjón Arn­gríms­son, upp­lýs­inga­full­trúa Icelandair, við vinnslu frétt­ar­innar en í sam­tali við Rík­is­út­varpið árið 2016 sagði hann að litið væri á málið sem inn­an­hús­s­mál.

Í ágúst 2016 fékk starfs­fólk Icelandair til­kynn­ingu í tölvu­pósti þar sem farið var yfir flug­at­vikin og aðgerðir félags­ins. „Á hverjum degi í sumar eru um 400 áhafn­ar­með­limir á flugi hjá Icelandair og því ekki óeðli­legt að ein­hverjir af öllum þessum fjölda veik­ist eða finni fyrir van­líðan,“ segir m.a. í til­kynn­ing­unni. Jafn­framt er því haldið fram að atvikin séu mis­jöfn og teng­ist ekki ein­stökum flug­vélum. Dregin er sú ályktun að til­vikin séu aðskilin fremur en að um sama orsaka­vald sé að ræða.

Þá eru aðgerðir tækni­deildar vegna flug­at­vikanna útli­staðar en frá því til­kynn­ingin var send út hefur fjöldi svip­aðra mála litið dags­ins ljós og dæmi er um flug­freyjur sem hafa enn ekki getað snúið aftur til fyrri starfa vegna veik­inda í tengslum við umrædd atvik.

Tölvu­póst­inn í heild má lesa hér að neðan.

Vegna tilkynninga um veikindi áhafnarmeðlima um borð

Nýlega hefur orðið tölu­verð aukn­ing í til­kynn­ingum frá áhafna­með­limum vegna veik­inda um borð í flug­vélum Icelandair. Icelandair lítur þetta alvar­legum augum enda leggur félagið áherslu á að starfs­um­hverfi áhafna sé með sem bestum hætti. Þessu bréfi er ætlað að gefa upp­lýs­ingar um stöðu þess­ara mála.

Á hverjum degi í sumar eru um 400 áhafna­með­limir á flugi hjá Icelandair og því ekki óeðli­legt að ein­hverjir af öllum þessum fjölda veik­ist eða finni fyrir van­líðan. Í kjöl­far auk­ins fjölda til­kynn­inga hefur hvert til­felli verið skoðað og greint. Haft hefur verið sam­band við áhafn­ar­með­limi til að fá nán­ari og betri lýs­ingar. Trún­að­ar­læknir Icelandair hefur stýrt leit okkar að heilsu­fræði­legum orsökum og metið hvert til­felli fyrir sig.

Í stuttu máli eru atvikin mis­jöfn og eiga fátt sam­eig­in­legt þegar nánar er skoðað. Þau hafa dreifst á flestar vélar í flug­flot­anum okkar, tengj­ast ekki ein­stökum flug­vélum, og hafa komið upp á bæði B-757 og B-767. Oft hafa margar vikur liðið á milli til­kynn­inga á sömu flug­vél.

Tilkynnt ein­kenni hafa einnig verið af ýmsum toga, en í ein­hverjum til­vikum virð­ast vera tengsl á milli ein­kenna og hreyf­ingar flug­vél­ar­innar, hita­stigs og jafn­vel mis­jafnar hita­dreif­ingar í far­þega­rými. Önnur til­vik virð­ast alls ótengd flug­vél­unum, en tengj­ast öðrum veik­indum eða van­líðan ein­stak­linga, þreytu og slíkum þáttum. Áberandi er að þessar veik­inda­til­kynn­ingar koma fremur frá yngra fólki með lágan starfs­aldur en þeim sem eru eldri og reynd­ari.

Þessar breytur gera það að verkum að lík­legra er að til­vikin séu aðskilin en að um sama orsaka­vald sé að ræða. Icelandair hefur samt sem áður lagt mikla vinnu í að greina mögu­legar ástæður til­vikanna.

  • Tækni­deild Icelandair hefur skoðað við­hald flug­vél­anna og hefur grein­ing farið í gang eftir hvert atvik fyrir sig. Meðal aðgerða eru hreyfla­skipti, parta- og olíu­skipti, lofts­íu­skipti, skoðun á loft­stokkum, þrif á loft­ræsti­kerfi og loft­gæða­mæl­ingar á flugi.
  • Icelandair hefur rann­sakað og mælt sér­stak­lega ákveðna þætti, bæði á jörðu niðri, í far­þega­flugi og sér­stökum mæl­ing­ar­flugum. Meðal ann­ars hefur verið not­ast við raf­rænt „nef“ eða loft­grein­inga­tæki (Aerotracer) og hafa allar mæl­ingar komið eðli­lega út. Þeir þættir sem hafa verið mældir eru loft­þrýst­ingur, súr­efn­is­hlut­fall, raka­stig, hita­stig, hljóð­styrkur, loft­hraði og dreif­ing ræsti­lofts, hröðun, örveru- og myglu­próf, lykt­ar­próf (Aerotracer), og ýmis önnur efni, s.s. CO (Carbon Monoxide), CO2 (Carbon Dioxide), SO2 (Sulfur Dioxide), O3 (Ozone).
  • Trún­að­ar­læknir Icelandair hefur farið yfir nið­ur­stöður úr lækn­is­skoðun og blóðprufum hjá þeim áhafn­ar­með­limum sem farið hafa í slíka rann­sókn strax eftir flug. Öll þau sýni hafa komið eðli­lega út.
  • Þá hefur Rann­sókn­ar­nefnd Sam­gönguslysa (RNSA) verið fengin til liðs við okkur. Icelandair fagnar aðkomu RNSA og aðstoðar nefnd­ina eftir fremsta megni. RNSA hefur heim­ild til ýmissa aðgerða og nefndin m.a. sent áhafn­ar­með­limi í blóðprufur, lækn­is­skoð­anir og tekið flug­rita­gögn til grein­ingar en RNSA vinnur sjálf­stæða rann­sókn á þeim atvikum sem hún hefur afskipti af.
  • Icelandair hefur und­an­farið skoðað sér­stakan loft­sýni­töku­búnað sem yrði stað­settur um borð og hægt væri að nota ef fleiri en einn áhafn­ar­með­limur finnur fyrir van­líðan.

Veikist áhafn­ar­með­limur á flugi er mik­il­vægt að senda inn skýrslu um atvikið í gegnum SMS360. Ítarleg lýs­ing áhafna­með­lima skiptir miklu máli þar sem þessar upp­lýs­ingar geta auð­veldað grein­ingu á atvikum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina