Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Erlendir bankar tapa milljörðum

Erlendir bankar tapa milljörðum
Þegar fót­spor Árna og Róberts komu í ljós hafði Björgólfur Thor þetta að segja: „Hinir ljós­fælnu gammar og leppar þeirra kæra sig koll­ótta þótt almennir hlut­hafar séu blekktir og trú­verð­ug­leika líf­eyr­is­sjóða stefnt í voða. Lægra verður varla lagst.“

10 árum eftir að Lands­bank­inn féll hefur skiptum á eign­ar­halds­fé­lag­inu Samson, aðal­eig­anda bank­ans, verið lokið. Samson var fjár­fest­inga­fé­lag í eigu feðganna Björg­ólfs Guð­munds­sonar og Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar og eign­að­ist ráð­andi hlut í Lands­bank­anum við umdeilda einka­væð­ingu hans árið 2002. Björgólfur Thorog tengdir aðilir voru um langt skeið stærstu lán­takar bank­ans.

Í Lög­birt­ing­ar­blað­inu kemur fram að lýstar kröfur í búið námu 77,4 millj­örðum kóna, en ekki feng­ust nema 6,5 millj­arðar upp í þær, eða sem nemur 8,6%. Samson var lýst gjald­þrota þann 12. nóv­em­ber 2008.

Að því er Stundin greinir frá eru það fyrst og fremst fjár­mála­stofn­anir sem tapa á gjald­þroti Samson. Þannig tap­aði hinn suður-afríski Standard Bank 12,8 millj­örðum króna og hinn þýski Commerzbank 23,8 millj­örðum. Þá voru kröfur Glitnis 9 millj­arðar króna og gamla Lands­bank­ans 5 millj­arðar.

Segja má að skipta­lok á Samson séu einn síð­asti ang­inn í upp­gjöri Björg­ólfs Thors við fjár­mála­hrunið 2008. Björg­ólfs­feðgar voru fyrir hrun meðal helstu burða­rása í íslensku við­skipta­lífi fyrir hrun og áttu stóra hluti í félögum og Eimskip, Straumi-Burða­r­ási, Gretti fjár­fest­inga­fé­lagi svo og Lands­bank­anum.

Öll þessi félög urðu gjald­þrota og kröfu­hafar töp­uðu miklum fjár­hæðum og hlut­hafar Lands­bank­ans og Straums Fjár­fest­inga­banka töp­uðu öllu sínu hlutafé en tugir þús­unda Íslend­inga voru hlut­hafar í umræddum félögum Björgólfur eldri lýsti sig gjald­þrota árið 2009 og var það eitt stærsta per­són­lega gjald­þrot Evrópu á sínum tíma. Alls var lýst kröfum upp á 85 millj­arða króna í bú Björg­ólfs eldri, en kröfu­hafar fengu aðeins 35 millj­ónir greiddar upp í lýstar kröfur eða 0.04%. Staða Björg­ólfs Thors var öllu flókn­ari og tók nokkur ár að vinna úr skuldum hans. Sjálfur lýsti hann því að per­sónu­legt tjón hans vegna hruns banka­kerf­is­ins hafi numið nærri 100 millj­örðum króna. Ætla má að fjár­hags­legt tap ann­arra hlut­hafa og kröfu­hafa í skráðum félögum í hans eigu, þ.m.t. Lands­banki Íslands, Eim­skipa­fé­lag Íslands og Straumi Fjár­fest­inga­banka hafi numið hund­ruðum millj­arða króna. Skuldir félaga honum tengdum voru marg­falt hærri en nú, 10 árum síðar, er Björgólfur Thor aftur kom­inn í hóp rík­ustu manna heims og hafa tugi millj­arða afskriftir félaga í hans eigu ekki bein áhrif á hann.

Hátt fall og upprisa

Árið 2007 ákveður Björgólfur Thor að kaupa út alla hlut­hafa lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Actavis og fékk til þess 4 millj­arða evra lán frá Deutsche Bank. Lánið stóð í 5,8 millj­örðum kóna árið 2009 en fall íslenska fjár­mála­kerf­is­ins þýddi að Björgólfur Thor var kom­inn í afar þrönga stöðu. Við tók afar flókin skulda­úr­lausn því ekki ein­göngu var fjár­hags­leg fram­tíð Björg­ólfs Thors í húfi, heldur hefði þýski bank­inn tapað millj­örðum evra ef Actavis hefði orðið ógjald­fært. Nið­ur­staðan varð sú að Deutsche Bank tók Actavis yfir sam­hliða því sem unnið var að skulda­upp­gjöri við þýska bank­ann. Í apríl 2012 var svo til­kynnt að lyfja­fyr­ir­tækið Watson hefði eign­ast Actavis og átti það stóran þátt í skulda­upp­gjöri Björg­ólfs við Deutsche Bank.

„Allar skuldir greiddar“

Það er svo í ágúst 2014 sem Björgólfur Thor sendir frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hann til­kynnir að skulda­upp­gjöri hans og Novators, fjár­fest­inga­fé­lags hans, sé að fullu lokið. Alls hafi hann greitt 1.200 millj­arða króna til lán­ar­drottna, þar af 100 millj­arða til íslenskra banka og dótt­ur­fé­laga þeirra. Í þessu ferli hafi nán­ast allt verið sett að veði, svo sem hús­eignir hans í Reykja­vík og á Þing­völlum hans, einka­þotan og snekkjan.

„Ég var alla tíð ákveð­inn í að ganga frá upp­gjör­inu með sóma,“ sagði Björgólfur Thor í yfir­lýs­ingu sem gefin var út á þeim tíma. „Til að svo mætti verða þurfti mikla og þrot­lausa vinnu til að hámarka virði þeirra eigna sem lágu til grund­vallar upp­gjör­inu. Þegar til­kynnt var um upp­gjör mitt í júlí 2010 kom fram að skuldir myndu verða gerðar upp að fullu og ekki gefnar eftir. Við það hef ég staðið.“ Fjár­hags­legar afskriftir félaga í hans eigu virð­ast haldið utan við þetta „heild­ar­upp­gjör“ Björg­ólfs Thors líkt og 70 millj­arða króna afskrift kröfu­hafa Samson sýnir.

Óhætt er að segja að síðan þá hafi hagur Bjögólfs Thors vænkast. Hann hefur hagn­ast á hlutum sínum í lyfja­geir­anum, virði pólska fjar­skipta­fyr­ir­tæk­is­ins Play hefur auk­ist mjög og á dög­unum var til­kynnt að Novator muni hagn­ast um allt að 20 millj­arða króna við sölu á tölvu­leikja­fram­leið­and­anum CCP til suður-kóreska fyri­tæk­is­ins Pearl Abbys.

Umsvif Björg­ólfs Thors á Íslandi eru jafn­framt þónokkur. Þannig er hann eða félög honum tengd með eign­ar­hluti í gagna­veri Verne Global og verk­taka­fyr­ir­tæk­inu Arn­ar­hvoli ehf. Þá hefur auð­mað­ur­inn verið orð­aður við Grósku hug­mynda­hús, Ásbrú ehf., flug­fé­lagið Wow air ehf. og lán­veit­ingar til Frjálsrar fjöl­miðl­unar ehf., útgef­anda DV, svo fáein dæmi sé nefnd.

Björgólfur Thor er aftur kom­inn á lista Forbes yfir rík­ustu menn heims. Tíma­ritið metur eignir hans á 1,8 millj­arða doll­ara og segir þar að hann sé eini millj­arða­mær­ingur Íslands (í doll­urum talið). Björgólfur Thor er skráður með lög­heim­ili sitt í Bret­landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina