Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Baðherbergið innréttað – hvernig nýturðu rýmið best?

Baðherbergið innréttað – hvernig nýturðu rýmið best?
||||

Margt ber að hafa í huga þegar baðherbergi er innréttað, hvort sem verið er að gera upp gamalt baðherbergi eða innrétta í nýju húsnæði. Við viljum nýta rýmið sem best og um leið hafa það fallegt fyrir augað og gera að okkar. Við fórum á stúfana og fengum góð ráð hjá Berglindi Berndsen innanhússarkitekt en hún býr á Seltjarnarnesi og rekur sína eigin stofu á Fiskislóð 31 í Reykjavík.

Hvað hefur þú í huga þegar þú inn­réttar bað­her­bergi með nýt­ingu í huga?
„Rétt og gott skipu­lag á bað­her­bergi skiptir gríð­ar­lega miklu máli upp á nýt­ingu rým­is­ins. Opnar sturtur eða svo­kall­aðar ,,walk in“ sturtur geta látið minnstu bað­her­bergi líta stærri út en raun ber vitni. Inn­rétt­ingar með góðu og miklu skúffu­plássi búa einnig til mikla nýt­ingu og inn­felldir spegla­skápar geta látið rýmið virka stærra en það raun­veru­lega er.“

 Skiptir máli að hugsa um nota­gildið fyrst og fremst eða er það útlitið?
„Mik­il­vægt er að leggja áherslu á þæg­indi og nota­gildi svo rýmið njóti sín til hins ýtrasta en þetta helst allt í hendur. Það er ekk­ert gaman að hanna fal­legt bað­her­bergi ef nota­gildið er ekki til staðar og öfugt.“

 Hvernig hugsar þú efn­is­val fyrir bað­her­bergi?
„Ég leit­ast yfir­leitt við að hafa sam­ræmi í lita- og efn­isvali við það sem fyrir er í hús­inu svo fal­legt flæði skap­ist á milli rýma og sér­stak­lega ef ég sé um heild­ar­hönnun heim­ilis. Ég huga alltaf að því hanna tíma­laus og ein­föld bað­her­bergi þar sem að mjúk og nátt­úr­leg paletta er ráð­andi til að skapa nota­lega og hlý­lega stemn­ingu.“

Ertu með ákveð­inn gát­lista sem vert væri fyrir fólk að fara yfir þegar það ákveður að end­ur­nýja bað­her­bergi eða er að hanna/skipu­leggja nýtt?  
„Aðallega þarf að huga vel að þæg­indum og nota­gildi rým­is­ins. Stærð sturtu spilar þar stórt hlut­verk, skápa­pláss og góð vinnu- og stemn­ings­lýs­ing. Hafa ber einnig í huga að þessar fram­kvæmdir taka mik­inn tíma, yfir­leitt mun meiri en áætlað er í upp­hafi og þetta er dýr fram­kvæmd. Það þarf því að und­ir­búa svona verk vel. Ég er á því að við arki­tektar getum sparað fólki mik­inn tíma og mikla fjár­muni með betri hönnun og nýt­ingu.“

Berglind nefnir einnig að vinnu- og stemn­ing­lýs­ing skipti máli
„Góð vinnu- og stemn­ings­lýs­ing skiptir einnig gríð­ar­lega miklu máli við hönnun bað­her­bergja til að skapa réttu stemn­ing­una. Einnig skiptir miklu máli að vera í góðu sam­bandi við verk­kaupa og alla þá sem að verk­inu koma og að algjört traust ríki á milli allra aðila svo loka­nið­ur­staðan verði sem jákvæð­ust.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina