Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hver verður næsti forstjóri Icelandair?

Hver verður næsti forstjóri Icelandair?
|||||
Björgólfur Jóhanns­son.

Björgólfur Jóhanns­son til­kynnti það í vik­unni að hann væri hættur sem for­stjóri Icelandair. Kom til­kynn­ingin í kjöl­far nýrrar afkomu­spár félags­ins, en hún lækk­aði frá því sem áður var. Í til­kynn­ing­unni sagði Björgólfur að ákvarð­anir sem hafi valdið félag­inu fjár­hags­legu tjóni hafi verið teknar á hans vakt, þar með talið breyt­ingar á leið­ar­kerfi Icelandair. Því hafi hann tekið þá ákvörðun að segja starfi sínu lausu.

Mikið hefur verið fjallað um erf­ið­leika íslensku flug­fé­lag­anna tveggja, Icelandair og WOW air, síð­ustu vikur, en gengi bréfa í Icelandair Group hríð­féllu eftir að ný afkomu­spá var birt og Björgólfur til­kynnti upp­sögn sína.

Íslensku flug­fé­lögin: Of stór til að falla

Bogi Nils Bogason.

Bogi Nils Bogason, fjár­mála­stjóri Icelandair, hefur tekið við for­stjóra­starf­inu tíma­bundið, en miklar vanga­veltur eru innan við­skipta­lífs­ins og ferða­þjón­ust­unnar, hver taki við af Björgólfi og reyni að snúa gengi fyr­ir­tæk­is­ins við. Álits­gjafar Mannlífs telja ólík­legt að Bogi verði ráð­inn for­stjóri til langs­tíma, enda hefur hver svört afkomu­við­vör­unin á fætur annarri verið birt á vakt hans sem fjár­mála­stjóra. Þó reynslu­mik­ill sé telja álits­gjafar hann mögu­lega skorta djúpa þekk­ingu á rekstr­inum til að taka við af Björgólfi.

Sagði upp í byrjun ágúst

Jón Karl Ólafsson.

Eitt nafn sem kemur upp sí og æ hjá álits­gjöfum Mannlífs er Jón Karl Ólafsson, sem varð for­stjóri Icelandair árið 2004 og síðan for­stjóri Icelandair Group á árunum 2005 til árs­loka 2007. Ku hann vera ansi lík­legur í starfið, sér­stak­lega í ljósi þess að fyrir stuttu var sagt frá upp­sögn hans sem fram­kvæmda­stjóri flug­valla­sviðs Isavia. Sú til­kynn­ing barst í byrjun ágúst, en ljóst er að það hafi verið aðdrag­andi að upp­sögn Björg­ólfs hjá Icelandair. Jón Karl er mik­ill reynslu­bolti, en hann var fram­kvæmda­stjóri Flug­fé­lags Íslands á árunum 1999 til 2004 og tók við sem for­stjóri JetX/Primera Air árið 2008. Þá hefur hann setið í stjórnum ýmissa fyr­ir­tækja og stofn­ana, meðal ann­ars Útflutn­ings­ráðs Íslands og Samtaka ativnnu­lífs­ins.

Helgi Már Björg­vins­son.

Reynslumikill og vel menntaður

Helgi Már Björg­vins­son hefur einnig verið nefndur í sömu andrá og for­stjóra­stóll­inn, en hann er í stjórn­anda­stöðu hjá Icelandair Group og sinnir meðal ann­ars verk­efnum sem koma að stefnu­mótun hjá fyr­ir­tæk­inu. Hann hefur verið lengi hjá Icelandair, allt frá árinu 1999, og hefur unnið út um allan heim fyrir fyr­ir­tækið, til dæmis sem sölu- og mark­aðs­stjóri og svæð­is­stjóri. Álits­gjafar Mannlífs eru sam­mála um að ef ákveðið verði að ráða inn­an­búð­ar­mann í for­stjóra­starfið sé Helgi Már einn vænsti kost­ur­inn. Mjög reynslu­mik­ill og vel mentn­aður, með BS í mark­aðs- og stjórn­un­ar­fræði frá háskól­anum í Suður-Karólínu og meist­ara­próf í við­skipta­fræði frá SCP-EAP European School of Mana­gement í París.

Erfitt að finna forstjóra úr ferðaþjónustunni

Halldór Benjamín Þor­bergs­son.

Álits­gjafar vefs­ins telja Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóra Samtaka atvinnu­lífs­ins, einnig góðan kost en hann starf­aði áður sem fram­kvæmda­stjóri við­skipta­þró­unar hjá Icelandair Group. Halldór er mennt­aður hag­fræð­ingur og reyndur stjórn­andi, en sumir álits­gjafar Mannlífs efast þó um að hann verði fyrir val­inu sökum lít­illar reynslu í ferða­þjón­ustu.

Í Mark­að­inum, fylgi­riti Frétta­blaðs­ins, var síðan sagt frá því að nafn Jóns Björns­sonar, for­stjóra smá­sölu­keðj­unnar Festar, væri ofar­lega á blaði þar sem hann hefði tölu­verða reynslu af því að end­ur­skipu­leggja rekstur fyr­ir­tækja. Álits­gjafar Mannlífs eru sam­mála um að Jón sé sterkur kandídat í starfið.

Álits­gjafar Mannlífs eru sam­mála um að erfitt verði fyrir Icelandair Group að finna íslenskan for­stjóra með mikla reynslu úr ferða­þjón­ustu og því gæti farið svo að leitað verði út fyrir land­stein­ana, þó álits­gjöfum finn­ist það ólík­legt. Ein­hverjir sem Mannlíf ræddi við telja lík­legt að næsti for­stjóri verði ein­hvers konar frontur fyrir fyr­ir­tækið, sem myndi þá þýða að styrkja þyrfti fram­kvæmda­stjórn fyr­ir­tæk­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina