Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kjánalegir frasar, yfirdrifinn hasar og hlægileg áhættuatriði

Kjánalegir frasar, yfirdrifinn hasar og hlægileg áhættuatriði

Tómas Val­geirs­son kvik­mynda­gagn­rýn­andi og blaða­maður deilir sínum sak­bitnu sælum með les­endum.

Spice World (1997)

Spice World er eins og svar Bret­lands við Með allt á hreinu, ekki síður í ljósi þess að báðar kvik­myndir inni­halda senur þar sem þekkt band kemst í kynni við geim­verur og gengur sögu­þráð­ur­inn ekki út á neitt nema að hafa gaman. Í Spice World er kjána­hroll­ur­inn alls­ráð­andi og leik­hæfi­leikar Krydd­pí­anna langt frá því að vera neitt til að hrópa húrra yfir (þótt hún Geri standi sig eflaust best af öllum hópnum). Sögu­þráð­ur­inn er þvældur, fárán­legur og ekki undir neinum kring­um­stæðum ætti myndin að telj­ast fólki bjóð­andi í dag. En gleði­orka stelpn­anna er hressi­lega smit­andi, and­inn svo flipp­aður, fram­vindan furðu­leg og jaðrar það við hreina dásemd að sjá fullt af frægu liði skjóta upp koll­inum í fárán­legum gesta­hlut­verkum. Og svarið er já, ég fíla tón­list­ina líka en við skulum ekki fara nánar út í það.

Never Back Down (2008)

Hvað ger­ist þegar þú end­ur­gerir The Karate Kid fyrir alda­mó­ta­kyn­slóð­ina, með MMA-slags­málum og án þess að við­ur­kenna að um end­ur­gerð sé að ræða? Never Back Down er sú mynd, en ekki nóg með það, heldur eru klisjurnar svo yfir­drifnar og margar að það mætti auð­veld­lega halda að myndin sé bein „paródía“. Hand­ritið er tóm, ólg­andi tjara og áhorf­and­inn er í hættu við það að fá alvar­legar tann­skemmdir yfir því að gnísta tönnum yfir illa skrif­uðum sam­ræðum. Never Back Down er hins vegar svo alvöru­gefin og púka­leg að hún gefur frá sér ein­hvern ljóma sem gerir hana að stór­skemmti­legum sora. Að öðru leyti eru slags­mála­sen­urnar merki­lega flottar og taka allar Karate Kid-kvik­mynd­irnar í nefið. Einnig verður að segj­ast að aðal­leik­ari mynd­ar­innar lítur ískyggi­lega mikið út eins og ungur Tom Cruise. Gefum henni prik fyrir það.

Commando (1985)

Ef þú ert að leita að horn­steini kjána­legra „eitís“-hasar­mynda, þá er Commando hættu­lega nálægt toppnum. Hún hefur allt sem þarf; kjána­lega frasa, yfir­drif­inn hasar, hlægi­leg áhættu­at­riði og ill­menni sem sigrar Freddy Mercury-tví­fara­keppn­ina. Hann „Ahnuld“ Schwarzenegger er í hörku­stuði og tekur sig alvar­lega með prýði, en það er ekki auð­velt mark­mið þegar per­sóna hans gengur undir hinu kostu­lega nafni John Matrix. Því er það ekk­ert nema garg­andi snilld að horfa á Commando í góðum félags­skap, sér­stak­lega með þeim sem hafa aldrei séð hana. Það verður hlegið fram á næsta dag. Því get ég lofað.

Blossi – 810551 (1997)

Blossi er algjört barn síns tíma, en hví­líkt barn! Myndin á sér hrein­lega engan sinn líka og er nán­ast svo rugluð og vond að hún fer heilan gæða­hring og er nálægt því að vera költ-gim­steinn fyrir vikið. Myndin er pönkuð, stefnu­laus, súr­r­eal­ísk, illa leikin niður í tær og í sjálfu sér algjört frá­vik í íslenskri kvik­mynda­gerð hvað bygg­ingu og speki varðar. Stíllinn er hraður, háfleygur og loka­at­riðin þarf nán­ast að sjá til að trúa. Það að myndin skuli ekki enn vera fáan­leg í neinu staf­rænu formi er glæpi lík­ast fyrir okkar dæg­ur­menn­ingu. Blossi má alls ekki þurrkast út úr íslenskri kvik­mynda­sögu, hvort sem við elskum hann, hötum, elskum að hata eða öfugt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina