Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Mikilvægt að okkar raddir heyrist“

Ensk-íslenska verkið (Can This Be) Home verð­launað á leik­list­ar­há­tíð í Tékk­landi.

„Mikilvægt að okkar raddir heyrist“

Ensk-íslenska verkið (Can This Be) Home hlaut í vik­unni braut­ryðj­enda­verð­launin á Fringe-leik­list­ar­há­tíð­inni í Prag og í kjöl­far þess hefur aðstand­endum sýn­ing­ar­innar verið boðið að setja verkið upp í hinu virta leik­húsi Chats Palace í London. Í sam­tali við Mannlíf seg­ist leik­stjór­inn, Kolbrún Björt Sig­fús­dóttir, vera í skýj­unum með boðið og við­ur­kenn­ing­una enda standi efn­is­viður verks­ins henni nærri. „Það er alveg frá­bært að fá þessa við­ur­kenn­ingu því við erum búin að vinna að verk­inu í tvö ár og erum að fjalla um mál­efni sem skiptir okkur miklu máli,“ segir hún og vísar þar í umfjöll­un­ar­efnið sem snýst um upp­lifun inn­flytj­enda í Bret­landi af kosn­ing­unum um Brexit. Hvernig þeir, þar á meðal hún sjálf, hafi liðið með að vera sagt óbeint að þeir ættu ekki lengur heima í Bret­landi í ljósi nið­ur­stöð­unnar.

Kolbrún segir að þetta sé reyndar ekki fyrsta útgáfa verks­ins heldur hafi það þró­ast í takt við umræð­una um Brexit-málið og því nokkrar útgáfur litið dags­ins ljós. Fyrsta útgáfan hafi orðið til áður en kosn­ingin um Brexit fór fram. Í annarri útgáfu hafi verið reynt að gera upp nið­ur­stöðu kosn­ing­anna fyrir inn­flytj­endur og þá sem kusu að halda Bret­landi innan Evr­ópu­sam­bands­ins. Þriðja hafi verið lesin á degi skyndi­kosn­ing­anna sem Theresa May boð­aði til í von um að auka stuðn­ing sinn og Brexit á þingi, sem hafi ekki gengið upp. „Nú eru svo komin tvö ár síðan það var kosið og Brexit er enn í mótun. Þess vegna fannst okkur mik­il­vægt að okkar raddir heyrð­ust, nú sem aldrei fyrr, áður en langvar­andi ákvarð­anir sem móta fram­tíð okkar eru teknar. Ætlunin með verk­inu er að tala til fólks. Fá það til að hugsa um það sem er í gangi.“

„Það er alveg frá­bært að fá þessa við­ur­kenn­ingu því við erum búin að vinna að verk­inu í tvö ár og erum að fjalla um mál­efni sem skiptir okkur miklu máli.“

Hún við­ur­kennir að vegna hins póli­tíska umfjöll­un­ar­efnis hafi aðstand­endur (Can This Be) Home alls ekki búist við að verkið ynni til verð­launa á hátíð­inni í Prag. Auk þess sé verkið langt frá því að vera hefð­bundin leik­sýn­ing. Eig­in­lega sé varla hægt að tala um leik­sýn­ingu þar sem verkið sam­an­standi af tveimur hlutum, tón­leikum flautuleik­ar­ans Tom Oakes, inn­blásnum af ferð­lögum hans um heim­inn og ljóða­upp­lestri þar sem Kolbrún flytur eigin texta, byggðan á fyrr­nefndri reynslu inn­flytj­enda af Brexit. Sigurinn hafi því komið henni og öðrum aðstand­endum sýn­ing­ar­innar skemmti­lega á óvart.

En er ekki gaman fyrir ungan leik­stjóra og leik­rita­skáld að fá svona ríf­andi start? „Jú það er voða ljúft. Það er grín­ast með það að „overn­ight success“ í Hollywood taki fimm ár. Tvö er vel sloppið,“ segir hún og bætir við að þar sem þetta sé fyrsta hand­ritið hennar sem hlýtur verð­laun þá sé þetta líka per­sónu­legur sigur.

Spurð út í fram­haldið segir hún upp­setn­ing­una í London vera næst á dag­skrá. „Við erum bara að vinna í því að finna hent­ugar dag­setn­ingar,“ segir hún glað­lega, „en þetta verður alveg geggjað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina