Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bjóst ekki við að frumsýna á Cannes

Leik­konan María Thelma fer með hlut­verk í kvik­mynd­inni Arctic á móti Mads Mikk­el­sen. Hún segir það hafa verið mikla upp­lifun að vera við­stödd frum­sýn­ingu mynd­ar­innar á kvik­mynda­há­tíð­inni í Cannes.

Bjóst ekki við að frumsýna á Cannes
||
Leik­konan María Thelma fer með veiga­mikið hlut­verk í hrak­fara­mynd­inni Arctic, en hún var við­stödd frum­sýn­ingu hennar í Cannes.

„Ég við­ur­kenni það að vera við­stödd á frum­sýn­ingu fyrstu mynd­ar­innar sem maður leikur í og það á stærstu og virt­ustu kvik­mynda­há­tíð heimi var alveg grá­magnað. Mér þótti vænt um að hitta alla sem komu að gerð hennar eftir allan þennan tíma og svo var auð­vitað spenn­andi að sjá loks­ins loka­út­kom­una á hvíta tjald­inu eftir alla vinn­una sem fór í hana,“ segir María Thelma, þegar hún er spurð hvernig til­finn­ing hafi verið að vera við­stödd frum­sýn­ingu mynd­ar­innar á Cannes í Frakk­landi nú á dög­unum.

Arctic, sem flokk­ast sem svokölluð hrak­fara­mynd, fjallar um mann sem verður stranda­glópur á Norð­ur­skaut­svæð­inu eftir hræði­legt flug­slys. Hann telur sig vera hólp­inn þegar þyrla er send honum til bjargar en hlut­irnir fara öðru­vísi en á horfir og við tekur ófyr­ir­sjá­an­leg atburða­rás. Það er eng­inn annar en danski stór­leik­ar­inn Mads Mikk­el­sen sem fer með aðal­hlut­verkið en íslenskir áhorf­endur ættu að kann­ast við hann úr kvik­myndum á borð við Jagten, Rogue One og Casino Royale. María Thelma fer með veiga­mikið hlut­verk í mynd­inni en kveðst ekki geta rætt per­sónu sína að neinu ráði nema ljóstra upp sögu­þræð­inum. „Það litla sem ég get sagt er að við fáum ekki að vita mikið um per­són­urnar, það er lítið talað og nán­ast engin baksaga. Við fáum varla að vita hvað per­són­urnar heita. Áherslan er á hvernig þeim gengur að reiða sig af í þessum „absúrd“ og hræði­legu aðstæðum.“

„Mads var algjör­lega laus við hroka. Mætti mér alltaf á jafn­ingja­grund­velli, virti mínar skoð­anir á verk­efn­inu og bar mikla virð­ingu fyrir minni vinnu og mér þótti ofboðs­lega vænt um það.“

Laus við stjörnustæla

Spurð hvort hún hafi verið stressuð fyrir að leika á móti stór­stjörnu eins og Mikk­el­sen hristir María Thelma höf­uðið og seg­ist ekki hafa haft neinar fyrir fram hug­myndir eða skoð­anir á leik­ar­anum áður en tökur hófust. Hins vegar hafi munað öllu hvað hann hafi verið jarð­bund­inn og þægi­legur í sam­skiptum. „Mads var algjör­lega laus við hroka. Mætti mér alltaf á jafn­ingja­grund­velli, virti mínar skoð­anir á verk­efn­inu og bar mikla virð­ingu fyrir minni vinnu og mér þótti ofboðs­lega vænt um það. Sam­starfið ein­kennd­ist af ein­stak­lega góðu trausti og skil­yrð­is­lausri virð­ingu. Það var bara æðis­legt að vinna með honum, alveg ótrú­lega góð og jákvæð reynsla. Við náðum mjög vel saman og urðum góðir félagar,“ segir hún og bætir við að það hafi auð­veldað svo­lítið vinn­una því tök­urnar, sem fóru fram við Nesja­velli og Fells­enda­vatn skammt frá Þór­is­vatni í apríl í fyrra og stóðu yfir í 19 daga, hafi verið strembnar og töku­dag­arnir frekar ófyr­ir­sjá­an­legir. „En við Mads fórum vel yfir hand­ritið og vorum stöðugt að minna hvort annað á hvaða sögu við værum að segja og pæla í því hvernig við gætum gert sen­unar sterk­ari,“ segir María sem á meðal ann­ars að baki hlut­verk í sjón­varps­þátt­unum Föngum og nokkrum stutt­myndum, auk þess sem hún starfar um þessar mundir í Þjóð­leik­hús­inu.

Ánægð með viðtökurnar

Þrátt fyrir að hafa landað hlut­verk­inu í Arctic má segja að María Thelma sé enn að stíga sín fyrstu spor í brans­anum. Hún útskrif­að­ist af leik­list­ar­braut Lista­há­skóla Íslands 2016 en seg­ist þó ekki alltaf hafa ætlað að verða leik­kona og hafi í raun ekki leitt hug­ann að því fyrr en í fram­halds­skóla. „Ég sá aldrei fyrir mér að ég ætti eftir að verða leik­kona. það var ekki fyrr en að ég byrj­aði á leik­list­ar­braut í FG þegar ég var 16 ára sem ég ákvað fyrst að leggja leik­list­ina fyrir mig og ég hef ekki litið um öxl síðan.“

Arctic, sem flokk­ast sem svokölluð hrak­fara­mynd, fjallar um mann (Mads Mikk­el­sen) sem verður stranda­glópur á Norð­ur­skaut­svæð­inu eftir hræði­legt flug­slys. Pegasus og Einar Þor­steins­son kvik­mynda­gerð­ar­maður í Los Angeles eru á meðal fram­leið­enda mynd­ar­innar, en ekki liggur ljóst fyrir hvenær hún verður sýnd á Íslandi.

Hvað var það eig­in­lega við leik­list­ina sem heill­aði? „Ég hef nú gaman af flestum list­forum,“ svarar hún hugsi, „en ætli leik­listin sé bara ekki það list­form sem mér finnst kom­ast næst kjarna hins mann­lega eðlis.“

En skyldi það hafa ein­hvern tíma hafa hvarflað að henni þegar hún var í námi í leik­list­inni að einn góðan veð­ur­dag ætti hún eftir að standa á rauða dregl­inum í Cannes. „Nei, ég velti því ekki einu sinni fyrir mér að ég ætti eftir að vinna eitt­hvað sér­tak­lega í erlendum kvik­myndum,“ segir hún og hlær. „Hvað þá að ég kæmi til með að frum­sýna mínu fyrstu bíó­mynd á stærstu og virt­ustu kvik­mynda­há­tíð í heimi.“

Arctic hefur almennt hlotið góða dóma og er til að mynda fullt hús stiga eða 100 pró­sent á kvik-mynda­síð­unni Rotten Tomatoes. Sjálfri fannst Maríu Thelmu svo­lítið erfitt að njóta mynd­ar­innar til fulln­ustu á frum­sýn­ing­unni því hún var stöðugt að spá í hvers vegna sumum atriðum var sleppt og öðrum bætt við og fleiru í þeim dúr. Hún þurfi því eig­in­lega að sjá hana aftur til að geta myndað sér skoðun á henni. „Ég er samt mjög stolt af henni,“ tekur hún ákveðin fram. „Og ánægð með við­tök­urnar.“

Þegar leik­konan unga er spurð hvaða verk­efni séu síðan fram undan verður hún hins vegar svo­lítið dul. „Það er margt spenn­andi í gangi. En eins og staðan er þá er of snemmt að segja frá því strax.“

Aðalmynd: Mads og María Thelma náðu vel saman á meðan tökum stóð og eru góðir félagar í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina