Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ritskoðuð í Íran en sýnir nú á Listahátíð í Reykjavík

Ritskoðuð í Íran en sýnir nú á Listahátíð í Reykjavík
||

„Ég hef fengið sterk við­brögð frá áhorf­endum þar sem ég hef sýnt verkið hingað til, en ég hef þegar sýnt yfir 30 sýn­ingar í ólíkum löndum. Það er ótrú­lega gaman og mik­ill heiður að vera boðið að sýna á Lista­há­tíð í Reykja­vík. Ég tel að verkið eigi ekki síður erindi til Íslend­inga frekar en ann­arra. Við­fangs­efnið snertir okkur öll og ég hlakka til þess að heyra við­brögðin hér,“ segir dans­ar­inn og dans­höfun­ur­inn Bára Sig­fús­dóttir. Hún sýnir verkið The Lover á Lista­há­tíð í Reykja­vík dag­ana 7. og 8. júní í Tjarn­ar­bíói.

„The Lover er sjón­rænt verk þar sem hreyf­ingar, ljós­myndir, lýs­ing og tón­list tvinn­ast saman í heild­ræna upp­lifun. Verkið er hug­leið­ing um sam­band manns­ins og nátt­úr­unnar, hvernig mann­eskjan býr í nátt­úr­unni og hvernig nátt­úran býr í mann­skepn­unni. Hvernig mað­ur­inn og jörðin bæði skapa og eyða,“ segir Bára, sem raðar í kringum sig fag­mönnum til að gera sýn­ing­una sem áhrifa­mesta.

„Ég er ein á svið­inu ásamt mik­il­feng­legri sviðs­mynd sem að umbreyt­ist á tákn­rænan hátt á meðan á verk­inu stendur. Sviðs­myndin er unnin af franska ljós­mynd­ar­anum Noémie Goudal og belgíska arki­tektnum Jeroen Verrecht/ 88888. Tón­listin er samin af íslenska tón­list­ar­mann­inum Borko.“

Hlaut Circuit X verðlaunin

The Lover var upp­haf­lega frum­sýnt á fimm­tíu ára afmæl­is­há­tíð Beursschouwburg leik­húss­ins í Brussel á PERFORMATIK tví­ær­ingnum í mars árið 2015. Í fram­hald­inu hefur Bára flakkað um heim­inn og sýnt verkið til að mynda í Hollandi, Tékk­landi, Danmörku og Belgíu, en Bára hefur verið búsett í síð­ast­nefnda land­inu síð­ustu tíu árin. Þá hlaut The Lover Circuit X verð­launin í Belgíu og Hollandi árið 2015 og var til­nefnt til hinna virtu Roel Vernier verð­launa fyrir sviðs­listir í Belgíu. Bára er glöð með þessar góðu við­tökur.

„Það er mjög gaman þegar að gengur vel því þá gef­ast fleiri tæki­færi til þess að sýna verkið. Circuit X verð­launin veittu sýn­ing­unni til dæmis tæki­færi á því að ferð­ast mikið í Belgíu og Hollandi. Maður veit aldrei hvernig mun ganga þegar að maður byrjar að vinna að nýju verk­efni, enda held ég að vel­gengni ætti ekk­ert endi­lega að vera mark­mið í sjálfu sér þó að auð­vitað vilji maður vinna hlut­ina vel. Mik­il­væg­ast er að finna hug­mynd­inni þann far­veg sem að hún krefst. Við sköpun The Lover þá gekk það far­sæl­lega, en auð­vitað liggur samt sem áður margra mán­aða vinna að baki í sköp­un­ar­ferl­inu,“ segir Bára.

Þurfti að breyta nafninu á The Lover

Þessi hæfi­leik­a­ríki dans­ari hefur verið við­loð­inn írönsku dans­sen­una síðan árið 2014 og hefur meðal ann­ars sýnt The Lover í Íran.

„Mér var upp­haf­lega boðið að sýna verk á „underground“ sam­tíma­dans­há­tíð í Tehran sum­arið 2014. Í þeirri ferð kynnt­ist ég bæði ynd­is­legu og áhuga­verðu fólki sem er ástæðan fyrir því að ég varð síðar meir hluti af dans­sen­unni þar,“ segir Bára en dans­senan í Íran er mjög frá­brugðin því sem við Íslend­ingar eigum að venj­ast.

Bára ásamt dönsur­unum Masoumeh Jalalieh og Alireza Mir­mo­hammadi í Íran.

„Danslist í Íran hefur verið opin­ber­lega bönnuð síðan 1979 þegar íranska bylt­ingin átti sér stað. Dans­lista­menn þar tala reyndar oft­ast um að vinna með „hreyf­ingar“ frekar en „dans“, sem ég hef sjálf byrjað að gera í auknum mæli því þegar maður talar um dans þá hefur fólk oft tak­mark­aðar hug­myndir um hvað maður sé að vinna við. Dans getur verið svo rosa­lega margt og list­formið er mjög fjöl­breyti­legt. Dans í Íran fer yfir­leitt fram fyrir huldum dyrum. Þegar maður vill sýna opin­ber­lega þá þurfa verk að ganga í gegnum rit­skoðun,“ segir hún. En hefur hún sjálf lent í rit­skoðun á sínum verkum?

„Ég hef þrisvar sýnt opin­ber­lega, og meðal þeirra verka er The Lover, en þá þurfti ég til dæmis að breyta titl­inum á verk­inu í Náttúra.“

Bára er nýkomin heim frá Íran þar sem hún frum­sýndi tvö ný verk og segir lær­dóms­ríkt að hafa kynnst menn­ingu og listum í land­inu.

„Það er oft­ast upp­selt á bæði dans- og leik­list­ar­sýn­ingar í Tehran og færri sem kom­ast að en vilja. Lista­senan sem slík er mjög áhuga­verð og fer vax­andi. Í fyrra vann ég verk með tveimur írönskum dönsurum, Masoumeh Jalalieh og Alireza Mir­mo­hammadi. Við ákváðum meðal ann­ars að rann­saka hreyfi­efni lík­am­ans innan ríkj­andi rit­skoð­unar og úr varð áhuga­vert vinnu­ferli sem við lærðum öll mikið af. Við vorum einmitt að frum­sýna það verk í Íran í Tehran og Sari núna í Maí. Það gekk vel og við fengum góð við­brögð hjá áhorf­endum. Fréttir í fjöl­miðlum um aðra heims­hluta, og í raun­inni alls staðar, eru ein­ungis brot af þeim raun­veru­leika sem á sér stað. Ég tel mik­il­vægt að vera með­vituð um hversu mikið við erum öll lituð af eigin for­sendum og vænt­inum. Það hefur verið lær­dóms­ríkt að fá snef­il­þef af því hvernig það er að koma frá landi sem er stöðugt málað sem fram­andi í okkar Vestur-Evrópsku menn­ingu. Ekkert er ein­ungis svart og hvítt.“

Einbeitir sér að vinnu á listamannalaunum

Eins og áður segir hefur Bára verið búsett í Belgíu í ára­tug og unnið sem dans­ari og dans­höf­undur. Hún unir sér vel þar og segir starfs­um­hverfi fyrir dans­ara betra þar en á Íslandi.

„Sviðs­lista­senan í Belgíu er spenn­andi og fjöl­breyti­leg. Þar eru mörg leik­hús og lista­menn­irnir sem starfa þar koma alls staðar að úr heim­inum. Ég hef hlotið lista­manna­laun þar til lengri tíma, en slíkt fyr­ir­komu­lag er til dæmis ekki í boði á Íslandi. Í Belgíu fæ ég einnig greidd laun fyrir þá daga mán­að­ar­ins sem að ég er ekki þegar á launum í vinnu­stofum, eða við sýn­ingar. Það er gríð­ar­lega mikil vinna og langur tími sem fer í hug­mynda­vinnu, umsókn­ar­ferli og svo allt skipu­lagið í kringum bæði vinnu­stofur og sýn­ingar. Lista­manna­launin gera mér kleift að ein­beita mér 100% að minni vinnu og koma mun meiru í verk en ann­ars væri mögu­legt,“ segir hún og bætir við að hún sjái ekki fyrir sér að flytja aftur til Íslands í bráð.

The Lover er sjón­rænt verk þar sem hreyf­ingar, ljós­myndir, lýs­ing og tón­list tvinn­ast saman í heild­ræna upp­lifun.

„Í augna­blik­inu kemur það ekki til greina. Það er dýrt að búa á Íslandi í dag og ég veit hrein­lega ekki hvernig ég ætti að fara að því að starfa við það sem ég geri ásamt því að ná endum saman í hverjum mán­uði. En það er aldrei að vita hvað fram­tíðin ber í skauti sér. Ég held teng­ing­unni við landið í gegnum fjöl­skyldu, vini, fréttir, listir og hlað­vörp. Ég elska að hlusta á íslenskt útvarp í eld­hús­inu mínu úti í Brussel, en þætt­irnir Í ljósi sög­unnar, Segðu mér og Aðförin eru í miklu upp­á­haldi.“

Draumurinn að minnka vistsporið

Bára hefur afrekað margt á ferl­inum þannig að það liggur bein­ast við að spyrja hver draum­ur­inn sé í dag. Það stendur ekki á svör­unum hjá okkar konu.

„Draum­ur­inn minn í dag er að vinna meira stað­bundið og minnka vistsporið mitt. Ég hef helgað þetta ár í rann­sókn­ar­vinnu fyrir ný verk­efni, þó ég haldi einnig áfram að sýna eldri verk. Því fylgir ábyrgð að ferð­ast. Ég vil í raun­inni ferð­ast minna og frekar dvelj­ast lengur þangað sem ég fer, til dæmis með því að reyna að sam­tvinna sýn­ingar með vinnu­stofum, kennslu og/eða fyr­ir­lestrum. Ég er með­vituð um að annað sé ekki sjálf­bært til fram­tíðar í stærra sam­hengi þar sem lofts­lags­breyt­ingar í heim­inum eru stað­reynd sem við þurfum að takast á við í sam­ein­ingu.“

Aðalmynd / Jolien Naeyaert
Mynd úr The Lover / Leif Firn­haber
Mynd frá Íran / Úr einka­safni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina