Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Ég rek ekki mína pólitísku stefnu“

Svan­hildur Hólm Vals­dóttir, aðstoð­ar­maður fjár­mála­ráð­herra, heldur mörgum boltum á lofti. Auk þess að vera í krefj­andi og tíma­freku starfi hefur hún nýlokið MBA-gráðu við Háskól­ann í Reykja­vík eftir tveggja ára nám sem hún stund­aði sam­hliða starf­inu og rekstri stórs heim­ilis.

„Ég rek ekki mína pólitísku stefnu“
||||
„Ég er að vinna fyrir fólk sem er í póli­tík og það vill svo heppi­lega til að ég deili ein­hverjum grund­vall­ar­gildum með fólk­inu sem ég vinn fyrir, en ég hef aldrei litið þannig á það að ég sjálf sé í póli­tík. Ég rek ekki mína póli­tísku stefnu.“

„Ég er bara vel gift,“ segir Svan­hildur, spurð að því hver sé lyk­ill­inn að því að láta þetta allt saman ganga upp og vísar þar til eig­in­manns síns, Loga Bergmann Eiðs­sonar fjöl­miðla­manns. Svan­hildur átti sjálf glæstan feril í fjöl­miðlum áður en hún söðl­aði um árið 2009 og gerð­ist fram­kvæmda­stjóri þing­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins og síðar aðstoð­ar­maður Bjarna Bene­dikts­sonar. Hvað kom til að hún tók þá ákvörðun að breyta algjör­lega um starfs­vett­vang?

„Ég hætti á Stöð 2 vet­ur­inn 2008-2009 og fór þá í leyfi til að ljúka námi í lög­fræði. Þegar því var lokið átt­aði ég mig á því að mig lang­aði ekki að fara aftur í fjöl­miðlaum­hverfið. Það var ekki mjög spenn­andi á þeim tíma, rétt eftir hrun, þegar and­rúms­loftið var þannig að ef maður var ekki að lemja fólk með nagla­spýtu í beinni þá var maður ekki að vinna vinn­una sína.“

Svan­hildur dregur við sig svarið þegar hún er spurð hvort hún hafi alltaf verið póli­tísk.
„Ég hef alltaf haft mik­inn áhuga á þjóð­málum,“ segir hún. „Ég man eftir því að hafa verið í fyrsta bekk í mennta­skóla að hnakk­ríf­ast við bekkj­ar­fé­laga minn sem var mik­ill fram­sókn­ar­maður af Norð-Vest­ur­landi. Við vorum alls ekki sam­mála um land­bún­að­ar­stefn­una á þeim tíma og mig minnir að við höfum verið að ríf­ast um ein­hverja frí­versl­un­ar­samn­inga. En ég tók ekki þátt í neinu flokks­starfi fyrr en ég var að ljúka mennta­skól­anum. Svo kemur lífið fyrir mann og ég átt­aði mig á því að ég hafði meiri áhuga á því að vinna á fjöl­miðlum og vera þeim megin við borðið, heldur en að vera í póli­tík­inni.“

„Ég hef alveg skoð­anir og ég reyni að hafa áhrif, eins og fólk gerir yfir­leitt. Ég segi það sem mér finnst um hlut­ina en á end­anum er ég að vinna fyrir ein­hvern sem er sjálfur kjör­inn full­trúi og ber á ábyrgð á þeim verkum sem hann ákveður að koma í fram­kvæmd.“

Lífs­gildin hægra megin
Svan­hildur seg­ist alltaf hafa verið sjálf­stæð­is­kona. „Já, mín lífs­gildi eru bara þar,“ segir hún ákveðin. „Þau eru hægra megin í líf­inu, þótt Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sé reyndar merki­leg blanda af þess­ari mark­aðs­drifnu hugsun og mjög mik­illi vel­ferð­ar­stefnu. Fólki finnst það örugg­lega hljóma ofsa­lega furðu­lega, en ég veit ekki um aðra flokka sem telj­ast til hægri flokka sem eru jafn­mikið í því að tala fyrir og fram­kvæma í rík­is­styrktum vel­ferð­ar­málum.“

Spurð hvort póli­tík hafi verið mikið rædd á heim­ili hennar þegar hún var að alast upp segir Svan­hildur að  hún hafi ekki upp­lifað það sem póli­tíska umræðu á þeim tíma en allir hlutir sem skipta máli hafi alltaf verið mikið ræddir á heim­ili for­eldra hennar.
„Mamma og pabbi hafa áhuga á öllu mögu­legu og það þótti bara eðli­legt ég læsi öll dag­blöð alveg frá því að ég lærði að lesa, fimm ára gömul. Ég er alin upp í sveit og las allt sem ég náði í, þar á meðal dag­blöðin og Familie Journal og Andrés Önd á dönsku. Maður las bara allt les­efni sem maður fann og mamma og pabbi voru mjög dug­leg að ræða hlut­ina við mann. Það er mjög fínt vega­nesti og það er ennþá þannig að mér líður stundum eins og ég sé í við­tali þegar mamma og pabbi koma í bæinn og fara að spyrja mig út í hlut­ina. Það eru allir hlutir ræddir og ég held að það sé bara mjög normalt á hverju heim­ili.“

„Ég hef tak­markað þol fyrir netrifr­ildum, forð­ast fjöl­menni ef ég get og manna­mót vaxa mér oft í augum. Ég á ekki í neinum vand­ræðum með að tala fyrir framan fólk og svo­leiðis, en ég er hræði­lega léleg í „smalltalki“,“ segir Svan­hildur.

Ástæða fyrir að fólk er pirrað
En þið Logi, eruð þið alltaf sam­mála um póli­tík­ina? „Ég ætla nú ekki að fara að tala fyrir Loga,“ svarar Svan­hildur og hlær. „Við erum oft sam­mála þótt við séum ekk­ert alltaf nákvæm­lega á sama máli, en það veldur engum vand­kvæðum í sam­band­inu. Við erum bara mjög heppin með það að geta rætt alls konar hluti, hvort sem þeir snerta póli­tík eða fjöl­miðla eða hvað sem er. Þetta eru okkar ær og kýr, þjóð­mál og fjöl­miðlar eru það sem við höfum lifað og hrærst í eig­in­lega síðan við fórum út á vinnu­mark­að­inn.“

Svan­hildur og Logi eru bæði þjóð­þekktir ein­stak­lingar og oft milli tann­anna á fólki, hvernig gengur að takast á við það?
„Veistu það að ég finn bara ekk­ert fyrir því,“ segir Svan­hildur. „Ég skil aldrei þessar spurn­ingar um það að vera á milli tann­anna á fólki því ég ein­fald­lega spái ekk­ert í það og er ekk­ert mikið að leggja mig eftir því. Mér finnst líka fólk almennt vera frekar kurt­eist í sam­skiptum og ef það bregst þýðir það yfir­leitt bara að fólk hefur farið eitt­hvað öfugt fram úr rúm­inu þann dag­inn. Það er yfir­leitt hægt að tala við alla og mér finnst þetta ekki vera neitt sér­stakt vanda­mál. Fólk getur alveg haft mjög ein­dregnar skoð­anir á alls konar hlutum en þá getur maður líka svarað því. Stundum vantar fólk ein­fald­lega upp­lýs­ingar eða það er búið að vera að rekast með ein­hver mál í kerf­inu í of langan tíma og þarf bara smá­vegis hjálp. Það er oft inni­stæða fyrir því að fólk er pirrað.“

Rek ekki mína pólitísku stefnu

Svan­hildur hefur starfað fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn í níu ár og hefur í umræð­unni oft verið orðuð við fram­boð fyrir flokk­inn, er hún eitt­hvað farin að velta fyrir sér eigin póli­tískum ferli?
„Nei, mér finnst ekki fara saman að vera aðstoð­ar­maður ráð­herra og vera með eigið póli­tískt agenda,“ segir hún. „Ég er alla­vega ekki farin í fram­boð ennþá þótt það sé búið að vera nóg af kosn­ingum síð­ustu ár.
Ég vinn fyrir fólk sem er í póli­tík og það vill svo heppi­lega til að ég deili ein­hverjum grund­vall­ar­gildum með fólk­inu sem ég vinn fyrir, en ég hef aldrei litið þannig á það að ég sjálf sé í póli­tík. Ég rek ekki mína póli­tísku stefnu. Ég hef alveg skoð­anir og ég reyni að hafa áhrif, eins og fólk gerir yfir­leitt. Ég segi það sem mér finnst um hlut­ina en á end­anum er ég að vinna fyrir ein­hvern sem er sjálfur kjör­inn full­trúi og ber á ábyrgð á þeim verkum sem hann ákveður að koma í fram­kvæmd.“

Lokar sig inni á klósetti

Nú er Svan­hildur farin að tala eins og stjórn­mála­maður í stað þess að svara spurn­ing­unni, langar hana til að leggja stjórn­mál fyrir sig sem atvinnu í fram­tíð­inni?
„Þegar ég var sextán ára að ríf­ast við þennan fram­sókn­ar­mann, vin minn, þá fannst mér alveg frá­bær hug­mynd að verða til dæmis for­sæt­is­ráð­herra. Með aldr­inum hef ég kannski orðið minna spennt fyrir því. Ég lít þannig á að það að fara í fram­boð sé mjög stór ákvörðun og mér finnst að mann megi eig­in­lega ekki langa meira til neins í heim­inum en að bjóða sig fram ef maður gerir það. Þetta er ekki bara starf, þetta er lífs­stíll og yfir­tekur allt, alla dag­skrá og fjöl­skyldu­líf og sam­skipti við vina­hópa. Það eru svo margir í kringum mig sem eru í póli­tík eða hafa verið í póli­tík og hafa jafn­vel hætt í póli­tík þannig að ég er búin að sjá allar hliðar á þessu og þetta er ekk­ert venju­legt starf. Þegar maður sér fram á það að fá inn­an­tökur ef maður er ekki í fram­boði er held ég kom­inn rétti tím­inn til að gera það, en þangað til maður er nán­ast til­bú­inn til þess að henda öllu frá sér þá á maður ekki að fara í þetta starf. Þetta er svona „sjáðu mig, sjáðu mig!“-umhverfi og fólk þarf helst að vera eins og gang­andi aug­lýs­inga­skrif­stofa, með stöðuga virkni á sam­fé­lags­miðlum og alltaf til­búið í allt. Ég hef tak­markað þol fyrir netrifr­ildum, forð­ast fjöl­menni ef ég get og manna­mót vaxa mér oft í augum. Ég á ekki í neinum vand­ræðum með að tala fyrir framan fólk og svo­leiðis, en ég er hræði­lega léleg í „smalltalki“. Ég er meira inn­hverf en úthverf og sæki þess vegna orku í ein­veru. Þegar mest var að gera á síð­ustu árum, í vinn­unni, skól­anum og á heim­il­inu átt­aði ég mig á því að ég var stundum farin að loka mig inni á kló­setti, bara til að fá smá frið. Ég á mjög góðar vin­konur sem ég deili flestu með og þegar ég sagði þeim frá þessu komst ég að því að þetta var eitt­hvað sem þær könn­uð­ust margar við. Bara að ná nokkrum mín­útum með sjálfri sér, hvort sem er heima eða utan heim­ilis.“

„Ég skil aldrei þessar spurn­ingar um það að vera á milli tann­anna á fólki því ég ein­fald­lega spái ekk­ert í það og er ekk­ert mikið að leggja mig eftir því.“

Samtalið bein­ist að þeirri umræðu að það sé miklu erf­ið­ara fyrir konur að kom­ast áfram í póli­tík, ekki síst innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins, er það upp­lifun Svan­hildar?
„Ég ætla ekk­ert að fara að dæma aðra flokka,“ segir hún. „En mér hefur ekki sýnst það eitt­hvað sér­stak­lega erfitt að vera kona í Sjálf­stæð­is­flokknum. Við erum til dæmis með tvær frá­bærar konur í for­ystu. Stundum hefur nið­ur­staða próf­kjöra verið alla­vega en það hefur að mínu áliti verið rætt kerf­is­bundið um það innan flokks­ins og reynt að taka á því og mér finnst það ekki hafa verið sama vanda­málið núna og stundum áður í kosn­ingum. Ég held að starfs­um­hverfið sé ekk­ert endi­lega erf­ið­ara fyrir konur, en það er hins vegar þannig að fólk sem ekki er til­búið til að vera á vakt­inni meira og minna allan sól­ar­hring­inn og láta starfið alltaf ganga fyrir á erfitt með það. Stjórn­mála­starf þvælist dálítið fyrir fólki sem er ekki til­búið að gift­ast vinn­unni sinni. Ég held að núorðið gildi það nokkuð jafnt um konur og karla.“

Ýmislegt verið mjög óviðeigandi

Svan­hildur er orðin hund­leið á þessum spurn­ingum mínum um póli­tík, lái henni hver sem vill, og við snúum tal­inu að kvenna­bylt­ing­unum marg­um­töl­uðu og hvaða áhrif hún telur að þær muni hafa til fram­búðar.
„Ég held að þær muni hafa var­an­leg áhrif,“ segir hún. „Þegar þú ferð að sjá heild­ar­mynd­ina af því hvernig fram­koman hefur verið ertu miklu fljót­ari að koma auga á það þegar hlutir eru ekki eins og þeir eiga að vera. Þol fólks fyrir ein­hverri fárán­legri fram­komu er miklu minna og það er alveg frá­bært. Ég held að á síð­ustu árum hafi orðið tals­vert mikil hug­ar­fars­breyt­ing, bæði í því hvernig fólk talar um hluti og hvers konar fram­komu það þolir. Ég held að nán­ast allir geri sér grein fyrir því að það eru ákveðin mörk sem þú verður að virða. Ég hef hlustað tals­vert á karla tala saman um þessa hluti og mér finnst það mjög áhuga­vert. Þeir eru líka að átta sig á því að það hefur ýmis­legt verið í gangi sem er algjör­lega óvið­eig­andi. Það var að mjög mörgu leyti meiri­háttar upp­lifun að verða vitni að þessu.“

Eins og fram kom í upp­hafi er Svan­hildur að ljúka MBA-gráðu, þýðir það að hún sé að hugsa um að skipta um starfs­vett­vang? „Ég veit það ekki. Ég verð nátt­úr­lega ekki aðstoð­ar­maður að eilífu,“ segir hún sposk. „Ég ákvað bara að klára þetta og reyna svo að ná örlitlu jafn­vægi í heim­il­is­líf og vinnu. En auð­vitað fer maður í nám af því að maður er til­bú­inn að víkka sjón­deild­ar­hring­inn og prófa eitt­hvað nýtt.“

Fjölmiðlabakterían ólæknandi

„Ég hef alltaf sótt í vinnu sem er svo­lítið flæð­andi og ég held ég sé komin að þeirri nið­ur­stöðu, eftir að hafa verið þrjá­tíu ár á vinnu­mark­aði, að ég sé ekki mikil níu til fimm týpa. Mér finnst gaman að vera í álags­verk­efnum sem reyna mikið á mann og þurfa öðru hvoru að gera hið ómögu­lega.“

Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór?
„Það er frá­bær spurn­ing sem ég hef velt fyrir mér af og til í dálítið mörg ár. Ég hef alltaf sótt í vinnu sem er svo­lítið flæð­andi og ég held ég sé komin að þeirri nið­ur­stöðu, eftir að hafa verið þrjá­tíu ár á vinnu­mark­aði, að ég sé ekki mikil níu til fimm týpa. Mér finnst gaman að vera í álags­verk­efnum sem reyna mikið á mann og þurfa öðru hvoru að gera hið ómögu­lega.“

Saknarðu fjöl­miðl­anna?
„Ef ég hefði ekki Loga sem ákveð­inn glugga inn í fjöl­miðla­heim­inn þá kannski myndi ég sakna þeirra meira. Ef manni finnst gaman að kynna sér hluti og hefur áhuga á öllu mögu­legu er fjöl­miðla­vinnan besta starf í heimi. Mér fannst fyndið þegar ég var að byrja að vinna á fjöl­miðlum að heyra talað um fjöl­miðla­bakt­er­í­una en svo upp­götvar maður smám saman að eig­in­lega allir sem ein­hvern tím­ann hafa unnið á fjöl­miðli virð­ast sýkj­ast af þess­ari bakt­eríu og aldrei lækn­ast full­kom­lega. Ég finn það alveg á sjálfri mér.“

„Ég hef alveg skoð­anir og ég reyni að hafa áhrif, eins og fólk gerir yfir­leitt. Ég segi það sem mér finnst um hlut­ina en á end­anum er ég að vinna fyrir ein­hvern sem er sjálfur kjör­inn full­trúi og ber á ábyrgð á þeim verkum sem hann ákveður að koma í fram­kvæmd.“

Fyrr í spjalli okkar Svan­hildar hafði komið fram að hún ætti mun auð­veld­ara með að tjá sig í skrif­uðu máli en að tala um hlut­ina, er það eitt­hvað sem hún vildi þróa frekar? Er kannski skáld­saga í skúff­unni?
„Nei, ég er ekki með skáld­sögu í skúff­unni,“ segir hún og hlær. „Logi er aftur á móti með eina svo­leiðis sem hann klárar kannski núna. Mér finnst mjög gaman að skrifa. Ég fæ bara eitt­hvað út úr góðum texta, bæði að lesa hann og skrifa. Ég hef stundum velt því fyrir mér hvað ég myndi skrifa ef ég færi út í það. Ég veit það bara ekki. Ég veit ekki hvort ég á skáld­sögu í mér.“

Raðlækari og íþróttanörd

Annað áhuga­mál Svan­hildar er forn­leifa­fræði, kom aldrei til greina að leggja þá grein fyrir sig?
„Ég hef mik­inn áhuga á forn­leifa­fræði og ég held að allir forn­leifa­fræð­ingar á Twitter haldi að ég sé ein­hver rugl­aður elti­hrellir. Ég fylgi mörgum forn­leifa­fræð­ingum á Twitter og forn­leifa­stofnun og er eig­in­lega rað­læk­ari á allt sem snertir forn­leifar. Hrafn­hildur dóttir mín virð­ist hafa erft þennan áhuga á for­tíð­inni og gömlum hlutum og þegar við ætlum að eiga góðan tíma saman þá förum við og röltum um kirkju­garða og hún biður mig að útskýra fyrir sér hvernig hlut­irnir voru í gamla daga og hvers vegna það dóu svona mörg börn þá.“

Talandi um börn í „gamla daga“, hvernig barn var Svan­hildur sjálf?
„Ég var íþróttanörd,“ segir hún og skellir upp úr. „Ég æfði frjálsar íþróttir, var mjög góð í kúlu­varpi, en spil­aði líka blak, hand­bolta og körfu­bolta og bara allt sem ég komst í.“

Svan­hildur er ekki lengur í neinum hóp­í­þróttum lengur en hefur lyft í nokkur ár.
„Mér hefur alltaf fund­ist mjög gaman að lyfta og ákvað að prófa að æfa lyft­ingar. Það féll eins og flís við rass, þetta hent­aði mér frá fyrsta degi. Ég fer á fætur fyrir sex á morgn­ana, er búin með æfing­una fyrir klukkan átta og kem þá heim og kem stelp­unum í skól­ann. Ég er ein að lyfta og það er tími sem ég á alveg sjálf. Ég fer ekki í jóga, stunda ekki hug­leiðslu en lyft­ing­arnar eru mín hug­leiðsla. Maður gerir kannski ekk­ert nema hné­beygjur í klukku­tíma, með stöng á öxl­unum og tón­list í eyr­unum og hugsar ekki neitt. Fyrir mig er þetta and­leg hvíld og lík­am­lega góð áreynsla.“

Ekki mikið atvinnuöryggi

Þessi klukku­tíma á morgn­ana er vænt­an­lega eini tím­inn sem Svan­hildur á ein með sjálfri sér yfir dag­inn, eða hvað? Er ekki álagið á aðstoð­ar­mann ráð­herra mikið?
„Það auð­vitað venst eins og annað. Það sem er verst við það er að það getur verið erfitt að setja mörk um það hvenær ég er í vinn­unni og hvenær ég er ekki í vinn­unni. Þegar ég var að klára síð­asta kúr­s­inn í MBA-nám­inu fór ég í frí og setti „out of office։-skila­boð á tölvu­póst­inn minn, sem ég geri nán­ast aldrei, og átt­aði mig á það væri kannski svo­lítið ruglað að reyna að vera íná­an­legur öllum stundum. Maður er líka að vinna verk­efni á furðu­leg­ustu tímum og eitt það furðu­leg­asta sem ég hef gert var þegar ég sett­ist niður þegar allt var búið á gamlárs­kvöld og allir farnir að sofa til að skrifa ræðu fyrir nýárs­dag. En það eru nú alls konar störf sem eru þannig að fólk er í þeim bæði vakið og sofið.“

En þú ert ekk­ert á leið­inni eitt­hvert annað?
„Ég hef reglu­lega síð­ustu ár búist við því að ég væri alveg að verða atvinnu­laus, eða gæti orðið það. Atvinnu­ör­yggið í póli­tísku starfi er ekki mikið, allra síst und­an­farin ár hér á Íslandi. Þannig að ég geri auð­vitað alltaf ráð fyrir því að þurfa að finna mér vinnu ein­hvern tím­ann, en á meðan starfið er að með­al­tali meira skemmti­legt en leið­in­legt þá heldur maður áfram. Plúsinn við mitt starf er að maður upp­lifir reglu­lega ein­hverja sögu­lega við­burði og er í hring­iðunni þegar eitt­hvað merki­legt ger­ist. Maður verður bara að passa sig á að verða ekki svo samdauna umhverf­inu að maður átti sig ekki á því.“

„Ég neita því ekki að í und­ir­með­vit­und­inni blundar hugs­unin að þótt mig langi ekki að vera að lemja ein­hvern með nagla­spýtu í beinni þá er fjöl­miðlaum­hverfið alltaf það sem ég dregst að í ein­hverri mynd,“ segir Svan­hildur.

Ekki röflandi besserwisser

Svan­hildur ætlar greini­lega ekki að svara ákveðið af eða á hvort hún sé að hugsa sér til hreyf­ings úr fjár­mála­ráðu­neyt­inu svo ég breyti um taktík og spyr: Hvar sérðu þig fyrir þér þegar þú verður sex­tíu og fimm ára?
„Ja, ég vona alla­vega að ég verði ekki svona leið­in­legur röflandi besserwisser sem er alltaf að segja yngra fólki hvað það sé vit­laust,“ svarar Svan­hildur. „Fyrst og fremst ætla ég að vona það að ég verði ekki að horfa á heim­inn í gegnum ein­hver mjög skrýtin gler­augu og geti náð að taka inn breyt­ingar og nýjar upp­lýs­ingar og nýjar skoð­anir og svo fram­vegis. Án þess að vera alltaf með fing­ur­inn á lofti. Mér finnst það sjúk­lega leið­in­legt. Mér finnst gott að hafa fólk sem getur sagt manni að það sé búið að prófa ein­hverja hluti. Mér finnst vanta fleira fólk með gott stofn­ana­minni sem getur vísað í sög­una, en að segja að hlutir verði að vera ein­hvern veg­inn af því einu sinni voru þeir þannig er bara full­kom­lega óþol­andi.“

Heldurðu að þú verðir ekki bara orðin for­seti þá?
„Ég hef nú ekki endi­lega hugsað það þannig. Það er svo lít­ill ald­urs­munur á mér og Guðna að miðað við hefðir Íslend­inga í for­seta­málum er ég ekk­ert viss um að emb­ættið verði laust þegar ég verð sex­tíu og fimm ára.

Að öllu gamni slepptu þá hugsar maður auð­vitað stundum um það hvar maður verði staddur þá. Að vera rúm­lega sex­tugur er ekki lengur neitt rosa­lega langt fram í fram­tíð­inni hjá mér. Og ég spyr mig stundum hvað mig langi til að vera að gera eftir tutt­ugu ár. Ég bara veit það ekki ennþá. Þau störf sem ég hef tekið að mér hafa verið skemmti­leg en ég hef ekki sótt um vinnu síðan 1999 þegar ég sótti um vinnu á Morg­un­blað­inu og Rík­is­út­varp­inu og end­aði á því að vinna fyrir svæðis­út­varpið á Akureyri. Síðan hef ég meira svona lent í vinnu og það er ekk­ert víst að maður hafi neitt rosa­lega gott af því. Það hefur eig­in­lega verið lúx­us­vanda­mál að þurfa ekki að hugsa neitt mikið um það hvað ger­ist á næsta ári eða þarnæsta.

Ég neita því ekki að í und­ir­með­vit­und­inni blundar hugs­unin að þótt mig langi ekki að vera að lemja ein­hvern með nagla­spýtu í beinni þá er fjöl­miðlaum­hverfið alltaf það sem ég dregst að í ein­hverri mynd.
Maður auð­vitað vonar að maður sjálfur og fólkið í kringum mann haldi heilsu. Þegar ég verð sex­tíu og fimm ára verður Logi sjö­tíu og þriggja og örugg­lega búinn að fara í hnjáliða­skipti á báðum hnjám, en það sem maður vill helst af öllu er að maður verði ham­ingju­samur og það er það sem ég vil fyrir mig og fjöl­skyld­una. Helst af öll vill maður ná ein­hverju jafn­vægi sem gerir það að verkum að fólk sé bara sæmi­lega sátt við lífið og í sínu eigin skinni. Allt annað er eig­in­lega auka­at­riði.“

________________________________________________________________

Logi um Svanhildi: Tinnabókaprófessor með athyglisbrest

Svan­hildur full­yrðir að Logi Bergmann Eiðsson eigi skilið fálka­orðu fyrir að end­ast til að búa með henni svo mér lék for­vitni á að vita hvernig sam­búðin liti út frá hans sjón­ar­hóli. Hann segir það ýkjur að hann ætti orðu skilda, en við­ur­kennir þó að sam­búðin geti stundum tekið á. „Það er stundum pínu áskorun að vera giftur Svan­hildi,“ segir Logi. „Hún er svo­lítið utan við sig og intró­vert og svona, en þetta venst mjög vel. Við skynjum hvort annað vel og finnum hvað hitt þarf og hvernig við höfum það, þannig að þetta gengur nú alltaf býsna vel.“

Spurður hvað taki mest á í sam­búð­inni segir Logi nokkrar sögur.
„Við keyptum okkur nýjan þurrkara og eftir tvo mán­uði hringdi hún í mig og spurði hvernig ætti að kveikja á honum, sem segir allt um það hver sér um þvott­inn á þessu heim­ili. Hún hefur líka til að bera stór­kost­lega óþol­in­mæði gagn­vart hlutum sem virka ekki, en ann­ars er hún alveg fárán­lega geð­góð.“

Logi til­tekur dæmi um þessa óþol­in­mæði:
„Einu sinni var hún brjáluð yfir því að bíll­inn væri bil­aður, sviss­inn virk­aði ekki, en það kom í ljós að hún var með lyklana að hinum bílnum okkar. Svo er líka algengt að hún rjúki út á morgn­ana, orðin of sein, en finni ekki bíl­inn af því hún gleymdi honum ein­hvers staðar dag­inn áður. Þetta er svona mildur full­orð­ins­at­hygl­is­brestur í bland við Tinna­bóka­pró­fessor.“

Eftir þessi tvö ár sem Svan­hildur hefur verið í nám­inu seg­ist Logi draga mörkin við leg­nám í fram­tíð­inni. Annað nám komi ekki til greina. Þetta sé orðið gott. Hann er hins vegar sann­færður um að Svan­hildur muni aldrei fara út í póli­tík.
„Hún mun aldrei bjóða sig fram og ég þakka guði fyrir það,“ full­yrðir hann. „Það þyrfti eitt­hvað mikið að ger­ast til að hún léti til­leið­ast. Það eina sem gæti fengið hana til þess er hvað hún hefur gríð­ar­lega sterka rétt­læt­is­kennd. Svo er hún líka bara allt of bón­góð. Hún er alltaf að bjarga ein­hverju fyrir ein­hvern og á meðan sit ég bara bitur eig­in­maður einn heima. Nei, ég er að grín­ast, það er einn af hennar bestu kostum hvað hún er hjálp­söm.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina