Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Hann sýndi að mínu mati ekki kjark og þor til að standa með barninu mínu“

Halldóra Bald­urs­dóttur, móðir Helgu Elínar, furðar sig á við­brögðum emb­ættis rík­is­lög­reglu­stjóra. Hún segir ekk­ert vafa­mál á því hver beri ábyrgð á að lög­reglu­mað­ur­inn í umræddu kyn­ferð­is­brota­máli starfi enn innan lög­regl­unnar.

„Hann sýndi að mínu mati ekki kjark og þor til að standa með barninu mínu“
||
Mæðgurnar Halldóra og Helga. Halldóra var í við­tali í 12. tölu­blaði Mannlífs en þar greinir hún frá því að árið dóttir hennar hafi verið mis­notuð á barns­aldri. Meintur ger­andi starfar enn innan lög­regl­unnar.

„Þetta er mín upp­lifun og mitt mat, og er mér óskilj­an­legt að rík­is­lög­reglu­stjóri telji sig geta mót­mælt því.“ Þetta segir Halldóra Bald­urs­dóttir í bréfi sem hún sendi rétt í þessu á rit­stjórn Mannlífs.

Sjá einnig: „Rík­is­lög­reglu­stjóri brást dóttur minni“

Halldóra var í við­tali í 12. tölu­blaði Mannlífs en þar greinir Halldóra frá því að árið 2007 hafi dóttur hennar, Helgu Elínu sem þá var tíu ára gömul, verið boðið í sum­ar­bú­staða­ferð með skóla­systur sinni, móður hennar og stjúp­föður. Í kjöl­far þess­arar ferðar hafi breyt­ingar orðið á hegðun Helgu en Halldóra tengdi þær ekki við ferð­ina. Fjórum árum eftir umrædda sum­ar­bú­staða­ferð, þann 5. októ­ber 2011 var Halldóra boðuð á fund í skóla dóttur sinnar. Þar kom í ljós að dóttir hennar hafði trúað vin­konu sinni fyrir því að stjúp­faðir skóla­systur þeirra hefði beitt hana kyn­ferð­is­legu ofbeldi í sum­ar­bú­staða­ferð fjórum árum áður. Málið var strax sett í far­veg, það kært til lög­reglu og rann­sókn hófst, en um það bil einu ári eftir að málið var kært var það fellt niður og gerir Halldóra ýmsar athuga­semdir við rann­sókn þess. Meðal ann­ars að sak­born­ingur, sem var starf­andi lög­reglu­maður, hafi ekki verið leystur frá störfum meðan á rann­sókn máls­ins stóð. Hún segir að rík­is­lög­reglu­stjóri hafi algjör­lega brugð­ist þeim mæðgum í mál­inu.

Sjá einnig: Segist ekki hafa brugð­ist dóttur Halldóru

Þessu and­mælti emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra, eins og Mannlíf greindi frá. Eru þau and­mæli til­efni skrifa Halldóru nú. „Nú hefur rík­is­lög­reglu­stjóri and­mælt því að hafa brugð­ist dóttur minni eins og ég lýsi í við­tali við Mannlíf sem birt­ist s.l. föstu­dag. Í þessu við­tali er ég að segja frá upp­lifun minni og þrauta­göngu okkar mæðgn­anna. Í við­tal­inu segi ég: „Þegar málið kom upp sendi ég póst á þáver­andi lög­reglu­stjóra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem vís­aði erind­inu á Harald Johann­es­sen rík­is­lög­reglu­stjóra, sem alger­lega brást okkur að mínu mati og vildi ekk­ert fyrir okkur gera.“

„Það er meðal ann­ars á þessum bréfum sem upp­lifun mín byggir á að ríkilög­reglu­stjóri hafi brugð­ist okkur í þessu máli. Hann tók ekki af skarið, sýndi að mínu mati ekki kjark og þor til að standa með barn­inu mínu eins og hann hafði sam­kvæmt þessum bréfum vald til.“

Halldóra heldur áfram: „Ég ætla mér ekki að standa í orða­skaki við rík­is­lög­reglu­stjóra í fjöl­miðlum vegna upp­lif­unar minnar á þessu máli en vegna ummæla hans, sem birt­ist í fjöl­miðlum, tel ég rétt að koma eft­ir­far­andi á fram­færi: Í bréfi Inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins til mín dags. 08. júní 2012 segir:

„Samkv. 5. mgr. 28. gr. lög­reglu­laga nr. 90/1996 skipar rík­is­lög­reglu­stjóri lög­reglu­menn til starfa til fimm ára í senn. Samkvæmt 1. mgr. 26. gr. laga nr. 70/1996 um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins skal það stjórn­vald sem skipar í emb­ætti veita og lausn frá því um stunda­sakir. Þannig er það á ábyrgð rík­is­lög­reglu­stjóra að veita lög­reglu­manni lausn frá emb­ætti um stunda­sakir eða að fullu. Svo sem fram kemur í gögnum máls­ins taldi emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra sér ómögu­legt að veita við­kom­andi lög­reglu­manni lausn um stunda­sakir þar sem emb­ætt­inu var synjað um upp­lýs­ingar um rann­sókn saka­máls á hendur honum.

Embætti rík­is­lög­reglu­stjóra upp­lýsti ráðu­neytið um ofan­greint með bréfi dags. 21. nóv­em­ber sl. Með bréfi dags 13. mars sl. upp­lýsti ráðu­neytið emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra um þá afstöðu sína að það væri mat ráðu­neyt­is­ins að engin rétt­ar­fars­leg rök væru fyrir hendi sem rétt­lætt gætu afhend­ingu rann­sókn­ar­gagna í málum sem þessum. Þá kom það fram það mat ráðu­neyt­is­ins að synjun á afhend­ingu gagna saka­máls leiði ekki til þess að ómögu­legt verði fyrir veit­ing­ar­valds­hafann að meta hvort for­sendur séu til þess að veita emb­ætt­is­mönnum lausn um stunda­sakir ….. „

Einnig kemur fram í bréfi Umboðs­manns alþingis til mín vegna máls­ins dag­sett 5. mars 2012 að: „….Samkvæmt fram­an­greindu er það inn­an­rík­is­ráð­herra sem er æðsti yfir­maður lög­regl­unnar í land­inu. Það er hins vegar á herðum rík­is­lög­reglu­stjóra að veita lög­reglu­mönnum lausn frá emb­ætti en lög­reglu­stjór­ans á höf­uð­borg­ar­svæð­inu að fara með dag­lega stjórn lög­regl­unnar í sínu umdæmi.“

Haraldur Johann­es­sen rík­is­lög­reglu­stjóri hafnar því að hafa brugð­ist Helgu Elínu dóttur Halldóru.

Sjá einnig: Á ábyrgð rík­is­lög­reglu­stjóra að veita lög­reglu­manni lausn frá emb­ætti

Halldóra segir því ekk­ert vafa­mál á því hver beri ábyrgð á að lög­reglu­mað­ur­inn í umræddu kyn­ferð­is­brota­máli starfi enn þann dag í dag innan lög­regl­unnar. „Það er meðal ann­ars á þessum bréfum sem upp­lifun mín byggir á að ríkilög­reglu­stjóri hafi brugð­ist okkur í þessu máli. Hann tók ekki af skarið, sýndi að mínu mati ekki kjark og þor til að standa með barn­inu mínu eins og hann hafði sam­kvæmt þessum bréfum vald til.

Hann setti þar með ekki þær kröfur til sinna manna að það sé óásætt­an­legt með öllu að starf­andi lög­reglu­menn fái á sig ítrek­aðar kærur fyrir barn­a­níð. Hins vegar hefur emb­ætt­is­skipun manns­ins verið end­ur­nýjuð.“

Halldóra segir að í kjöl­farið hafi fylgt bréfa­skriftir og ráða­leysi í öllu kerf­inu. „Á meðan sat dóttir mín og beið rétt­lætis sem aldrei kom. Málinu lauk með nið­ur­fell­ingu máls­ins þar sem rann­sókn þess var, að mínu mati og margra ann­arra, mjög ábóta­vant.

Málið í heild sinni er enn og aftur að mínu mati stór áfell­is­dómur á allt kerfið, þar með tal­inn sjálfan rík­is­lög­reglu­stjóra sem enn firrir sig ábyrgð í stað þess að vinna að rétt­læti í mál­inu.“

Hún segir að þetta sé sér óskilj­an­legt og sár­ara en orð fá lýst. Að lokum, þá segir rík­is­lög­reglu­stjóri í frétta­til­kynn­ingu sinni: „Embættið fékk fyrst fregnir af mál­inu í fjöl­miðlum og átti frum­kvæði af því að óska upp­lýs­inga um málið frá rík­is­sak­sókn­ara, en emb­ætt­inu hafði ekki verið til­kynnt um málið.“ Hið rétta er að 4. nóv­em­ber 2011 sendi ég rík­is­lög­reglu­stjóra tölvu­póst um málið en það var ekki fyrr en 7. nóv­em­ber 2011, eða þrem dögum síðar, sem fjöl­miðlar fjöll­uðu fyrst um málið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi