Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fyrri afrek frambjóðenda

Fyrri afrek frambjóðenda
||||

Það er gaman að rýna í sögu fram­bjóð­enda fyrir kom­andi sveita­stjórn­ar­kosn­ingar og kemur ýmis­legt í ljós sem maður vissi ekki eða var jafn­vel búinn að gleyma.

Sigraði í maraþondansi

Snyrti­fræð­ing­ur­inn Sig­ur­jóna Halldóra Frímann býður sig fram fyrir Höf­uð­borg­ar­list­ann. Henni er margt til lista lagt en meðal afreka sem hún hefur unnið er sigur í mara­þond­anskeppni í æsku­lýðs­heim­il­inu Dyn­heimum á Akureyri árið 1981. Keppnin hófst klukkan 10 á laug­ar­dags­morgni og mættu átta­tíu kepp­endur til leiks. Hætt var að dansa klukkan 11 á sunnu­dags­morgni og þá voru fjórir kepp­endur eftir en með þess­ari törn settu krakk­arnir nýtt Íslands­met. Dómnefnd sá síðan um að skera úr um hvaða kepp­andi stóð sig best og var það Sig­ur­jóna sem hrós­aði sigri.

Bjargaði barni úr brennandi húsi

Mat­reiðslu­mað­ur­inn Hinrik Ingi Guð­bjarg­ar­son er á Kópa­vogs­list­anum Fyrir Kópavog. Hann komst í frétt­irnar fyrir mikla hetju­dáð árið 2005 þegar hann bjarg­aði stúlku úr brenn­andi íbúð við Hafn­ar­stræti á Akureyri. Hinrik, sem var nágranni stúlkunnar, sýndi mikið snar­ræði en hann fann stúlk­una þar sem hún lá á gólf­inu í hús­inu sem var fullt af reyk og eldi. Stúlkan var flutt á sjúkra­hús með snert af reyk­eitrun.

Í heitasta bandinu

Slökkvi­liðs­mað­ur­inn Sverrir Björn Björns­son er á lista Fram­sókn­ar­flokks­ins í Garðabæ. Sverrir er ekki bara lið­tækur á bruna­bílnum heldur einnig nokkuð lunk­inn gít­ar­leik­ari, eins og sann­að­ist með hljóm­sveit­inni Eld­band­inu. Eld­bandið vakti athygli á tíunda ára­tug síð­ustu aldar og var talið eitt það heitasta í brans­anum. Hljóm­sveitin var þekkt fyrir að taka íslensk lög í nýjum útsetn­ingum, til dæmis Dísu í Dala­kof­anum í suð­ur­am­er­ískum takti.

Með Borgarleikhússtjóra á fjölunum

Sjón­varps­konan Hilda Jana Gísla­dóttir er odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar á Akureyri. Hún er vel þekkt þar í bæ, sem og víðar, enda fyrr­ver­andi sjón­varps­stjóri N4. Þá hefur Hilda einnig talað opin­skátt um bar­áttu sína við fíkni­vanda, en hún sá um Jafn­ingja­fræðsl­una á Akureyri þegar fræðslan var stofnuð í bænum. Færri vita kannski að Hilda var öflug í leik­fé­lagi Kvenna­skól­ans í Reykja­vík, Fúríu, sem frum­sýndi meðal ann­ars leik­ritið Sjö stúlkur árið 1994. Hilda Jana lék eina af þessum stúlkum, sem og núver­andi Borg­ar­leik­hús­stjóri Kristín Eysteins­dóttir.

Víkingurinn Sveinn

Nýjasta dæmið okkar, sem má þó ekki sleppa, eru fyrri afrek fram­bjóð­anda Mið­flokks­ins í Reykja­vík, Sveins Hjartar Guð­finns­sonar. Hann vakti mikla athygli í aug­lýs­ingu bíla­fram­leið­and­ans Dodge Ram í aug­lýs­inga­hléi Ofur­skálar­innar, stærsta íþrótta­við­burðar árs­ins. Í aug­lýs­ing­unni lék Sveinn Hjörtur einn af vík­ing­unum sem söng Queen-smell­inn We Will Rock You, en meðal ann­arra í vík­inga­hópnum var Magnús Ver Magn­ús­son, fyrr­ver­andi sterkasti maður heims fjórum sinnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina