Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ævintýraheimurinn Tulipop stækkar

Tulipop-vör­urnar má finna í yfir 300 versl­unum út um allan heim, teikni­mynd­irnar sem slegið hafa í gegn á YouTube hófu nýlega göngu sína á RÚV og sjón­varps­þættir eru vænt­an­legir. Mannlíf hitti Signýju Kol­beins­dóttur í bæki­stöðvum Tulipop í Brooklyn í New York.

Ævintýraheimurinn Tulipop stækkar
|||
Tulipop er hug­ar­fóstur lista­kon­unnar Signýjar Kol­beins­dóttur og ásamt Helgu Árna­dóttur við­skipta­fræð­ingi hafa þær byggt upp heilan heim og fyr­ir­tæki sem hefur verið í stöðugri sókn síð­ast­liðin ár.

Tulipop er töfr­andi heimur sem fangar bæði augu full­orð­inna og barna því þessar lit­ríku og spenn­andi sögur og fígúrur eru eig­in­lega engu öðru líkar. Þar er hin ofvirka sveppastelpa Gloomy sem þefar uppi furðu­leg og jafn­vel súr­r­eal­ísk ævin­týri, ásamt kafloðna vini sínum Fred sem er í stöðugri sið­ferð­is­legri kreppu og sjálfsleit. Gubbu­grín og stundum hrein­asti absúr­dismi en samt svo barns­legt og fal­legt. Tulipop virð­ist hrífa bæði smá­vaxin börn, gaml­ingja og sér­vitrar lista­spírur. Hér er sann­kall­aður galdur í gangi, fal­leg hönnun, sagna­list og furðu­heimur. Tulipop er hug­ar­fóstur lista­kon­unnar Signýjar Kol­beins­dóttur og ásamt Helgu Árna­dóttur við­skipta­fræð­ingi hafa þær byggt upp heilan heim og fyr­ir­tæki sem hefur verið í stöðugri sókn síð­ast­liðin ár. Margt er á prjón­unum hjá þessum fram­sæknu íslensku hug­vits­konum.

Í bæki­stöðvum Tulipop í Brooklyn í New York situr Signý innan um allar sínar got­nesku, lit­ríku per­sónur og spinnur upp sögur, teiknar og hannar dag­inn út og inn. Tulipop er orðið að risa­vöxnum heimi sem margir koma að – þetta er ekki bara þú, Signý, sem situr og teiknar? „Það er alveg rétt, það er orðið stórt teymi sem vinnur með okkur að vexti og þróun Tulipop á hverjum degi. Sex manna teymi sér­fræð­inga starfar í skrif­stof­unni okkar á Grand­anum í Reykja­vík, stór hópur í versl­un­inni okkar á Skóla­vörðu­stíg og svo er ég hér á skrif­stof­unni okkar í New York. Auk þess erum við með fjöld­ann allan af inn­lendum og erlendum ráð­gjöfum og verk­tökum sem vinna með okkur í sér­hæfðum verk­efnum.

Í teym­inu er meðal ann­ars graf­ískur hönn­uður í fullu starfi en ég er enn sem komið er eini teikn­ar­inn í fyr­ir­tæk­inu og það fer nú að koma tími til að fjölga í þeim hóp. Áhuga­samir teikn­arnar í New York mega endi­lega hafa sam­band,“ segir Signý og brosir.

Sjón­varps­þættir fram undan
Signý segir ótrú­lega gaman að sjá Tulipop-heim­inn stækka og ná til fólks víða um heim. Á dög­unum var YouTube-teikni­mynda­ser­ían þeirra frum­sýnd á RÚV með íslensku tali, en ser­ían hefur slegið í gegn á Inter­net­inu síðan hún var sett í loftið í októ­ber síð­ast­liðnum og fengið yfir 1,5 milljón áhorf. „Þetta er stjörnum prýdd tal­setn­ing, en það eru meðal ann­ars Ólafía Hrönn, Ólafur Darri, Salka Sól og Laddi sem tala fyrir Tulipopp­ar­ana. Að því ég best veit er þetta fyrsta íslenska teikni­mynda­ser­ían síðan Latibær leit dags­ins ljós og við vonum að hún muni gleðja Tulipop-aðdá­endur á öllum aldri.“

Nú er önnur sería af YouTube-þáttum komin í fram­leiðslu og Signý vinnur aðal­lega að henni þessa dag­ana. „Síðstu vikur hef ég unnið náið með hand­rits­höf­und­unum Tobi og Brydie að því að klára tíu ný hand­rit og nú tekur við að passa upp á að útlit ser­í­unnar sé í lagi og teikna nýja hluti og staði á Tulipop-eyj­unni sem koma fyrir í þátt­unum. Síðan þarf að finna raddir, leik­stýra, finna réttu tón­list­ar­menn­ina til að sjá um tón­list­ina og svo mætti lengi telja.

„Við erum mjög spenntar fyrir því að gera lengri þætti þar sem gefst tæki­færi til að segja dýpri sögur og fanga and­ann í Tulipop-heim­inum enn betur.“

Til við­bótar við teikni­mynda­gerð­ina erum við svo auð­vitað með fjölda­mörg önnur spenn­andi verk­efni í gangi og meðal ann­ars erum við að leggja loka­hönd á margar nýjar vörur sem munu fást í Tulipop-búð­inni okkar á Skóla­vörðu­stíg síðar í sumar. Eitt af stóru verk­efn­unum fram undan er að gera sjón­varps­þætti sem eru lengri en YouTube-þætt­irnir og við stefnum að því að fram­leiða 52 þátta seríu og dreifa alþjóð­lega. Við erum mjög spenntar fyrir því að gera lengri þætti þar sem gefst tæki­færi til að segja dýpri sögur og fanga and­ann í Tulipop-heim­inum enn betur. Samhliða því erum við að stækka vöru­úr­val, halda áfram sókn á banda­rískan markað, auk þess að und­ir­búa fyrstu skref í Asíu með nýjum sam­starfs­að­ila.“

Mik­il­vægt að barna­efni sé um raun­veru­leg mál­efni
Hún segir að stóra tak­markið sé að gera Tulipop að þekktu vöru­merki um heim allan. „Við höfum frá fyrsta degi séð að fólk á öllum aldri heill­ast af Tulipop-heim­inum og sjáum ótal mörg tæki­færi til að færa hann til lífs­ins í gegnum vörur, bækur, teikni­myndir, leiki og fleira þannig að fólk geti tengst heim­inum á sem fjöl­breyttastan hátt.“

„Í teym­inu er meðal ann­ars graf­ískur hönn­uður í fullu starfi en ég er enn sem komið er eini teikn­ar­inn í fyr­ir­tæk­inu og það fer nú að koma tími til að fjölga í þeim hóp. Áhuga­samir teikn­arnar í New York mega endi­lega hafa sam­band,“ segir Signý og brosir.

Margt er óvenju­legt við Tulipop hefð­bundnum kynja­hug­myndum er ögrað og það er mikil nátt­úr­vernd­ar­hugsun, „Ég ólst sjálf upp við Grimm­sæv­in­týri, H.C. Andersen og Astrid Lindgren, svo eitt­hvað sé nefnt. Þær sögur byggja allar á sagna­hefð þar sem ekki er búið að hvít­þvo skila­boðin og mark­aðsvæða per­sónu­gerðir. Því þykir mér mik­il­vægt að koma sýn minni á fram­færi um að heim­ur­inn og lífið sé alls konar en svo lengi sem grunn­hug­mynd­irnar eru sterkar kom­ast skila­boðin áleiðis. Heim­ur­inn er und­ar­legur og ef við reynum að fela alla galla okkar missum við und­rið og þá liggur eftir flatneskja og með­al­mennska. Ef sögu skortir ógn og breyti­leika er hún óáhuga­verð að mínu mati. Það sem ein­kennir gott barna­efni er að talað sé til barna um raun­veru­leg mál­efni í bún­ingi sem þau tengja við. Helst þarf það að vera eitt­hvað sem full­orðnir tengja líka við. Það er alltaf skemmti­legra að horfa með for­eldrum sínum sem deila áhug­anum.“

Börnin bull­mælar
Góðar sögur og góð list mót­uðu Signýju og hún seg­ist finna þegar góðar sögur skipta máli. „Allt sem ég tengi við raun­veru­lega á ein­hverju frum­stæðu stigi. Eins og Hello Kitty, þar eru ein­faldar línur, hún fangar eitt­hvað í ein­fald­leik­anum. Slík list hefur óhjá­kvæmi­lega áhrif á mann. Það dvelur með manni löngu eftir að maður er hættur að horfa eða hlusta.“

Þú átt sjálf börn – hafa þau verið partur af þessu ferli? „Já, algjör­lega. Þau eru góðir gagn­rýnendur og hafa mikla skoðun á því sem ég geri. Ég tek oft­ast frum­gerðir með heim til að sýna þeim og spyr þau álits varð­andi vöru­úr­val. Þau eru í raun hálf­gerðir bull­mælar, segja manni til synd­anna þegar þau tengja ekki við það sem ég er að gera.“

„Heim­ur­inn er und­ar­legur og ef við reynum að fela alla galla okkar missum við und­rið og þá liggur eftir flatneskja og með­al­mennska. Ef sögu skortir ógn og breyti­leika er hún óáhuga­verð, að mínu mati.“

Vegna anna og verk­efna flutti Signý til New York og henni líkar það vel. Hún segir að þetta sé búða að vera átta ára ævin­týri. „Lyk­ill­inn að árangri í hverju sem þú tekur þér fyrir hendur er þraut­seigja. Að halda áfram þrátt fyrir allar þær hindr­anir sem þú þarft að yfir­stíga. Þeir sem leggja í þessa veg­ferð munu alltaf lenda í áföllum, ann­ars er þessi veg­ferð sem þú tekur þér fyrir hendur ekki þess virði,“ segir hún að lokum.

Signý ásamt bróður sínum Birni.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina