Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Leggja undir sig Flatey við lausn sögulegs sakamáls

Leggja undir sig Flatey við lausn sögulegs sakamáls
|

Tökur standa nú yfir á sjón­varps­s­er­í­unni Flat­eyj­ar­gát­unni í Flatey við Breiða­fjörð. Þátta­röðin er byggð á sam­nefndri skáld­sögu eftir Viktor Arnar Ing­ólfs­son en leik­stjór­inn Björn B. Björns­son segir hand­rit þátt­anna frá­brugðið bók­inni.

„Það hefur verið frá­bært að vera í Flatey og ábú­endur hér hafa tekið okkur ein­stak­lega vel sem og þeir fjöl­mörgu sem eiga hér hús,“ segir Björn um tök­urnar í Flatey. „Við höfum leigt öll þau hús sem við höfum getað hér í eynni og hefur ekki dugað til þannig að hluti fólks hefur þurft að gista í Stykk­is­hólmi og sigla á milli. Það eru upp undir 50 manns sem hér eru á okkar vegum svo þetta er mikil inn­rás á lít­inn stað,“ bætir hann við. Tökur á ser­í­unni hófust að nokkru leyti í febr­úar og standa til 4. júlí. Auk Flat­eyjar verður einnig tekið upp í Stykk­is­hólmi, á Akranesi, í Hval­firði og suður með sjó svo eitt­hvað sé nefnt.

Björn segir að auð­vitað hafi ýmis­legt gengið á það sem af er tök­unum, eins og ger­ist og gengur.

„Það kemur allt mögu­legt og ómögu­legt upp á við svona fram­leiðslu og sumu er ekki hægt að segja frá,“ segir Björn sposkur á svip.

„Óvæntast, skrýtn­ast og skemmti­leg­ast fannst mér að sjá til­þrif ýmissa úr okkar frá­bæra tökuliði á karókíkvöld­inu sem haldið var í gær hér á hót­el­inu í Flatey. Þar sýndu bæði leik­arar og starfs­fólk á sér ýmsar óvæntar hliðar,“ bætir hann við og brosir. Þá segir hann að veðrið hafi ekki alltaf verið besti vinur tökuliðs­ins.

„Veðrið hefur satt að segja verið æði skraut­legt á köflum. Þannig hefur stundum skollið á snjó­koma þegar við erum að úti að mynda eitt­hvað sem á að gerst á sól­ríkum vor­degi en skömmu síðar er aftur komin sól og við höfum þá bara beðið á meðan snjór­inn á jörð­inni bráðnar. Þetta er eins og við er að búast á Íslandi svo við kippum okkur ekk­ert upp við það.“

Í þróun í nærri áratug

Það er Margrét Örn­ólfs­dóttir sem skrifar hand­rit þátt­anna en Björn segir að það sé æði frá­brugðið skáld­sögu Viktors sem hefur verið vel tekið víða um heim síðan hún kom út árið 2002.

„Senni­lega er rétt­ast að segja að hand­ritið byggi laus­lega á bók Viktors. Þannig eru stærstu per­sónur þátt­anna ekki í bók­inni og aðal­per­sóna bók­ar­innar ekki í þátt­unum og meg­in­þema þátt­anna er annað en í bók­inni. Í henni er mikið og skemmti­legt per­sónugall­erí sem við nýtum okkur og eins að í Flat­eyj­ar­bók sé falin gáta sem verið sé að reyna að leysa. Gátan okkar er hins vegar ekki sú sama og í bók­inni. Þannig held ég að les­endur bók­ar­innar fái nýja mynd og þeir sem sjá þætt­ina geta eftir sem áður lesið hana án þess að vera búnir að sjá allt sem þar ger­ist,“ segir Björn.

Allar nor­rænu rík­is­sjón­varps­stöðv­arnar munu sýna Flat­eyj­ar­gát­una og breska sjón­varps­fyr­ir­tækið SKY hefur keypt dreif­ing­ar­rétt­inn utan Norð­ur­land­anna. Á Íslandi er það RÚV sem sýnir ser­í­una, en óljóst er hvenær á næsta ári þátta­röðin fer í sýn­ingu. Verk­efnið hefur verið í þróun í nærri ára­tug, en Björn segir það eðli­legt með verk­efni af þess­ari stærð­argráðu.

Hér má sjá leik­stjór­ann lengst til hægri að spá og spek­úlera á meðan Stefán Hallur Stef­áns­son og Sigurður Sig­ur­jóns­son gera sig klára fyrir tökur.

„Þessi þró­un­ar­tími hefur allan tím­ann verið skemmti­legur og spenn­andi. Verkið hefur stöðugt verið að þroskast og breyt­ast til hins betra og að nú sé loks­ins komið að sjálfri fram­leiðsl­unni er auð­vitað ánægju­legur og lang­þráður hápunktur. Fram undan er svo hálfs árs törn þar til þætt­irnir verða end­an­lega til­búnir,“ segir Björn. En hvernig er Flat­eyj­ar­gátan frá­brugðin öðru, íslensku leiknu efni?

„Stærsti mun­ur­inn er senni­lega sá að þessir þættir ger­ast ekki í sam­tím­anum. Þeir eru „per­íóda“ eins og það er kallað í kvik­mynda­gerð­inni. Þeir ger­ast á nokkrum dögum vorið 1971 rétt áður en Danir afhentu okku hand­ritin og sá atburður teng­ist efni mynd­ar­innar. Ég veit ekki hvenær hér var síð­ast fram­leidd sjón­varps­s­ería sem ekki ger­ist í sam­tím­anum en það eru örugg­lega ára­tugir síðan. Það gerir miklar kröfur til leik­myndar og bún­inga og eykur auð­vitað allan kostnað við verkið sem er aðal­á­stæða þess að slíkt efni er svo fágætt. Þeim mun skemmti­legra er að geta loks­ins boðið íslenskum áhorf­endum upp slíkt efni í Flat­eyj­ar­gát­unni.“

Stærst íslenskra skinnbóka

Flat­eyj­ar­bók gegnir lyk­il­hlut­verki við lausn gát­unnar í skáld­sögu Viktors Arnars, en við­gerð stendur nú yfir á bók­inni, sem var að mestu rituð undir lok 14. aldar. Flat­eyj­ar­bók er stærst allra íslenskra skinn­bóka og er sam­an­lagt 225 blöð. Viðgerð á bók­inni hófst fyrir fimm árum og eftir að henni lýkur verður bókin til sýnis í Húsi íslensk­unnar þegar það hefur verið reist.

Aðalmynd: Lára Jóhanna Jóns­dóttir leikur aðal­per­són­una Jóhönnu. Hér sést hún koma til Flat­eyjar eftir tíu ára dvöl í Frakk­landi ásamt syni sínum, sem leik­inn er af Mikael Ásgrími Köll Guð­munds­syni.

Myndir / Sagafilm

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina