Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Úr kynsvalli í klikkað Eurovision-partí

Úr kynsvalli í klikkað Eurovision-partí
||

Páll Óskar Hjálmtýs­son leikur Frank-N-Furter í Rocky Horror í hátt í fer­tug­asta sinn á laug­ar­dag­inn. Eftir sýn­ing­una brunar hann á skemmti­stað­inn Spot og stillir upp fyrir stærsta Eurovision-partí lands­ins. Palli seg­ist ekki hafa verið í betra formi síðan hann var ungur maður og því sé þetta ger­legt.

„Yfirmenn í Borg­ar­leik­hús­inu voru svo sætir að færa sýn­ingu af Rocky Horror til klukkan 16 á laug­ar­dag­inn þannig að ég hleyp beint úr leik­hús­inu á Spot, klára „soundcheck“, horfi á keppn­ina með öðru aug­anu og svo byrjar bara ballið,“ segir stór­söngv­ar­inn Páll Óskar Hjálmtýs­son.

Páll Óskar fer á kostum sem Frank-N-Furter á fjölum Borg­ar­leik­húss­ins.

Páll Óskar heldur í hefðir annað kvöld, laug­ar­dags­kvöldið 12. maí, og blæs til helj­ar­innar Eurovision-balls á Spot í Kópavogi eftir að aðal­keppni Eurovision lýkur. Páll Óskar hélt fyrsta Eurovision-ballið árið 2003, og er því orð­inn ýmsu vanur, en í ár verður þessi dagur örlítið öðru­vísi þar sem Páll Óskar stígur einnig á svið í Borg­ar­leik­hús­inu sem kyn­snill­ing­ur­inn Frank-N-Furter. Er það bara ger­legt?

„Já, þetta er ger­legt. Á laug­ar­dögum hef ég iðu­lega hlaupið út úr leik­hús­inu eftir Rocky Horror-sýn­ingar og spilað á árs­há­tíðum. Ég treysti mér hins vegar ekki til að spila á skóla­böllum og einkapar­tíum á virkum dögum og tók bara út fyrir það. Ég byrja svo aftur á því öllu þegar sýn­ingum fækkar,“ segir Páll Óskar. Síðasta sýn­ing fyrir sum­ar­frí er 10. júní og við tekur kær­komið en stutt sum­ar­frí hjá söngv­ar­anum.

„Eftir síð­ustu sýn­ingu fer ég beint til Grikk­lands og slaka á í sól­baði,“ segir Páll Óskar. Hann er vel mál­aður í gervi Frank-N-Furter og ætlar að njóta þess að sleppa við það. „Ég ætla ekki að raka mig í mánuð. Þetta verður mottu­mars í júní,“ segir hann hlæj­andi.

Lærði að umgangast mat upp á nýtt

Páll Óskar seg­ist ekki hafa verið í betra lík­am­legu formi síðan hann var ungur maður og því nái hann að anna þessu álagi.

„Ég lærði að borða upp á nýtt fyrir þremur árum. Ég er með góðan og fal­legan þjálf­ara í World Class í Laugum, hann heitir Hilmar Björn. Hann ítrek­aði fyrir mér að ég gæti mætt á hverjum ein­asta degi og pumpað og pumpað í tvo tíma á dag en að árang­ur­inn yrði ósköp lít­ill nema ég lærði að umgang­ast mat upp á nýtt. Hann hjálp­aði mér að finna prótein­drykki sem virka eins og ein mál­tíð þannig að í dag borða ég alltaf eina mál­tíð á dag og drekk síðan prótein­drykki. Ég sneiði fram hjá ham­borg­urum og sóða­mat en ég neita mér ekki um súkkulaðið mitt,“ segir Páll Óskar og brosir.

„Svo hætti ég að drekka kók með sykri og skipti yfir í Coke Zero. Á fyrstu fjórum vik­unum missti ég fjögur kíló og ég hef ekki litið til baka síðan. Þegar ég reyni að drekka kók núna er það svo vont á bragðið, eins og drekka eitt­hvað úr nið­ur­falli.“

Skærar Eurovision-stjörnur trylla lýðinn

Páll Óskar er vel mál­aður í Rocky Horror en ætlar að skilja máln­ing­ar­burstana eftir heima í sum­ar­frí­inu.

Söngv­ar­inn okkar ást­sæli er fullur til­hlökk­unar fyrir laug­ar­deg­inum, bæði fyrir því að stíga í hátt í fer­tug­asta sinn á svið Borg­ar­leik­húss­ins sem kyn­snill­ing­ur­inn Frank-N-Further, en einnig fyrir Eurovision-ball­inu, sem stendur yfir frá kl. 23 til fjögur um nótt­ina.

„Það fal­leg­asta við þessi böll er að þarna kemst maður næst því að upp­lifa stemn­ing­una sem maður upp­lifir í alvöru þegar maður fer út á keppn­ina. Þetta er eini stað­ur­inn á jarð­ríki þar sem maður fær tæki­færi til að hitta allra þjóða kvik­indi í sama suðu­pott­inum, sam­an­komin út af einni og sömu ástæð­unni,“ segir Páll Óskar. Honum til halds og trausts verða góðir gestir, þau Selma Björns, Jóhanna Guðrún, Hera Björk, Eyjólfur Krist­jáns­son og Stefán Hilm­ars­son, sann­kallað Eurovision-stór­skota­lið.

„Þakið fer af hús­inu þegar ég kynni gest­ina á svið. Fólk bil­ast þegar íslensku stór­stjörn­urnar taka Eurovision-lögin sín,“ segir Palli og bætir við að margir ball­gesta séu fasta­gestir ár eftir ár. „Fólk kemur til mín og biður um útúr­tjúlluð óska­lög, eins og fram­lag Spánar árið 2003. Ball­gestir vita nákvæm­lega hvað klukkan slær og þetta er orðin ynd­is­leg hefð hjá mörgum. Þetta er líka æðis­lega gaman fyrir mig því þetta er eini dag­ur­inn á árinu þar sem ég get leyft mér að spila nær ein­vörð­ungu Eurovision-lög.“

Útilokar ekki þátttöku í Eurovision

Eins og flestir vita hefur Páll Óskar einu sinni farið fyrir Íslands hönd í Eurovision. Það var í Dyflinni árið 1997 með lagið Minn hinsti dans, sem vakti heldur betur athygli í keppn­inni. Lagið lenti í 20. sæti og voru margir á því að Palli hefði náð lengra, jafn­vel unnið keppn­ina, ef síma­kosn­ing hefði verið tekin í gagnið, eins og var gert árið síðar þegar hin ísra­elska Dana International sigr­aði með lagið Diva. En klæjar Palla ekk­ert í radd­böndin að taka aftur þátt í Eurovision?

„Ég verð að fá lag sem kýlir mig kaldan á staðnum, alveg eins og Euphoria gerði þegar ég heyrði það fyrst.

Næst verð ég að fara með lag sem getur unnið. Ég er þannig gerður að ég verð að fá safa­ríka lag­línu til að leika mér með. Ég verð að fá hljóma­gang sem gengur upp á næstum því hvaða hljóð­færi sem er og gefur mér samt pínu gæsa­húð. Eða eitt­hvað sætt. Þá fer ég í gang,“ segir þessi sjar­mer­andi söngv­ari, og því ekki úti­lokað að hann eigi ein­hvern tím­ann aftur eftir að vera full­trúi Íslands í þess­ari vin­sælu söngvakeppni.

Topp 3 à la Páll Óskar

Georgía – Iriao – For You
„Mér finnst þetta vera laga­smíðin sem er með mesta kjötið á bein­unum. Lag sem er samið af ein­hverri dýpt og þekk­ingu.“

Eistland – Elina Nechayeva – La Forza
„Það er svo­lítið hættu­legt að senda klass­ískan söngv­ara í Eurovision. Það hefur sjaldan gef­ist vel. En þetta lag frá Eist­landi er svo vel útfært og gellan neglir þetta alltaf á hverri ein­ustu æfingu.“

Frakk­land – Madame Monsieur – Mercy
„Gríð­ar­lega vel samið popp­lag og lang­mik­il­væg­asti boð­skap­ur­inn af öllum lög­unum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina