Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sáluhjálparinn og grínarinn

Sáluhjálparinn og grínarinn
|

Bræð­urnir Pétur Jóhann Sig­fús­son og Steinn Jónsson hafa valið sér ólíkan starfs­vett­vang en þó má segja að þeir vinni báðir við það sama; að hjálpa fólki að takast á við lífið. Steinn er mót­töku­ráð­gjafi hjá Píeta-sam­tök­unum, sem sinna for­varn­ar­starfi gegn sjálfs­vígum og sjálfs­skaða og styðja við aðstand­endur og eft­ir­lif­endur, og Pétur Jóhann léttir fólki lífið með gríni, eins og allir þekkja. Þeir segj­ast vera nánir og Pétur Jóhann segir Stein vera sálu­hjálp­ara að upp­lagi en Steinn hins vegar þarf ekki annað en sjá and­litið á bróður sínum til að kom­ast í betra skap.

Pétur Jóhann er sex árum eldri en Steinn og seg­ist hafa reynt að passa hann þegar þeir voru yngri. „Ég gerði heið­ar­legar til­raunir til þess að passa hann,“ segir hann. „En það var það mik­ill ald­urs­munur á okkur að mér fannst hann eig­in­lega meira fyrir en eitt­hvað annað á þessum árum. En þegar við urðum eldri náðum við að tengj­ast.“
„Nú ertu að syk­ur­húða æsk­una all­rosa­lega,“ grípur Steinn fram í. „Já, ég ætla nú ekk­ert að fara of djúpt í saumana á þessu,“ svarar Pétur Jóhann og svo bresta þeir báðir í skelli­hlátur. Það er greini­legt að þeir eru vanir orða­hnipp­ingum og hafa báðir jafn­gaman af.

Milli heims og helju

Bræð­urnir hafa farið ólíkar leiðir í líf­inu, Steinn vann sem þjón­ustu­stjóri gæslu­sviðs Securitas í fjórtán ár og not­aði allar frí­stundir til að aka um á mót­or­hjóli en Pétur hellti sér ungur út í grínið. „Áhugamál okkar eru eins ólík og hugs­ast getur,“ við­ur­kennir Steinn. „En á síð­ustu árum höfum við sam­ein­ast í stang­veiði sem við höfum báðir áhuga á.“

Í júlí 2015 lenti Steinn í alvar­legu mót­or­hjólaslysi sem varð til þess að líf hans gjör­breytt­ist. Hann lá milli heims og helju í fimm daga með tutt­ugu bein í lík­am­anum brotin og slitna vöðva og sinar.

„Það stóð um tíma til að aflima mig, en ég er nú með alla limi enn þá,“ segir hann.

„Ég er líka svo þrjóskur að eðl­is­fari að ég var far­inn að vinna aftur hjá Securitas í októ­ber 2015 þótt ég væri á hækjum. En það kom í bakið á mér seinna og ég þurfti að minnka vinn­una niður í fimm­tíu pró­sent.“

Steinn hafði alltaf átt sér þann draum að fara erlendis og hjálpa fólki sem ætti í erf­ið­leikum og eftir slysið fór hann að velta því alvar­lega fyrir sér að láta þann draum ræt­ast. Hann hóf nám í Ráð­gjafa­skól­anum í fyrra og skipti í fram­haldi af því algjör­lega um starfs­vett­vang.

„Ég sá aug­lýs­ingu frá Kára Eyþórs­syni sem rekur Ráð­gjafa­skól­ann, hringdi í hann og hann benti mér á að það væri hægt að hjálpa alveg nóg hérna heima. Það var eig­in­lega það sem gerði það að verkum að ég fór í skól­ann og fór í fram­hald­inu að vinna hjá Píeta-sam­tök­unum.“

Málefni sem stendur okkur nærri

Meðal þeirrar þjón­ustu sem Píeta-sam­tökin bjóða upp á eru fimmtán ókeypis með­ferð­ar­tímar hjá þver­fag­legu teymi, sem í eru félags­fræð­ingur, sál­fræð­ingur og geð­hjúkr­un­ar­fræð­ingur fyrir fólk í sjálfs­vígs­hug­leið­ingum og fimm ókeypis sál­fræði­tímar fyrir aðstand­endur þeirra. Það þarf að hringja í síma sam­tak­anna og panta tíma og eitt af hlut­verkum Steins er að svara sím­tölum frá fólki og meta hvort þjón­ustan sem Píeta-sam­tökin bjóða upp á henti við­kom­andi mann­eskju. Í fram­hald­inu tekur hann svo á móti þeim sem sam­tökin aðstoða og tengir þá við sér­fæð­ing­ana sem sjá um með­ferð­ina.

En hvað um per­sónu­lega reynslu, hafa þeir bræður ein­hvern tíma glímt við slíka erf­ið­leika eða hugs­anir um sjálfs­víg?

„Nei, en þetta stendur okkur nærri,“ segir Steinn. „Það hafa tveir úr ætt­inni bundið enda á eigið líf og svo átti ég mjög góðan vin sem gerði slíkt hið sama.“

En þú Pétur? Hefur þú alltaf verið svona ofur­hress?

„Ég held ég sé nú bara eins og all­flestir með það,“ svarar Pétur Jóhann. „Maður er mis­hress, en vinn­unnar minnar vegna þá verð ég oft­ast að vera bara ofur­hress, alla vega út á við. Það er heldur ekk­ert erfitt fyrir mig. Ég nýt þeirra for­rétt­inda að vera í kringum skemmti­legt fólk alla daga í öllu sem ég er að gera. En ég segi samt eins og Steini bróðir að þetta stendur manni nærri. Ég og konan mín eigum tvær stelpur sem eru nýkomnar af ung­lings­skeið­inu og maður hefur séð ýmis­legt og fengið að kynn­ast ýmsu í gegnum þær. Þannig að þetta mál­efni stendur manni nærri.“

Þakklætið næring

Steinn valdi sér þetta starf vegna löng­unar til að hjálpa fólki til betra lífs, var ein­hver svipuð ástæða fyrir því að þú valdir grínið?

„Í upp­hafi var það nú ekki drif­kraft­ur­inn, nei,“ við­ur­kennir Pétur Jóhann. „Ég fann bara að þetta var eitt­hvað sem ég varð að prófa og byrj­aði í uppi­standi. Ég var sann­færður um að ég hefði eitt­hvað fram að færa á þessum vett­vangi. Það eru nátt­úr­lega mörg ár liðin síðan og ég búinn að gera svo margt að núna eru aðrir hlutir farnir að næra mann í þessu og þá ekki síst að finna það að fólk nýtur þess að fylgj­ast með því sem maður er að gera. Það er tölu­vert mikil nær­ing í því fyrir mig. Fólk er að stoppa mann á förnum vegi og þakka fyrir eitt­hvað sem maður hefur gert og það finnst mér rosa­lega mik­ils virði.“

Þú hlýtur líka að upp­lifa það í þínu starfi, Steinn, að fólki finn­ist það standa í þakk­ar­skuld við þig fyrir að hafa hjálpað því.

„Já heldur betur. Ég lít þannig á það að ef við náum að bjarga einum þá sé það sigur. En við munum ábyggi­lega koma til með að bjarga fleirum.“

Bræður standa þétt saman.

Úr myrkrinu í ljósið

Aðfara­nótt laug­ar­dags­ins 12. maí standa Píeta-sam­tökin fyrir sinni árlegu göngu „Úr myrkr­inu í ljósið“ og ég bið Stein að útskýra í stuttu máli hver hug­myndin að baki henni sé.

„Það er lagt af stað klukkan fjögur um nótt­ina og gengnir fimm kíló­metrar. Þetta er nátt­úr­lega rosa­lega tákn­ræn ganga,“ útskýrir hann. „Lagt af stað í myrkri og gengið inn í ljósið. Gangan er í minn­ingu þeirra sem lát­ist hafa í sjálfs­vígi og til að efla von þeirra sem eiga um sárt að binda vegna van­líð­unar og sjálfs­vígs­hugs­ana. Það er líka mikið af aðstand­endum fólks sem fallið hefur fyrir eigin hendi sem ganga með okkur.“

Fer alltaf að hlæja

Ég spyr þá bræður hvort þeir ætli að ganga í ár og það ætlar Steinn að sjálf­sögðu að gera en Pétur Jóhann spyr auð­vitað strax hvað þetta sé langt sem þurfi að ganga. Það skapar léttan grínskets milli þeirra bræðra og þegar þeir hætta að fífl­ast spyr ég Stein hvað honum finn­ist um bróður sinn sem grín­ara.

„Það eru tveir menn sem ég á erfitt með að hlæja ekki að bara um leið og sé á þeim and­litin,“ segir Steinn. „Það eru Pétur og Jón Gnarr. Þegar ég sé and­litið á Pétri, hvort sem er í virðu­legu mat­ar­boði eða ein­hvers staðar ann­ars staðar þá fer ég bara að hlæja.“

Grínið í genunum

Ég spyr Pétur Jóhann hvort hann haldi að Steinn hefði getað átt fram­tíð fyrir sér sem grín­ari en hann þver­tekur fyrir það í fyrstu.

„Nei, nei, nei,“ segir hann og skelli­hlær en söðlar svo um. „Jú, án efa hefði hann getað það. Þetta er í gen­unum okkar allra bræðr­anna. Ég vil meina að við séum allir fyndnir, hver á sinn hátt, en ein­hverra hluta vegna virð­ist ég hafa haft meiri löngun til að takast á við þetta. Það var ekki nóg fyrir mig að fá hlátur í góðra vina hópi. Það virð­ist hins vegar vera nóg fyrir bræður mína. Þeir geta komið öllum til að hlæja í fjöl­skyldu­boðum og litlum partíum en ég þarf að fá eitt­hvað meira.“

„Ég er örugg­lega félags­fæln­ari en Pétur,“ útskýrir Steinn. „Það spilar kannski eitt­hvað inn í. En þó að það væri ekki raunin þá finn ég bara engan áhuga á þessum geira.“

Við sláum botn­inn í spjallið með því að ég spyr Pétur Jóhann hvað honum finn­ist um starfið sem Steinn er að vinna.

„Mér finnst það alveg magnað,“ segir hann. „Ég dáist að honum. Eins og hann kom inn á áðan þá lenti hann í þessu mót­or­hjólaslysi og söðlar í raun­inni alveg um. Ég held hann eigi eftir að blómstra í þessu starfi. Þetta liggur mjög vel fyrir honum og það er mjög gott að tala við hann. Það hefur alltaf verið hans sterkasta hlið, finnst mér. Þegar maður situr og talar við hann er maður oft búinn að segja honum sín eigin svört­ustu leynd­ar­mál, án þess að ætla sér það. Það er honum með­fætt að vera sál­fræð­ingur. Ef ég er í ein­hverri krísu í hug­anum þá hringi ég bara í Steina bróður og hann reddar öllu.“

Sími Píeta-sam­tak­anna er opinn frá 9-16 alla virka daga og Steinn hvetur alla þá sem glíma við sjálfs­skaða og sjálfs­vígs­hugs­anir til að nýta sér þetta bjarg­ræði sér að kostn­að­ar­lausu.

Myndir / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina