Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þá voru menn bara hommar um helgar

Þegar Hörður Torfason boð­aði homma og les­b­íur til fundar á heim­ili sínu 9. maí 1978 til að stofna bar­áttu­sam­tök sam­kyn­hneigðra, Samtökin ’78, hafði hann dreymt um að koma slíkum sam­tökum á kopp­inn árum saman við litlar und­ir­tektir. Það var ekki fyrr en hann hafði hrak­ist úr landi, ætlað fyr­ir­fara sér en hætt við og ákveðið að berj­ast fyrir rétt­indum sínum sem hommi sem hjólin fóru að snú­ast.

Þá voru menn bara hommar um helgar
Hörður Torfason lista­maður biðst afsök­unar

Samtökin ’78 halda upp á 40 ára afmæli sitt þann níunda maí. Löngu orðið við­ur­kennt félag í sam­fé­lag­inu, hljóta stuðn­ing frá ríki og borg og eru almennt álitin nauð­syn­legur partur af sam­fé­lag­inu. En fyrir rúmum fjöru­tíu árum þegar ungur leik­ari, leik­stjóri, söngv­ari og söngva­smiður byrj­aði að ámálga það við sam­kyn­hneigða félaga sína að stofna sam­tök til að berj­ast fyrir rétt­indum sínum þótti þeim það frá­leit hug­mynd og sumir hlógu að honum fyrir vit­leys­una.

„Já, það var allt annað lands­lag þá,“ segir Hörður. „Það voru nokkrir menn sem allir vissu að voru hommar, en meiri­hlut­inn var í felum og þorði ekki fyrir sitt litla líf að koma út úr skápnum. Við vorum kall­aðir kyn­vill­ingar, orðið sam­kyn­hneigð var ekki til og Mánu­dags­blaðið skrif­aði um okkur eins og við værum glæpa­menn. Svo helltu menn í sig um helgar, fóru á skemmti­stað­ina og reyndu við aðra homma en það var allt gert undir rós og maður þurfti að vera sér­fræð­ingur í þessu rósa­máli til að átta sig á því hvað var í gangi. Ég hef oft sagt að í þá daga hafi menn bara verið hommar um helgar og það er alveg satt. Það eru flestir búnr að gleyma því hvað þetta var nið­ur­lægj­andi staða.“

„Það hafa orðið áherslu­breyt­ingar innan sam­tak­anna með nýjum kyn­slóðum og breyttum áherslum eins og krist­all­að­ist í átök­unum um inn­göngu BDSM fólks fyrir nokkrum árum … En eins og einn vinur minn benti á þá ger­ist slíkt í öllum félags­skap, meira að segja í KR.“

Hörður seg­ist hafa byrjað að tala um að hommar þyrftu að stofna með sér sam­tök til að berj­ast fyrir rétt­indum sínum og vera sýni­legir í sam­fé­lag­inu fljót­lega eftir að hann kom sjálfur út, þá 21 árs gam­all en það hafi ekki verið neinn grund­völlur fyrir því á þeim tíma.

„Ég gat ekki hugsað mér að lifa í felum allt mitt líf,“ segir hann. „Og for­eldrar mínir studdu mig í því að vera ég sjálfur og lifa í sam­ræmi við eðli mitt. Ég var orð­inn þekktur á þessum árum og mikið talað um kyn­hneigð mína en ég svar­aði alltaf eins og satt var þegar þegar ég var spurður hvort ég væri hommi. Mér datt bara ekki í hug að fela það neitt.“

Var búinn að skrúfa frá gas­inu
Eftir að hið alræmda við­tal þar sem Hörður tal­aði opin­skátt um kyn­hneigð sína birt­ist í tíma­rit­inu Samúel í ágúst 1975 varð allt vit­laust. Hann var úthróp­aður, fékk hvorki vinnu né hús­næði og flúði að lokum til Kaup­manna­hafnar þar sem hann ákvað að binda enda á líf sitt.

„Ég var búinn að skrúfa frá gas­inu og teipa fyrir allar rifur, alveg til­bú­inn að deyja, þegar eitt­hvað í mér gerði upp­reisn. Ég var ungur maður, hafði hæfi­leika sem leik­ari, söngv­ari og laga­smiður og mér fannst ég eiga skilið að lifa lífi mínu á eigin for­sendum. Ég skrúf­aði fyrir gasið og tók þá ákvörðun að berj­ast fyrir rétt­indum mínum og ann­arra sam­kyn­hneigðra hvað sem það kost­aði.“

Hörður var á þessum tíma í sam­bandi með norskum manni og með því að nota nafn hans fengu þeir hús­næði á Íslandi. Þar sett­ust þeir að haustið 1977 og Hörður byrj­aði ótrauður að und­ir­búa stofnun sam­tak­anna. Einn til að byrja með en upp úr ára­mótum 1978 hafði hann sam­band við Guðna Bald­urs­son, sem varð fyrsti for­maður Sam­tak­anna ’78 og fékk hann í lið með sér.

„Guðni fylgd­ist vel með því sem var að ger­ast í mál­efnum sam­kyn­hneigðra ann­ars staðar í Evrópu og var þar að auki ein­stak­lega rök­fastur og fylg­inn sér. Það var mikil gæfa fyrir Samtökin að fá hann sem for­mann,“ segir Hörður. „Við héldum áfram að tala við aðra homma og útskýra fyrir þeim hvað við værum að hugsa og smátt og smátt vakn­aði áhugi hjá fleiri hommum. Það var erf­ið­ara að ná í les­b­í­urnar en mér tókst að fá tvær sem ég þekkti til að mæta á fyrsta fund­inn. Það voru nú ekk­ert allir ánægðir með það en ég hlust­aði ekki á mót­bárur. Við vorum öll á sama báti og þurftum að standa saman.“

Upp­ljómun við upp­vaskið
Starf­semin fór hægt af stað og vakti ekki mikla ánægju í sam­fé­lag­inu en smátt og smátt fóru málin að þok­ast í rétta átt. Hörður segir Guðna alfarið hafa séð um þá hlið starf­sem­innar sem sneri að sam­skiptum við stjórn­mála­menn og til­lögum um laga­breyt­ingar, sjálfur hafi hann tekið að sér að vera í sam­skiptum við fjöl­miðla og vinna að því að gera sam­kyn­hneigða sýni­lega í sam­fé­lag­inu.

„Það vissi hver ein­asti Íslend­ingur hver ég var þegar hér var komið sögu og ég samdi við Guðna um að hann sæi um Reykja­vík en ég skyldi sjá um lands­byggð­ina, þar sem ég var oft að setja upp sýn­ingar hjá áhuga­leik­fé­lögum,“ útskýrir hann. „Ég fór líka í nokkur við­töl í útvarp­inu og hef heyrt það seinna meir að það hafi skipt sköpum fyrir marga. Til dæmis sagði mér kona, mörgum árum seinna, að hún hefði verið hús­móðir í Vest­manna­eyjum sem stóð við eld­hús­vaskinn sinn og vaskaði upp þegar hún heyrði fyrst í mér tala um sam­kyn­hneigð í útvarp­inu. Hún hefði sam­samað sig öllu sem ég sagði og þar og þá ákveðið að hætta að lifa í blekk­inga­leik og gang­ast við því að hún væri lesbía. Sem hún og gerði. Það gladdi mig alltaf jafn­mikið að heyra svona sögur og það styrkti þá trú mína að það væri eitt af und­ir­stöðu­at­riðum þess að sam­kyn­hneigðir fengju rétt­indi á við aðra að þeir yrðu sýni­legir í sam­fé­lag­inu.“

„Þess vegna finnst mér gott að Samtökin ’78 ein­beiti sér að því að berj­ast fyrir rétt­indum ann­arra jað­ar­hópa, eins og trans fólks og inter­sex fólks, því eins og ég hef alltaf sagt þá gengur bar­áttan út á full mann­rétt­indi fyrir alla.“

Gerist líka í KR
Sjálfur yfir­gaf Hörður Samtökin ’78 árið 1993 eftir að upp komu leið­indi innan þeirra og hefur ekki verið starf­andi í þeim síðan. Hann seg­ist þó alls ekki vera einn af þeim sem finnst þau vera á villi­götum.

„Það hafa orðið áherslu­breyt­ingar innan sam­tak­anna með nýjum kyn­slóðum og breyttum áherslum eins og krist­all­að­ist í átök­unum um inn­göngu BDSM fólks fyrir nokkrum árum. Það kom nýtt fólk með nýjar hug­myndir og yfir­tók í raun Samtökin. En eins og einn vinur minn benti á þá ger­ist slíkt í öllum félags­skap, meira að segja í KR,“ segir Hörður glað­hlakka­lega. „Ég lít þannig á að með laga­setn­ing­unni 2006 þegar sam­kyn­hneigðir fengu loks full mann­rétt­indi eftir þrjá­tíu og eins árs bar­áttu Sam­tak­anna ’78 hafi þeim til­gangi sem ég lagði upp með verið náð alveg hund­rað pró­sent þannig að ekki sé lengur þörf á því að berj­ast fyrir rétt­indum þeirra. Þess vegna finnst mér gott að Samtökin ’78 ein­beiti sér nú að því að berj­ast fyrir rétt­indum ann­arra jað­ar­hópa, eins og trans fólks og inter­sex fólks, því eins og ég hef alltaf sagt þá gengur þessi bar­átta út á full mann­rétt­indi fyrir alla. Hitt er annað mál að mér finnst stundum að unga fólkið í dag skilji ekki hvað það var sem við þurftum að glíma við fyrir fjöru­tíu árum og alveg ástæða til að hvetja það til að kynna sér sög­una og læra af henni. Mér fannst það til dæmis slá­andi að þegar laga­setn­ing­unni 2006 var fagnað var ekki einn ein­asti sam­kyn­hneigður á svið­inu, eng­inn. Þar voru bara stjórn­mála­menn, eins og þetta væri allt saman þeim að þakka. Mér finnst svo­lítið umhugs­un­ar­fni á hvaða leið Samtökin eru ef þeim finnst það sjálf­sagt mál. Það er nefni­lega þannig að þessi rétt­indi feng­ust ekki af sjálfu sér, það kost­aði mikla og harða bar­áttu og það eru ýmis teikn á lofti í heim­inum sem benda til þess að ofsóknir gegn hommum séu aftur að aukast. Það þarf að vera vak­andi fyrir því svo sagan end­ur­taki sig ekki.“

Hinn eðli­legi gangur lífs­ins
En hvernig líður þér með það að þetta „barn“ þitt sem Samtökin ’78 óneit­an­lega eru sé orðið fer­tugt, ertu ekki stoltur af þínum hlut?

„Jú, jú, ég get alveg verið það, ef maður þarf endi­lega að vera stoltur af ein­hverju,“ segir Hörður og hlær. „Ég er bara ekki þannig gerður að að ég sé hopp­andi af gleði yfir ein­hverjum hlutum, ég er frekar þurr bara þegar aðrir fagna. Ég hef ekki lengur nein tengsl við Samtökin ’78 en ég losna auð­vitað aldrei undan því að hafa verið sá sem stofn­aði þau og gengst glaður við því.“

Spurður hvernig hann ætli að fagna tíma­mót­unum upp­lýsir Hörður að hann hafi verið beð­inn um að syngja nokkra söngva í kaffi­sam­sæti sem haldið verður í hús­næði Sam­tak­anna við Suð­ur­götu 3 þann 9. maí til að halda upp á afmælið.

„Þau hringdu í mig og báðu mig að gera þetta,“ segir hann hóg­vær. „Og ég geri það auð­vitað með gleði, þótt ein­hverjir verði kannski ekki ánægðir með það. Að öðru leyti hugsa ég ekki lengur mikið um þessi mál. Ég var for­göngu­maður í stofnun þess­ara sam­taka, en svo tóku aðrir við stjórn­inni og það er bara nákvæm­lega eins og það á vera. Hinn eðli­legi gangur lífs­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina