Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Karlmenn mega allt – en samt mjög fátt

Karlmenn mega allt – en samt mjög fátt
|||||

Trans menn­irnir Alex­ander Björn Gunn­ars­son og Davíð Illugi Hjör­leifs­son Figved fengu úthlutað kven­kyni við fæð­ingu en létu leið­rétta kyn sitt og lifa nú loks­ins sem þeir sjálfir. Þeir segja mik­inn mun á kröfum sem sam­fé­lagið gerir til kynj­anna. Konur eigi að vera stilltar en karl­menn megi hafa hátt.

„Konur eiga að vera sett­legar og ekki láta mikið fyrir sér fara. Ég er þannig frá nátt­úr­unnar hendi en nú er meiri pressa á mig að vera sýni­legri og taka meira pláss. Ég upp­lifi það mjög sterkt að það voru gerðar miklu meiri kröfur til mín, áður en ég kom út sem strákur, að haga mér vel, standa mig vel og vera 110% full­kom­inn. Í dag er ég yfir­leitt les­inn sem karl­maður og þá er mér alveg fyr­ir­gefið ef ég geri mis­tök, því allir geri mis­tök. En ef maður er stelpa þá gera ekki allir mis­tök,“ segir Alex­ander. Alex­ander verður þrí­tugur í sumar og var mjög opin­skár í fjöl­miðlum um sitt kyn­leið­rétt­ing­ar­ferli. Hann blogg­aði til að mynda um typpið á sér á sínum tíma og hefur lagt sín lóð á vog­ar­skálar þess að opna umræðu um trans­fólk.

Alex­ander Björn.

„Maður á bara að þegja og ekki vera fyrir,“ segir sessu­nautur Alex­and­ers, Davíð Illugi eða Illugi eins og hann er oft­ast kall­aður. Illugi er ára­tug yngri en Alex­ander en hann hefur verið búsettur í Noregi í um átta ár. Hann hefur spilað tölvu­leiki um ára­bil og finnur vel fyrir kynja­mis­rétti og -mun í þeim heimi.

„Þegar að fólk leit á mig sem stelpu og ég skaut mann­eskju í byssu­leik þá varð allt kreisí af fögn­uði því fólk bjóst ekki við neinu af stelpu. En ef ég skýt fáa í byssu­leik núna verð ég bara skammaður og diss­aður, það þykir ekki nógu gott. Í tölvu­leikja­heim­inum eru karl­menn sem spila tölvu­leiki kall­aðir gamers, en konur heita gamer girls. Það var alltaf verið að adda mér þegar var litið á mig sem stelpu og alltaf verið að tala um útlitið mitt en ég fann að ég var ekki einn af hópnum. Strák­arnir voru ekk­ert að spá í taktík­inni minni í leiknum og buðu mér í alls kyns teymi bara af því að ég var stelpa. Svo var mikið talað um kyn­líf og ég spurður oft hvort ég ætti kærasta,“ segir Illugi, en Alex­ander fann ekki mikið fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni þegar hann lifði líf­inu sem kona

„Ég kom út sem lesbía þegar ég var 16 ára og hef alltaf verið á karl­mann­legri hlið, útlits­lega séð. Karlmenn töl­uðu aldrei mikið um útlitið mitt en fann ég meira fyrir því að þeir komu til mín og sýndu mér gellur. En ég hef séð svo mörg dæmi um kyn­ferð­is­lega áreitni í kringum mig og það er fárán­legt að karl­menn leyfi sér svona hluti,“ segir Alex­ander.

„Já, eins og áreiti á vinnu­stað,“ skýtur Illugi inn í. „Það að þú þurfir að umbera að karl­maður sem er yfir­maður þinn sé að káfa á þér á vinnu­stað þar sem þú þarft að vera á hverjum degi er hræði­legt. Það er mjög algengt og konur bara taka því. Ég hef oft orðið vitni að slíku og stundum langar mig að fara til kvenna og segja þeim að standa upp fyrir sér sjálfum.“

Og Alex­ander bætir við: „Ég held að konur upp­lifi sig oft van­mátt­ugar og varn­ar­lausar gagn­vart karl­mönnum.“ Illugi segir að það teng­ist upp­eld­inu.

„Þær eru bara aldar upp þannig. Karlmenn mega vera eins og þeir eru. Þeir mega vera háværir og haga sér eins og fífl. Ég er rosa­lega oft fúll yfir því að vera karl. Stundum þoli ég það ekki en svo er ég líka mjög glaður að hafa geta upp­lifað þá hlið að vera kven­maður. Það gerir mig að betri mann­eskju. Pældu í því ef ég hefði byrjað að skil­greina mig sem karl­mann þegar ég var fjög­urra ára og hefði verið alinn upp sem karl­maður. Ég hefði orðið allt önnur mann­eskja en ég er núna. Ég er ánægður að hafa upp­lifað hlið kven­manna svo ég sé ekki þessi mann­eskja sem maður er alltaf að forð­ast,“ segir hann og Alex­ander slær á létta strengi. „Já, það hjálpar mér mikið í sam­skiptum við aðrar stelpur og kærust­una mína. Bara það að vita hvernig það er að vera með túr­verki. Ég held að það myndi hjálpa rosa­lega í mörgum sam­böndum,“ segir hann og hlær.

„Það er jákvætt að vita um lík­am­legu hlut­ina en líka þá sam­fé­lags­legu,“ bætir Illugi við.

Hluti af karlmennsku er að vera með mótþróa

Davíð Illugi.

Okkur er tíð­rætt um þessi rót­grónu, sam­fé­lags­legu gildi að karl­menn megi allt og hafi leyfi til að taka mikið pláss. Fyrir stuttu spratt upp bylgja í kjöl­far #metoo sem gekk um sam­fé­lags­miðla undir kassa­merk­inu #karl­mennskan. Það átak reis ekki nærri því jafn­hátt og for­veri þess, og á mikið inni, en þá kom í ljós að karl­mönnum leyf­ist alls ekki allt, eitt­hvað sem hug­takið eitruð karl­mennska nær mjög vel utan um.

„Karlmenn mega margt en það er samt mjög þröngt skil­greint hvað þeir mega. Við megum til dæmis ekki vera í kjólum. Það virð­ist að við megum gera það sem við viljum á hlut kvenna en ekki á hlut ann­arra karla,“ segir Alex­ander.

„Hluti af karl­mennsk­unni er að vera með mót­þróa. Ef það er verið að biðja karl­menn um að opna sig þá skilja þeir ekki að þeir geti það og vilja það ekki. Þeir hafa verið aldir upp svo lengi við það að þeir megi ekki opna sig og tala um til­finn­ingar. Þetta hefur með upp­eldi og kynja­hlut­verk að gera,“ segir Illugi og Alex­ander er sama sinnis.

„Þetta á eftir að taka mjög langan tíma. Margir karl­menn eru aldir upp við það að gráta ekki, verða ekki veikir, sýna ekki til­finn­ingar. Sem betur fer virð­ast bara eldri kyn­slóð­irnar vera enn í þeim pakka. Mér finnst þetta vera hægt og rólega að breyt­ast með yngri kyn­slóð­ina. Strákar sem til dæmis vilja vera með nagla­lakk mega það þótt það sé „stelpu­legt“. Við erum í milli­bils­á­standi núna þar sem gamlar hefðir og yngri kyn­slóðin, með ný gildi og venjur, mæt­ast.“

Illugi bætir því við að karl­mönnum þyki auð­veld­ara að opna sig fyrir honum, því þeir halda að hann sé hommi, og þá sér­stak­lega á skemmti­stöðum eftir nokkra drykki. „Gagn­kyn­hneigðir, sískynja karl­menn koma oft til mín og byrja að tala um til­finn­ingar. Þeim líður eins og það sé meira við­ur­kennt frá mann­eskju eins og mér sem er ekki gagn­kyn­hneigður, sískynja karl­maður,“ segir Illugi.

„Ókei, ég lendi aldrei í því,“ segir Alex­ander.
„Ég lendi oft í því en ég djamma mjög mikið,“ segir Illugi og brosir.
„Ég djamma aldrei,“ segir Alex­ander og glottir.

„Það koma menn til mín á djamm­inu og opna sig. Sumir hafa kannski aldrei talað um til­finn­ingar en það er viss þjálfun að gera það. Ég gat það ekki áður en nú er ég rosa­lega opin mann­eskja. Karlmenn hafa almennt mjög sjaldan þá þjálfun,“ segir Illugi og bætir við að talað sé niðr­andi um karl­menn sem tali um til­finn­ingar, sem hjálpi alls ekki.

„Þú ert hommi ef þú talar um til­finn­ingar. Þú ert stelpa, í niðr­andi mein­ingu. Það er mesta óvirð­ing gagn­vart karl­mennsku að líkja henni við eitt­hvað kven­legt. Karl­mennska er svo mik­il­væg hjá karl­mönnum en í flestum til­vikum er hún það því þeim finnst að hún eigi að vera mik­il­væg.“

Alex­ander skýtur inn í að það sé mik­il­vægt að útrýma þess­ari niðr­andi orð­ræðu, bæði fyrir konur og karl­menn. „Þessi orð­ræða um að eitt­hvað sé kerl­ing­ar­legt, að ein­hver slái eins og stelpa, að ein­hver sé homma­legur, hefur svo slæm áhrif á sjálfs­mynd­ina hjá konum, stelpum, hommum og börnum. Það hefur mjög sterk áhrif að tala um það sem þú ert í niðr­andi til­gangi. Það er bara hreint út sagt hræði­legt.“

Vilja ekki vera ógnandi karlmenn

Alex­ander og Illugi hafa að sjálf­sögðu ekki farið var­hluta af #metoo þar sem athygli var beint að kyn­ferð­is­legri áreitni og ofbeldi gagn­vart konum. Þeir fagna þessu átaki, eins og öðrum þar á undan, en segja að á sama tíma skapi þetta ákveð­inn vanda fyrir karla.

Alex­ander og Illugi segja mik­inn mun á því hvaða kröfur séu gerðar til kynj­anna.

„Það er óþægi­legt fyrir konur ef karl­maður gengur á eftir þeim í myrkri. En það er líka óþægi­legt fyrir okkur sem karl­menn að hafa áhyggjur af því að kon­unni líði illa. Ég vil ekki að fólk sé hrætt við mig. En ég skil að fólk vilji hafa var­ann á. Það eru konur sem er ráð­ist á í myrkri og það eru karl­menn sem gera það,“ segir Alex­ander.

„Mér fannst óþægi­legt að ganga í myrkri þegar það var horft á mig sem kven­mann og ég var skít­hræddur. Núna er ég það ekki. Sem mann­eskja sem hefur upp­lifað að vera kona, en er nú maður, þá er ég alltaf að passa mig á að vera ekki þessi ógn­andi mann­eskja sem lætur konum líða svona,“ segir Illugi.

„En þessar bylgjur, eins og #metoo, mega ekki deyja. Við þurfum að halda áfram að ýta undir þær og ekki leyfa þeim að deyja út,“ segir Alex­ander og Illugi er því hjart­an­lega sam­mála.

„Það að bar­átta verði svona hávær finnst mér æðis­legt. Við erum ekki komin mjög langt í kynja­jafn­rétti þó að við viljum trúa því. Þegar svona bylt­ingar fæð­ast þá verður fólk hávær­ara og fólk með­tekur eitt­hvað smá­vegis af því sem bar­áttu­fólkið segir. Svo kemur önnur bar­átta og fólk með­tekur örlítið meira og svo fram­vegis. En þá má ekki hætta. Við verðum að vera hávær.“

Óþægilegt að brosa og vinka til barna

Þeir Alex­ander og Illugi eru báðir miklar barna­gælur en finna sterkt fyrir því að litið sé öðru­vísi á þeirra sam­skipti við börn eftir að fólk byrj­aði að upp­lifa þá sem karl­menn.

„Ég er með eina nei­kvæða sögu í koll­inum,“ segir Alex­ander djúpt hugsi. „Ég var að koma úr rækt­inni og var að bíða eftir strætó. Þá kom hópur af leik­skólakrökkum og einn strákur vink­aði mér. Ég brosti og vink­aði en þá kom leik­skóla­kenn­ari og stóð á milli okkar. Ég fann fyrir því að þetta mætti ekki og að sam­stundis kvikn­aði grunur um að ég væri barna­perri,“ segir hann og Illugi, sem vinnur á leik­skóla, kinkar kolli.

„Ég elska börn. Ef fólk spurði mig hvað mig lang­aði að verða þegar ég yrði stór sagði ég alltaf pabbi. Fólk hélt að ég væri að meina að mig lang­aði að vera eins og pabbi minn en mig lang­aði bara að vera faðir. Ég brosi alltaf til barna þegar ég sé þau og nú finn ég svo sterk­lega fyrir því að ég held því inni því ég vil ekki að ein­hver haldi að ég sé barna­perri. Það er mjög skrýtið, því áður var það ekki þannig,“ segir Illugi og vísar í tím­ann áður en hann lét leið­rétta kyn sitt.

„Það hefur vissu­lega nei­kvæðar hliðar að vera karl­maður og vinna á leik­skóla. Ef barn myndi segja eitt­hvað sem myndi hljóma eins og ég hefði gert eitt­hvað rangt þá væri tekið öðru­vísi á því en ef um konu væri að ræða,“ segir Illugi.

„Það væri tekið alvar­legra á því,“ segir Alex­ander. „Og ég skil alveg af hverju.“

Þurfti að vera karlmannlegasti karlinn á svæði

Alex­ander hefur ætíð verið mjög opinn með sitt kyn­leið­rétt­ing­ar­ferli og vakti bloggið hans um ferlið, phalloiniceland.tumblr.com, mikla athygli.

Veg­ferðir Alex­and­ers og Illuga að því að gera sér ljóst að þeir væru í raun karl­menn, þó að þeir hefðu fengið úthlutað kven­kyni við fæð­ingu, voru mjög ólíkar.

„Ég vissi ekki að það væru til trans gaurar þannig að ég kom fyrst út sem lessa,“ segir Illugi. „Ég vildi vera mjög karl­mann­legur og var mjög upp­tek­inn af því. Ég til dæmis elska söng­leiki en hefði aldrei nefnt það á þessu tíma­bili. Skilurðu mig?“ spyr hann Alex­ander sem brosir kankvís­lega.
„Upp að vissu marki. En ég var alltaf mjög opinn með það að ég elska söng­leiki,“ segir Alex­ander og hlær.

„Það er samt ímynd sem fólk hefur um að karl­menn eigi ekki að elska söng­leiki. Eða ballet. Ég elska ballet. Og á þessu tíma­bili þegar ég var mjög upp­tek­inn af því að vera karl­mann­legur, eða ster­eótýpan af karl­mennsku. Ég byrj­aði að vera hávær­ari, því karl­menn mega vera hávær­ari en konur, tala djúpri röddu og hnykkla vöðvana í spegl­inum. Þangað til ég byrj­aði á horm­ónum. Þá byrj­aði mér að vera skít­sama um karl­mennsku,“ segir Illugi og Alex­ander skýtur inn í að vissu­lega hafi hann upp­lifað slíkt tíma­bil þar sem hann í raun aðhyllt­ist ein­hvers konar ofur­karl­mennsku, þótt það hafi verið mun styttra tíma­bil en hjá Illuga.

„Ég hafði ekki alveg jafn­miklar áhyggjur af þessu en það teng­ist örugg­lega því að ég upp­lifði mig ekki alltaf sem strák. Ég upp­lifði mig sem stelpu en síðan breytt­ist það yfir í að ég upp­lifði mig sem strák. Það er frekar lýsandi fyrir það hve flæð­andi kyn­vit­und getur verið. Í um það bil ár upp­lifði ég að ég þyrfti að vera karl­mann­leg­asti karl­mað­ur­inn á svæð­inu og mátti til dæmis ekki horfa á bleikan lit og því um líkt.“

Laminn fyrir að vera trans maður

Við stöldrum aðeins við þá stað­reynd að þeir báðir séu trans menn, en trans menn hafa verið minna áber­andi í sam­fé­lag­inu en trans konur síð­ustu ár. Af hverju halda þeir að svo sé?

„Á meðan það er svona mikil trans fóbía í sam­fé­lag­inu þá er lík­legt að þeir sem geta falið sig geri það. Það er engin ástæða fyrir okkur að koma í við­töl og segj­ast vera trans menn, nema sú stað­reynd að við viljum vera sýni­legri og við viljum opna umræð­una,“ segir Alex­ander.

Illugi hefur fundið fyrir for­dómum gegn trans fólki á eigin skinni, í bók­staf­legri merk­ingu. „Ég hef verið lam­inn fyrir að vera trans, með hnúa­járni. Ég lenti á spít­ala. Það er brú­tal,“ segir hann og það tekur greini­lega mikið á hann að rifja það upp. „Fólk heldur að við séum komin langt, sem er rétt. Við erum komin langt í hinsegin bar­átt­unni. Samt er mikið sem þarf enn að vinna í. Samkvæmt regn­boga­kort­inu þar sem farið er yfir hve langt lönd eru komin í rétt­indum hinsegin fólks í laga­legum skiln­ingi, stöndum við mjög illa. Það eru til dæmis engin lög sem banna það að hinsegin mann­eskja sé rekin úr starfi út af því að hún er hinsegin,“ segir hann og bætir við að for­dóm­arnir birt­ist í ýmsum myndum.

„Ég er ekki lam­inn á hverjum ein­asta degi en það hefur gerst og ekki bara einu sinni. Svo eru þessi litlu atriði enda­laust. Fólk heldur að það megi spyrja mig um allt sem teng­ist minni kyn­hneigð, og jafn­vel kyn­lífi. Þannig að ég þarf alltaf að vera búinn undir að fá alls kyns spurn­ingar um það.“

Sjö milljarðar og eitthvert kyn

Þeir Alex­ander og Illugi eru reyndar báðir sam­mála um að það sé ekki hægt að skipta heim­inum í tvær fylk­ingar út frá kyni.

„Fyrir kyn­þroska eru allir eins, fyrir utan kyn­færin. Hins vegar teng­ist allt ein­hverju kyni í sam­fé­lag­inu. Og ef það teng­ist ekki kyni þá teng­ist það kyn­fær­unum þínum. Kyn er hins vegar svo per­sónu­bundið. Þú ert bara þitt kyn. Ég vil meina að það séu til jafn­mörg kyn og það eru mann­eskj­urnar eru í heim­inum. Það er eng­inn annar með þín sér­kenni,“ segir Illugi.

Illugi er búsettur í Noregi og er mjög virkur innan tölvu­leikja­sam­fé­lags­ins. Hann hefur verið lam­inn fyrir að vera trans og segir mikla for­dóma í sam­fé­lag­inu í garð trans fólks.

„Það eru til sjö millj­arðar og alls konar kyn. Hver er sitt eigið kyn. Við erum til dæmis báðir trans gaurar, en erum ekki á nokkurn hátt eins. Heilinn okkar vill svo mikið flokka í hlutum. Því færri flokka sem þú ert með, því þægi­legra er það fyrir heil­ann. Þannig að ef þú getur flokkað allan heim­inn í tvo flokka þá er það mjög ein­falt. En hvernig er hægt að setja rúm­lega sjö millj­arða manna í tvo kassa? Við flokkum til dæmis ávexti í einn flokk en ban­anar og epli eru samt ekki eins. Ég vil meina að þessir tveir flokkar kynja séu yfir­flokkar og síðan séu margir und­ir­flokkar, skörun og alls konar,“ segir Alex­ander.

Þolir ekki karlmennsku

Það myndi taka okkur marga daga að ná utan um hug­takið karl­mennska, birt­ing­ar­myndir karl­mennsk­unnar og hvað sé til ráða til að útrýma eitr­aðri karl­mennsku. En áður en ég kveð þá Illuga og Alex­ander verð ég að spyrja hvaða merk­ingu þeir leggi í sína eigin karl­mennsku í dag.

„Ég reyni að vera rosa­lega góður pabbi,“ segir Alex­ander en hann á átta mán­aða stúlku með unn­ustu sinni. „Það vill svo skemmti­lega til að mér finnst gaman að fara í rækt­ina og lyfta þungum lóðum. Svo finnst mér gaman að þrífa, baka og elda,“ segir hann og Illugi tekur við.

„Núna get ég sagt að ég þoli ekki karl­mennsku. Ég vil ekki vera þessi karl­maður sem öðrum finnst ógn­andi. Ég er skít­hræddur við eitr­aða karl­mennsku. Ég leik mér að því að vera ekki karl­mann­legi karl­inn í kringum karl­menn. Ég tala oft um eitt­hvað sem karl­menn myndu aldrei tala um til að sjá við­brögðin frá öðrum karl­mönnum. Meðan karl­mennskan er enn eitruð þá verður mér illa við hana.“

Hvað er eitruð karlmennska?

Hugtakið eitruð karl­mennska er notað í sál- og kynja­fræði og vísar til vissra við­miða karl­mann­legrar hegð­unar í Norður-Ameríku og Evrópu, sem tengj­ast sam­fé­lags­skaða og þeim skaða sem karl­menn sjálfir verða fyrir. Hefð­bundnar staðalí­myndir karl­manna sem æðri vera sem og kven­hatur og hinseg­in­fælni geta verið álitnar sem eitr­aðar sökum þess að þær ala á ofbeldi, þar með talið kyn­ferð­is­legu ofbeldi og heim­il­is­of­beldi.

Aðrir eig­in­leikar sem fylgja þessum staðalí­myndum eru að karl­menn séu til­finn­inga­lega lok­aðir, en tengsl eru á milli þess og sál­fræði­legra vanda­mála karl­manna, streitu og mis­notkun á ávana­bind­andi efnum. Aðrir eitr­aðir eig­in­leikar eru mikil vinnu­semi karl­manna og að þeir þurfi að sjá fyrir fjöl­skyld­unni. Þessari eitr­uðu karl­mennsku hefur oft verið kennt um að ofbeldi meðal karl­manna er talið eðli­legt. Stundum hefur því verið fleygt fram að eitruð karl­mennska sé leið feðra­veld­is­ins til að skaða karl­menn.

Úr orðabókinni Hinsegin frá Ö til A

Að vera sís/sískynja
Sís er lýs­ing­ar­orð og for­skeyti sem er notað um fólk sem upp­lifir sig á þann hátt að það til­heyri því kyni sem því var úthlutað við fæð­ingu. Sís kona er til dæmis kona sem var úthlutað kyn­inu „stelpa“ við fæð­ingu og er sátt við það. Orðinu er oft stillt upp sem and­heiti við orðið trans.

Að vera trans Trans er regn­hlíf­ar­heiti yfir fólk sem er með kyn­vit­und sem sam­ræm­ist ekki því kyni sem því var úthlutað við fæð­ingu.

Kyn­vit­und
Kyn­vit­und segir til um hvernig fólk vill lifa og vera í sínu kyni. Kyn­vit­und vísar ekki til kyn­færa, líf­fræði eða útlits heldur upp­lif­unar fólks af eigin kyni. Allir hafa kyn­vit­und því allir upp­lifa kyn sitt á ein­hvern hátt.

Kyn­hneigð
Kyn­hneigð segir til um hverjum fólk getur lað­ast að, orðið skotið í eða ást­fangið af.

Myndir / Aldís Páls­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina