Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Fallegt þegar fagfólk þarf að upplifa að vera amatörar“

Björk hvetj­andi og sýnir algjört traust.

„Fallegt þegar fagfólk þarf að upplifa að vera amatörar“
|||

Sviðs­hreyf­ingar í kom­andi tón­leika­ferð Bjarkar Guð­munds­dóttur eru í höndum Mar­grétar Bjarna­dóttur, dans­höf­undar og mynd­lista­manns. Þær kynnt­ust fyrir 15 árum þegar Margrét var barn­fóstra Bjarkar.

Margrét Bjarna­dóttir segir að lög Bjarkar séu aðalátta­vit­inn í sköpun sviðs­hreyf­ing­anna.

Í lok maí mun Björk hefja tón­leika­ferð sína um heim­inn og hélt nokk­urs konar gener­alprufu af tón­leik­unum í Háskóla­bíói fyrir skömmu. Tón­leik­arnir eru liður í útgáfu Útópíu sem er tíunda sóló­plata Bjarkar en hún kom út í lok síð­asta árs. Hún kemur fram með sjö flautuleik­urum, hörpu­leik­ara, slag­verks­leik­ara og raf­tón­list­ar­manni. Hópurinn hefur verið við æfingar á Íslandi síð­ast­liðnar vikur. Leikmynd tón­leika­ferð­ar­innar var frum­sýnd í Háskóla­bíói en hún er hönnuð af Heimi Sverris­syni og smíðuð í Irma studios. Við spurðum Margréti út í verkið og sam­starfið við Björk.

„Við höfum þekkst í mörg ár þar sem ég var barn­fóstra dóttur hennar í eitt ár fyrir 15 árum. Það var sko ynd­is­legt sam­starf. Svo, fyrr í vetur, bað hún mig um að semja hreyf­ingar fyrir tón­list­ar­mynd­bandið við lagið Útópía þar sem flautuleik­ar­arnir voru í stóru hlut­verki. Það var mjög skemmti­legt og var eins og byrj­unin á ein­hverju sem væri hægt að þróa áfram. Upp úr því spurði hún hvort ég hefði áhuga á að sjá um hreyf­ingar flautuleik­ar­anna fyrir tón­leika­ferða­lagið,“ segir Margrét.

„Svo þurfti ég líka að huga að heild­ar­mynd­inni, að kaf­færa ekki tón­leik­ana í dans­sporum heldur finna jafn­vægi.“

Við vinnsl­una á verk­inu vildi Margrét finna leið til þess að hreyf­ingar flautuleik­ar­anna gætu orðið eðli­legur hluti af flutn­ingi þeirra eða fram­leng­ing á honum. „Flautuleik­ar­arnir, allt konur, eru rosa­lega færar og ég vildi ekki að hreyf­ing­arnar ynnu á móti tón­list­ar­flutn­ingnum. Það gerði það vissu­lega fyrst þegar þær voru að læra hreyf­ing­arnar og ná tökum á þeim en svo kom þetta smám saman. Kannski hefði ég ekki haft svona mikla trú á því ef ég hefði ekki verið búin að gera No Tomorrow á síð­asta ári, gít­ar­ball­ett okkar Ragnars Kjart­ans­sonar með Íslenska dans­flokknum, þar sem dans­ar­arnir lærðu að spila á gítar og dansa um leið. Mér finnst svo fal­legt tíma­bil í æfinga­ferl­inu þegar þessar miklu fag­mann­eskjur þurfa að sætta sig við að verða ama­törar í smá­tíma á meðan þær eru að til­einka sér eitt­hvað alveg nýtt. Þær eru að gera svo margt sem þær hafa aldrei gert áður og kannski eitt­hvað sem fáir ef ein­hverjir flautuleik­arar hafa gert – að læra öll þessi lög utan­bókar sem sum hver eru í flóknum útsetn­ingum og dansa sam­hæfðar hreyf­ingar um leið. Þetta er mjög mikil áskorun. En svo þurfti ég líka að huga að heild­ar­mynd­inni, að kaf­færa ekki tón­leik­ana í dans­sporum heldur finna jafn­vægi. Sum lög vildu bara kyrrð og þá hlust­aði ég á það. Svo eru margir þættir sem spila inn í og hafa áhrif á það sem maður getur gert, eins og til dæmis leik­myndin og skipt­ingar á flautum á milli laga, sem eru mjög tíðar, þannig að það er að mörgu að huga. En svo er þetta líka eitt­hvað sem verður áfram í þróun. Það var svo gott að fá tæki­færi til þess að vera með æfingatón­leika í Háskóla­bíói og nú höfum við tíma til að breyta og bæta og nostra við smá­at­riði fyrir tón­leika­ferða­lagið sem hefst í London.“

Frábært að vinna með Björk
Björk skapar sína heima á ein­stakan hátt en Margrét heldur að hún hafi aldrei áður skapað jafn­sjón­rænan heim fyrir tón­leika­ferða­lag, sér­stak­lega á svona tón­list­ar­há­tíðum utandyra eins og fram undan eru í sumar. „Það þarf að vera hægt að skella leik­mynd­inni sem Heimir Sverr­is­son hann­aði upp á hálf­tíma og skyndi­lega ertu komin með eitt stykki útópískan heim. Það er svo mikil alúð í öllu, alveg út í minnstu smá­at­riði, eins og til dæmis grím­urnar sem James Merry hannar og býr til fyrir Björk, flautuleik­ara og hörpu­leik­ara. Hver gríma er ein­stök og skreytt með pínu­litlum perlum sem sjást kannski ekki úr kíló­metra fjar­lægð á úti­festi­vali en skipta samt mjög miklu máli fyrir stemn­ing­una í heim­inum sem hefur verið skap­aður.“

Mikið var um dýrðir þegar Björk frum­flutti tón­leik­ana í Háskóla­bíói á dög­unum. Mynd / Santiago Felipe

Margrét mun vera með á æfingum í London áður en tón­leika­ferða­lagið hefst og ætlar svo að minnsta kosti að kíkja á hóp­inn í Róm og sjá hvernig hlut­irnir standa. Hún segir að sam­starfið við Björk hafi verið frá­bært. „Hún er hvetj­andi og sýnir manni mikið traust en þannig upp­lifir maður algjört frelsi til að prófa sig áfram. Við ræddum nálg­un­ina en svo var hún aðal­lega bara mjög hvetj­andi. Það hjálpar líka að hafa þekkst í mörg ár og það er svona gagn­kvæmur skiln­ingur sem gerir allt auð­veld­ara.

„Það þýðir ekki að gera þær laf­móðar í ein­hverjum dansi þannig að þær geti ekki blásið í hljóð­færið.“

Lögin eru nátt­úr­lega aðalátta­vit­inn minn í þess­ari vinnu. Það er alltaf svo skýr til­finn­ing í lög­unum hennar og þegar ég tengi inn á til­finn­ing­una í við­kom­andi lagi koma hreyf­ing­arnar frekar ósjálfrátt og óþvingað. En hreyf­ing­arnar sem komu hjá mér hent­uðu svo ekki alltaf flautuleiknum og þá þurfti ég að aðlaga þær að honum og flautuleik­ur­unum. Ég skil þetta hljóð­færi mun betur núna og það er áhuga­vert að semja hreyf­ingar fyrir blást­urs­hljóð­færa­leik­ara þar sem önd­unin skiptir miklu máli. Það þýðir ekki að gera þær laf­móðar í ein­hverjum dansi þannig að þær geti ekki blásið í hljóð­færið þó að þær fari nú reyndar alveg fram á ystu nöf í sumum lögum. En mér finnst mjög gaman að vinna með tak­mark­anir, þær fara alltaf með mann á ein­hverjar ófyr­ir­séðar brautir.“

Myndlist og skrif
Margrét kláraði dans­höf­unda­nám í list­há­skóla í Hollandi árið 2006 og hefur unnið sjálf­stætt síðan þá. Svo fór hún að vinna meira að mynd­list og starfar nú jöfnum höndum sem dans­höf­undur og mynd­list­ar­maður. „En skrif hafa líka fylgt mér lengi og textar alltaf spilað stórt hlut­verk í bæði sviðs- og mynd­list­ar­verk­unum mínum. Ég hef verið í masters­námi í rit­list við Háskóla Íslands og næst á dag­skrá er einmitt að klára MA-loka­verk­efnið mitt þar. Það hefur verið að safn­ast saman í langan tíma og ég hlakka til að veita því athygli núna.“

Texti / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir
Myndir / Hákon Davíð Björns­son og Santiago Felipe

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina