Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Íslendingar flykkjast til tannlækna í útlöndum

Fleiri en áður fara í frí til útlanda og fara til tann­læknis í leið­inni. Tann­lækna­þjón­usta er 50-70% ódýr­ari í Austur-Evrópu en hér á landi.

Íslendingar flykkjast til tannlækna í útlöndum
|
Rósa Kristín Bene­dikts­dóttir er tengiliður ung­versku tann­lækna­stof­unnar Madenta í Búdapest.

„Við byrj­uðum í mars og ég ætl­aði að gera þetta að auka­vinnu. En það hefur verið mikil eft­ir­spurn. Fimm hafa farið út og ég er með tugi pant­ana frá fólki sem er að skoða það að fara til tann­læknis í Búdapest,“ segir Rósa Kristín Bene­dikts­dóttir, sem er tengiliður ung­versku tann­lækna­stof­unnar Madenta í Búdapest.

Mikil ásókn hefur verið upp á síðkastið hjá fólki á miðjum aldri, örorku­þegum og líf­eyr­is­þegum að fara í tann­við­gerðir í Austur-Evrópu. Pólland og Ung­verja­land eru vin­sæl­ustu löndin um þess­ari mundir. Ásóknin skýrist af því að tann­lækna­stofur frá lönd­unum eru með tengiliði hér á landi. Þá hjálpar til að beint flug er til land­anna og end­ur­greiða Sjúkra­trygg­ingar tann­lækna­kostnað fyrir líf­eyr­is­þega, þ.e. örorku- og elli­líf­eyr­is­þega.

Oftast er um að ræða dýr­ari tann­við­gerðir á borð tann­plönt, það er þegar ný tönn er skrúfuð ofan í rót­ar­stæði, en einnig krónur og brýr og margt fleira. Yngra fólk leitar eftir tann­fegrun. Ætla má að tann­lækna­kostn­að­ur­inn í Ung­verja­landi sé 50-70% lægri en hér á landi.

Rósa fór sjálf til tann­læknis í Búdapest árið 2014 og aftur í fyrra. Í kjöl­farið ræddi hún við eig­anda tann­lækna­stof­unnar Madenta og varð úr að hún gerð­ist tengiliður hennar hér á landi. Þau réð­ust í að búa til heima­síðu fyrir tann­lækna­stof­una á íslensku og aug­lýsa á sam­fé­lags­miðlum. Und­ir­tekt­irnar hafa verið framar vonum,“ segir Rósa, sem er með aðstoð­ar­mann­eskju sem talar við fólk yfir dag­inn.

„ … það hefur ver­ið­mikil eft­ir­spurn. Fimm hafa farið út og ég er með tugi pant­ana frá fólki sem er að skoða það að fara til tann­læknis í Búdapest.“

Þjón­ustan sem boðið er upp á ytra er nokkuð önnur en fólk á að venj­ast hér. Algeng­ast er að fólk sendi Rósu röntgen­mynd frá tann­lækni. Í kjöl­farið gerir tann­lækna­stofan til­boð og útlistar kostnað við tann­við­gerð­ina. Boðið er upp á stað­greiðslu­af­slætti og ýmis­legt fleira, að hennar sögn.

Rósa bætir við að hún hafi fengið mis­jafnar und­ir­tektir hjá íslenskum tann­læknum.

„Það hlýtur að vera svo­lít­ill sam­keppn­istitr­ingur. Okkar við­skipta­vinir hafa margir rætt þetta við sína tann­lækna, haft þá með í ráðum og þeir gera sér grein fyrir því að það er ódýr­ara að fara út og að þjón­ustan er góð.“

Tann­læknar gefa vinnu sína
Mannlíf leit­aði við­bragða Þórunnar Svein­björns­dóttur, for­manns Lands­sam­bands eldri borg­ara, vegna máls­ins. „Við vitum af því að tann­læknar hafa þurft að gefa vinnu sína því eldra fólk hefur ekki efni á að fara til tann­læknis. Fólk fer í minni aðgerðir en sleppir þeim stærri sem kosta frá hálfri milljón og upp úr,“ segir hún og bætir við að íslenski stjórn­völd hafi skilið eldri borg­ara eftir hvað snertir nið­ur­greiðslu vegna tann­lækn­inga. Nið­ur­greiðslan hafi ekki hækkað síðan árið 2004.

„ … margir eru illa haldnir af tann­skemmdum og bíða eftir aðgerðum hins opin­bera.

Hún bendir á að starfs­hópur hafi nýverið lokið störfum um málið og skilað til­lögum sínum til Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra. Það hefur skilað því að 1. júlí verða 500 millj­ónir króna lagðar til nið­ur­greiðslu vegna tann­lækn­inga á þessu ári og einn millj­arður fram­vegis frá næsta ári.

„VIð gerum ráð fyrir því að þetta verði með þessum hætti í nokkur ár,“ segir Þórunn. „En þessi bið­tími hefur valdið því að mjög margir eru illa haldnir af tann­skemmdum og bíða eftir aðgerðum hins opin­bera.“

31 fengið end­ur­greiðslu það sem af er ári
Í júní árið 2016 var gefin út reglu­gerð um heil­brigð­is­þjón­ustu yfir landa­mæri en sam­kvæmt henni eiga sjúk­lingar rétt á að sækja sér heil­brigð­is­þjón­ustu til ann­arra aðild­ar­ríkja á EES-svæð­inu og fá end­ur­greiddan útlagðan kostnað.

Árið 2016 fór eng­inn héðan til útlanda vegna tann­lækn­inga og því kom ekki til að Sjúkra­trygg­ingar þyrftu að greiða fyrir slíkt. Ári síðar fóru 28 utan þar af 20 til Ung­verja­lands. End­ur­greiðsla til þess­ara 20 ein­stak­linga nam rúmum 2,2 millj­ónum króna.

Það sem af er ári, þ.e. frá árs­byrjun og þar til snemma í mars, hefur 31 ein­stak­lingur fengið end­ur­greiðslu Sjúkra­trygg­inga vegna tann­lækn­inga. Þar af er eitt barn undir 18 ára aldri. Þar af hafa 12 fengið lækn­ingu á Spáni en 10 í Ung­verja­landi. End­ur­greiðslan á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins nemur rúmum 2,5 millj­ónum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina