Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Naloxon í nefúðaformi væntanlegt til landsins

For­svars­menn Frú Ragn­heiðar – skaða­minnk­unar hafa bent á mik­il­vægi þess að koma lyf­inu naloxon til ein­stak­linga sem nota vímu­efni í æð og þeirra sem eru háðir opíóðum.

Naloxon í nefúðaformi væntanlegt til landsins
||

Naloxon er lyf sem notað er til að end­ur­lífga fólk sem hefur ofskammtað af ópíóðum lyfjum eins og oxýkó­don, contalgin og fent­anyl. Núna er naloxon ein­göngu aðgengi­legt á heil­brigð­is­stofn­unum og í sjúkra­bif­reiðum á Íslandi. Þar sem fólk í neyslu sé yfir­leitt fyrst á vett­vang þegar ofskömmtun á sér stað segja for­svars­menn frú Ragn­heiðar að gefa eigi fíklum lyfið naloxone, þjálfa það í notkun þess og auk þess að þjálfa það í end­ur­lífgun. Þannig geti það brugð­ist við og bjargað félögum sínum og ást­vinum úr ofskömmtun.

Ólafur Ein­ars­son, verk­efna­stjóri lyfja­mála hjá Land­lækni.

Ólafur Ein­ars­son, verk­efna­stjóri lyfja­mála hjá Land­lækni, segir að emb­ættið mæli ekki gegn því að fleiri hafi aðgang að lyf­inu. „Eins og staðan er í dag er lyfið Naloxon ein­göngu til sem stungu­lyf fyrir notkun á sjúkra­húsum. Það er reyndar til í blöndum líka en með öðrum ábend­ingum. Það er Lyfja­stofn­unar að meta umsóknir um mark­aðs­leyfi lyfja og best að Lyfja­stofnun svari um hvers vegna lyf eða form eru eða eru ekki á mark­aði hér á landi. Við í lyfjateymi emb­ætt­is­ins höfum ekki mælt gegn því að til væri t.d. nefúði sem fleiri hefðu aðgang að, eina „hættan“ gæti hugs­an­lega falist í því að fíklar yrðu djarfari ef þeir vissu að til væri mögu­leg björg­un­ar­leið sem þeir gætu stólað á. Við lítum svo á að best sé að aðgengi sé sem minnst að sterkum verkja­lyfjum fyrir þá ein­stak­linga sem eiga við alvar­legan fíkni­vanda að stríða. Jafn­framt er nauð­syn­legt að draga úr ávís­uðu magni þess­ara lyfja til að sem fæstir ánetj­ist þeim,“ segir Ólafur.

Rúna Hauks­dóttir Hvann­berg, for­stjóri Lyfja­stofn­unar, segir að naloxon sem stungu­lyf, eða sam­bæri­leg lyf undir öðru heiti, hafi verið á mark­aði á Íslandi frá því á níunda ára­tugnum. Naloxon í nefúða­formi sé til­tölu­lega nýlegt lyfja­form lyfs­ins og ekki verið mark­aðs­sett á Íslandi hingað til frekar en ann­ars staðar í Evrópu. „Það er hins vegar vænt­an­legt innan skamms og verður fyrst um sinn afgreitt á und­an­þágu hingað til lands frá Danmörku, að lík­indum síð­ari hluta apr­íl­mán­aðar.

Rúna Hauks­dóttir Hvann­berg, for­stjóri Lyfja­stofn­unar.

Naloxon í nefúða­formi verður einnig lyf­seð­ils­skylt en ekki er þar með sagt að aðeins verði hægt að nálg­ast eina pakkn­ingu lyfs­ins gegn lyfja­á­vísun í hvert sinn. Í reglu­gerðum um ávísun og afhend­ingu lyfja í apó­tekum er t.a.m. gert ráð fyrir því að hægt sé að ávísa lyfjum beint til lækna, starfs þeirra vegna, eða ann­arra við­bragðs­að­ila svo sem lög­regl­unnar. Þá er lyfja­fræð­ingum í apó­tekum jafn­framt heim­ilt að afgreiða og afhenda lyf­seð­ils­skyld lyf, án þess að lyf­seðli sé fram­vísað, í neyð­ar­til­vikum. Þessi heim­ild, sem stundum er vísað til sem neyð­ar­réttar lyfja­fræð­inga, stendur ávallt opin og er lyfja­fræð­ingi falið að fram­kvæma fag­legt mat hverju sinni hvort um neyð­ar­að­stæður sé að ræða. Þessu til við­bótar er ekk­ert í lögum eða reglum sem gilda um ávísun lyfja eða afgreiðslu og afhend­ingu lyfja í lyfja­búð sem kemur í veg fyrir að læknir ávísi umræddu lyfi til fíkla eða aðstand­enda þeirra til að grípa til í neyð. Er þetta sam­bæri­legt við ávísun og notkun adrena­lín­penna sem t.d. er gripið til þegar bráða­of­næm­iskast kemur upp.

Lyf­seð­ils­skyldan und­ir­strikar hins vegar að lyfið skuli notað með varúð og ýtr­ustu leið­bein­ingum fylgt. Naloxon kemur í veg fyrir að ópíóíða­lyf nái til mót­taka í lík­am­anum og getur notkun þess því valdið frá­hvörfum. Á hinn bóg­inn virkar naloxon alla jafna skemur en ópíóíða­lyfin og því getur skap­ast lífs­hættu­legt ástand á nýjan leik þegar virkni naloxons­ins fjarar út. Mik­il­vægt er því að ekki verði litið á naloxon-nefúða sem for­vörn eða lyf sem veiti falskt öryggi. Það skyldi þannig ein­ungis nota til bráða­með­ferðar við ofskömmtun ópíóíða þar til unnt er að koma sjúk­lingi undir lækn­is­hendur.

Þess má svo geta að Lyfja­stofnun efnir í byrjun næstu viku til fundar með við­bragðs­að­ilum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þar á meðal frá bráða­mót­töku Land­spít­ala og lög­regl­unni. Fyr­ir­hugað er að ræða notkun lyfs­ins hér á landi og hvernig stuðla megi að góðu aðgengi að því fyrir þá sem til þess þurfa að grípa,“ segir Rúna.

Texti / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina