Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Góð skemmtun og fyrirtaks líkamsrækt

Sumarið er á næsta leiti með til­heyr­andi útveru og margir að draga fram reið­hjólin sem legið hafa í geymslum yfir vet­ur­inn eða að kaupa sér ný.

Góð skemmtun og fyrirtaks líkamsrækt
|

Stærðir og still­ingar

Við­ur­kenndur hjálmur af réttri stærð er auð­vitað ómissandi.

Þegar nýtt hjól er valið þarf að huga að stærð hjóls­ins. Þum­al­putta­reglan við hjól með slá er að þegar not­and­inn stendur yfir þver­slánni eiga að vera um það bil þrjár tommur eða tæp­lega átta senti­metrar upp í klof. Einnig er mik­il­vægt að hnakk­ur­inn sé í réttri hæð. Hnakk­ur­inn er rétt stilltur þegar hjól­reiða­mað­ur­inn situr á hnakknum, lætur annað fót­stigið í neðstu stöðu, stígur á það með hælnum og getur þá rétt alveg úr fæt­inum. Rétt still­ing hnakks­ins er afar mik­il­væg, sér­stak­lega í lengri hjól­reiða­ferðum, til að álag á fæt­urna verði rétt. Þriðja mik­il­væga atriðið er að stærð sjálfs hjólastells­ins sé rétt. Ef hnakk­ur­inn er rétt stilltur á stýrið að vera um fimm senti­metrum lægra en hnakk­ur­inn og á stýrið að skyggja á framöxul hjóls­ins þegar hjól­reiða­mað­ur­inn hefur báðar hendur á því.

Við­haldið er mik­il­vægt
Gott við­hald hjóla skiptir miklu máli bæði fyrir end­ingu þeirra og öryggi. Ráðlegt er að smyrja keðju hjól­anna viku­lega með sér­stakri teflonolíu og sér­stak­lega ef hjólið hefur staðið úti í rign­ingu. Einnig er mik­il­vægt að hugsa vel um bremsu­borða hjóls­ins, kanna slit reglu­lega og gæta að því að þeir séu rétt stilltir. Rétt stilltir borðar eiga hvorki að rekast í dekkin né í gjörð og ekki á að heyr­ast ískur þegar bremsað er. Auk þess að fylgj­ast með keðju og bremsum er mik­il­vægt að fylgj­ast með gírum hjóls­ins. Gírvírar teygj­ast yfir­leitt nokkuð með tím­anum og mynda því eins konar hlaup í gír­unum. Gott er að strekkja á vír­unum um það bil mán­uði eftir að hjólið er keypt. Þá er gírastrekkj­ar­anum á hjól­inu snúið rang­sælis þar til strekk­ist á vír­unum. Með tím­anum má einnig gera ráð fyrir slaka í legum hjóls­ins. Skemmdar legur eru fljótar að skemma út frá sér en með því að skipta þeim út eða herða þær upp í tæka tíða má spara mikið í við­halds­kostnað.

Sprungið dekk
Dekkja­skipti og -við­gerðir á hjóli eru lítið mál. Fyrst á að taka bremsur úr sam­bandi við gjörð. Þá er farið með keðj­una niður á minnsta tann­hjólið að aftan og að framan til að slaka á keðj­unni og öxulrær los­aðar. Þá er dekkið laust og hægt að ná slöng­unni úr því með hjálp dekkja­þvingu. Þegar gatið hefur verið fundið er gúmmíið í kringum það pússað, bóta­lím borið á slöng­una og bótin sett á gatið. Síðan er slangan sett aftur inn í dekkið og lofti pumpað í áður en haldið er af stað.

Öryggið í fyr­ir­rúmi
Rétt er að minna á nokkur örygg­is­at­riði sem vert er að hafa í huga þegar þeyst er um á stálfáknum úti í góða veðr­inu. Glitaugu eiga að vera bæði framan og aftan á reið­hjólum. Reið­hjóla­bjöllur eru einnig nauð­syn­legur örygg­is­bún­aður og þær ber að nota til að gera öðrum við­vart, t.d. við fram­úr­akstur á gang­stéttum. Að sjálf­sögðu er við­ur­kenndur hjálmur af réttri stærð algjör­lega ómissandi. Hjól­reiða­fólki er heim­ilt að hjóla á gang­stéttum jafnt sem á götum. Að sjálf­sögðu eiga hjól­reiða­menn að fylgja umferð­ar­reglum eins og aðrir veg­far­endur og hafa í huga að gang­andi veg­far­endur eiga rétt­inn á gang­stétt­unum.

Texti / Vikan
Mynd / Ernir Eyj­ólfs­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina