Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bað börnin að hjálpa sér að deyja

Fyrsta kvik­mynd Maríu Sólrúnar Sig­urð­ar­dóttur í fjórtán ár, Adam, er fjöl­skyldu­verk­efni sem fjallar um glímu sonar við spurn­ing­una um hvort hann eigi að hjálpa heila­bil­aðri móður sinni að deyja, spurn­ingu sem María þekkir úr eigin lífi.

Bað börnin að hjálpa sér að deyja
|||
María Sólrún kvik­mynda­leik­stjóri hefur búið og starfað í Þýska­landi í rúm þrjá­tíu ár þar sem hennar aðal­starf hefur verið að skrifa hand­rit að þýskum sjón­varps­kvik­myndum og -ser­íum en hún er líka vel þekkt innan íslenska kvik­mynda­brans­ans þar sem hún hefur verið ráð­gjafi hjá Kvik­mynda­mið­stöð­inni að fjölda­mörgum íslenskum myndum, meðal ann­arra Hrútum og Eiðnum.

María Sólrún Sig­urð­ar­dóttir er kannski ekki nafn sem almenn­ingur þekkir en hún hefur engu að síður haft meiri áhrif á líf okkar en okkur grunar. María Sólrún hefur búið og starfað í Þýska­landi í rúm þrjá­tíu ár þar sem hennar aðal­starf hefur verið að skrifa hand­rit að þýskum sjón­varps­kvik­myndum og -ser­íum, en hún er líka vel þekkt innan íslenska kvik­mynda­brans­ans þar sem hún hefur verið ráð­gjafi hjá Kvik­mynda­mið­stöð­inni í fjölda­mörgum íslenskum myndum, meðal ann­arra Hrútum og Eiðnum. Hún er hins vegar líka kvik­mynda­leik­stjóri og er nú mætt er til lands­ins með fyrstu mynd í fullri lengd sem hún hefur leik­stýrt í fjórtán ár og þar sem sonur hennar, Magnús, leikur aðal­hlut­verkið og dóttir hennar og tengda­sonur sjá um tón­list­ina. Myndin, sem heitir Adam, var frum­sýnd á kvik­mynda­há­tíð­inni í Berlín fyrr á árinu þar sem hún fékk mikla athygli og umfjöllun og opn­aði nýjar dyr fyrir alla fjöl­skyldu­með­limi.

Það hefur komið fram að við­fangs­efni mynd­ar­innar er glíma sonar við eigin sam­visku eftir að móðir hans grein­ist með heila­bilun. Hann hafði nefni­lega lofað henni því að hjálpa henni að deyja ef til þess kæmi. Efnið er Maríu Sólrúnu hug­leikið og stendur henni nærri, þar sem hennar eigin móðir glímdi við heila­bilun í fjórtán ár og Maríu var sagt að það væru fimm­tíu pró­sent líkur á því að hún sjálf ætti eftir að lenda í því sama.

„Við hefðum svo gjarna viljað geta tekið hana út af stofn­un­inni sem hún bjó á, farið með hana upp á jökul, spilað fyrir hana á gítar og gefið henni kakó. Leyft henni að deyja þar. Það var svo erfitt að horfa upp á þetta.“

Þótt til­efni sam­tals okkar Maríu Sólrúnar sé að sjálf­sögðu Adam og ástæður þess að fjórtán ár liðu á milli mynda hjá henni, byrjum við spjallið á hefð­bund­inn íslenskan hátt með því að ég spyr Maríu Sólrúnu hvaðan hún sé og hverra manna. Það þykir henni fyndið og gefur þær upp­lýs­ingar einar að hún sé fædd í Reykja­vík og alin upp í Bústaða­hverf­inu. Við því er lítið að segja og talið berst snar­lega að Berlín­ar­dvöl­inni en þangað fór hún árið 1985 og hóf nám við Freie Uni­versität Berlin.

„Ég fór þar í kvik­mynda­fræði, lista­sögu og stjórn­mála­fræði en svo þegar ég var í miðju magister-verk­efni söðl­aði ég um og fór í kvik­mynda­skól­ann í Berlín,“ segir María Sólrún.
Spurð hvað hafi valdið því að hún skipti um vett­vang segir hún skýr­ing­una á því vera ein­falda.
„Ég hafði gert nokkrar stutt­myndir og þegar ég varð ein­stæð móðir ákvað ég að drífa mig bara í kvik­mynda­gerð­ina.“

Hefur horft upp á misrétti í bransanum

Á þeim tíma voru börn Maríu Sólrúnar, Liina og Magnús sem bæði leika í Adam, fimm og þriggja ára en eru í dag 27 og 24 ára. María dregur enga dul á það að staða hennar sem ein­stæðrar móður hafi haft mest að segja um það að hún valdi hand­rita­skrif og ráð­gjöf fram yfir leik­stjórn­ina. „En það er svo merki­legt að það er ekki fyrr en á síð­ustu árum sem ég hef þorað að segja það. Og ég skal segja þér út af hverju. Þannig var að ein­hvern tíma kynnti fram­leið­andi kvik­myndar leik­stjóra hennar fyrir mér og útskýrði að ástæðan fyrir því að það hefðu liðið tíu ár á milli kvik­mynda frá þeim ágæta manni væri að hann væri ein­stæður faðir. Og allir í kring sögðu bara „æ, en sætt, oh hvað hann er góður maður.“ Ég not­aði það aldrei sem afsökun fyrir neinu að ég væri ein­stæð móðir, tók aldrei frí út á það að börnin væru veik eða neitt slíkt, þorði ekki einu sinni að minn­ast á það.“

Þetta leiðir talið að umræð­unni um stöðu kvenna í kvik­mynda­brans­anum, hver er reynsla Maríu Sólrúnar af henni?
„Þegar ég var barn var ég hand­viss um að þetta myndi allt breyt­ast þegar ég væri orðin full­orðin, þá yrði sko komið jafn­rétti milli kynj­anna,“ segir hún og and­varpar. „Sér­stak­lega eftir að mæður okkar voru búnar að fara niður á Aust­ur­völl 1975. En ég hef svo sann­ar­lega horft upp á mis­rétti milli kynj­anna í brans­anum. Það er ekk­ert endi­lega bara körlunum að kenna, kerfið er svo rót­gróið. Ég get auð­vitað bara talað út frá sjálfri mér: Ég átti börnin mín og hefði ekki viljað missa af því en það fer vissu­lega mik­ill tími og kraftur í það, hvað þá að vera ein­stæð móðir. Og manni fannst maður kannski vera að missa af lest­inni þegar strák­arnir fóru að taka fram úr manni. Ég var búin að gera eina mynd en svo komu þeir með næstu mynd og næstu og næstu og þá gefst maður pínu­lítið upp, finnst ekki taka því að keppa við þá. Maður fær líka að heyra það að brans­inn segi við ein­hvern fram­leið­anda sem ætlar að fara að vinna með þér „Bíddu, hún hefur nú ekk­ert gert í tíu ár. Getur hún þetta nokkuð lengur?“ Við konur þurfum bara að skapa okkur okkar eigin vett­vang og hunsa þetta við­horf. Þetta var mitt val og ég get alveg komið aftur. Það er heldur ekki eins og ég hafi verið fjar­ver­andi í brans­anum þennan tíma, ég var alltaf að skrifa hand­rit að stórum sjón­varps­kvik­myndum. Starf leik­stjór­ans er auð­vitað meira dóminerað af karl­mönnum en við ættum frekar að ýta á það að kerfið taki okkur inn á okkar for­sendum. Kvik­mynda­sjóður hérna heima hefur til dæmis staðið sig mjög vel í því. Hér hafa konur fengið styrki til að gera sínar fyrstu myndir í fullri lengd eftir fimm­tugt, sem er algjör­lega frá­bært.“

María Sólrún segir til­tektir vera í gangi í kvik­mynda­iðn­að­inum í Þýska­landi, þar sé jafn­vel talað um að setja kvóta þannig að sum stóru kvik­mynda­fyr­ir­tækin séu búin að setja sér það mark­mið að fimm­tíu pró­sent leik­stjóra þeirra séu konur.

Leikstýrði syninum án orða

María Sólrún er sjálf rúm­lega fimm­tug og Adam er hennar fyrsta mynd í fullri lengd síðan 2004, hvað ýtti henni af stað aftur?
„Að börnin voru farin að heiman,“ segir hún og hlær. „Ég var alveg búin að vera með leik­stjórn­ar­verk­efni í þessi fjórtán ár sem voru komin vel áleiðis og það var komin milljón evra í eitt þeirra þegar það sprakk. Og ég var kannski búin að fá leiða á því að elt­ast við það að rúlla upp verk­efnum eftir þessu munstri. Að vera með hand­rit sem við erum að þróa og umskrifa og umskrifa aftur og svo koma ein­hverjir frá sjón­varps­stöðv­unum og verða að fá að segja sitt og svona gengur það fram og til baka. Mig lang­aði að leyfa sköp­un­ar­gáf­unni að fá meiri útrás og gera þetta öðru­vísi fyrst ég var að þessu á annað borð. Gera þetta á mínum eigin for­sendum og fjár­magna það sjálf. Ég sleppti því til dæmis að skrifa hand­rit, sem sumum þykir skrýtið þar sem ég hef hingað til aðal­lega unnið við að skrifa hand­rit. Ég vildi bara gera þetta skemmti­legt, vera með smá­vegis til­rauna­starf­semi. Við byrj­uðum með hug­mynd og karakter sem var með stórt vanda­mál sem okkur fannst snerta okkur. Við fórum pínu­lítið í þetta eins og heim­ild­ar­mynda­gerð­ar­menn, fylgd­umst með karakt­ernum og því sem hann var að takast á við. Svo klipptum við það efni sem við vorum komin með og lang­aði þá að gera meira, þannig að þetta varð þriggja ára ferli, þar sem við vorum að taka og klippa, taka meira og klippa það. Svo­leiðis vinnu­brögð getur maður vana­lega ekki fjár­magnað og leyft sér.“

Magnús sonur Maríu leikur tit­il­hlut­verkið, Adam, hvernig gekk að fara úr hlut­verki móð­ur­innar yfir í hlut­verk leik­stjór­ans gagn­vart honum?
„Hann er svo pró­fes­sjónal, dreng­ur­inn, að það var ekk­ert mál. Kannski líka vegna þess að stutt­mynd­irnar sem ég gerði í gamla daga voru allar án sam­tala og í þess­ari mynd er aðal­karakt­er­inn heyrn­ar­laus, þannig að það er ekki mikið um sam­töl og þá getur maður meira stýrt án orða. Þannig að þetta sam­starf gekk bara mjög vel.“

Hefði viljað leyfa móður sinni að deyja

Í kynn­ingum og umfjöll­unum um Adam hefur komið fram að umfjöll­un­ar­efnið, hvað sé best fyrir móður með heila­bilun, stendur Maríu mjög nærri þar sem móðir hennar glímdi við heila­bilun í fjórtán ár.
„Já,“ segir hún. „Við systk­inin og vinir mömmu stóðum frammi fyrir þess­ari spurn­ingu þegar verið var að ræða hennar aðstæður; fjórtán ár í hjóla­stól með bleiu. Fyrst var því haldið fram að við systk­inin værum jafn­vel með eitt­hvað svipað, að það væru fimm­tíu pró­sent líkur á því að við yrðum svona. Við hefðum svo gjarnan viljað geta tekið hana út af stofn­un­inni sem hún bjó á, farið með hana upp á jökul, spilað fyrir hana á gítar og gefið henni kakó. Leyft henni að deyja þar. Það var svo erfitt að horfa upp á þetta. Svo velti maður því auð­vitað fyrir sér hvað maður sjálfur myndi vilja ef maður lenti í þessum aðstæðum. Það er svo óhugn­an­leg til­hugsun að enda svona. Og það versta er að þá er maður ekki lengur með rænu til þess að taka neinar ákvarð­anir.“

Það er aug­ljóst að þetta mál­efni er Maríu Sólrúnu hug­leikið, ekki síst sú spurn­ing hvort leggja eigi það á aðstand­endur að taka ákvörðun um það hvort líkn­ar­dráp væri kannski mann­úð­leg­asta lausnin. Hún seg­ist þó ekki geta, eða vilja, taka ákveðna afstöðu í því máli.

„Myndin gengur út á það að móð­irin hafði ein­hvern tíma beðið son sinn að hjálpa sér að deyja ef hún skyldi ein­hvern tíma lenda í því að fá heila­bilun eins og mamma hennar hafði fengið. Ég var reyndar búin að gleyma því, en Magnús minnti mig á það þegar við vorum að vinna mynd­ina að ég hefði gefið börn­unum mínum þessi skila­boð; í guð­anna bænum ekki láta mig enda eins og ömmu. Þetta er það sem dreng­ur­inn Adam stendur frammi fyrir. Honum finnst hann skulda henni það að hjálpa henni að deyja.“
Líkn­ar­dráp, sem sumir kjósa að kalla dán­ar­að­stoð, eru bönnuð með lögum í Þýska­landi þannig að ef Adam myndi hjálpa móður sinni væri það glæpur, sem gerir bar­áttu hans við sjálfan sig enn erf­ið­ari. „Skilj­an­lega,“ segir María Sólrún.
„Eitt er að ætl­ast til ein­hvers svona af börn­unum sínum,“ segir hún. „Þar fyrir utan er það ólög­legt og jafn­vel þótt það væri lög­legt þá hefur mann­eskjan sem bað um aðstoð ekki tekið þá ákvörðun með­vitað að leggja slíka byrði á fólk. Ég sé samt alveg ein­hverja virð­ingu í því að fólk fái að deyja þegar það er orðið ósjálf­bjarga. En ég á voða­lega erfitt með að mynda mér ákveðna skoðun á þessu. Það er svo margt sem mælir bæði með og á móti.“

Tók upp atriði í eigin rúmi

Adam var frum­sýnd á Berlín­ar­kvik­mynda­há­tíð­inni fyrr á þessu ári og hlaut afar góðar mót­tökur og umsagnir. María Sólrún við­ur­kennir að það hafi komið henni á óvart, hafi eig­in­lega verið súr­r­eal­ísk reynsla.
„Þetta var mynd sem ég tók heima hjá mér, karakt­er­inn var í rúm­inu sem ég svaf svo í um nótt­ina, ég skipti ekki einu sinni um rúm­föt. Þetta var allt svo rosa­lega per­sónu­legt. Sam­starfs­fólkið var vinir mínir og börnin mín, allt pró­fes­sjónal leik­arar samt, og öll vinnan var svo náin. Svo erum við allt í einu komin í ein­hvern þús­und manna sal fullan af fólki þar sem tekið er svona vel á móti á okkur. Myndin er komin upp á risa­stórt tjald, lítur vel út og greini­lega snertir fólk. Fólk grætur allt í kringum mann í salnum. Það var vissu­lega súr­r­eal­ískt.“

Vel­gengni Adams opn­aði ýmsar dyr fyrir Maríu Sólrúnu og börn hennar, hún er komin með tvö ný verk­efni í vinnslu, kvik­mynd sem hún vinnur að með syni sínum og sjón­varps­þætti sem hún er að þróa með Liinu, dóttur sinni.

„Þetta opn­aði nýjar brautir fyrir okkur öll,“ segir hún stolt. „Við lítum á okkur sem fjöl­skyldu-lista­kollek­tív. Við Magnús erum að skrifa og þróa annað hand­rit með stóru fyr­ir­tæki í Þýska­landi þar sem hann mun líka leika aðal­hlut­verkið. Það kom algjör­lega til út af Adam. Hann er líka kom­inn með umboðs­mann í Los Angeles eftir þetta. Við Liina erum svo að þróa sjón­varps­s­eríu fyrir annað stórt þýskt fyr­ir­tæki og ég „sel“ alltaf tón­list­ar­hug­myndir með í öll þessi verk­efni og það eru Liina og Haraldur Þrast­ar­son, kær­asti hennar, sem vinna tón­list­ina. Þannig að vissu­lega hefur þessi mynd breytt öllu fyrir okkur.“

Konur þurfa að forma bransann upp á nýtt

Sjón­varps­s­er­ían umrædda leggur áherslu á kven­lega sýn og kven­lega reynslu, samt alls ekki eitt­hverja Sex and the City/Girls-hug­mynd und­ir­strikar María. Þetta eru spennu­þættir sem beina sjónum að konum og þeirra sam­skiptum. Við tölum um það í sjón­varps­þáttum sam­tím­ans að fjalla um konur og ég spyr, eins og auli, hvort María haldi að það sé komið til að vera, eða hvort konur fái bara sviðs­ljósið núna af því það er búið að þrýsta svo harka­lega á kvik­mynda­fyr­ir­tækin. Það þykir henni fárán­leg spurn­ing.

Vel­gengni Adams opn­aði ýmsar dyr fyrir Maríu Sólrúnu, hún er komin með tvö ný verk­efni í vinnslu, kvik­mynd sem hún vinnur að með syni sínum og sjón­varps­þætti sem hún er að þróa með Liinu, dóttur sinni.

„Ég held að þetta sé komið til að vera,“ segir hún ákveðin. „Þetta er eins og að spyrja svart fólk hvort þessar myndir með áherslu á reynslu svartra séu ekki bara tísku­fyr­ir­bæri. Kannski eru orðnir margir þættir um konur núna, en í vinnu minni sem ráð­gjafa hjá kvik­mynda­sjóði hef ég ekki orðið vör við það að konur séu að taka kvik­mynda­gerð­ina yfir. Það eru enn fleiri karlar sem sækja um, þannig að í augna­blik­inu er alla vega engin hætta á að þeim verði bolað út.“

Ég heyri á Maríu Sólrúnu að henni finnst þessi umræða út í hött en ég þrjóskast við og spyr hvort hún sem kona sem gjör­þekkir kvik­mynda­brans­ann trúi því í alvöru að hlut­föll kynj­anna jafn­ist út. Það sljákkar aðeins í henni.

„Sko. Það er alveg öruggt að til­hneig­ingin er sú að brans­inn vill fara að sýna það að hann sinni ákveðnum skyldum. Það er alveg rétt­læt­an­legt að spyrja hversu mikið sé á bak við það. En ef við konur sjálfar erum svo­lítið dug­legar að nota tæki­færið í leið­inni til þess að forma brans­ann pínu hag­stæðar fyrir okkur, þannig að þú getir átt fjöl­skyldu og eign­ast börn en samt fengið að hafa rödd í þessum bransa, þá helst þetta svona. Ég trúi því. Það þýðir ekki endi­lega að konur þurfi að fara að gera kvik­myndir svona seint eins og ég, heldur skiptir máli að þú þykir hafa ein­hverja vikt í grein­inni þótt þú sért ekki að unga út efni sem leik­stjóri eins hratt og ein­hverjir aðrir. Mér finnst alla­vega núna vera að koma fram fleiri hug­rakkar stelpur með sterka rödd hér á Íslandi. Ég er ekki að meina að þær stelpur sem komu á undan hafi ekki verið hug­rakkar með sterka rödd, en þeim hefur fjölgað sem er mjög jákvætt.“

Konur skila sér síður út á markaðinn

María Sólrún segir sömu til­tekt­irnar vera í gangi í kvik­mynda­iðn­að­inum í Þýska­landi, þar sé jafn­vel talað um að setja kvóta þannig að sum stóru kvik­mynda­fyr­ir­tækin séu búin að setja sér það mark­mið að fimm­tíu pró­sent leik­stjóra þeirra séu konur. Og áhrifin sjá­ist víðar.

„Kvik­mynda­há­tíðin í Berlín tók þetta mjög alvar­lega í ár, buðu miklu fleiri kvik­myndum gerðum af konum en áður hefur tíðkast. Þannig að umræðan hefur alveg áhrif. Það hefur lengi verið þannig í kvik­mynda­skólum í Þýska­landi að konur eru næstum helm­ingur nem­enda en það hefur ekki skilað sér út á mark­að­inn. Það er þess vegna sem ég tala svona mikið um að við þurfum að leyfa okkur að gera þetta á eigin for­sendum og vera ekki hræddar um að missa af lest­inni ef við eign­umst börn og fjöl­skyldu og það dregur úr afköst­unum í ein­hvern tíma. Það er aldrei of seint að snúa aftur.“

„Mér finnst alla vega núna vera að koma fram fleiri hug­rakkar stelpur með sterka rödd hér á Íslandi. Ég er ekki að meina að þær stelpur sem komu á undan hafi ekki verið hug­rakkar með sterka rödd, en þeim hefur fjölgað, sem er mjög jákvætt.“

Talandi um end­ur­komu þá verður Adam frum­sýnd á Íslandi sem loka­mynd barna­kvik­mynda­há­tíðar í Bíó Paradís þann 14. apríl og fer síðan í almennar sýn­ingar þann 16. Auk þess munu María Sólrún og Magnús verða með Master Class í Bíó Paradís 16. og 17. apríl. Hvernig er það hugsað?

„Við verðum með smá­spjall eftir sýn­ingu mynd­ar­innar um það hvaða trix er hægt að nota ef maður ætlar að búa til heima­kvik­mynd sem getur lent á stórri kvik­mynda­há­tíð,“ segir María Sólrún og skellir upp úr. „Við kunnum það.“

Dýrtíðin á Íslandi hrikaleg

Í til­efni af íslensku frum­sýn­ing­unni er María stödd á land­inu en hér hefur hún ekki búið síðan 1985. Dreymir hana, eins og marga brott­flutta Íslend­inga, um að flytja heim í ell­inni og njóta íslenskrar nátt­úru?

„Nei, ég kem hingað reglu­lega og nýt nátt­úr­unnar en mér finnst dýr­tíðin hér bara svo hrika­leg að ég gæti ekki búið hérna,“ segir hún og það er sjokk í rödd­inni. „Ég fer bara aftur heim til Berlínar og þar munum við Magnús halda áfram að vinna í hand­rit­inu að nýju kvik­mynd­inni og við Liina að þróa sjón­varps­þátta­röð­ina. Við fengum líka styrk fyrir enn eitt hand­ritið, svo það er nóg að gera. Ég er rétt að byrja!“

Samtalið fer að stytt­ast í annan end­ann en að lokum spyr ég Maríu Sólrúnu hvort hún vilji koma ein­hverju á fram­færi við íslenskar kvik­mynda­gerð­ar­konur áður en við hættum.

„Ég vil bara endi­lega nota tæki­færið og hvetja kon­urnar í brans­anum til dáða. Ekki bara þessar ungu, sem maður þarf líka að hvetja, heldur bara allar konur á öllum aldri, til að láta til sín taka í kvik­mynda­iðn­að­inum. Koma sínum sjón­ar­miðum á fram­færi hvað sem það kostar. Jafnvel bara gera þetta innan fjöl­skyld­unnar, eins og við. Það var einmitt ein­hver kona sem benti mér á að ég hefði unnið þessa mynd eins og bóndi sem þarf að leita allra leiða til að koma upp­sker­unni í hús, tók bara börnin með út á akur­inn þegar á þurfti að halda.“

Myndir / Hákon Davíð Björns­son
Förðun / Björg Alfreðs­dóttir, National make up art­ist fyrir Yves Saint Laurent á Íslandi

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina