Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Vantar fleiri eggjagjafa og ættleiðing ekki alltaf kostur

Vantar fleiri eggjagjafa og ættleiðing ekki alltaf kostur
|||

Mannlíf kynnti sér þá mögu­leika sem í boði eru fyrir þá sem grein­ast með krabba­mein en vilja samt eign­ast börn eftir að með­ferð lýkur, í tengslum við við­töl við parið Láru og Krist­leif ann­ars vegar og hjónin Ástrósu og Bjarka hins vegar.

Meiri áhersla lögð á að fyrirbyggja ófrjósemi en fyrir 20 árum

Ásgerður Sverr­is­dóttir, krabba­meins­læknir á Land­spít­al­anum, segir að það sé afar mis­mun­andi hvaða áhrif krabba­meins­með­ferð hefur á frjó­semi þeirra sem grein­ast og að þar spili margir þættir inn í.

„Það er mjög mis­mun­andi eftir því hvaða lyf eru notuð og í hvaða skömmtum og einnig tíma­lengd með­ferð­ar­innar. Þetta eru allt óháðir áhættu­þættir. Eftir því sem að þú færð lengri með­ferð, því meiri er áhættan. Svo eru sum krabba­meinslyf sem eru meira eit­ur­virk fyrir kyn­kirtl­ana, það er eistu og eggja­stokka. Sam­setn­ing krabba­meinslyfj­anna hefur líka áhrif og þeir sem fara til dæmis í það sem er kallað háskammta­með­ferð eru í mik­illi áhættu á lang­tíma­ófrjó­semi. Aldur spilar einnig inn í og til dæmis ef konur sem komnar eru yfir fer­tugt fara í gegnum lyfja­með­ferð eru meiri líkur en minni á að þær fari inn í tíða­hvörf í fram­hald­inu,“ segir hún og bætir við:

„Ef við nefnum ein­hverjar tölur þá er áhættan á ófrjó­semi eftir algeng­ustu krabba­meinslyfja­með­ferð­irnar á bil­inu 30 til 70%.“

Oft ekki tími í erfiðustu tilvikunum

Hún segir að þessi áhætta á ófrjó­semi sé mjög vel kort­lögð af læknum og því gerðar við­eig­andi fyr­ir­byggj­andi ráð­staf­anir þegar kostur er. Upp­lýs­ingar um frjó­sem­is­mál til sjúk­linga og maka eru mik­il­vægar og þurfa að koma snemma í ferl­inu.

„Í dag er farið að leggja miklu meiri áherslu á að fyr­ir­byggja ófrjó­semi eða gera frjó­sem­is­vernd­andi með­ferðir, eða hvoru tveggja, til að þetta komi ekki óvænt upp á hjá þeim sem grein­ast með krabba­mein. Við reynum að leggja áherslu á að ungt fólk með óskir um barn­eignir, sem grein­ast með krabba­mein, fari í frjó­semi­með­ferð eða að minnsta kosti í ráð­gjöf eins snemma í ferl­inu og hægt er. Það er mis­mik­ill hraði frá því fólk grein­ist og þar til með­ferð hefst og í erf­ið­ustu til­vik­unum eins og bráða­hvít­blæði eða hrað­vax­andi eitilfrumu­krabba­meini, þarf að byrja með­höndlun innan fárra sól­ar­hringa. Þá er oft ekki tími til að und­ir­búa neitt á þennan máta. En í lang­flestum til­vikum höfum við yfir­leitt tíma til að und­ir­búa fólk á þennan hátt. Það er inni í okkar verk­lagi að koma þessum málum í far­veg við fyrsta tæki­færi,“ segir Ásgerður. Hún segir að það sé ekki í sjón­máli að krabba­meinslyf hafi minni skað­leg áhrif á ófrjó­semi.

Meiri áhersla er lögð á að fyr­ir­byggja ófrjó­semi nú, en fyrir tutt­ugu árum.

„Með­ferð­ar­árángur er mjög tengdur þessum frumu­drep­andi lyfjum og þau eru enn þann dag í dag uppi­staðan í krabba­meins­með­ferðum. Þó að mild­ari með­ferðir bæt­ist við sem drepa ekki fríska vefi, þá eru þessi lyf enn uppi­staðan. Það er ekki fyr­ir­sjá­an­legt að það verði ein­hver bylt­ing í þeim efnum, en hins vegar hafa rann­sóknir sýnt fram á að það að gefa horm­óna­með­ferð sem slekkur tíma­bundið á eggja­stokkum hjá konum með brjóstakrabba­mein á meðan verið er að gefa frumu­drep­andi lyf, auki líkur á að eggja­stokk­arnir taki við sér aftur þegar að með­ferð­inni lýkur,“ segir Ásgerður. Hún segir að meiri áhersla sé lögð á að fyr­ir­byggja auka­verk­anir krabba­meins­með­ferða nú en til dæmis fyrir tutt­ugu árum síðan.

„Fyrr á árum var fók­us­inn í raun á allt öðrum stað. Fókusinn var á að lækna krabba­meinið og upp­ræta það með öllum kröft­ug­ustu úrræð­unum sem til voru. Þá var ekki litið á lang­tíma­auka­verk­anir sem meg­in­vanda­málið. En í dag, með stöðugt bættum árangri með­ferða, viljum við líka að fólk eigi gott líf þegar það er búið í með­ferð­inni og sé ekki að kljást við lang­tíma- og við­var­andi afleið­ingar með­ferð­ar­innar. Fókusinn hefur færst meira á það að minnka skað­ann sem þessi lækn­andi með­ferð hefur. Til­hneig­ingin síð­ustu ára­tug­ina hefur verið að seinka barn­eignum og því eru fleiri barn­lausir sem grein­ast með krabba­mein nú miðað við áður. Það þykir í dag ekk­ert til­töku­mál að eign­ast börn vel yfir fer­tugt og við sem vinnum í heil­brigð­is­kerf­inu verðum að taka til­lit til þess­ara óska. Það er ekki lengur talið óráð­legt að forð­ast frek­ari barn­eignir eftir grein­ingu brjóstakrabba­meins, svo eittt­hvað sé nefnt, og það kemur meira að segja til greina fyrir konur á horm­óna­með­ferð að gera hlé á með­ferð­inni til að eign­ast fleiri börn.“

Vantar alltaf fleiri eggjagjafa

Ingunn Jóns­dóttir, fæð­ingar- og kven­sjúk­dóma­læknir, starfar hjá Livio Reykja­vík þar sem með­ferðir við ófrjó­semi eru fram­kvæmdar. Hún segir nokkra mögu­leika í boði fyrir þá sem vilja eign­ast börn en hafa gengið í gegnum krabba­meins­með­ferð.

„Það er mik­il­vægt að huga að þessum þáttum áður en með­ferðin hefst ef mögu­legt er. Það er þá hægt að frysta sæði, egg og/eða fóst­ur­vísa. Ef með­ferð er lokið og ljóst er að skaði hefur orðið á eggja­stokkum eða sæð­is­fram­leiðslu eru mögu­leik­arnir tak­mark­aðri. Þá getur eini kost­ur­inn í stöð­unni hvað varðar með­ferðir verið að nota gjafa­kyn­frumur. Annar kostur er að ætt­leiða,“ segir Ingunn.

Ingunn Jóns­dóttir.

Eggjafrysting kostur um síðustu áramót

Frysting eggja varð fyrst kostur á Íslandi frá síð­ustu ára­mótum. Ingunn segir að lang­flestar konur yngri en 38 ára ættu að eiga mögu­leika á fryst­ingu eggja, en að með aldr­inum fækki eggjum og gæði þeirra minnki. Hins vegar sé ekki komin end­an­lega nið­ur­staða um hvort eggja­fryst­ing verði að ein­hverju leyti nið­ur­greidd af íslenska rík­inu, enda ný af nál­inni.

Ingunn segir að sum krabba­meinslyf geti haft þau áhrif á konur að egg­bú­skap­ur­inn skað­ist og eggja­stokk­arnir fari í það ástand sem verður ann­ars við tíða­hvörf, það er að egg­los á sér ekki lengur stað og því ekki frjóvgun eggja.

„Þótt konan sé í raun komin í tíða­hvörf eða hefur ekki eðli­lega starf­andi eggja­stokka er vel hægt að gera gjafa­eggja­með­ferðir. Það eru í raun þessar konur sem þurfa á gjafa­eggjum að halda. Við gerum hins vegar ekki með­ferðir eftir að konur eru orðnar 49 ára gamlar,“ segir Ingunn en bætir við að vöntun sé á gjafa­eggjum.

Stöndum Norðurlandaþjóðunum langt að baki

„Árangur úr frjó­sem­is­með­ferðum er alltaf að aukast. Það verður von­andi aukið aðgengi að gjafa­eggjum og með til­komu egg­fryst­inga væri hægt að byggja upp eggja­banka. Vanda­málið nú er fyrst og fremst að það vantar alltaf fleiri eggja­gjafa. Mik­il­væg­ast í augna­blik­inu er að vekja athygli á þessum málum og von­andi sjá fleiri konur sér fært að gefa egg. Flestar konur undir 35 ára geta gefið egg og ferlið er auð­veld­ara en flestar gera sér grein fyrir.  Ég hvet allar konur sem geta hugsað sér þetta að hafa sam­band og fá frek­ari upp­lýs­ingar,“ segir Ingunn, en með­ferð vegna egga­gjafar tekur fjórar vikur.

Aðspurð hvort íslensk heil­brigð­is­yf­ir­völd gætu staðið sig betur í að nið­ur­greiða frjó­sem­is­með­ferðir er það mat Ingunnar að svo sé. „Við stöndum Norð­ur­landa­þjóð­unum langt að baki í þessum efnum.“

Ættleiðing ekki alltaf kostur fyrir þá sem greinast með krabbamein

Í reglu­gerð um ætt­leið­ingar á Íslandi kemur meðal ann­ars fram að krabba­mein sé einn af þeim sjúk­dómum sem geti leitt til synj­unar á umsókn um ætt­leið­ingu. Hrefna Frið­riks­dóttir, for­maður ætt­leið­ing­ar­nefndar, segir hins vegar það að hafa ein­hvern tíma fengið krabba­mein úti­loki ekki umsækj­endur.

Hrefna Frið­riks­dóttir.

„Grunn­krafan er sú að heilsu­far umsækj­anda sé full­nægj­andi þegar hann sækir um. Heilsu­fars­saga umsækj­anda er alltaf skoðuð og hann spurður hvað hafi bjátað á til að leggja mat á hvort hann sé lækn­aður, hvort hann sé enn í með­ferð eða hver staða hans sé þegar hann sækir um. Mat á þessu er algjör­lega háð um hvers konar mein ræðir og hvers konar sjúk­dóm við­kom­andi hefur greinst með,“ segir Hrefna. Enn fremur segir hún að það þurfi alltaf að meta áhrif þess krabba­meins sem ein­stak­lingur hefur greinst með.

„Því er hægt að segja að krabba­mein úti­loki mann ekki sjálf­krafa til að ætt­leiða en það að hafa fengið krabba­mein geti úti­lokað mann í ein­hverjum til­vikum. Lyk­il­at­riði er að skoða hvers konar krabba­mein við­kom­andi hefur greinst með, hvers konar með­ferðir við­kom­andi sé búinn að und­ir­gang­ast, hve langur tími sé lið­inn frá grein­ingu, hvort með­ferð sé lokið, hverjar nið­ur­stöð­urnar voru og hvort við­kom­andi sé laus við krabba­meinið. Ef við­kom­andi er lækn­aður af þessu krabba­meini og engin merki þess sjást, þá hefur það almennt ekki talið hafa nein sér­stök áhrif á umsókn til ætt­leið­ingar. Það á að ganga út frá því að þú fáir ekki leyfi til að ætt­leiða barn á meðan þú ert í krabba­meins­með­ferð. Ef við­kom­andi hefur ekki lækn­ast og með­ferð er hætt eru líkur á að hann fái ekki leyfi til að ætt­leiða barn.“

Áfallasaga umsækjenda skoðuð

Hrefna segir að ætt­leið­ing­ar­nefnd fái alltaf lækn­is­fræði­legt mat á umsækj­endum og að ekki sé miðað við ákveð­inn lág­marks­tíma eftir að við­kom­andi hefur lokið krabba­meins­með­ferð. Hvað varðar var­an­lega fötlun vegna krabba­meins, til dæmis það að missa útlim vegna meins­ins, segir Hrefna að það geti haft áhrif á umsókn til ætt­leið­ingar.

„Í ætt­leið­ing­ar­málum getur allt haft áhrif. Það að þú búir við ein­hvers konar fötlun, en við getum sagt að var­an­legar afleið­ingar séu hugs­an­lega fötlun, getur skert mögu­leika þína á ein­hverjum sviðum miðað við aðra. Þá þurfum við að spyrja okkur: Hefur sú fötlun áhrif á mögu­lega for­eldra­hæfni? Við reynum að vega og meta hvers konar ástand þetta er og hvernig við­kom­andi gengur að lifa með því. Við þurfum líka að horfa á þetta í heild­ar­sam­hengi, til dæmis hvernig áhrif þessi fötlun hefur haft á dag­legt líf og meta hæfni ein­stak­lings­ins til að yfir­stíga ákveðna erf­ið­leika. Að sjálf­sögðu er tekið til­lit til þess,“ segir Hrefna og bætir við að áfalla­saga umsækj­enda sé skoðuð í hverju til­viki fyrir sig.

„Við erum alltaf að læra betur og betur um hvað áföll geta haft víð­tækar og oft var­an­legar afleið­ingar á fólk. Eitt af áföllum er að grein­ast með alvar­legan sjúk­dóm eða glíma við var­an­legar afleið­ingar af honum. Þá er skoðað hvernig við­kom­andi hefur gengið að vinna með það og hver staða hans og styrk­leikar eru í dag.“

Mikil ábyrgð að finna barni heimili

Þegar par sækir um ætt­leið­ingu þurfa báðir ein­stak­ling­arnir að upp­fylla kröfur ætt­leið­ing­ar­nefndar, en Hrefna segir að kröfur nefnd­ar­innar séu ekki að ástæðu­lausu.

„Það er engum blöðum um það að fletta að það eru gerðar strangar kröfur. Það er mikil ábyrgð fólgin í því að finna barni, sem hefur oft verið í erf­iðum aðstæðum, stað. Það er ekki nóg að bara annar aðili í sam­bandi upp­fylli þessar kröfur og það er ekki endi­lega gert til að tryggja barn­inu ein­hvers konar umönnun þó að annar falli frá heldur einnig til að forð­ast þau óum­flýj­an­legu áhrif sem það að missa maka og for­eldri hefur. Allt það nei­kvæða sem getur komið fyrir annan aðil­ann er í sjálfu sér áfall fyrir hinn aðil­ann og klár­lega áfall fyrir barn sem er komið á heim­ilið. Við viljum ekki kalla það yfir neinn.“

Oft lenda einstæðingar aftast í bunkanum

Hrefna segir að hvert og eitt ríki móti ætt­leið­ing­ar­lög og -reglur eftir sínu höfði. Ísland er hluti af alþjóð­samn­ingi um ætt­leið­ingar þar sem farið er fram á að metin séu grunn­at­riði, svo sem aldur, heilsu­far og aðstæður. Hún segir enn fremur að þegar reglu­gerð um ætt­leið­ingar var sett, þar sem listaðar eru upp teg­undir sjúk­dóma sem geti haft áhrif á umsókn, hafi verið tekið mið af reynslu nor­rænnu þjóð­anna. En þó að ein­stak­lingar eða pör upp­fylli viss skil­yrði til ætt­leið­ingar hér á landi þarf það ekki að þýða að þeir hinir sömu upp­fylli skil­yrði í því landi sem ætt­leiða á barn. Því getur það oft þýtt að ein­stæð­ingar lendi aft­ast í bunk­anum.

„Það land getur gert meiri kröfur og strang­ari. Vandinn er sá að við erum í sam­starfi við til­tekin lönd þar sem eru færri og færri börn til ætt­leið­inga. Þessi lönd hafa úr fleiri og fleiri umsækj­endum að velja og sum lönd segja blákalt að þau velji alltaf fyrst par á besta aldri sem búa við bestu aðstæður. Mörg lönd setja ein­stæð­inga aft­ast á list­ann og síðan eru mörg lönd sem leyfa ein­stæð­ingum ekki að ætt­leiða. Svipað er uppi á ten­ingnum með sam­kyn­hneigða. Við veitum sam­kynja pörum leyfi til að ætt­leiða en það eru afskap­lega fá önnur lönd sem gera það.“

Úr 9. grein reglugerðar um ættleiðingar:

Heilsu­far.
Umsækj­endur skulu vera svo and­lega og lík­am­lega heilsu­hraustir að tryggt sé, eftir því sem unnt er, að ætt­leið­ing verði barni fyrir bestu. Því mega umsækj­endur ekki vera haldnir sjúk­dómi eða þannig á sig komnir að það dragi úr lífslíkum þeirra á þeim tíma þar til barn verður sjálf­ráða, eða minnki mögu­leika þeirra til að ann­ast vel um barn.

Eft­ir­taldir sjúk­dómar eða lík­ams­á­stand, sem ekki er hér tæm­andi talið, geta leitt til synj­unar á umsókn um ætt­leið­ingu eða um for­sam­þykki til ætt­leið­ingar á erlendu barni:

a. Alnæmi og aðrir alvar­legir smit­sjúk­dómar.
b. Fötlun eða hreyfi­hömlun.
c. Geð­sjúk­dómar, geð­rask­anir eða þroska­hömlun.
d. Hjarta- og æða­sjúk­dómar.
e. Inn­kirtla­sjúk­dómar.
f. Krabba­meins­sjúk­dómar.
g. Líf­færa­þegar.
h. Lungna­sjúk­dómar.
i. Melt­inga­færa­sjúk­dómar.
j. Nýrna­sjúk­dómar.
k. Offita.
l. Sjálfsof­næm­is­sjúk­dómar.
m. Syk­ur­sýki og tauga­kerf­is­sjúk­dómar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi