Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Eiga von á frumburðinum í skugga ólæknandi krabbameins

Eiga von á frumburðinum í skugga ólæknandi krabbameins
||||

Bjarki Már Sig­valda­son hefur barist við krabba­mein í rúm fimm ár. Strax í fyrstu lyfja­með­ferð fékk hann og eig­in­kona hans, Ástrós Rut Sig­urð­ar­dóttir, að vita að Bjarki gæti orðið ófrjór eftir með­ferð­ina. Þau ákváðu því að láta frysta sæð­is­frumur og eiga von á sínu fyrsta barni saman í ágúst.

„Þetta var klár­lega ást við fyrstu sýn og er hann bæði æsku­ástin mín og eina ástin sem ég hef upp­lifað í líf­inu,“ segir Ástrós Rut Sig­urð­ar­dóttir. Ástrós kynnt­ist eig­in­manni sínum, Bjarka Má Sig­valda­syni, á sínu fyrsta ári í mennta­skóla þegar hún var sextán ára og hann sautján. Þegar Ástrós var nítján ára skildu leiðir í þrjú ár en þremur árum síðar blésu þau lífi í neist­ann sem áður var og þá var ekki aftur snúið.

„Við höfðum gott af því að þroskast aðeins í hvort í sínu lagi en það var alveg klárt mál að við vorum sálu­fé­lagar og fram­tíðin beið okkar saman. Við byrj­uðum strax að búa saman og gaf ég Bjarka ynd­is­lega við­bót í fjöl­skyld­una í jóla­gjöf, hana Ronju okkar sem er Labrador. Aldrei hafði ég vitað hversu mik­il­vægt það er fyrir sál­ina að eiga hund sem elskar mann skil­yrð­is­laust, er alltaf til­bú­inn að fyr­ir­gefa og sleikja sárin. Ronja kom inn í líf okkar á hár­réttum tíma, ári áður en Bjarki greind­ist með 4. stigs ill­kynja krabba­mein. Hún var hinn full­komni félags­skapur fyrir okkur Bjarka þegar dag­arnir voru frekar svartir og náði alltaf að koma okkur út í göngutúr og fá súr­efni í lungun,“ segir Ástrós.

Eins og kafteinn í ólgusjó krabbameinsins

Bjarki greind­ist með krabba­mein í ristli í lok árs 2012 en meinið hafði dreift sér í lungu. Grein­ingin var mikið áfall fyrir parið.

Bjarki og Ástrós standa saman í gegnum þykkt og þunnt.

„Fyr­ir­var­inn var eng­inn og ein­kenni lítil sem engin. Æxlið hafði að öllum lík­indum byrjað að vaxa tíu árum áður og hafði því góðan tíma til að dreifa úr sér. Ristil­krabba­mein eru oft mjög ein­kenna­lítil og því er mik­il­vægt að fara í ristil­speglun og einnig að þekkja sinn lík­ama. Ef það eru ein­hver ein­kenni, láttu tékka á því. Það er betra að að fá að vita að allt sé í standi heldur en að sitja á ein­kennum og vera svo of seinn.“

Bjarki er búinn að berj­ast við krabba­mein í rúm fimm ár og hefur staðið sig eins og hetja, að sögn Ástrósar. Hún segir eig­in­mann sinn, sem hún gekk að eiga í fyrra­sumar, búinn ótrú­legum lífs­vilja en bar­áttu hans við krabba­mein er ekki lokið.

„Krabba­meinið er því miður búið að dreifa sér í lungu og heila og við tökum því með rósemi og æðru­leysi. Hann hefur farið í margar aðgerðir, svo margar að ég hef ekki tölu á þeim, en alltaf stendur hann upp og til­bú­inn í dag­inn. Hann siglir í gegnum þennan ólgu­sjó eins og því­líkur kafteinn og lætur ekk­ert stöðva sig. Hann er með svaka­legan bar­áttu­vilja, þol­in­mæði og ein­stak­lega gott skap. Þetta eru þrír kostir sem eru virki­lega góðir í eig­in­manni og föður, enda ekki skrýtið að ég sé búin að negla hring á fing­ur­inn hans. Bjarki er besta manns­efni sem ég þekki og veit ég að margir sem þekkja hann eru mér hjart­an­lega sam­mála.“

„Flestir vilja fjölga sér og eignast arfleifð“

Ástrós og Bjarki voru búin að velta barn­eignum fyrir sér þegar hann greind­ist óvænt með krabba­mein. Þau fengu strax að vita að krabba­meinslyfin gætu gert hann ófrjóan og því ákváðu þau að láta frysta sæð­is­frumur til að eiga þann kost að eign­ast ein­hvern tíma börn saman.

„Barn­eignir hafa alltaf verið ofar­lega í okkar huga. Ef Bjarki hefði verið heilsu­hraustur værum við örugg­lega komin með nokkur stykki. Við erum bæði miklar barna­gælur og mig hefur alltaf dreymt um stóra fjöl­skyldu. Ég þurfti því að breyta draumnum mínum frekar snemma því við fengum strax að vita í fyrstu lyfja­með­ferð Bjarka að hann gæti orðið ófrjór. Við létum því frysta sæð­is­frumur til að eiga fyrir fram­tíð­ina. Ástæðan fyrir því að ég ákvað að sætta mig við það að ég myndi kannski ekki ná heilu fót­boltaliði af börnum er sú að smá­sjár­frjóvgun er dýr og erfið með­ferð. Einnig er það mjög mikið álag að eiga börn og annar mak­inn er alvar­lega veikur. Ég má ekki tapa geð­heils­unni og þarf að passa upp á sjálfa mig í öllu þessu ferli. Þegar mak­inn veik­ist alvar­lega þá hugsa ég að það sé algengt að fram­tíðin sé rædd og spurn­ingar um barn­eignir komi fram. Flestir vilja fjölga sér og eign­ast arf­leifð og það er akkúrat það sem við Bjarki ræddum í byrjun. Við tókum þó ákvörðun um að kom­ast í gegnum veik­indin fyrst og hugsa svo um að eign­ast börn, álagið var nógu mikið fyrir og við vorum ekk­ert að flýta okkur, enda ekki nema 24 og 25 ára,“ segir Ástrós.

Hvarflaði að henni að hún væri slæm móðir

Þegar hún og Bjarki fengu þær fréttir þremur árum síðar að krabba­meinið væri ólækn­andi þurftu þau að hugsa hlut­ina upp á nýtt.

Ástrós segir það hafa verið ást við fyrstu sýn þegar þau Bjarki hitt­ust fyrst.

„Þarna voru spilin komin dálítið í mínar hendur, enda yrði það ég sem myndi ganga í gegnum með­ferð, verða ólétt og tölu­vert meiri ábyrgð yrði mín megin þar sem Bjarki er reglu­lega í lyfja­með­ferðum og aðgerðum og er ekki eins hraustur og ég. Þetta var líka stór ákvörðun fyrir mig, mun stærri en í upp­hafi, því á þessum tíma­punkti var ég að átta mig á því að við Bjarki yrðum lík­lega ekki gömul saman. Þetta voru svo stórar og full­orð­ins­legar hugs­anir sem áttu hug­ann minn, að koma með barn inn í þetta líf þar sem pabb­inn er lífs­hættu­lega veikur og mikið álag á báðum for­eldrum. Að pabb­inn myndi kannski ekki ná að sjá barnið sitt alast upp og eign­ast sín börn og gifta sig. Þetta var mér virki­lega erfitt. Mér fannst líka erfitt að hugsa til þess hvað ég væri að gera barn­inu ef Bjarki fellur frá á næstu árum. Að sjá það alast upp föð­ur­laust fannst mér óhugs­andi og það hvarfl­aði alveg að mér að ég væri slæm móðir fyrir að koma því í heim­inn og í þessar aðstæður,“ segir hún og heldur áfram.

„Svo fór ég að hugsa rök­rétt. Ég er að gefa barn­inu frá­bært líf. Það fær alla þá ást sem það þarf, við Bjarki eigum frá­bæra fjöl­skyldu og gott stuðn­ings­net og við getum gefið því allt sem það þarfn­ast. Við erum með fast heim­ili, fastar tekjur og svo óend­an­lega mikla ást sem við viljum gefa litla barn­inu okkar. Ég veit að við verðum frá­bærir for­eldrar og það er ekk­ert sem ætti að stoppa okkur í þeirri ákvörðun. Ég hóf því horm­óna­með­ferð í lok árs 2016 í von um að láta draum­inn okkar ræt­ast.“

Besta tilfinning í heimi

Þau Ástrós og Bjarki fengu svo sann­ar­lega draum sinn upp­fylltan, en Ástrós er nú komin sextán vikur á leið með þeirra fyrsta barn. Hún á von á sér í lok ágúst, en hjóna­kornin ætla að fá að vita kyn barns­ins í lok mars.

Fallegur hjóna­koss.

„Það tók okkur rúm­lega ár frá fyrsta við­tali hjá Livio að ná okkar mark­miði, að ég yrði ólétt. Frétt­irnar komu þó á hár­réttum tíma, rétt fyrir jól og Bjarki á leið í heila­skurð­að­gerð. Jólin í fyrra voru því alveg ein­stak­lega dásam­leg, aðgerðin hjá Bjarka gekk vel og draum­ur­inn okkar loks­ins að verða að veru­leika. Þetta er klár­lega besta til­finn­ing í heimi, að finna fyrir litlu krafta­verki vaxa og dafna innan í sér. Ég get ekki beðið eftir að fá barnið í hend­urnar og ég hlakka svo inni­lega til að fá að upp­lifa Bjarka að verða pabba,“ segir Ástrós.

Ferlið búið að kosta níu hundruð þúsund krónur

Ástrós vakti tals­verða athygli í mars í fyrra þegar hún birti ein­lægt mynd­band á Facebook-síðu sinni þar sem hún fór yfir þau gríð­ar­legu fjár­út­lát sem þau hjónin höfðu farið í vegna veik­inda Bjarka. Í við­tali við mbl.is þá sagði hún það vera fátækra­gildru að veikj­ast alvar­lega og gagn­rýndi stjórn­völd fyrir að láta sjúk­linga taka upp veskið við hverja lækn­is­heim­sókn eða ferð í apó­tekið. Hún segir frjó­sem­is­með­ferð­ina hafa kostað sitt og að íslensk stjórn­völd ættu að grípa inn í.

„Allt ferlið að reyna að verða barns­haf­andi hefur kostað okkur um níu hund­ruð þús­und krónur. Mér finnst klár­lega að þeir sem geta ekki eign­ast börn á nátt­úru­legan hátt vegna hvers kyns sjúk­dóma eigi að fá nið­ur­greitt strax við fyrstu til­raun. Það á ekki að þurfa félaga­sam­tök eins og Tilveru eða Kraft til að styrkja fólk í að eign­ast börn, ríkið á að grípa inn í hér. Ég veit þó til þess að hægt er að skila nót­unum með í skatt­fram­tal­inu en það er þó aðeins hluti sem maður gæti mögu­lega fengið til baka, ef maður fær það í gegn,“ segir Ástrós.

Langar að barnið eignist systkini

Þrátt fyrir miklar fjár­hags­legar, lík­am­legar og and­legar áhyggjur sem lagðar hafa verið á þetta par í blóma lífs­ins, standa þau sterk saman.

Ástrós og Bjarki ætla ekki að gef­ast upp fyrir mein­inu.

„Þegar annar aðil­inn í sam­bandi veik­ist alvar­lega þá hefur það að sjálf­sögðu áhrif á sam­lífið. Ef mak­inn er veikur tíma­bundið ímynda ég mér að eðli­legir hlutir eins og kyn­líf, keila og að fara í bíó detti aðeins út úr mynd­inni en svo er það verk­efni þeirra hjóna að koma sam­líf­inu aftur í fyrra horf eftir að mak­inn hefur náð sér. Ef maður er pínu­lítið týndur er gott að leita sér fag­legrar hjálpar og fá réttu skrefin til að koma hlut­unum aftur í gang. Við Bjarki þekkjum þetta vel, enda er hann lang­veikur og verður það að öllum lík­indum áfram. Við þurftum því aðeins að breyta okkar for­gangs­röðun og sætta okkur við það að sam­bandið okkar er aðeins öðru­vísi en það var áður. Við nýtum þó tím­ann vel og þegar hann er hress gerum við alltaf eitt­hvað skemmti­legt saman og njótum sam­ver­unnar þar á milli. Samband er vinna, stans­laus vinna en ofboðs­lega skemmti­leg og gef­andi. Stundum þarf maður aðeins að rasskella tómatsósuflösk­una til að ná sós­unni úr,“ segir Ástrós og hlær, og bætir við að þau Bjarki hyggja á frek­ari barn­eignir í fram­tíð­inni.

„Mig langar að barnið fái systk­ini og því mun ég fara aftur í smá­sjár­frjóvgun þegar við höfum náð að safna fyrir því. Ég tel það mik­il­vægt að börnin séu alla­vega tvö því það er ein­fald­lega betra fyrir þau að vera saman í líf­inu ef Bjarki mun ekki ná að sjá þau alast upp og verða að ynd­is­legum, full­orðnum ein­stak­lingum. Þau hafa mig og svo hvort annað til að stóla á og tala við. Þó að ég reyni ekki að hugsa um þessa hluti þá verð ég að vera raunsæ. Við Bjarki munum þó aldrei gef­ast upp í leit okkar að lækn­ingu.“

Myndir / Úr einka­safni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina