Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Æfir tíu sinnum í viku og kominn með þvottabretti

Æfir tíu sinnum í viku og kominn með þvottabretti
|||||||

„Fyrir fimm mín­útum síðan var ég 113 kíló en núna er ég rétt 89,9 kíló. Magnað hvað þetta er fljótt að líða,“ segir Magnús Máni Haf­þórs­son.

Magnús hefur síð­ustu mán­uði verið að breyta um lífs­stíl og hefur náð að létta sig um 23 kíló á fjórum og hálfum mán­uði. Á yngri árum var hann alltaf í fínu formi en vegna van­líðan þyngd­ist hann mikið á fjög­urra ára tíma­bili.

„Stór partur af þess­ari þyngd var van­líðan, kvíði, þrá­hyggja og þung­lyndi. Til þess að slá á van­líðan og til­finn­ing­arnar át ég þær í burtu, en í stað­inn át ég þær fastar á mig því þegar lík­am­legt form fer versn­andi fylgir hugur með og öfugt. Þó svo að ég hafi orðið svona þungur trúði ég því aldrei sjálfur að ég væri kom­inn í þetta lík­am­lega ástand. Ég sá að ég leit ekki vel út og lang­aði að breyta mínu venjum en aðal­á­stæðan af hverju ég gerði það ekki var því mig lang­aði það ekki nógu mikið,“ segir Magnús, sem hefur alltaf verið gæddur miklum vilja­styrk.

Ætlaði að fá sixpack

Magnús bætti á sig vegna van­líðan.

„Ég er frum­kvöð­ull og frá tólf ára aldri ákvað ég að ég myndi vera minn eigin herra og fjár­hags­lega sjálf­stæður. Þegar ég var sautján ára starfs­maður í Krónunni og í mennta­skóla, að fá sirka fimm­tíu þús­und krónur í laun fyrir tvær helgar í vinnu hugs­aði ég með mér að það hlyti að vera leið fyrir mig að fá skitin fimm­tíu þús­und á mán­uði sjálfur. Þá fóru hjólin að snú­ast og síðan þá hef ég starfað fyrir sjálfan mig. Eftir þessa reynslu lærði ég að ef þig langar nógu mikið þá getur þú gert það. Þessi stutta saga skiptir máli vegna þess að mig lang­aði svo inni­lega mikið að koma mér í það form sem mig lang­aði í og vegna þess byrj­aði ég hægt og rólega að breyta mínum lífs­stíl. Ég gerði þetta að verk­efni og tók frum­kvöðla­hugs­un­ina á þetta. Ég ætl­aði að koma mér í form og ég ætl­aði að skila verk­efn­inu af mér með sixpack og ekki fyrr. Óraun­hæft? Já. Öfgar? Kannski, en ég vinn best þegar ég set mér eitt stórt mark­mið,“ segir Magnús og bætir við að það henti ekki öllum það sama þegar kemur að lífs­venjum.

„Við erum mis­jöfn og þurfum að finna hvað virkar best fyrir okkur. Ég vinn verst þegar ég set mér mörg lítil verk­efni eða mark­mið til að ná einu stóru. Þá finnst mér þetta allt í einu orðið svo mikið mál. Ég er svo­lítið allt eða ekk­ert týpa.“

Drakk einn lítra af vatni fyrir máltíðir

Magnús segir að leið hans að árangri sé tví­þættur og skipt­ist í matar­æði ann­ars vegar og æfingar hins vegar.

„Ég byrj­aði mína leið að nýjum lífs­stíl á því að fá mér minni skammta af mál­tíðum. Til þess að hjálpa mér með það plat­aði ég lík­amann að hann væri saddur með því að drekka einn lítra af vatni áður en ég byrj­aði að borða. Í kjöl­farið varð maginn hálf­fullur af vatni og fann ég fyrir seddu mun fyrr. Fyrir átvagla eins og mig með stóran maga var þetta snilld­ar­ráð eða maga­band express eins og ég kalla það,“ segir Magnús og hlær.

Líf Magnúsar hefur breyst mikið síð­ustu mán­uði.

„Eftir að ég byrj­aði á þessu og maginn byrj­aði að minnka og ég byrj­aði að líta betur út tók ég næstu skref – minnka nasl á kvöldin og yfir dag­inn. Það að minnka kvöldsnarl er eitt það sterkasta sem þú getur gert til þess að byrja nýja lífs­stíl­inn þinn og ég held ég tali fyrir flesta að kvöldin eru langerf­ið­ust. Þú ert kom­inn heim eftir langan dag, hefur ekk­ert að gera, liggur upp í sófa og ert með bil­aða löngun í eitt­hvað. Ef það er of erfitt skref að taka út allt kvök­dsnarl þá er sjúk­lega mikið til af hollu og fárán­lega góðu hita­ein­inga­litlu kvöldsnarli, eins og frosin melóna til að slá á syk­ur­löngun og þaðan getur þú unnið þig útúr kvöldsnarl­inu,“ segir þessi atorku­mikli maður og slær í fram­hald­inu á létta strengi.

„Nú, þegar ég hafði minkað skammta­stærðir byrj­aði fitan að leka af mér. Nei, það er reyndar mesta lygi því ég missti aðeins 1.9 í fitu­pró­sentu á einum mán­uði þrátt fyrir sturl­aðar æfingar og oft tvisvar á dag. Ég held að þessi mynd lýsi best hvernig mér leið eftir þessar fréttir,“ segir Magnús og lætur fylgja með mynd af von­brigðum sínum:

Andlit von­brigða.

Edrú gæinn sem var alltaf skutlandi

Í kjöl­farið ákvað hann að skoða nánar hvað hann var að láta ofan í sig.

„Hvert var vanda­málið? Hvernig gat ég mögu­lega gert þetta betur en ég var nú þegar að gera? Jú, áfengið. Ég var að fá mér einn til tvo bjóra með strák­unum um helgar og sumar helgar aðeins meira en einn til tvo. En ég hélt að það ætti ekki að skemma árangur þar sem ég var að æfa vel og borða og nasla mun minna. Ég tók ákveðna þrjósku á þetta og trúði því inni­lega ekki að bjór­inn væri ástæðan fyrir því að ég sá ekki árangur. En þar sem mig lang­aði ekk­ert meira en að til­einka mér betri lífs­stíl tók ég allt áfengi út, þrátt fyrir að ég hafi haldið áfram að fara út með vin­unum. Í stað­inn ákvað ég að vera skemmti­legi edrú gæinn sem var alltaf skutlandi,“ segir Magnús og árang­ur­inn lét ekki á sér standa.

„Eftir að ég tók áfengið út missti ég 2.9% fitu­pró­sentu á níu dögum. 1.5 sinnum meira en ég missti á einum mán­uði og þá fóru hjólin að snú­ast.“

Skipti sykurfíkn út fyrir koffínfíkn

Magnús mætti stundum þunnur í rækt­ina en ekki lengur.

Í kjöl­farið fór Magnús að spá meira í hita­ein­ing­ar­fjölda í mat. Hann ákvað að borða 40% prótein, 40% kol­vetni og 20% fitu og segir hann að þá hafi hann orðið með­vit­aðri um að borða hollan og bragð­góðan mat. Síðan ákvað hann að borða átján hund­ruð hita­ein­ingar á dag ásamt því að æfa einu sinni til tvisvar á dag, en maður í hans stærð ætti að borða um 3500 hita­ein­ingar á dag.

„Ég svelti mig alls ekki. Ég borð­aði ótrú­lega mikið af hita­ein­inga­litlum mat og átti ég stundum erfitt með að troða í mig meiri mat því ég var ekki að ná upp í átján hund­ruð kalor­íur á dag.“

Þá fékk Magnús sér fæðu­bóta­efnið glútamín fyrir allar æfingar, sem virk­aði vel fyrir hann.

„Glútamín er fæðu­bóta­efni sem hefur þann eig­in­leika að koma í veg fyrir vöðva­nið­ur­brot. Ég get stað­fest að það virkar ótrú­lega vel fyrir mig því ég missti ekki mikið af vöðvum í kjöl­farið af 23 kílóa þyngd­ar­tapi,“ segir hann og bætir við að koffín hafi líka komið sterkt inn í þess­ari lífs­stíls­breyt­ingu.

„Ég vil meina að koff­ínið sé lang­besta fæðu­bóta­efnið. Fyrir mig dró koffín úr allri syk­ur­löngun og öðrum löng­unum. Ég var syk­ur­fík­ill og fékk mér oft súkkulaði­bita eða nammimola yfir dag­inn því fíknin var orðin það mikil. Ég skipti út syk­ur­fíkn fyrir núll hita­ein­inga koff­ín­fíkn. En er koffín hollt? Nei, langt frá því. Það ruglar í tauga­kerf­inu þínu og horm­ónum en mér fannst það per­sónu­lega mun betri kostur heldur en syk­ur­fíknin. Því skipti ég út einni fíkn fyrir aðra og ég get ekki lýst því hversu mikið það hjálp­aði mér í þessu ferli.“

37 æfingar í röð

Magnús fann sig í lyft­ingum frekar en brennslu­æf­ingum í rækt­inni.

„Ég gerði þau mis­tök að halda að ég gæti borðað hvað sem ég vildi ef ég myndi bara æfa nógu mikið. Ég byrj­aði á því að taka æfing­arnar í gegn löngu áður en ég tók matar­æðið í gegn. Það var rosa­lega rangt. Hins vegar voru æfing­arnar mínar nán­ast alveg eins í gegnum allt ferlið. Ég hataði cardio og brennslu­æf­ingar þannig ég ákvað að taka súper­sett og tripples­ett á öllum æfingum sem ég tók og get ég stað­fest að það brennir sjúk­lega mikið. Súper­sett virkar þannig að þú tekur eitt sett á einn vöðva­hóp eins og tví­höfð­ann. Þegar þú ert búinn með það sett ferðu beint í nýtt sett á and­stæðan vöðva­hóp, eða þrí­höfð­ann í þessu til­felli. Allar lyft­inga­æf­ing­arnar mínar voru þannig og eru enn þann dag í dag,“ segir Magnús, sem setti sér mjög skýrt mark­mið í byrjun.

Á æfingu – einni af mörgum.

„Ég byrj­aði á því að setja mér mark­mið að mæta sextán sinnum í rækt­ina í röð og fannst mér það mjög erfitt þegar ég var að telja alla dag­ana upp í sextán. Loksins þegar ég náði upp í sextán daga ákvað ég að halda áfram í stað þess að taka hvíld. Vill ég taka fram að maður á alls ekki að gera þetta því lík­am­inn þarf nauð­syn­lega að jafna sig til þess að byggja upp vöðva og við­halda starf­sem­inni. En fyrir mér var þetta til­rauna­verk­efni til þess að sjá hve lengi lík­am­inn gæti æft án pásu. Til að gera langa sögu stutta tók ég 37 æfingar í röð með aðeins súper­settum og brennslu. Á þessu tíma­bili byrj­aði ég að mæta tvisvar á dag í rækt­ina og tók brennslu og súper­sett æfingar. Til að hvetja mig áfram keypti ég mér þyng­ing­ar­vesti og not­aði það á öllum brennslu­æf­ingum og þyngdi það um þá þyngd sem ég var búinn að missa. Í dag eru 23 kíló á vest­inu.“

Í ræktinni á aðfangadagskvöld

Hér sést þyng­ing­ar­vestið.

„Eftir þessa 37 daga var ég byrj­aður að missa allan kraft í höndum og lenti oftar en einu sinni í því að hrein­lega missa lóðin úr hönd­unum á mér því tauga­kerfið var hætt að starfa rétt þar sem það náði ekki að jafna sig á öllum æfing­unum. Síðan í októ­ber er ég nán­ast búinn að mæta í rækt­ina á hverjum ein­asta degi. Ég mætti í rækt­ina á aðfanga­dag klukkan 23 til 01. Mig lang­aði þetta svo ótrú­lega mikið að ég gerði allt til þess að ná árangri. Og það skil­aði sér. Yfir hátíð­arnar missti ég 4,16% í fitu­pró­sentu á 24 dögum og tók af mér rúm­lega sex kíló. Eftir þessa 37 daga geð­veiki tók ég tveggja daga pásu frá lík­ams­rækt­inni og mætti öfl­ug­ari en áður til baka. Síðan 1. jan­úar í ár hef ég ekki hætt að mæta,“ segir Magnús. Þegar þetta við­tal er tekið er hann búinn að mæta í rækt­ina í 54 daga í röð.

„Ég tek tíu æfingar í viku sem sam­svarar 77 æfingum sem ég er búinn að taka sam­fleytt án þess að taka neina pásu og ég er langt frá því að vera hættur. Enn og aftur, þetta er ekki í lagi fyrir venju­lega ein­stak­linga og eig­in­lega ekki neinn en ég er búinn að koma upp kerfi hjá mér og ég hlusta ótrú­lega vel á lík­amann minn. Mér finnst svo ótrú­lega gaman í rækt­inni að ég get inni­lega ekki tekið pásur og er mikið erf­ið­ara að mæta ekki í rækt­ina en að mæta. Ég er með alla mæt­ingu skráða hjá World Class og get ég sýnt hana til stað­fest­ingar á mæt­ingu ef ein­hver skildi efast,“ segir Magnús og hlær.

Ætlar að rústa næsta verkefni

Magnús er nú kom­inn með fyrr­nefndan sixpack, en hann leyfir fylgj­endum á Snapchat að fylgj­ast með öllu ferl­inu undir nafn­inu herra­reykja­vik og á Instagram undir nafn­inu magnus­mani97. En hvað tekur núna við hjá þessum orku­mikla manni?
„Ég mun halda ótrauður áfram og held áfram að bæta mig og móta lík­amann minn eftir því sem mig langar að hafa hann. Ég er núna búinn að skila þessu verk­efni af mér og er far­inn að rústa næsta verk­efni. Sjáumst!“

Glæsi­legur árangur.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina