Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Greindist með krabbamein 32ja ára og lét frysta egg

Greindist með krabbamein 32ja ára og lét frysta egg
||||

„Lífið snýst um að læra, læra af sjálfum sér og öðrum. Við vitum aldrei hvaða verk­efni við fáum og það skiptir svaka­lega miklu máli hvernig við tæklum verk­efnin. Lífið getur tekið óvæntar beygjur hvenær sem er. Munum að lifa í dag,“ segir hin 36 ára Guðný Ásgeirs­dóttir. Guðný er læknir og í sér­námi í heim­il­is­lækn­ingum en hún greind­ist með brjóstakrabba­mein fyrir rúmum þremur árum.

Guðný lærði lækn­is­fræði í Danmörku og var 29 ára þegar hún fann fyrst fyrir hnút í brjóst­inu.

„Ég lét skoða þetta úti í Danmörku þar sem ég bjó, fór þar í brjósta­mynda­töku og ómskoðun og var þetta talið vera góð­kynja æxli, sem sagt ekki krabba­mein. Ekki þótti þörf á eft­ir­liti. Svo flyt ég heim til Íslands í byrjun árs 2014 og fer þá að vinna á heilsu­gæslu. Ég fylgist vel með hnútnum og finn að hann er eitt­hvað að breyt­ast, stækkar og verður harð­ari, eig­in­lega eins og bingó­kúla,“ segir Guðný, sem reyndi fyrst um sinn að hunsa vöxt­inn í brjóst­inu.

„Ég reyndi fyrst að humma fram af mér að láta skoða þetta því ég hafði jú látið skoða þetta í Danmörku. Ég var þó alltaf að hugsa að þetta væri eitt­hvað skrítið og gæti alveg eins verið krabba­mein, svona miðað við það sem ég hafði lært. Svo kemur til mín ung stúlka á heilsu­gæsl­una með hnút í brjósti. Ég sendi hana áfram í skoðun og fæ svo fréttir af því að hún hefði greinst með brjóstakrabba­mein. Það vakti mig til umhugs­unar, fyrst hún gat greinst með brjóstakrabba­mein svona ung gæti ég það í raun alveg líka. Þá ákvað ég að skella mér í skoðun og reynd­ist þá grunur minn réttur því miður, ég var líka með brjóstakrabba­mein.“

Hér er Guðný með skalla en síðan til hægri er mynd af henni með hár­kollu sem hún keypti í London og mörgum fannst raun­veru­leg.

Mistök þegar átti að tilkynna fréttirnar

En hvernig til­finn­ing var það að grein­ast með krabba­mein svona ung?

„Það er eig­in­lega mjög erfitt að lýsa til­finn­ing­unni. Ég var til dæmis fyrst mjög reið, en það var aðal­lega af því það urðu mis­tök þegar ég fékk fréttir af þessu í fyrsta skipti. Ég hafði farið niður í Krabba­meins­fé­lag og þar var tekið sýni. Lækn­ir­inn sem ég hitti hafði beðið mig um að vera með sím­ann á mér milli klukkan 13 og 14 mánu­dag­inn eftir og svara ef hún myndi hringja. Ég er svo að vinna á heilsu­gæsl­unni og er með mót­töku þar sem ég tek á móti sjúk­lingum og er með við­töl. Ég er með skjól­stæð­ing inni hjá mér þegar sím­inn hringir og ég afsaka mig og seg­ist þurfa að taka sím­talið. Þá er í sím­anum hjúkr­un­ar­fræð­ingur á Land­spít­al­anum sem segir mér að ég eigi tíma hjá skurð­lækni á morgun og hvort það sé mögu­leiki að flytja tím­ann. Ég verð nátt­lega mjög hissa og skil ekki alveg sím­talið þar sem ég hafði jú ekki enn fengið að vita nið­ur­stöð­una úr sýna­tök­unni. Hún afsakar sig og seg­ist lík­lega vera að hringja á undan lækn­inum. Þá fatta ég að þetta þýði lík­lega að ég er með krabba­mein. Ég ákvað að reyna að hugsa ekki um það og bíða eftir að lækn­ir­inn myndi hringja. Ég held áfram með við­talið en er í hálf­gerðri geðs­hrær­ingu og með­tók lík­lega ekk­ert það sem skjól­stæð­ing­ur­inn sagði. Lækn­ir­inn hringir svo 5 mín­útum síðar og seg­ist vilja hitta mig. Ég verð þá svo­lítið reið og seg­ist alveg vita hvað hún sé að fara að segja við mig. Ég fór svo og hitti lækn­inn og við fórum yfir málið. Ég hef svo hitt hjúkr­un­ar­fræð­ing­inn oft eftir þetta og hún er ekk­ert nema ynd­is­leg,“ segir Guðný. Hún segir næstu daga hafa liðið hjá í hálf­gerðri móðu.

„Eftir þessa reiði­til­finn­ingu man ég eftir hræðslu. En í raun er þetta allt í hálf­gerðri móðu. Líklega vegna þess að áfallið var mikið. Ég man samt að ég hugs­aði mjög fljótt að ég vildi geta eign­ast börn þrátt fyrir þetta. Ég hafði ekki enn eign­ast barn og var bara nýbyrjuð með kærast­anum mínum þarna. Ég vildi sko ekki missa mögu­leik­ann á því að geta eign­ast barn síðar meir og var það eitt af því fyrsta sem ég ræddi við skurð­lækn­inn minn.“

Erfið áramót

Guðný greind­ist með brjóstakrabba­mein þann 15. des­em­ber 2014, í miðju lækna­verk­falli. Jóla­há­tíðin var því frekar skrýtin það árið, en sem betur fer komst Guðný undir hníf­inn áður en nýja árið gekk í garð.

„Ég vissi ekk­ert hvenær ég færi í aðgerð til að fjar­lægja meinið en skurð­lækn­ir­inn hafði sagt mér að lík­lega væri það ekk­ert fyrr en á næsta ári, sem mér fannst fárán­legt. Ég vildi bara losna við krabba­meinið strax í dag. Jólin voru frekar dofin. En svo fékk ég sím­tal frá skurð­lækn­inum milli jóla og nýárs um að hann hefði komið mér að í skurð­að­gerð á gaml­árs­dags­morgun, 31. des­em­ber. Ég þáði það með þökkum og end­aði því á að eyða ára­mót­unum á Land­spít­al­anum. Ég var reyndar frekar óheppin að eftir aðgerð­ina, sem var fleyg­skurður, hafði opn­ast æð í brjóst­inu og blætt mikið inná brjóstið. Ég varð mjög lasin og féll til dæmis mjög mikið í blóð­gild­inu. Þetta voru því ansi erfið ára­mót en til­hugs­unin að geta byrjað árið 2015 krabba­meins­frí var svaka­lega góð.“

Bónorð á Flórída.

Notar árið 2018 til að búa til barn

Við tók frjó­sem­is­með­ferð í Svíþjóð í jan­úar og síðan lyfja­með­ferð sem hófst í febr­úar.

„Lyfja­með­ferðin sam­an­stóð af tvenns konar með­ferð. Fyrst fékk ég lyf viku­lega í tólf vikur og eftir það lyf á þriggja vikna fresti í aðrar tólf vikur. Eftir það fór ég í 33 geisla­með­ferðir, alla virka daga, sem tók sirka sex vikur. Síðan þurfti ég að halda áfram að fá eitt lyf á þriggja vikna fresti en það þurfti ég að fá uppá Land­spít­ala í heilt ár. Eftir þetta hef ég verið í horm­óna­með­ferð sem sam­anstendur af töflum og sprautum sem ég sé um sjálf. Þessi lyf þarf ég að fá næstu tíu árin,“ segir Guðný. Hún fær hins vegar núna að taka sér pásu frá horm­óna­með­ferð­inni til að reyna við barn­eignir. í Svíþjóð lét hún frysta ófrjóvguð egg, þar sem með­ferðin sem hún fór í getur valdið ófrjó­semi.

„Ég hafði kynnst kærast­anum mínum, sem nú er unnusti minn, aðeins þremur mán­uðum áður en ég grein­ist. Ég fór í Art Medica og hitti þar lækni sem sagði mér að skyn­sam­leg­ast væri að frysta ófrjóvguð egg þar sem við hefðum verið svo stutt saman og lögin á Íslandi segja að ég megi ekki nota fóst­ur­vísi fyrr­ver­andi maka þó svo að hann gefi fullt leyfi. Allt getur gerst og því var þetta ákveðið. Ég flaug sem sagt út til Sví­þjóðar því ekki var hægt að frysta ófrjóvguð egg hér­lendis á þessum tíma. Mér skylst að það sé hægt núna hjá IVF klínikk­inni. Nú hugsa ég alltaf um eggin mín sem litlu Svíana mína, þar sem eggin hafa „búið” í 3 ár í Svíþjóð,“ segir Guðný og brosir.

„Í raun­inni er þetta ferli allt komið af stað og ef allt gengur vel hugsa ég að ég noti árið 2018 í að búa til eins og eitt stykki barn.“

Ekki alslæmt að greinast með krabbamein

Hún segir þetta ferli hafa sína ljósu punkta, þó erfitt sé.

„Kvöldið sem ég rak­aði af mér hárið, en þá var ég byrjuð að missa það og fannst betra að hafa stjórn­ina og sjá um þetta sjálf. Systir mín hjálp­aði mér og við próf­uðum alls­konar klipp­ingar, svona af því við gátum það.“

„Þetta ferli hefur verið langt og strangt en alls ekki alslæmt. Það hefur alveg komið fullt jákvætt útúr þessum veik­indum, eins og dýr­mæt reynsla. Að prófa að sitja hinumegin við borðið og vera sjúk­lingur. Þó mér hafi í raun aldrei liðið eins og sjúk­lingi, þá er ég alla­vega búin að prófa þetta og skil von­andi skjól­stæð­ing­ana mína betur. Einnig hef ég kynnst mikið af fólki sem allt hefur kennt mér eitt­hvað. Og svo er auð­vitað mjög dýr­mætt að finna stuðn­ing frá ætt­ingjum og vinum. Ég er alveg örugg­lega búin að breyt­ast að ein­hverju leyti, það er lík­lega auð­veld­ara fyrir aðra að dæma um það. Ég tel samt að ég hafi alltaf verið frekar jákvæð mann­eskja og hefur það alveg örugg­lega hjálpað mér að tækla þessi veik­indi. Ég var líka heppin að ég varð aldrei mjög lasin. Var oft þreytt og upp­gefin en aldrei þannig að ég þyrfti að liggja í rúm­inu heilan dag. Ég reyndi eftir fremsta megni að fara út á meðal fólks á hverjum degi og fór til dæmis mikið í rækt­ina með Ljósinu og einnig á ýmis nám­skeið hjá Ljósinu. Ég fór einnig í nokkra sál­fræði­tíma hjá Krafti og hitti stuðn­ings­full­trúa í gegnum Kraft sem var ung stelpa sem hafði gengið í gengum svipað ferli,“ segir Guðný. Hún er ekki frá því að hún kunni meira að meta dag­inn í dag en áður.

„Ég hef alltaf verið dug­leg að njóta í núinu en lík­lega hugsa ég enn meira um það nú. Ekki fresta því sem mig langar til að gera eða upp­lifa. Reyna að umvefja mig jákvæðu og skemmti­legu fólki og gera meira af því sem mér finnst skemmti­legt. Eitt af því skemmti­leg­asta sem ég geri er til dæmis að ferð­ast og hef ég verið dug­leg við það síð­ustu ár. Einnig finnst mér mik­il­vægt að vera dug­leg að heim­sækja fjöl­skyldu og vini þar sem maður veit aldrei hvenær við hitt­umst í síð­asta skipti,“ segir hún.

Guðný í átaki Krafts.

Þiggið alla hjálp sem býðst

Guðný segir stuðn­ing frá fjöl­skyldu og vinum ómet­an­legan, en einnig stuðn­ing frá Krafti, félags ungs fólks sem hefur greinst með krabba­mein og aðstand­enda þess. Hún segir sögu sína í nýju átaki Krafts, Krabba­mein kemur öllum við, sem lýkur á sunnu­dag 4. febr­úar, á alþjóð­degi gegn krabba­meini. Þá ætlar Kraftur að setja Íslands­met í perlun arm­banda í Hörpu. En áður en ég kveð þessa jákvæðu, ungu konu verð ég að spyrja hana hvað hún vill segja við þá sem grein­ast með krabba­mein í blóma lífs­ins?

„Þetta er í flestum til­fellum ekki dauða­dómur. Flestir lifa góðu lífi þrátt fyrir grein­ingu. Reynið að ein­blína á jákvæðu hlið­arnar, það er ekki allt slæmt við að grein­ast með krabba­mein. Gerið meira fyrir ykkur sjálf og þiggið alla þá hjálp og stuðn­ing sem býðst. Mér fannst gott að líta á veik­indin sem verk­efni. Verkefni sem ég þurfti að gefa allan minn tíma og orku í en svo klárað­ist það að lokum. Þetta er oft­ast bara tíma­bil sem þarf að kom­ast í gegnum. Það að segja að fólk sé að „berj­ast“  við krabba­mein finnst mér ekki lýsa þessu rétt. Flestir eru ekki að berj­ast en frekar að ganga í gegnum og leysa verk­efnin sem verða á veg­inum.“

Texti / Lilja Katrín
[email protected]
Myndir / Úr einka­safni og Kraftur

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina