Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gunnar Björn gerir glæpamynd fyrir börn

Leik­stjór­inn Gunnar B. Guð­munds­son áformar að færa skáld­sögu Þórarins Leifs­sonar „Maðurinn sem hataði börn“ yfir á hvíta tjaldið. Hann reiknar með að myndin verði sitt dekksta verk til þessa.

Gunnar Björn gerir glæpamynd fyrir börn
|
Bók Þórarins hlaut glimmr­andi góða dóma þegar hún kom út 2014 og var meðal ann­ars til­nefnd til Íslensku bók­mennta­verð­laun­anna í flokki barna­bóka.

„Þetta er á algjöru frum­stigi, þannig að ég vil nú ekki segja of mikið. Bara að sem stendur er ég að plana fyrsta upp­kast og sú vinna gengur vel,“ segir leik­stjór­inn Gunnar B. Guð­munds­son sem er um þessar mundir að þróa hand­rit upp úr skáld­sög­unni „Maðurinn sem hataði börn“ eftir Þórarinn Leifsson rit­höf­und.

Bók Þórarins hlaut glimmr­andi góða dóma þegar hún kom út 2014 og var meðal ann­ars til­nefnd til Íslensku bók­mennta­verð­laun­anna í flokki barna­bóka. Hún fjallar um Sylvek, ungan inn­flytj­anda í Reykja­vík, sem ákveður upp á sitt eins­dæmi að rann­saka hvarf systur sinnar vegna sinnu­leysis lög­reglu og kynn­ist á veg­ferð sinni alls kyns áhuga­verðum per­sónum. Þar á meðal dul­ar­fullum leigj­anda, reffi­legri blaða­konu, ógur­legum ster­atröllum og síð­ast en ekki síst sturluðum raðmorð­ingja.

Þeir sem lesið hafa sög­una vita að hún er ansi blóðug á köflum. Gunnar við­ur­kennir fús­lega að verkið sé í dekkri kant­inum. Sér­stak­lega í ljósi þess að það er skrifað með unga les­endur í huga. „Ég er einmitt að vinna í því að tóna ofbeldið svo­lítið niður í hand­rit­inu,“ segir hann. „Því þótt þetta sé auð­vitað fyrst og fremst glæpa­saga fyrir krakka þá er samt óþarfi að sýna allt.“

„Ég er einmitt að vinna í því að tóna ofbeldið svo­lítið niður í hand­rit­inu,“ segir hann. „Því þótt þetta sé auð­vitað fyrst og fremst glæpa­saga fyrir krakka þá er samt óþarfi að sýna allt.“

Af því þú nefnir það, hafa glæpa­myndir verið gerðar fyrir krakka á Íslandi áður? „Myndir með glæpaí­vafi, já, en þetta yrði kannski fyrsta hrein­rækaða glæpa­myndin. Að því sögðu má þó ekki gleyma að saga Þórarins er fantasía líka og full af svörtum húmor og ég ætla að halda í þá þætti.“

Auk þess að skrifa hand­ritið seg­ist Gunnar stefna að því að leik­stýra mynd­inni sjálfur. „Maðurinn sem hataði börn“ yrði því fyrsta kvik­mynd hans í fullri lengd síðan „Gaura­gangur“ var frum­sýnd árið 2010. Sú mynd byggir einmitt líka á bók, sam­nefndri skáld­sögu Ólafs Hauks Sím­on­ar­sonar og segir Gunnar að vinnan við gerð hennar komi nú að góðum notum í hand­rita­vinn­unni.

„Þess utan hef ég verið í bandi við frá­bæra ráð­gjafa hjá hand­rita­verk­efn­inu Cinekid og svo heyrt lít­il­lega í Þórarni, sem er mjög þægi­legur og rólegur yfir þessu öllu saman,“ segir hann. „Þannig að þetta er búið að vera skemmti­leg vinna, sem ég vona bara að muni skila sér inn í mynd­ina.“

Hvenær hefj­ast tökur? „Auðvitað er erfitt að segja til um það á þessu stigi máls­ins, í miðjum skrifum. En ef allt gengur að óskum erum við senni­lega að tala um 2020. Það er rök­rétt.“

Texti / Roald Eyvinds­son
Mynd / Róbert Karl Ingi­mund­ar­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina