Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Íslenskur brimbrettamaður í stórri þáttaseríu

Heiðar Logi Elíasson, fyrsti atvinnu­mað­ur­inn á brim­bretti á Íslandi, og sam­starfs­maður hans, Erlendur Þór Magn­ús­son ljós­mynd­ari, taka þátt í gerð seríu fram­leiddri af risa­veld­inu Red Bull.

Íslenskur brimbrettamaður í stórri þáttaseríu
Heiðar Austmann Heiðar Austmann Heiðar Austmann Heiðar Austmann *** Local Caption *** Forsíða Forsíða Forsíða Forsíða

„Það er að koma hingað erlent tökulið og það ætlar að fylgja okkur Ella eftir á för okkar um landið, þar sem við leitum uppi háar og kraft­miklar öldur á afviknum stöðum til að takast á við þær. Þetta verður svona „skyggnst á bak við tjöldin“ dæmi, við­töl í bland við senur þar sem hrein­lega allt getur gerst,“ segir brim­bretta­kapp­inn Heiðar Logi Elíasson kátur í bragði.

Hann og vinur hans og sam­starfs­fé­lagi til nokk­urra ára, Erlendur Þór Magn­ús­son ljós­mynd­ari, hafa gert samn­ing um að koma fram í annarri seríu af þátt­unum Chasing the Shot sem beinir sjónum að ljós­mynd­urum sem leggja allt kapp á að ná hinni full­komnu mynd af jaðar­í­þrótta­fólki – oft við erf­iðar aðstæður. Fyrri ser­ían var meðal ann­ars tekin upp á Hawaii og Nýja-Sjálandi og hlaut góðar við­tökur en það er risa­veldið Red Bull sem fram­leiðir þætt­ina.

„Þetta er nátt­úr­lega mjög flott verk­efni. Ég meina, þetta er það sem okkur Ella hefur lengi dreymt um. Að gera okkar eigið „stöff“.“

Spurður um hvernig það hafi komið til að þeir félagar hafi verið fengnir til að koma fram í þátt­unum segir Heiðar Logi hug­mynd­ina hafa sprottið upp í sam­ræðum sem hann átti við aðila innan Red Bull í fyrra. Hún hafi smám saman undið upp á sig og sé nú að verða að veru­leika. „Þetta er nátt­úr­lega mjög flott verk­efni,“ segir hann, auð­heyri­lega spenntur. „Ég meina, þetta er það sem okkur Ella hefur lengi dreymt um. Að gera okkar eigið „stöff“.“

Í þeim stóru verk­efnum sem þeir félagar hafi hingað til komið að hafi þeir meira verið hluti af teymi, eins og í nýlegri heim­ilda­mynd á Netflix sem kall­ast Under an Arctic Sky og fjallar bæði um þá og annað brim­bretta­fólk sem er að elt­ast við hina full­komnu öldu. Í Chasing the Shot verði fók­us­inn hins vegar alfarið á þá. Auk þess hafi þeir miklu frjáls­ari hendur með efn­is­tök. „Þannig að við ætlum að nota tæki­færið og sýna allt sem við erum að bralla saman. Hluti sem við höfum aldrei sýnt á „vídeó“ áður. Fólk á eftir að fá alveg nýja sýn inn í það sem við erum að gera.“

Að sögn Heiðars er tökuliðið vænt­an­legt til lands­ins í febr­úar og er áætlað að þætt­irnir verði aðgengi­legir í sumar. Ekki sé búið að negla niður töku­staði að svo stöddu. Þeir ráð­ist af veðr­átt­unni. „Við förum bara þangað sem storm­arnir og háu öld­urnar verða hverju sinni,“ segir hann hress.

Mynd: Heiðar Logi Elíasson hefur getið sér gott orð sem brim­bretta­maður en hægt er að fylgj­ast með ævin­týrum hans á bæði Snapchat og Instagram undir not­enda­nafn­inu heid­ar­logi.

Texti / Roald Eyvinds­son
Mynd / Aldís Páls­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina