Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Umhverfismálin eiga að vera í fararbroddi

Batt­er­íið Arki­tektar er með stærstu arki­tekta­stofum á Íslandi með vel mennt­aða og reynslu­mikla starfs­menn sem hafa tekið þátt í stórum og fjöl­breyttum hönn­un­ar­verk­efnum bæði inn­an­lands og utan. Við báðum Sigurð Ein­ars­son arki­tekt, sem stofn­aði fyr­ri­tækið árið 1988 ásamt Jóni Ólafi Ólafs­syni og hefur starfað þar óslitið síðan, um að veita okkur inn­sýn inn í arki­tektúr á Íslandi í dag og gefa okkur sýn­is­horn af verkum sem Batt­er­íið arki­tektar hafa hannað.

Umhverfismálin eiga að vera í fararbroddi
Harpa – hönnuð í sam­starfi við Henning Larsen Architects og Studio Olafur Eliasson tekin í notkun 2011.

Hvaða straumar og stefnur eru mest áber­andi í dag? „Allt og ekk­ert. Það sem ég á við með því er að það er erfitt að segja að ein stefna sé meira áber­andi en önnur því í dag eru arki­tektar víða að vinna út fyrir þæg­ind­ara­mmann – í allar áttir. Arki­tektúr á að vera leit­andi og núna þegar nán­ast allt er tækni­lega mögu­legt sjáum við fjöl­breyti­leik­ann blómstra sem aldrei fyrr.“

Hvar standa Íslend­ingar á heims­vísu er varðar arki­tektúr og sam­keppn­is­hæfni? „Margt af því sem íslenskir arki­tektar eru að gera stenst allan sam­an­burð við það sem best ger­ist í heim­inum. Arki­tekta­sam­keppnir hér heima eru alþjóð­legar og þar standa íslenskir arki­tektar sig með ágætum og það sama má segja erlendis – við hjá Batt­er­í­inu Arki­tektum höfum t.d. bæði unnið arki­tekta­sam­keppnir og alút­boð í Noregi.“

Hvaða bygg­ing á Íslandi finnst þér skara fram úr varð­andi hönnun og gæði? „Það fyrsta sem kemur upp í hug­ann er ein­býl­is­hús eftir Högnu Sig­urð­ar­dóttur í Garðabæ. Þar hefur ekki bara verið á ferð­inni góður arki­tekt heldur líka frá­bær verk­kaupi sem hafði skiln­ing og metnað til að halda í þessa ferð út fyrir þæg­ind­ara­mmann með Högnu. Húsið er í senn með sterkar form- og efn­is­legar teng­ingar við Ísland, hefur umhverf­is­vænt yfir­bragð löngu áður en slíkt varð móð­ins, rým­is­myndun er frá­bær, lýs­ingin þjónar arki­tekt­úrnum í hví­vetna og húsið virð­ist „funkera“ vel með sveigj­an­legum opn­unum milli rýma svo það helsta sé nefnt.“

Hver er þín fram­tíð­ar­sýn fyrir Reykja­vík og þróun borg­ar­innar? „Ég er í stórum dráttum sáttur við stefn­una eins og hún birt­ist í Aðal­skipu­lagi Reykja­víkur. Umhverf­is­málin eiga að vera í far­ar­broddi. Eitt af mik­il­vægu mark­mið­unum í því sam­hengi eru skjól­myndun sem allt of oft er meira í orði en á borði. Ég tel rétt að leggja rík­ari áherslur á veð­ur­fars­lega þætti við skipu­lag og ekki síst útfærslur í upp­bygg­ingu borg­ar­innar. Þessi atriði fara vel saman við þétt­ingu byggð­ar­innar.“

Hvernig verk­efni finnst þér sjálfum skemmti­leg­ast að fást við? „Mér finnst skemmti­leg­ast að fást við flókin og krefj­andi verk­efni. Slík verk­efni kalla á meiri tíma og yfir­legu og eru í eðli sínu stans­laus end­ur­menntun. Oft þarfn­ast þau mik­illa sam­skipta við verk­kaupann í sam­eig­in­legri leit að hinni réttu lausn. Þetta geta allt eins verið lítil verk­efni eins og stórar bygg­ingar og skipu­lags­verk­efni en eiga það sam­eig­in­legt að stuðla að fram­þróun í hugsun, þróun og lausnum.“

Hvað er mik­il­væg­ast þegar kemur að góðri hönnun? „For­sendur fyrir góðri hönnun er góður verk­kaupi. Það er sama hvað arki­tekt­inn er góður, ef verk­kaup­inn hefur ekki skiln­ing á því að fylgja honum og bakka upp hans hug­myndir verður útkoman oft eitt­hvert miðju­moð. Góð hönnun er vel útfært sam­hengi hlut­anna og því ber að var­ast að steypa mörgum ólíkum óskum og hug­myndum í einn graut. Þar aftur spilar skiln­ingur og sam­vinna verk­kaupans stórt hlut­verk.“

Active liv­ing center í Winnipeg, Kanada.

Hvaða ráð vilt þú gefa arki­tektum og hönn­uðum fram­tíð­ar­innar? „Arki­tektúr snýst fyrst og fremst um að búa til rými fyrir fólk til að lifa og starfa í. Ný og göf­ugri við­mið birt­ast okkur reglu­lega í mann­virkjum þar sem best tekst til að horfa á umhverfið okkar og þarfir í sífellt nýju ljósi. Arki­tektar þurfa að vera trúir sjálfum sér og sinni sann­fær­ingu og til­búnir til að vera leið­andi í þess­ari enda­lausu veg­ferð.“

Skáli Alþingis – tek­inn í notkun 2002.

Á mynd­unum má sjá sýn­is­horn af þeim verkum sem Batt­er­íið Arki­tektar hafa hannað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni