Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Trendin sem verða ríkjandi árið 2019

Lita­gleðin heldur áfram að ráða ríkjum innan heim­il­is­ins og munum við sjá bæði dekkri og dýpri tóna og á hinn bóg­inn koma hlý­legir og frið­sælir jarð­litir til með að ná tölu­verðum vin­sældum. Á árinu sem leið var fólk ansi dug­legt að glæða heim­ili sín nýju lífi með hjálp máln­ing­ar­rúll­unnar og þar verður svo sann­ar­lega ekk­ert lát á! Við spáum því að fólk fari í meiri mæli að mála loftin í hressandi litum þegar líður á árið, en þetta mun breyta ásýnd og stemn­ingu heim­il­anna umtals­vert – hvítt er svo sann­ar­lega ekki heit­asti vegg­lit­ur­inn lengur!

Trendin sem verða ríkjandi árið 2019

Listaverk

Und­an­farið hafa stór og víga­leg lista­verk verið að fær­ast í auknum mæli inn í stofur og opin rými heim­il­anna. Ekkert lát verður á stórum áber­andi verkum þetta árið og við hvetjum les­endur til að vera dug­lega að kynna sér íslenska lista­menn, enda er lista­mannaflóran hér á landi til fyr­ir­myndar.

Kúrvur og lífræn form

Mjúkar línur og ávöl form hafa lík­lega ekki sést í jafn­miklu mæli síðan seventís-tískan leið undir lok. Þessi ára­tugur er svo sann­ar­lega búinn að ryðja sér til rúms á nýjan leik og kemur til með að koma sterkt inn árið 2019. Sófar með fal­legum sveigjum, rúnnuð hlið­ar­borð og meiri mýkt er það sem koma skal.

Sérsmíði

Við hjá rit­stjórn­inni höfum veitt því athygli að sífellt fleiri láta sér­smíða inn­rétt­ingar, hillur og skápa svo það sé sniðið akkúrat inn í rýmið sem því er ætlað. Okkur þykir sér­smíðin oft gefa rým­inu aukna dýpt og annað útlit og spáum við því að þetta muni fær­ast enn í auk­ana á næstu miss­erum.

Vistvænt

Allt sem snýr að því að hugsa betur um jörð­ina okkar er sem betur fer komið í tísku, enda vel tíma­bært! Meira mun bera á vist­vænni hönnun sem er fram­leidd í smærra upp­lagi og er jafn­vel hand­gerð. Fólk fer að spá meira í að fjár­festa í gæða­hús­gögnum sem end­ast frekar en ein­hverju sem kastað er til hliðar eftir stuttan tíma.

Fjölnota húsgögn

Sér­fræð­ing­arnir í heimi inn­an­húss­hönn­unar spá því að hús­gögn með fjöl­breytta notk­un­ar­mögu­leika muni verða áber­andi þetta árið. Slík hús­gögn hafa þann kost að not­and­inn getur aðlagað þau því rými sem hann vill nýta hús­gagnið í þá stund­ina, svo þau henta breyt­ingaglöðum ein­stak­lingum eða þeim sem leigja eða breyta ört um hús­næði einkar vel.

Fínlegur iðnaðarstíll

Iðn­að­ar­stíll­inn hefur verið áber­andi síð­ustu ár en nú förum við að sjá stíl­inn í tölu­vert fín­gerð­ari og fág­aðri útfærslu, hreinar og nútíma­legar línur í bland við hrá og efni með grófri áferð.

Þægindi, lúxus og mýkt

Að líða vel í eigin skinni og á eigin heim­ili verður gegn­um­gang­andi þema árs­ins 2019, þæg­indin verða í fyr­ir­rúmi og áherslan verður á vellíðan. Ímyndið ykkur leti­daga undir þykku teppi með góða bók og rjúk­andi tebolla við hönd­ina eða göngut­úra um hverfið í kósí föt­unum. Mjúk og nota­leg efni með fal­legri áferð sjást inn­an­húss og töffara­legir flat­botna skór, kjólar sem maður vefur utan um sig og bindur í mittið og kápur og nota­legar peysur.

Bast, reyr og bambus

Nátt­úru­legur efni­viður, ofin hand­verk og áferð halda velli og kemur bambus og reyr enn sterkar inn. Allt frá hús­gögnum yfir í smærri muni; stólar, bekkir, hillur, hlið­ar­borð, körfur og ljós. Við munum sjá meira af vörum í þessum stíl með sjálf­bær­ari fram­leiðslu hús­gagna og hluta sem hefur jákvæð áhrif á heim­ili okkar og umhverfi. Hlýleg efni sem eru að miklu leyti við­halds­frí og létt, sem hægt að nota bæði inni og úti. Fjölnota og feikna­flott!

Hvað dettur út?

Heimili í ein­földum litum eins alhliða gráum lita­tónum þar sem bæði grá hús­gögn og veggir eru ríkj­andi gerir rými og heim­ili nokkuð eins­leit að okkar mati. Svart­hvítur stíll hefur að mati sér­fræð­ing­anna einnig sungið sitt síð­asta í bili, við hjá rit­stjórn­inni erum sam­mála þessum fregnum og tökum lita­gleð­inni fagn­andi. Það eru skiptar skoð­anir á því hvort terrazzo muni halda velli eða ekki. Sumir virð­ast búnir að fá nóg af því á meðan aðrir spá áfram­hald­andi hylli efn­is­ins.

Á hverju ári verðum við vör við aukna vit­und­ar­vakn­ingu og miklar fram­farir er varðar efni og notkun þess. Umræðan um plast hefur verið ofar­lega á baugi lengi og alltaf er hægt að gera betur. Hönnuðir og fram­leið­endur eru í auknum mæli farnir að huga að því hvernig vörur eru búnar til, við hvaða aðstæður og úr hvaða efni; er það end­ur­nýt­an­legt eða fjöl­nota, býr það yfir gæðum, end­ist það kyn­slóða á milli?

Það virð­ist allt vera leyfi­legt í dag hvað varðar inn­an­húss­hönnun. Fólk fylgir eigin inn­sæi fremur en að elt­ast við tísku­strauma sem er jákvæð þróun að okkar mati. Er „tískan“ í inn­an­húss­hönnun jafn­hröð og í fatat­ísk­unni?

Eftir okkar bestu vit­und, þekk­ingu og rann­sókn­ar­vinnu breyt­ist hún ekki endi­lega mikið ár frá ári, en að sjálf­sögðu detta hægt og rólega inn nýir straumar og stefnur meðan aðrir fjara út. Bæði hvað varðar inn­an­húss­hönnun og fatat­ísku hefur verið að fær­ast sífellt meira í auk­ana að fólk festi fremur kaup á vand­aðri vörum og fatn­aði, sem hefur betri líf­tíma og end­ist betur.

Meira um málið í jan­ú­ar­blaði Húsa og híbýla en febr­ú­ar­blaðið kemur út í 15. febr­úar. Áskrif­endur fá blaðið inn um lúg­una degi fyrr!

Umsjón / Elín Bríta og María Erla

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni