Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Embættismannahús við tjörnina endurgert

Við Reykja­vík­ur­tjörn stendur reisu­legt timb­ur­hús frá árinu 1907 en húsið er eitt af emb­ætt­is­manna­hús­unum svoköll­uðu sem risu við Tjörnina á heima­stjórn­ar­tím­anum í byrjun 20. aldar.

Embættismannahús við tjörnina endurgert

Húsið fellur undir það stíl­brigði sem kall­ast „báru­járns­sveitser“ og er sá stíll ein­kenn­andi fyrir timb­ur­húsa­byggð­ina við Tjörnina en byggðin undir brekkunni er sér­stök fyrir þær sakir að hafa varð­veist í heild og nán­ast í upp­runa­legri mynd. Húsið er inn­flutt og er talið koma frá Noregi. Arkitekt þess er ókunnur en það var reist af Eggerti Briem, skrif­stofu­stjóra stjórn­ar­ráðs­ins og síðar hæsta­rétt­ar­dóm­ara, og konu hans, Guðrúnu Jóns­dóttur skóla­stýru. Húsið var friðað árið 1991.

Ljós­mynd­irnar tók Nanne Springer.

Breytingar og endurgerð

Húsinu var breytt árið 1953 en þá var það stækkað til vest­urs að brekkunni og við­bygg­ingin steypt og klædd báru­járni. Jafn­framt var inn­gangur húss­ins færður á norð­ur­hlið húss­ins og bíslag sem var áður að sunn­an­verðu fjar­lægt. Sól­stofu­glugga var einnig bætt við á suð­ur­hlið húss­ins en breyt­ing­arnar hann­aði Halldór H. Jónsson arki­tekt. Árið 2015 var hins vegar komið að við­haldi og var þá tekin ákvörðun um end­ur­gerð húss­ins.

Að ósk eig­enda var kvisti bætt við á ris­hæð húss­ins að aust­an­verðu en húsið var það eina í götu­lín­unni sem ekki hafði kvist. Kvist­ur­inn er með þrí­skiptan glugga, sam­bæri­legan þeim sem voru til staðar á öðrum hliðum húss­ins. Með til­komu kvists­ins fékk húsið meiri reisn og féll enn betur að götu­mynd­inni sem telst nú eitt helsta djásn bygg­ing­ar­listar Reykja­víkur. End­ur­gerð­ina önn­uð­ust Gláma Kím arki­tektar.

Í takt við tíðarandann

Verk­efnið var stórt og krefj­andi þar sem húsið er stað­sett á einum við­kvæm­asta stað borg­ar­innar en mark­miðið var að húsið héldi upp­runa­legri gerð sinni og gæðum. Innra skipu­lag húss­ins tók nokkrum breyt­ingum við end­ur­gerð­ina og má í því sam­hengi helst nefna efri hæð­ina og risið en kjall­ar­inn og fyrsta hæð héld­ust nán­ast óbreytt. Á fyrstu hæð var eld­húsið end­ur­inn­réttað og má þar sjá fag­ur­bláar, spraut­ulakk­aðar inn­rétt­ingar.

Borð­plöt­urnar og sól­bekkur eru úr hvítum marm­ara og gól­f­efnið er íslenskt grá­grýti. Í stofum var sett nýtt vegg­fóður á þá veggi sem höfðu verið vegg­fóðraðir áður. Gólfefni í stofum var látið halda sér en pússað upp og lakkað. Allir litir, bæði inni og úti, voru sér­valdir í sam­ráði við eig­endur húss­ins og tekið var sér­stak­lega mið af tíð­ar­anda húss­ins við valið. Á efri hæð voru gólfin rétt af, öllum gól­f­efnum skipt út og nýtt eik­arpar­kett lagt.

Með til­komu kvists­ins breytt­ist skipu­lag hæð­ar­innar og her­berg­is­fyr­ir­komu­lagið, en undir kvist­inum er svefn­her­bergi eftir endi­langri aust­ur­hlið húss­ins. Bað­her­bergið var end­ur­inn­réttað og Carrara bianco-marmari settur á gólf og veggi.

Mikilvægt að varðveita handverkið

Timb­ur­húsa­röðin við Tjörnina ber þess merki að ný stétt iðn­að­ar­manna var áber­andi í sam­fé­lag­inu og mikil vakn­ing var í mann­virkja­gerð í byrjun 20. ald­ar­innar. Húsin eru listi­lega smíðuð og má sjá í þeim ein­stakt hand­verk sem mik­il­vægt er að varð­veita. Þegar kemur að end­ur­gerð skiptir því sköpum að hand­verk­inu sé sýnd virð­ing. Í slíkum verk­efnum er sér­stak­lega mik­il­vægt að tapa ekki gæðum og krefst vinnan við fram­kvæmd­irnar mik­illar sér­þekk­ingar og stýrðu tré­smið­irnir Jakob Mar­in­ós­son og Þorgeir Reyn­is­son verk­inu.

Sem dæmi má nefna að við gerð kvists­ins þurfti að gæta að því að allur frá­gangur í kringum hann og nýjan glugga væri í sam­ræmi við aðra upp­runa­lega glugga húss­ins og þurfti því að hand­smíða allt tré­verk utan um hann. Allir aðrir gluggar húss­ins voru end­ur­teikn­aðir og mörgum þeirra skipt út þar sem sumir hverjir voru ein­ungis með ein­földu gleri. Andrés Sig­ur­bergs­son, glugga­smiður hjá Ölf­us­gluggum, sá um smíði allra glugga húss­ins.

Skipt var um klæðn­ingar utan­húss og ráð­ist var í rann­sókn­ar­vinnu til þess að velja lit á húsið að utan en fyrir end­ur­gerð var húsið gult að lit með grænu þaki. Nið­ur­staðan var að heppi­leg­ast væri að velja liti sem væru hóg­værir í götu­mynd­inni en trúir tíð­ar­and­anum. Ágúst Garð­ar­son, mál­ari hjá ÁG málun, hélt utan um alla máln­ing­ar­vinnu jafnt inn­an­húss sem utan. Lita­valið klæðir húsið ein­stak­lega vel og und­ir­strikar þá værð sem er yfir göt­unni í ann­ars anna­sömu borg­ar­um­hverfi. 

Hús­gögnin voru valin með til­liti til bygg­ing­ar­tíma og stíl húss­ins.

Fyrr, síðar, núna

Við end­ur­gerð­ina tók lóðin einnig breyt­ingum. Inn­keyrsl­unni var breytt og var veggur hlað­inn aust­an­megin við húsið sem skilur að gang­stétt­ina og lóð­ina sjálfa. Á veggnum má sjá lista­verk eftir Kristin E. Hrafns­son mynd­list­ar­mann sem sam­an­sett er úr orð­unum „fyrr, síðar, núna“. Þessi orð eru afar lýsandi fyrir umhverfið við Tjörnina og timb­ur­húsa­röð­ina. Verkið tengir saman for­tíð, nútíð og fram­tíð sem end­ur­spegl­ast hvað best í hús­unum sjálfum sem hafa alger­lega stað­ist tím­ans tönn sem vel­heppnuð end­ur­gerð Glámu Kíms arki­tekta und­ir­strikar enn frekar.

Ljós­myndir / Nanne Springer

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni