Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

New York Loft á Grandanum

Hjördís Árna­dóttir, mynd­list­ar­maður og hönn­uður, heill­að­ist af Grand­anum enda býr gamla hafn­ar­svæðið í Reykja­vík yfir miklum sjarma.

New York Loft á Grandanum

Gamla hafn­ar­svæðið í Reykja­vík býr yfir miklum sjarma og á und­an­förnum árum hefur Granda­garður tekið meiri háttar breyt­ingum. Þar sem áður voru ver­búðir sjó­manna, nef­tó­bakskar­lar og nær ein­göngu starf­semi sem tengd­ist sjáv­ar­út­vegi hefur nú mynd­ast blóm­legt og skemmti­legt nýsköp­un­ar­svæði og fjöl­breytt­ara mann­líf.

Það er óhætt að segja að hafn­ar­svæðið sé orðið hip og kúl en víða erlendis hefur þró­unin orðið á þessa leið; það er að segja að gömul iðn­að­ar­hverfi verða að líf­legum nýsköp­un­ar­hverfum þar sem vinnu­stofur, sprota­fyr­ir­tæki, kaffi­hús, versl­anir, veit­inga­staðir og mann­líf blómstrar.

Sjávarlyktin berst inn

Ein þeirra sem hefur heill­ast af þessu gamla hafn­ar­svæði er Hjördís Árna­dóttir, mynd­list­ar­maður og hönn­uður, eftir að hafa búið í New York og verið með vinnu­stofu í gömlu iðn­að­ar­hverfi þar í borg heill­að­ist hún af Grand­anum í Reykja­vík. Hún segir að stemn­ingin sé að verða svo­lítið svipuð þar og í iðn­að­ar­hverf­inu í stór­borg­inni þar sem hún bjó áður og sér ekki eftir því að hafa fjár­fest í hús­næði á svæð­inu þar sem útsýni er yfir höfn­ina og sjáv­ar­ilm­ur­inn berst inn um glugg­ana.

Bjó í gamalli sykurverksmiðju

Hjördís Árna­dóttir er mynd­list­ar­maður með BA-gráðu frá Lista­há­skól­anum og masters-gráðu frá School of Visual Arts í New York þar sem hún bjó áfram í nokkur ár eftir útskrift. Hún tók þátt í lista­sýn­ingum þar í borg, var með vinnu­stofu og bjó í gömlu iðn­ar­hús­næði ásamt nokkrum öðrum lista­mönnum sem voru með henni í nám­inu.

„Við hreiðruðum um okkur í gam­alli syk­ur­verk­smiðju á bökkum East river með útsýni yfir Man­hattan. Þetta var gam­alt iðn­að­ar­hverfi í nið­ur­níðslu sem lista­menn fóru að hafa áhuga á, eitt og eitt kaffi­hús og lista­manna­stúdíó voru opnuð í hverf­inu, ekki ólíkt því sem hefur verið að ger­ast á Grand­anum núna und­an­farið og hverfið þró­að­ist í að vera líf­legt nýsköp­un­ar­hverfi. Ég bjó þarna í fimm til sex ár, kynnt­ist svo mann­inum mínum hér heima og flutti heim til Íslands í kjöl­farið, tveimur árum seinna,“ segir hún bros­andi.

Minnir á listamannaloft á Manhattan

Hvernig æxl­að­ist það svo að þið keyptum hús­næði á Grand­anum?

„Fyrir nokkrum árum síðan fjár­festum við í iðn­að­ar­hús­næði á Grand­anum með það að mark­miði að end­ur­byggja það og hanna á þann hátt að úr yrði áhuga­vert vinnu­rými fyrir fólk í skap­andi greinum. Í heild­ina var um að ræða þrjú hund­ruð fer­metra hús­næði eða þrjú 100 fer­metra rými, auk 30 fer­metra opinnar hæðar í hverju rými. Við hönnun og end­ur­bygg­ingu leit­að­ist ég eftir að halda í upp­runan og ein­fald­leik­ann með því að hafa opið í stál­grind í lofti og halda milli­veggjum í algjöru lág­marki þannig að rýmið fengi að njóta sín sem heild. Veggirnir sem ná mest sex metra hæð voru spraut­aðir hvítir og flóð­lýstir og gólf steypu­flotuð,“ svarar hún og við spyrjum hana að end­ingu hvað sé mest heill­andi við þetta hafn­ar­svæði borg­ar­innar?

„Á næstu árum verður spenn­andi að fylgj­ast með því hvernig þetta svæði verður skipu­lagt og hvort þarna þarna fái að þró­ast íbúa­byggð.“

„Fyrir utan stað­setn­ing­una minnir hús­næðið á klass­ísk lista­manna­loft í New York með tvö­faldri loft­hæð og opinni hæð en hús­næði af þessu tagi er ekki algengt hér í Reykja­vík. Í raun væri eins heill­andi mögu­leiki að nota svona hús­næði sem íbúð­ar­hús­næði en enn sem komið er er ekki gert ráð fyrir íbúð­ar­byggð á Grand­anum. Á næstu árum verður spenn­andi að fylgj­ast með því hvernig þetta svæði verður skipu­lagt og hvort þarna þarna fái að þró­ast íbúa­byggð í bland við áfram­hald­andi skap­andi atvinnu­starf­semi og menn­ingu,“ segir Hjördís bros­andi og fær sér kaffi­sopa.

Blaða­maður kveður mynd­list­ar­mann­inn og hönn­uð­inn sem hefur skapað þetta skemmti­lega rými á einum besta stað bæj­ar­ins þar sem ávallt er líf og fjör og sjáv­ar­lyktin fyllir vitin.

Myndir / Aðsendar

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni