Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Í himnesku umhverfi við sjávarsíðuna

Þetta glæsi­lega fjöl­býl­is­hús stendur við Strikið 1 á fal­legum stað í Sjá­lands­hverfi í Garðabæ. Sjá­landið liggur við Arn­ar­nes­vog­inn í Garðabæ í frið­sælu og fal­legu umhverfi við sjáv­ar­síð­una. Sjáland hefur sér­stakt yfir­bragð, það er að segja að skipu­lag hverf­is­ins tekur mið af nálægð þess við sjó­inn, en hverfið stendur á strönd­inni við Arn­ar­nes­vog og eitt aðal­ein­kenni þess er gott útsýni yfir vog­inn allt til Snæ­fells­jök­uls og til Esju. Umhverfið laðar að og býður upp á fjöl­breyttar leiðir til úti­vist­ar­iðk­unar fyrir alla ald­urs­hópa.

Í himnesku umhverfi við sjávarsíðuna

Í hús­inu eru til sölu glæsi­legar og vand­aðar íbúðir fyrir sex­tíu ára og eldri og alls eru fjöru­tíu og tvær íbúðir í hús­inu. Íbúð­irnar eru allt frá 84 fer­metrum til 180 fer­metra að stærð. Húsið er vel ein­angrað að utan og álk­lætt með end­ing­ar­góðri, smekk­legri og við­halds­lít­illi álklæðn­ingu. Íbúðunum fylgja ýmist góðar svalir, þak­garðar eða timb­ur­ver­andir með skjól­girð­ingum á jarð­hæð. Öllum íbúðum fylgir stæði í upp­hit­aðri og lok­aðri bíl­geymslu þar sem gert er ráð fyrir að hægt sé að hlaða raf­magns- eða tengit­vinn­bíla.

Öryggið í fyrirrúmi

Íbúð­irnar eru afar vand­aðar og afhend­ast full­búnar án gól­f­efna að und­an­skildum bað­her­bergjum og þvotta­húsum sem verða flísa­lögð. Skipu­lagið er hið besta og stíl­hreint yfir­bragð er yfir eign­inni. Mikið er lagt upp úr öryggi og íbúð­unum fylgir mynd­dyra­sími. Jafn­framt fylgja íbúð­unum reyk­skynjarar sem og í sam­eign sem verða vaktaðir af stjórn­stöð örygg­is­fyr­ir­tækis. Í hverju stiga­húsi verður sam­eign full­frá­gengin með lyftu. Sameign og lóð að utan verður full­frá­gengin á smekk­legan máta og stéttar við húsið verða hellu­lagðar upp­hit­aðar með snjó­bræðslu­kerfi.

Örstutt í þjónustu í Jónshúsi og samgöngurleiðir góðar

Vel er hugað að lífs­gæðum íbú­anna og má nefna að innan húss­ins verður sam­eig­in­legur salur fyrir íbúa þar sem hægt er að halda fundi eða mann­fagn­aði. Ekki er þó um eig­in­lega félags­að­stöðu eða skipu­lagt félags­starf að ræða. Hins vegar er handan göt­unnar Þjón­ustu­sel Garða­bæjar stað­sett í Jónshúsi fyrir eldri borg­ara Garða­bæjar. Öku­leiðir til og frá hverf­inu eru greið­farnar. Skammt frá eru tveir þjón­ustu­kjarnar sem til­heyra miðbæ Garða­bæjar en það er versl­un­ar­kjarn­inn við Litlatún 3, á mótum Hafn­ar­fjarð­ar­vegar og Víf­ils­staða­vegar en hann hefur reynst afar vin­sæll og er vel sóttur af Garð­bæ­ingum og nær­sveit­ungum. Jafn­framt við Garð­ar­torg er öfl­ugt versl­unar- og þjón­ustu­rými, stjórn­sýsla og menn­ing. Við Arn­ar­nes­vog­inn er nátt­úru­leg fjara og í fram­haldi af henni er sjó­baðs­strönd sem snýr í sól­ar­átt. Strand­lengjan er opin öllum íbúum og almenn­ingi og gang­stígur tengir hana og hverfið við miðbæ Garða­bæjar ásamt öfl­ugu göngu­stíga­neti bæj­ar­ins sem er mik­ill kostur.

Ylströndin er stein­snar frá en mögu­legt er að njóta sólar og sands þar. Það er ekki ein­göngu í Naut­hóls­vík sem íslenskir sól­dýrk­endur geta kom­ist í tæri við strand­stemn­ingu. Í Sjá­lands­hverf­inu er ylströnd sem jafnan nýtur mik­illa vin­sælda á góð­viðr­is­dögum.

Til framtíðar

Hjúkr­un­ar­heim­ilið Ísafold sem er rekið af Hrafn­istu er stað­sett á næstu lóð, sem mætti hugsa sem ákveðið öryggi í fram­tíð­inni en um þetta þarf að semja. Ísafold er fremur nýlegt og glæsi­legt hjúkr­un­ar­heim­ili ásamt þjón­ustu­mið­stöð. Þjón­ustu­mið­stöðin fyrir eldri bog­ara er stað­sett á jarð­hæð­inni og þar er boðið upp ýmsa þjón­ustu.

Fjár­fest­ing fast­eigna­salan er með þessar glæsi­legu íbúðir á sölu og er eft­ir­spurnin mikil, enda um að ræða vand­aðar eignir og ein­staka stað­setn­ingu. Sjón eru sögu rík­ari. Nánari upp­lýs­ingar veita Óskar Þór Hilm­ars­son, lög­giltur fast­eigna­sali, í síma: 822-8750, Guðjón Sig­ur­jóns­son, lög­giltur fast­eigna­sali, í síma 846-1511, Smári Jónsson, lög­giltur fast­eigna­sali, í 864-1362 og Edda Svav­ars­dóttir, lög­giltur fast­eigna­sali, í síma 845-0425. Einnig er hægt að hafa sam­band við Fjár­fest­ingu fast­eigna­sölu í síma: 562-4250.

Myndir / Úr mynda­safni Fjár­fest­ingar fast­eigna­fé­lags

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur