Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Skúlptúrískar karöflur lífga upp á matarborðið

Á Skóla­vörðu­stígnum er stór­glæsi­leg verslun, Geysir Heima, sem er með vand­aðar og fal­legar vörur fyrir heim­ilið sem fanga augað.

Skúlptúrískar karöflur lífga upp á matarborðið

Bæði er um að ræða vöru­merki frá Geysi sem og frá öðrum hönn­uðum. Einnig er ein­stak­lega skemmti­legt gall­erí í kjall­ar­anum sem býður upp á fjöl­breytta mögu­leika fyrir hönn­uði og lista­menn. Við litum inn og hittum versl­un­ar­stjór­ann, Hjört Matthías Skúlason og fengum frek­ari inn­sýn í hvaða vörur og þjón­usta er í boði.

Silki­mjúk bómull­ar­rúm­föt og íslensku ull­ar­teppin heit­ust
„Við fók­userum mest á heim­il­is­textíl og það sem er heit­ast núna eru rúm­fötin okkar sem eru úr frá­bærri bóm­ull sem er alveg silki­mjúk og maður verður ein­fald­lega háður þeim. Svo eru það nátt­úr­lega ull­ar­teppin okkar sem eru alltaf jafn­vin­sæl og eru komin á þann stall að vera klass­ísk íslensk hönnun. Af öðrum Geysis-vörum þá eru ilm­kertin okkar mjög vin­sæl enda alveg til­valin tæki­fær­is­gjöf,“ segir Hjörtur.

Íslensku ull­ar­teppin í Geysi eru klass­ísk íslensk hönnun. Mynd / Hallur Karlsson

Glös sem mynda lands­lag
Alltaf er eitt­hvað nýtt og ferskt í boði í Geysi Heima. „Við vorum að taka inn alveg frá­bær glös frá f f e r r o n e sem eru alveg ótrú­lega fal­leg og stíl­hrein. Það skemmti­lega við þau er að öllum glös­unum má snúa við og þá er komin önnur stærð af glasi. Þessi eig­in­leiki glasa­lín­unnar gerir það að verkum að á borð­inu mynd­ast skemmti­legt lands­lag með glös­unum. Þetta er elegant lína frá þeim hjá f f e r r o n e sem kall­ast Revolution Collection og er að sjálf­sögðu upp­þvotta­vél­ar­held,“ segir Hjörtur mjög ánægður með lín­una.

Falleg og stíl­hrein glös frá f f e r r o n e eru nú fáan­leg í Geysi heima. Þeim má snúa við og þá er komin önnur stærð af glasi. Karöfl­urnar eru úr lín­unni Cactus frá gler­fram­leið­and­anum Ichendorf Milano. Mynd / Hallur Karlsson

Skúlp­t­úrískar karöflur
Einnig eru þau, hjá Geysi Heima, nýbúin að taka upp send­ingu af karöflum frá gler­fram­leið­and­anum Ichendorf Milano. Karöfl­urnar eru skúlp­t­úrískar enda heitir línan Cactus og þær lífga vel upp á mat­ar­borðið, sjón er svo sann­ar­lega sögu rík­ari. „Það er líka gaman að koma því að að við erum ekki ein­ungis með vörur fyrir heim­ilið, við erum einnig með frá­bærar vörur fyrir kropp­inn líka, þær eru frá Haeckels sem er breskt ilm- og húð­vöru­fyr­ir­tæki. Haeckels notar ein­göngu nátt­úru­legt og líf­rænt hrá­efni í sínar vörur með fókus á jurtaflóru hafs og strandar.“

Haeckels er breskt ilm- og húð­vöru­fyr­ir­tæki sem notar ein­göngu nátt­úru­legt og líf­rænt hrá­efni í vörur sínar. Mynd / Hallur Karlsson

Þarfir og vænt­ingar við­skipta­vin­ar­ins í for­grunni
Geysir heima leggur mikið upp úr góðri þjón­ustu og gæðum. „Það sem okkur er mik­il­vægt er að eiga gott sam­tal við við­skipta­vin­inn og ná þannig að lesa í þarfir og vænt­ingar hans. Ég er mennt­aður hönn­uður og finnst leiðin að bestu útkom­unni nást með því að spegla nokkrar hug­myndir með við­skipta­vin­inum við val á hans vöru, til dæmis þegar við erum að gera gjafalista fyrir brúð­kaup sem er hluti af okkar þjón­ustu.“
Í kjall­ar­anum í Geysi Heima er skemmti­legt sýn­ing­ar­rými með nýjum sýn­ingum á um tveggja mán­aða fresti. „Núna stendur yfir alveg frá­bær sýn­ing Þórdísar Erlu Zoëga, HARMONY. Þar leikur Þórdís sér með end­ur­tekn­ingu, symmetríu og jafn­vægi með sér­hönn­uðum og hand­klipptum lím­miðum á plast­aðar glærur og plexí­plötur. Verk lista­manna sem sýna hverju sinni eru fáan­leg í vegg­spjalda­út­gáfum í versl­un­inni sem gerir kaup á verkum þeirra aðgengi­legri,“ segir Hjörtur að lokum.

Í Geysi heima er fjöl­breytt úrval fal­legra hluta fyrir heim­ilið. Mynd / Hallur Karlsson
Mynd / Hallur Karlsson
Mynd / Hallur Karlsson
Mynd / Hallur Karlsson
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur