Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Mikilvægt að klippa og úða á vorin

Garðlist býður upp á alla garð­þjón­ustu auk þess að sinna til dæmis mokstri og sópun. Margir við­skipta­vinir eru í áskrift hjá fyr­ir­tæk­inu allt árið um kring.

Mikilvægt að klippa og úða á vorin
Við á Mannlífi tókum Twitter-færslu Brynjars til okkar og völdum þessa fal­legu mynd af honum

Fyr­ir­tækið Garðlist er alhliða garð­þjón­usta og fagnar 30 ára afmæli á árinu. „Ég byrj­aði með þetta þegar ég var 12 ára og bauð upp á ýmsa garð­þjón­ustu næstu árin en síð­ustu 20 árin hefur þetta verið heils­árs­fyr­ir­tæki,“ segir Brynjar Kjærne­sted, skrúð­garð­yrkju­meist­ari, eig­andi og fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins.

„Fyr­ir­tækið hefur þró­ast hægt og rólega en við­skipta­vin­ur­inn hefur þróað fyr­ir­tækið eftir því hverju hann kallar eftir í þjón­ustu. Við byrj­uðum á að slá, svo bað ein­hver okkur um að klippa og við byrj­uðum að klippa og hægt og rólega vorum við komin með mjög breiða línu af þjón­ustu; það skemmti­lega við þjón­ustu okkar er að þetta er þjón­usta sem fólk þarf aftur og aftur. Flestir eru með hana í áskrift og við sinnum henni allt árið.

….við­skipta­vin­ur­inn hefur þróað fyr­ir­tækið eftir því hverju hann kallar eftir í þjón­ustu.

Þetta er allt frá því að slá, hreinsa beð, klippa, gróð­ur­setja sum­arplöntur í potta, sjá um þöku­lagnir og plöntun, trjá­fell­ingar, bera áburð á grasið og sópa planið. Við erum með götu­sóp, ryðjum snjó á vet­urna, berum sand og salt á plön og stéttar og setjum upp og tökum niður jóla­skreyt­ingar en við sjáum um að geyma þær og leigjum jafn­vel skreyt­ingar til fyr­ir­tækja. Það er alltaf eitt­hvað í gangi allt árið um kring.“

Klippa fyrir vorið

Vorið er á næsta leiti og þá er að ýmsu að hyggja, að sögn Brynjars. „Það er mik­il­vægt að átta sig á því að maður er með garð allt árið; margir hugsa bara um að hreinsa garð­inn sinn á vorin en við leggjum áherslu á að fólk hugsi um garð­inn allt árið og sinni honum. Það þarf að vera búið að klippa áður en vorið gengur í garð en það er mikilægt að flestallur gróður sé klipptur einu sinni á ári. Að tré fari ekki inn í sum­arið með vöxt síð­asta sum­ars en það gerir hekk óþétt og það skemmir grunn­stoð­irnar í hekk­inu að sleppa því að klippa.

Margir hafa heldur ekki sinnt beð­unum allt sum­arið eða allan vet­ur­inn en það þarf að hreinsa þau og fríska upp á stéttir og taka mos­ann. Við erum með stétta­vél sem burstar allan gróður og mosa á milli stétta og ofan á og frískar allar stétt­ina upp.“

Brynjar segir að hvað mos­ann varðar sé ekki þörf á að skipta um gras eins og sumir haldi. „Það er ein­falt að ná grasi góðu með réttri áburð­ar­gjöf en við erum með áburð­ar­gjöf í áskrift.“

Eitrað fyrir birkikembu og maðki

Brynjar segir að huga þurfi að óværu, svo sem birki­kembu og maðki, en ein leiðin sé að nota eitur. „Það þarf til dæmis að eitra fyrir birki­kembu áður en skað­inn er skeður en það þarf að úða birki frá um það bil miðjum apríl. Fólk þarf svo að vera vak­andi fyrir maðki upp úr miðjum maí og fram í lok júní en hann getur verið skað­valdur í trjám. Þessa þjón­ustu erum við með í áskrift eins og aðra þjón­ustu en þá sendum við fólki tölvu­póst áður en við mætum. Ef eitt­hvað breyt­ist er hægt að afpanta hana.“

Skilvirkni og gæðakerfi

Starfs­menn Garð­listar eru meðal ann­ars mennt­aðir í skrúð­garð­yrkju og reglu­lega eru haldin nám­skeið í fag­inu fyrir starfs­menn til að við­halda góðum vinnu­brögðum og þekk­ingu. Brynjar segir að hjá Garðlist sé lögð áhersla á skil­virkni og að starfs­fólk sé skipu­lagt og reyni að standa við áætl­anir. „Breiddin á þjón­ust­unni er ein­kenn­andi fyrir fyr­ir­tækið og með því að versla við okkur er oft hægt að fá marga hluti á einum stað. Við erum með gæða­kerfi sem við fylgjum stíft eftir og reynum að vera nokkrum skrefum framar en sam­keppn­is­að­ilar okkar.“

Myndir / Hákon Davíð Björns­son og Garðlist

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur