Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Náttúruvæn og vistvæn lúxusafurð

Íslenski æðar­dúnn­inn er ein­stök nátt­úru­af­urð en stór hluti heims­fram­leiðsl­unnar er tíndur hér á landi og fluttur úr landi óunn­inn. Fyr­ir­tækið Íslenskur dúnn ætlar að breyta því.

Náttúruvæn og vistvæn lúxusafurð

Heimsókn eitt sum­arið til Borg­ar­fjarðar eystri fyrir nokkrum árum átti heldur betur eftir að reyn­ast afdrifa­rík fyrir Rögnu S. Ósk­ars­dóttur og sam­býl­is­mann, Þóri Guð­munds­son. Í kjöl­farið festu þau kaup á húsi þar, í magn­aðri nátt­úru­feg­urð og ein­stöku sam­fé­lagi manna eins og hún orðar það, og gerðu að sínu öðru heim­ili.

Það var í heim­sókn til Ólafs Aðal­steins­sonar, æðar­bónda í Loð­mund­ar­firði, og eig­in­konu hans, Jóhönnu Óla­dóttur, síð­asta sumar sem hug­myndin fædd­ist hjá þeim; að kaupa æðar­dún af bændum, fram­leiða úr honum og selja inn­an­lands og erlendis í gegnum Netið. „Við vörðum deg­inum með þeim heið­urs­hjónum og Ólafur leiddi okkur í allan sann­leika um æðar­dún­inn auk þess að ganga með okkur um varp­stöðv­arnar, en það eitt og sér er ævin­týri út af fyrir sig. Ólafur hafði þá miklar áhyggjur af því að megnið af þessum dásam­lega dúni væri fluttur út óunn­inn ár hvert. Þær áhyggjur og sam­ræður okkar á milli í kjöl­farið kveiktu heldur betur í okkur og allt fór í gang.“

„Því er afurðin eins nátt­úru­væn og vist­væn og hugs­ast getur. Að auki er dúnn­inn nátt­úru­legt undra­efni sem á sér ekki hlið­stæðu.“

Vilja breyta ferl­inu
Ragna segir að frá þeirri stundu, þegar þau keyrðu úr hlaði frá þeim hjónum, hafi ekki verið aftur snúið. „Veturinn hefur farið í alls kyns pæl­ingar og áætl­ana­gerð. Nú erum við fimm í hópnum, öll með ólíka styrk­leika sem hentar verk­efn­inu vel.

Að með­al­tali flytja Íslend­ingar út um þrjú tonn af dúni á ári sem er um ¾ heims­fram­leiðsl­unnar. Dúnninn er að mestu leyti fluttur út hreins­aður, en að öðru leyti óunn­inn og eru helstu við­tök­u­lönd Japan og Þýska­land. Þessu viljum við hjá Íslenskum dún breyta, við viljum þvo og full­vinna æðar­dún­inn hér heima.“

Auk Rögnu og Þóris skipa hóp­inn fyrr­nefndur Ólafur æðar­bóndi, Kristján Már Gunn­ars­son og Guðrún Ástrós Berg­sveins­dóttir. „Ég stýri verk­efn­inu og Kristján sér um vef­síðu­gerð og mark­aðs­setn­ingu á Netinu. Óli safnar dún­inum og er auk þess sér­fróður í öllu sem við­kemur vinnslu æðar­dúns. Þórir sér um upp­bygg­ingu verk­ferla og verk­stæðis. Síðast en ekki síst sér Ástrós um efn­is­kaup og sam­setn­ingu værð­ar­voða.“

Einstök nátt­úru­af­urð
Það sem er mest spenn­andi við verk­efnið, að hennar sögn, er sú stað­reynd að Íslend­ingar eru nán­ast með ein­ok­un­ar­að­stöðu á heims­ins besta dúni, sem er æðar­dúnn­inn. „Hann er algjör­lega ein­stök nátt­úru­af­urð. Frá land­námi hafa þeir bændur sem höfðu æðar­varp á jörðum sínum, vakað yfir varp­inu á vor­mán­uðum, stuggað burt varg­fugli og tófu, ásamt því að hjálpa fugl­inum við hreið­ur­gerð og umönnun eggja og unga. Þegar æðar­kollan verpir tætir hún dún­inn af bringu sinni til að halda hita á eggj­unum. Ef bónd­inn myndi ekki hirða dún­inn úr hreiðr­unum myndi hann aðeins fjúka í burtu, engum til gagns. En í stað þess hafa bændur í gegnum ald­irnar nýtt þessa ein­stöku auð­lind til að halda hita á sér og sínum.“

Algjört undra­efni
Ragna segir æðar­fugl­inn vera eina fugl­inn sem fellir dún í þessu magni í hreiður sín. „Annar dúnn sem við þekkjum er reyttur af fugl­unum. Því er afurðin eins nátt­úru­væn og vist­væn og hugs­ast getur. Að auki er dúnn­inn nátt­úru­legt undra­efni sem á sér ekki hlið­stæðu.

Eig­in­leikar hans eru ein­stakir því hann er þak­inn örfínum, mjúkum, krók­laga þráðum sem valda sam­loðun hans. Hann er loft­mik­ill sem veldur ein­stökum létt­leika, háu ein­angr­un­ar­gildi og góðri öndun. Úr hverju hreiðri safn­ast um 15-17 g af dúni og því þarf um 60-80 hreiður til að safna 1 kg af dúni.“

Hún minnir á að flestir verji um þriðj­ungi ævinnar umvafðir sæng. „Því eigum við aðeins að sætta okkur við það besta þegar kemur að vali hennar. Það má því segja að við­skipta­vinir okkar séu þeir sem vita hvers virði góður svefn er.“

Vilja full­vinna inn­an­lands
Teymið stefnir að því að leggja sitt á vog­ar­skál­arnar til að draga úr útflutn­ingi á óunnum æðar­dúni. „Við viljum róa að því öllum árum að full­vinna þessa dásam­legu og ein­stöku afurð inn­an­lands. Með stofnun fyr­ir­tæk­is­ins viljum við líka fjölga störfum í heima­byggð, en Borg­ar­fjörður eystri tekur þátt í verk­efni Byggða­stofn­unar sem kall­ast Brot­hættar byggðir. Markmið þess er að styrkja atvinnu­sköpun í sveit­ar­fé­lögum sem hafa átt undir högg að sækja á und­an­förnum árum.“

Bera saman bækur
Markmið þeirra með þátt­töku í við­skipta­hraðl­inum er fyrst og fremst að koma verk­efn­inu í gegnum þá þeyti­vindu sem við­skipta­hrað­all af þessu tagi er. „Fjöldi sér­fræð­inga úr atvinnu­líf­inu, bæði sem fyr­ir­les­arar og ráð­gjafar, koma með haf­sjó af ábend­ingum og athuga­semdum sem nýt­ast okkur til að gera hug­mynd­irnar okkar enn betri. Ekki má síðan gleyma hinum teymunum sem taka þátt í verk­efn­inu, það er ómet­an­legt að geta borið saman bækur og miðlað reynslu á milli tey­manna. Sem betur fer er stuðn­ingur bæði einka­að­ila og yfir­valda við íslenska frum­kvöðla alltaf að aukast enda sjáum við urmul spenn­andi fyr­ir­tækja spretta upp víðs vegar um landið. Við hlökkum sann­ar­lega til að slást í hóp þess­ara fyr­ir­tækja.“

Mynda­texti: Guðrún Ástrós Berg­sveins­dóttir, Ragna S. Ósk­ars­dóttir og Kristján Már Gunn­ars­son.

Stúdíó Birtíngur í sam­starfi við Til sjávar og sveita.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur