Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Tryggja ferskleika alla leið til kaupandans

Tracio er nýtt upp­lýs­inga­kerfi fyrir mat­væla­iðnað sem eykur rekj­an­leika, skil­virkni og traust í virð­is­keðju mat­væla.

Tryggja ferskleika alla leið til kaupandans

Stefán P. Jones hefur verið við­loð­andi sjáv­ar­út­veg frá því hann var þrettán ára gam­all og því ekki furða að hug­myndir hans um næstu kyn­slóð rekj­an­leika og upp­lýs­inga­kerfa sem eykur skil­virkni og traust í virð­is­keðju mat­væla, megi rekja þangað. „Eftir ell­efu ár á sjó fór ég í land og stofn­aði sölu- og útflutn­ings­fyr­ir­tæki þar sem ég keypti og seldi fiskaf­urðir til Evrópu. Þar upp­lifði ég alls kyns vanda­mál í virð­is­keðju fisk­send­inga, t.d. að vita nán­ast ekk­ert um vör­una eftir að hún lenti á meg­in­land­inu. Fyrir vikið tap­aði ég oft háum fjár­hæðum vegna gæða­vanda­mála sem ég gat með engu móti leyst sökum þess að ég hafði engar áreið­an­legar upp­lýs­ingar um með­höndlun vör­unnar.“

Í úrslit í frumkvöðlakeppni

Í kjöl­farið seg­ist hann hafa fengið mik­inn áhuga á því hvernig leysa mætti slík vanda­mál með svo kall­aðri IoT-tækni sem á þeim tíma var mjög dýr. „Það var svo árið 2015 sem ég kom auga á áhuga­verða tækni sem byggir á prent­an­legum raf­rásum og skynj­urum. Sú tækni er marg­falt ódýr­ari en hefð­bund­inn IoT-bún­aður, lögun þess örþunn og þar með hægt nota eins og hefð­bund­inn merki­miða.“

Árið 2016 stofn­aði Stefán fyr­ir­tækið Seafood IQ þar sem stefnan var að þróa prent­an­lega skynjara í sam­starfi við leið­andi hátækni­fyr­ir­tæki frá Suður-Afríku. „Skynj­ar­inn og hug­bún­að­ur­inn áttu að vera sér­stak­lega hann­aðir fyrir sjáv­ar­út­veg. Við fengum strax fínar mót­tökur og fengum t.d. tvenn nýsköp­un­ar­verð­laun auk þess að kom­ast í úrslit í frum­kvöðla­keppni sem haldin var í Stanford-háskól­anum í Banda­ríkj­unum.“

Mikil stefnubreyting

Eftir miklar við­ræður við fram­leið­endur hér á landi tók fyr­ir­tækið stefnu­breyt­ingu árið 2018 sem mið­aði af því að taka inn land­búnað og þar með setja fók­us­inn á almenn mat­væli undir nýjum hatti Tracio. „Við þessar breyt­ingar, ásamt nýju við­skipta­mód­eli, fengum við byr undir báða vængi og má segja að tæki­færin séu nú marg­falt meira spenn­andi þar sem við erum komnir á risa­vax­inn markað, búnir að lækka fjár­þörf til muna og sjáum fram á að geta mark­aðs­sett okkar fyrstu vöru á næstu mán­uðum.“

Margar lausnir í einum pakka

Stefán útskýrir betur hvað Tracio gengur út á. „Um er að ræða nýtt upp­lýs­inga­kerfi fyrir mat­væla­iðnað. Ólíkt sam­keppn­inni mun Tracio-„plat­formið“ bjóða í fram­tíð­inni allt á einum stað: lausnir sem hjálpa fyr­ir­tækjum í mat­væla­iðn­aði að auka sam­keppn­is­hæfni, skapa traustan rekj­an­leika, lækka áhættu og tryggja fersk­leika á vörum þeirra til kaup­anda. Með því að selja margar lausnir í einu „plat­formi“ skap­ast mikil hag­ræð­ing. Það mætti líkja Tracio við Office-pakk­ann frá Microsoft en sam­keppnin sem treystir á eitt tekju­streymi kom­andi frá t.d. rekj­an­leika þjón­ustu mun seint geta keppt við okkur.“

Tryggir gæðin

Fyrsta vara fyr­ir­tæk­is­ins heitir Tracio assurance en um er að ræða nýja þjón­ustu sem byggir á skynjara fyr­ir­tæk­is­ins, Temp Tracker Pro, sem mælir nákvæmt hita­stig mat­væla í flutn­ings­ferl­inu og birgða­geymslum segir Stefán. „Þessi þjón­ustu­lausn mun auka gagn­sæi, rekj­an­leika og tryggja gæði í flutn­ings­ferl­inu auk þess að straum­línu­laga birgð­aum­sýslu og vöru­stjórnun. Matvara sem er vöktuð með Tracio assurance skapar traustan rekj­an­leika og kemur í veg fyrir slæma með­höndlun í virð­is­keðj­unni og tryggir þar með gæði til kaup­anda.“

Í góðum félagsskap

Vinnu­dag­arnir hafa verið langir hjá Stefáni síð­ustu árin og hann seg­ist sinna mörgum hlut­verkum innan fyr­ir­tæk­is­ins. „Ég hef legið yfir þessu síð­ustu fjögur árin því ég tel mjög mik­il­vægt að vita nákvæm­lega hvernig bún­að­ur­inn virkar svo ég geti áttað mig betur á hvaða mögu­leikar eru í boði þegar kemur að vöru­þróun.“

Stúdíó Birtíngur í sam­starfi við Til Sjávar og Sveita.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur