Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Í skýjunum með góðar viðtökur

Jóhannes Ásbjörns­son, einn eig­enda Ham­borga­fa­brikkunnar seg­ist vera him­in­lif­andi með þær góðu við­tökur sem Stefán Karl – Síðasta kvöld­mál­tíðin hefur hlotið en um er að ræða nýj­ung á mat­seðli sem á sér fal­lega sögu.

Í skýjunum með góðar viðtökur

„Honum hefur verið tekið gríð­ar­lega vel,“ segir hann. „Enda rosa­lega góður borg­ari á ferð, í raun fyrsti almenni­lega djúp­steikti kjúklinga­borg­ar­inn sem við erum með á mat­seðli. En það sem gerir hann svona sér­stak­lega góðan er að við notum læra­kjöt, sem er bæði feitt og safa­ríkt, og setjum það svo í nachos- rasp.“

Að sögn Jóhann­esar á þessi vel heppn­aða nýj­ung á mat­seðli sér fal­lega sögu því borg­ar­inn er sam­starfs­verk­efni sem Ham­borg­arafa­brikkan og Stefán Karl Stef­áns­son heit­inn fóru af stað með. „Forsagan er sú að Stefán stofn­aði snjall­býli, Sprettu ehf. fyrir svolitlu síðan. Merki­legt fyr­ir­tæki sem ræktar svo­kall­aðar sprettur sem eru litlar mat- og krydd­jurtir sem verða ekki stórar eins og þessar jurtir sem þú sérð í búðum og eru fyrir vikið bragð­miklar og fullar af nær­ing­ar­efnum. Það var útgangs­punkt­ur­inn í sam­starf­inu. Stefán lang­aði að vekja athygli á þessu með því að velja með okkur góðar sprettur á nýjan borg­ara á Fabrikkunni.“

„ … það sem gerir hann svona sér­stak­lega góðan er að við notum læra­kjöt, sem er bæði feitt og safa­ríkt, og setjum það svo í nachos-rasp.“

Jóhannes segir að verk­efnið hafi hins vegar lagst í dvala þegar í ljós kom að Stefán glímdi við alvar­leg veik­indi. „Ári eftir að Stefán féll frá hafði Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir, ekkja hans, sam­band. Henni fannst kom­inn tími til að klára verk­efnið.“

Kokkateymi veit­inga­stað­ar­ins, undir stjórn Eyþórs Rún­ars­sonar, hófst því handa með þeim Stein­unni Ólínu og Soffíu Stein­gríms­dóttur hjá Sprettu við að þróa borg­ar­ann. Fyrir val­inu urðu pikkl­aðir gul­rót­ar­strimlar og svo tvenns­konar sprettur: Klif­ur­bauna­gras, sem Jóhannes segir að sé villt spretta sem minni í útliti á hárið á Alberti Einstein og Red Rambo, bragð­mikil spretta sem hafi verið í sér­stöku upp­á­haldi hjá Stefáni, en hún er notuð í botn­inn á borg­ar­anum og út í majónesið sem útskýrir bleikan lit þess. „Steinunn Ólína bætti svo við upp­skrift að döðlu- og lauk-chutney og Eyþór „tvíkaði“ hana aðeins til. Her­leg­heitin eru síðan borin fram með stökkum frönskum og nýrri teg­und af brauði. Útkoman er einn mest seldi borg­ar­inn okkar frá upp­hafi.“

Stefán Karl – Síðasta kvöld­mál­tíðin.

Borg­ar­inn ber heitið Stefán Karl – Síðasta kvöld­mál­tíðin en Jóhannes segir hug­mynd­ina vera frá Stefáni Karli sjálfum komin. „Hann stakk upp á því við okkur. Hann var svo æðru­laus gagn­vart dauð­anum. Grín­að­ist með hann alveg fram á síð­ustu stundu og missti aldrei húmor­inn. Okkur finnst því við hæfi að halda heit­inu, það er í hans anda.“

Nóg að gera

Ham­borg­arafa­brikkan hefur verið lunkin við að koma með sniðug heiti á rétti sína. Er von á fleiri slíkum á næst­unni? „Klárlega. Þetta er eitt­hvað sem við reynum að gera tvisvar til fjórum sinnum á ári, búa til skemmti­legar teng­ingar við dæg­ur­hetjur og fólk sem Íslend­ingum þykir vænt um,“ svarar Jóhannes hress í bragði. „Það er þegar kom­inn langur listi af góðum hug­myndum en ekki búið að negla neitt niður.“

Spurður hvort fleira standi til segir hann að það sé búið að vera í nógu að snú­ast í sumar. „Það hefur verið líf­legt á úti­svæði Fabrikk­unar við Kringl­una, væg­ast sagt, stappað nán­ast alla daga, sér­stak­lega þegar sést til sólar og svo auð­vitað hina dag­ana líka, enda skjól­sælt svæði.  Annars er bara bjart fram undan.“

Stúdió Birtíngur
Í sam­starfi við Ham­borg­arafa­brikk­una

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur