Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fer úr líkamanum til að hjálpa fólki

Guð­mundur Mýrdal lækna­mið­ill hefur verið búsettur í Banda­ríkj­unum, nánar til­tekið í Kali­forníu hátt í 30 ár. Hann hefur helgað líf sitt hug­rænum mál­efnum og lagt mikla vinnu í að rækta sitt innra sjálf. Hann hefur síð­ustu tvö ár lagt stund á og lært um svo­kall­aðan sham­an­isma og von­ast til að fræða Íslend­inga nánar um mál­efnið.

Fer úr líkamanum til að hjálpa fólki

Guð­mundur segir mik­inn mun á við­horfum Íslend­inga og Banda­ríkja­manna til dul­rænna mál­efna. Íslend­ingar séu mun áhuga­sam­ari og opn­ari varð­andi þau. „Það er rosa­lega mikið af næmu fólki hér á Íslandi en málið er að það eru margir sem gera sér ekki grein fyrir því. Ég er sann­færður um að mjög margir, ef ekki flestir, fari stundum úr lík­am­anum og vinni á ýmsum sviðum meðan lík­am­inn sefur. Hins vegar er hjarta­stöðin er ekki nógu opin hjá mörgum og fólk áttar sig því ekki á þessu.

Ég var svo í kringum fimm ára gam­all þegar ég fékk fyrstu sýn­ina.

Það man ekki eftir því þegar það kemur til baka en fær svo glampa af því hér og þar sem eru þá minn­ingar. Þegar ég var ungur og í sveit, fannst krökk­unum sem voru með mér alltaf svo gaman að hlusta á mig þegar ég var sof­andi, því ég var alltaf að fara úr lík­am­anum og lýsa því sem ég sá upp­hátt. Þá var ég að fljúga yfir land­svæði og lýsa því, en mundi ekk­ert þegar ég vakn­aði nema annað slagið. Ég var svo í kringum fimm ára gam­all þegar ég fékk fyrstu sýn­ina.“

Fer úr líkamanum til að hjálpa fólki

Guð­mundur er lækna­mið­ill og aðstoðar fólk við ýmis vanda­mál með fjar­lækn­ingum sem fara fram í hug­anum. Hann hefur að eigin sögn þann hæfi­leika að geta farið úr lík­am­anum og verið á tveimur stöðum í einu. „Með­vit­undin er á einum stað og lík­am­inn á öðrum. Með þessu móti get ég læknað fólk sem er statt á Íslandi á meðan ég er sjálfur hinum megin á hnett­inum. Fyrir nokkru síðan aðstoð­aði ég konu sem var á leið í hjarta­upp­skurð og var ofsa­hrædd. Hún var mjög kvíðin fyrir aðgerð­inni, svo ég fór í hug­anum, náði í hana og við fórum heim til hennar á meðan aðgerðin fór fram. Hún upp­lifði sem sagt ekki aðgerð­ina, var ekki á staðnum og var alveg róleg.

Svo þegar hún vakn­aði eftir aðgerð­ina var hún mun betri en hún hafði búist við. Hún sagði það hafa hjálpað mikið að hafa mig á staðnum.“

Hún var mjög kvíðin fyrir aðgerð­inni, svo ég fór í hug­anum, náði í hana og við fórum heim til hennar á meðan aðgerðin fór fram.

Fjar­lækn­ingar eru ekki það eina sem Guð­mundur hefur lagt stund á síð­ustu ár, heldur hefur hann einnig verið með­limur í Sál­ar­rann­sókn­ar­fé­lagi Íslands í ára­tugi og unnið virkt starf þar. Fyrir nokkrum árum síðan tók hann ákvörðun um að fara í presta­nám og stefnir að útskrift á næsta ári sem „spi­ritual“ prestur. „Ég var lengi að ákveða mig hvort ég ætl­aði að fara í loka­prófið eða ekki“, útskýrir hann.

„Það er nefni­lega þannig að þegar maður fer út í svona lagað þá tekur það yfir allt. Það er ekki hægt að gera þetta með hang­andi hendi. Þetta er mjög krefj­andi og mjög mikið af verk­efnum sem ég mun þurfa að takast á við en ég er til­bú­inn til þess. Það var fyrir nokkrum árum sem ég átt­aði mig á því að ég væri búinn að vera upp­lifa sham­an­ismann í gegnum allt lífið. Ég lít á presta­námið og það starf sem leið til að tengja þessi tvö hug­tök, sál­ar­rann­sóknir og sham­an­isma.“

Þetta er aðeins brot úr við­tal­inu við Guðmund. Lestu við­talið í heild sinni í nýj­ustu Vikunni, en þar ræðir hann nánar um Sham­an­isma og hverja hann metur stærstu ógn sem steðjar að mann­kyn­inu. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu