Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Í eldhúsinu mínu fá allir að spreyta sig og skapa alls konar listaverk“

Sævar Lárusson er yfir­kokkur á Kol Restaur­ant og gerð­ist þar að auki með­eig­andi að staðnum nýlega. Hann hefur, að eigin sögn, haft áhuga á mat­reiðslu síðan hann man eftir sér og er jafn­dug­legur að elda heima hjá sér og í vinn­unni.

„Í eldhúsinu mínu fá allir að spreyta sig og skapa alls konar listaverk“

„Boltinn hefur rúllað ansi hratt síðan ég komst á samn­ing á Hótel Sögu árið 2011,“ segir Sævar um bak­grunn sinn í mat­reiðsl­unni. „Ég hef verið á Kol síðan 2014, en ég var fyrsti nem­inn þar til að útskrif­ast með sveins­próf árið 2015. Á þeim tíma var ég orð­inn vakt­stjóri og yfir­kokk­ur­inn minn og meist­ari var þá Kári Þor­steins­son. Þegar hann ákvað að færa sig um set var mér boðin staðan sem yfir­mat­reiðslu­maður. Þá dreif ég mig í Meist­ara­skól­ann og kláraði hann í byrjun 2018.“

Vinnudagurinn hefst á hókí-pókí

Sævar segir sam­vinnu vera lyk­il­at­riði í eld­hús­inu. „Löngu vakt­irnar og álagið sem fylgir þeim getur tekið á, þess vegna er mik­il­vægt að vera vel skipu­lagður og að vinnu­um­hverfið sé gott. Vinnu­dag­ur­inn hefst á því að við tökum einn „hókí-pókí“ og förum yfir verk­efni dags­ins saman. Við borðum svo góðan staffa­mat áður en stað­ur­inn opnar og byrjum að afgreiða seinni­part­inn. Mér finnst mjög skemmti­legt og gef­andi að fram­reiða góðan og fal­legan mat, í eld­hús­inu mínu fá allir að spreyta sig og skapa alls konar lista­verk.“

Sævar seg­ist vera alæta á mat en taco sé í miklu upp­á­haldi hjá honum þessa dag­ana. „Mér finnst líka alltaf gaman að elda mis­mun­andi rétti frá hinum og þessum heims­hornum. Ég sé um elda­mennsk­una heima líka og oft­ast verða taco, taco-pít­sur, pasta eða asískur matur fyrir val­inu.“

Við fengum Sævar til að útbúa og gefa okkur upp­skrift að þremur réttum af mat­seðli Kol.

Rauðrófu-carpaccio

Rauðrófu-carpaccio.

2 stk. rauðrófur
100 g furu­hnetur
1 stk. app­el­sína
50 g kletta­salat
4 stk. jarð­skokkar
trufflu­olía
sjáv­ar­salt
svartur pipar

Rauðrófurnar

Skerið aðra rauðróf­una örþunnt í mand­ólíni og hina í litla, óreglu­lega bita. Snögg­sjóðið skíf­urnar og setjið þær í klaka­vatn svo þær verði ekki of mikið eld­aðar. Blandið saman 1 hluta vatni, 1 hluta sykri og 1 hluta ediki og setjið í pott og sjóðið rauðrófu­bit­ana í því þar til þeir eru orðnir mjúkir.

Furuhnetukrem

Setjið furu­hnetur í pott með vatni, salti og smá­vegis sítrónusafa. Náið upp suðu og setjið því næst allt saman í bland­ara og maukið þar til áferðin er silki­mjúk. Skerið app­el­sín­una í lauf. Kletta­sal­atið er dressað upp með góðri jóm­frúar­ólífu­olíu og salti.

Yellowfin-túnfiskur

Yellowfin-tún­fiskur.

1 biti yellowfin-tún­fiskur, u.þ.b. 500 g

Sinu­hreinsið tún­fisk­inn og skerið hann í langa bita. Snögg­brennið eða snögg­steikið hann því næst á pönnu til þess að fá brúna húð utan á hann. Skerið hann næst í 1-2 cm þykkar, fal­legar sneiðar. Dressið síðan eða dreypið ponzu-gjáa yfir bit­ana.

Vatnsmelóna

1 stk. vatnsmelóna
Skerið smá­sneið úr vatnsmelón­unni og afhýðið. Skerið hana því næst í ten­inga.

Aioli

300 ml hvít­lauks­olía
100 ml eggjarauða

Útbúið majónes með því að setja eggja­r­auð­urnar í skál, þeytið þær með písk þar til þær fara að þykkj­ast. Hellið hvít­lauksol­í­unni var­lega saman við í mjórri bunu og haldið áfram að þeyta þar til fer að mynd­ast majónes. Hægt er að þynna það út með vatni eða sítrónusafa. Smakkið til með salti.

Kasjúhnetu- og trönuberjamauk

100 g kasjú­hnetur
100 g trönu­ber
100 ml rauðrófu­safi
salt

Setjið kasjú­hnetur og trönu­ber í pott með vatni, rauðrófusafa og salti. Sjóðið því næst allt í 5 mín­útur og maukið síðan strax í blender og sigtið. Áferðin á að vera silki­mjúk, smakkið til með salti.

Eldpiparsmarmelaði

2 stk. eld­pipar
100 ml sykur
100 ml vatn

Setjið allt í pott, sjóðið í 10 mín­útur og maukið.

Ponzu-gljái

100 ml sojasósa
1 stk. engi­fer
1 stk. sítróna
100 g sykur
sesam­olía
bon­ito fla­kes

Blandið saman sojasósu, rifnu engi­fer, sesam­olíu, sítrónusafa og bon­ito fla­kes og látið standa í 30 mín­útur við stofu­hita. Sigtið síðan gljá­ann og setjið strax inn í kæli.

Bonito-kex

Fletjið út brick-deig og setjið á bök­un­ar­pappír. Penslið með smá­vegis rauðrófusafa og stráið bon­ito-flögum yfir. Bakið við 180°C í 12 mín­útur, án blást­urs.

Kolaður lax

Kolaður lax.

1 flak­aður lax, u.þ.b 2 kg
200 g sykur
200 g salt
rif­inn sítrónu­börkur af einni sítrónu

Flakið lax­inn og bein­hreinsið, leggið flakið í bakka og blandið saman salti, sykri og rifnum sítrónu­berki og stráið vel yfir lax­inn. Látið lax­inn liggja í mar­íner­ing­unni í 25 mín­útur. Skolið því næst flakið og þerrið. Skerið lax­inn í nokkra um það bil 160 g skammta og setjið í vacum-poka.

Eldið lax­inn medium rare í sous vide sem er stilltur á 48°C í 7 mín­útur. Brennið hann með gas­brenn­ara áður en hann er bor­inn fram.

Fennel-escabeche

3 stk. fennel
3 skalot­laukar
1 g saffran
300 ml hvítvín­sedik
300 ml vatn
1 app­el­sína

Skerið fenn­elið og skalot­l­auk­inn í þunnar sneiðar. Svitið í potti og bætið síðan hvítvín­sediki og vatni út í og látið malla í um það bil 10 mín­útur. Bætið síðan saffran­inu saman við og safa úr einni app­el­sínu. Smakkið til með salti.

Granóla

100 g möndlu­flögur
100 g graskers­fræ
100 g sól­blóma­fræ
10 ml hlynsíróp
10 ml repju­olía
100 g þurrkuð trönu­ber

Blandið öllu saman og setjið á bök­un­ar­pappir í ofn­skúffu. Bakið við 160°C í 20 mín­útur og hrærið í með 5 mín­útna milli­bili til að fá jafna brúnun. Þegar búið er að elda granólað, látið það standa í nokkrar mín­útur. Setjið það því næst í skál og myljið niður, bætið þurrk­uðum trönu­berjum við.

Dill hollandaise

4 egg
300 ml dill­olía
100 ml jóm­frúar­ólífu­olía
12 g salt
12 ml Xeres-edik

Nauð­syn­legt er að nota qisac-sprautu og 2 gas­hylki.

Setjið allt í bland­ara og maukið vel. Hellið því næst blönd­unni yfir í qisac-sprautu og tveimur gas­hylkjum skotið inn í. Hristið vel fyrir notkun.

Myndir / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu