Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Draumurinn sem breytti lífi mínu

Draumurinn sem breytti lífi mínu

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni

Mig dreymdi fyrsta minnisstæða drauminn á barnsaldri þótt ég hafi ekki skilið hann fyrr en ég varð fullorðin. Draumarnir urðu fleiri en í nokkrum tilvikum vildi ég ekki horfast í augu við merkingu þeirra. Einn afar skýr og erfiður draumur varð síðan til þess að ég gjörbreytti lífi mínu.

Þegar ég var tíu ára skildu for­eldrar mínir. Pabbi þótti fínn maður í litla bænum þar sem við bjuggum og naut mik­illar virð­ingar, svo út á við átt­aði sig eng­inn, eða fáir, á því að hann drakk allt of mikið.Áður en okkur systrum var sagt frá skiln­að­inum dreymdi mig fyrsta skrímsl­is­draum­inn minn. Þá fannst mér stórt skrímsli koma upp úr jörð­inni og ætla að gleypa eða kremja húsið okkar. Löngu seinna átt­aði ég mig á merk­ingu draums­ins, að hann væri fyrir brott­hvarfi pabba af heim­il­inu og sorg­inni sem því fylgdi.

Bæði pabbi og amma höfðu mik­inn áhuga á draumum og ég sat oft og hlust­aði á þau ræða drauma og hvað þeir þýddu. Líklega vegna þess hef ég reynt að rýna í merk­ingu þeirra drauma minna sem virð­ast tákna eitt­hvað. Að öðru leyti er ég ekki sér­lega áhuga­söm um það sem flokk­ast undir and­lega hluti, eða dul­ræna.

„Vina mín …“

Mamma flutti með okkur systk­inin til Reykja­víkur nokkru eftir skiln­að­inn og þar hef ég búið síðan. Ég held að ég hafi verið dæmi­gert barn alkó­hólista og frá því ég var ung stúlka valið mér kærasta sem ég ætl­aði að bjarga. Fyrsti sam­býl­is­maður minn drakk mikið og beitti mig and­legu ofbeldi en innan við ári eftir að ég fór frá honum kynnt­ist ég Bjarna sem heill­aði mig upp úr skónum. Hann gat fengið sér í glas án þess að verða dauða­drukk­inn, ólíkt sam­býl­is­mann­inum, en ég átt­aði mig ekki á því fyrr en seinna að hann hafði bara svona gott þol.

Hann gaf mér lít­inn umhugs­un­ar­frest, allt í einu vorum við bara gift og á leið í brúð­kaups­ferð til Frakk­lands. Hann var fimmtán árum eldri en ég en ald­urs­mun­ur­inn trufl­aði mig þó alls ekki, hann var ung­legur og vel á sig kom­inn.

Í brúð­kaups­ferð­inni greindi okkur fyrst á. Það hafði angrað mig allan tím­ann að hann sagði alltaf að hann ætl­aði alltaf að „taka mig“ hingað og þangað til að sýna mér en hann hafði áður heim­sótt Frakk­land og þekkti sig betur en ég sem hafði aldrei farið þangað. Svo sagði hann alltaf „vina mín“ sem pirraði mig óstjórn­lega mikið og hefur alltaf gert.

Í einni skoð­un­ar­ferð okkar bað ég hann loks um að hætta þessu, við værum að fara saman í þessar ferðir, ekki hann að taka mig þangað … og svo fynd­ist mér óþægi­legt að vera kölluð vina mín, eins og ég væri lít­ill krakki. Ég sagði þetta bros­andi og kurt­eis­lega og átti ekki von á þeirri bræði sem þessi til­laga mín orsak­aði. Hann öskr­aði á mig og ég bjóst allt eins við að fólkið í kringum okkur hringdi í lög­regl­una, svo trylltur og ógn­andi var hann við mig. Þetta eyði­lagði þá tvo daga sem eftir voru af ferða­lag­inu og önnur systir mín sagði seinna að ég hefði komið breytt heim, ekki verið þessi síbros­andi, ást­fangna og glaða kona sem fór í ferð­ina með stóru ást­inni í líf­inu. Ég sagði engum frá þessu.

Það tók mig mörg ár að átta mig á því hvernig maður Bjarni var, heill­andi per­sónu­leiki hans yfir­gnæfði oft­ast slæmu hlið­arnar hans. Hann var meiri í orði en á borði, var hrein­lega grobb­inn sem ég rugl­aði saman við sterkan per­sónu­leika, og lítil inni­stæða var fyrir orðum hans og lof­orðum.

Við eign­uð­umst tvö börn en þegar það yngra var fimm ára gafst ég end­an­lega upp á Bjarna. Þá vorum við nán­ast gjald­þrota.

Loksins!

Seinni eig­in­maður minn, Ágúst, sem ég kynnt­ist hálfu ári síðar, var gjör­ó­líkur honum, rólegur maður og traustur, með alla hluti á hreinu, fannst mér. Honum þótti, eins og mér, gott að fá sér í glas um helgar og hann kunni að fara með vín.

Mér fannst Ágúst einn besti maður sem ég hafði kynnst en með tím­anum kom í ljós að hann var með mikla félags­fælni og vildi þess vegna hvorki bjóða fólki heim né ferð­ast. Það veitti honum mikið öryggi að hafa fasta rútínu og því voru allar breyt­ingar, stórar og smáar, honum mjög erf­iðar. Dagarnir liðu í rútínu og til­breyt­inga­leysi sem var aftur á móti veru­lega erfitt fyrir mig, því ég hef þá lífs­sýn að til­breyt­ing sé krydd lífs­ins. Ég elska að hitta vini, kynn­ast nýju fólki, læra eitt­hvað nýtt og ferð­ast. En sá lífs­stíll var sem martröð fyrir eig­in­mann­inn og smám saman hætti ég að leggja það á hann og okkur bæði, hvorki að skipu­leggja ferða­lög né bjóða fólki heim. Í við­leitni minni til að skilja hann og styðja varð ég sífellt dapr­ari og fimm árum eftir að við giftum okkur var ég komin á þung­lynd­is­lyf.

Mig fór að dreyma pabba sem þá var nýdá­inn. Mér fannst ég vera í bíltúr með honum og við spjöll­uðum mikið og hlógum. Þetta voru ynd­is­legir draumar, ég sakn­aði pabba mikið og leið betur eftir þessa drauma. Ekki kaf­aði ég dýpra í þá, enda var ég í afneitun. Jú, ég drakk ansi mikið, og ansi oft þegar ég var að elda færði Ágúst mér létt­víns­glas eftir að hann kom heim úr vinn­unni, og var þá sjálfur búinn að hella sér í glas. Hann vildi að ég spil­aði með honum í þessu óheil­brigða sam­bandi, svo kvíði hans félli í skugg­ann, ég drukkin og þunn til skiptis og vildi engan hitta, það hent­aði honum best. Mér tókst svo vel að fela drykkju mína að systur mínar og vin­konur átt­uðu sig ekki á neinu.

Eitt kvöldið, eða öllu heldur eina nótt­ina, sat ég í hæg­inda­stól í stof­unni, Ágúst var sofn­aður. Ég var með kon­íak í glasi og leið hörmu­lega, mig lang­aði ekki til að lifa lengur. Allt í einu fannst mér sem ég hefði farið út úr lík­am­anum því ég horfði á þessa brjóst­um­kenn­an­legu konu sem sat þarna van­sæl og drakk. Líklega hefur mér runnið í brjóst eitt augna­blik en hvort sem þetta var draumur eða ekki, varð þetta til þess að ég ákvað að leita hjálpar.

Ég pant­aði við­tal hjá áfeng­is­ráð­gjafa strax dag­inn eftir og fékk tíma stuttu seinna. Eftir smá­spjall spurði ráð­gjaf­inn mig hvort ég væri til­búin til að stökkva út í djúpu laug­ina og fara í með­ferð. Ég ját­aði því og komst þangað inn ótrú­lega fljótt. Það kom mér mikið á óvart hvað það var gaman í með­ferð­inni. Ég upp­lifði þetta meira eins og sum­ar­búðir fyrir full­orðna með spenn­andi dag­skrá alla daga. Það voru grúppufundir á morgn­ana, fyr­ir­lestrar eftir hádegi, frá­bær matur í mötu­neyt­inu og AA-fundir á hverju kvöldi. Þetta var líka algjört frí frá dag­legu amstri og til­breyt­inga­lausum dögum. Ég kynnt­ist nokkrum ynd­is­legum mann­eskjum í með­ferð­inni sem ég hef síðan hitt á fundum af og til. Þetta var eins og að gjör­bylta líf­inu, opna fyrir félags­lífið og læra að elska sjálfa mig og lífið upp á nýtt.

Nýja ég

Ágúst tók þess­ari nýju mér mjög illa. Hann vildi hafa mig eins og ég var, heima­kæra og með­færi­lega, vegna þess að ég var með eilíft sam­visku­bit yfir laumu­drykkj­unni og þung­lynd­inu. Það tón­aði vel við hans félags­kvíða og kröf­una um ein­angrað heim­il­is­líf. Mig lang­aði strax til að skilja við hann en var ráð­lagt að taka engar stórar ákvarð­anir í heilt ár eftir með­ferð­ina. Skiln­aður var óhjá­kvæmi­legur því sam­bandið var löngu staðnað og dáið. Hamingja okkar Ágústs jókst til muna þrátt fyrir sorg­ina og sökn­uð­inn sem skiln­að­ur­inn olli en Ágúst leit­aði sér loks sál­fræði­að­stoðar sem hjálp­aði honum mikið.

Draumar mínir um bíl­ferð­irnar með pabba sýndu auð­vitað að ég var alkó­hólisti eins og hann en bílar í draumi tákna oft líf fólks. Ég var ekki undir stýri í draumunum sem þýddi líka að ég stjórn­aði ekki eigin lífi, heldur vínið. Skrímslið sem mig dreymdi í æsku hafði mætt aftur nokkrum sinnum og elt mig í gegnum ganga og rang­hala. Ég afskrif­aði þá drauma sem marklausa martröð, en lík­lega hafa þeir verið tákn fyrir sjúk­dóm­inn sem hafði tekið yfir líf mitt, eyði­lagt hjóna­band for­eldra mína og einnig líf föður míns þar til honum tókst að hætta að drekka.

Ég öðl­að­ist nýtt líf í kjöl­farið og fór að finna fyrir til­finn­ingum aftur en ég hafði nán­ast kæft þær með drykkju. Ég hef aldrei verið ham­ingju­sam­ari og hef náð að tengj­ast fjöl­skyldu minni og vinum á nýjan og betri hátt. Ég hef meira sjálfs­traust og tel mig betri mann­þekkj­ara en áður.

Ágúst gifti sig aftur og mér sýn­ist á öllu að hann blóm­stri með kon­unni sinni sem er álíka heima­kær og hann. Hún er þó með meira bein í nef­inu en ég og það er lík­lega það sem Ágúst þarf. Þau ferð­ast alla­vega meira en við gerðum.

Ég hef verið ein­hleyp í nokkur ár, vissu­lega farið á stefnu­mót en eng­inn maður hefur náð að heilla mig almenni­lega. Kannski eru bestu menn­irnir þegar gengnir út, eins og ég segi stundum í gríni við systur mínar og vin­konur sem eiga frá­bæra menn. Hvað verður kemur bara í ljós, ég hef ekk­ert á móti ást og róm­an­tík en vil vera var­kár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu