Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gaman að vera hluti af Marvel-fjölskyldunni

Förð­un­ar­meist­ar­inn Heba Þór­is­dóttir las aldrei mynda­sögur í æsku en í dag vinnur hún að hverri ofur­hetju­mynd­inni á fætur annarri í Hollywood; nú síð­ast að stór­virk­inu Avengers: Endgame sem er aðsókn­ar­mesta kvik­myndin í íslenskum bíó­húsum um þessar mundir og malar gull um allan heim.

Gaman að vera hluti af Marvel-fjölskyldunni
Mynd / Arnold Björns­son||||Heba hefur unnið að hverri mynd­inni á eftir annarri úr smiðju Marvel

Avengers: Endgame er fram­halds­mynd Avengers: Infinity War og hálf­gerður lokakafli í Marvel-mynda­bálk­inum, þar sem hún hnýtir ýmsa lausa enda. Förð­un­ar­meist­ar­inn Heba Þór­is­dóttir, sem hefur verið að gera það gott í Hollywood, kom að gerð hennar en hún sá um förðun leik­ar­ans Paul Rudd sem fer með hlut­verk Maura­manns­ins geð­þekka (Ant-Man) í mynd­inni. Þegar blaða­maður nær tali af Hebu byrjum við einmitt á því að tala um það, þ.e.a.s. hvernig hafi verið að vinna með stór­stjörnu á borð við Rudd.

Heba sá um förðun leik­ar­ans Paul Rudd bæði í Ant-Man og Avengers- mynd­unum.

„Við Paul höfum unnið saman nokkrum sinnum; Fyrst við gerð Ant-Man árið 2015, svo að þessum tveimur Avengers-myndum og loks Ant-Man and the Wasp og þótt hann geti verið smá­grall­ari, sér­stak­lega þegar hann er á setti með Payton Reed, leik­stjóra Ant-Man-mynd­anna, þá er hann algjört ljúf­menni og ein­stak­lega þægi­legur í sam­starfi. Giftur tveggja barna faðir á beinu braut­inni, þannig að maður þarf ekk­ert að hafa áhyggjur af því að hann sé að mæta í förð­un­ar­stól­inn illa fyr­ir­kall­aður eftir djamm.“

„Ég fékk gæsa­húð við að sjá alla þessa stór­leik­ara sam­an­komna á einum stað, ásamt Kevin Feige, og for­stjóra Marvel og Stan Lee, skap­ara allra þess­ara hetja. Það var pinku súr­r­eall­ískt.“

Heba segir að það sama gildi um aðra leik­ara sem hún hafi unnið með eða hitt í tengslum við gerð Marvel-mynd­anna, allt sé þetta hið geð­þekkasta fólk. Hvort sem það er Samuel Jackson eða Scarlett Johans­son sem hún hefur oft unnið með áður eða Robert Downey Jr. Spurð hvernig sé eig­in­lega að vera á setti innan um svona heims­þekkta leik­ara, seg­ist hún sjaldn­ast kippa sér upp við það núorðið. Það hafi þó komið fyrir alla vega tvisvar sinnum á meðan tökum þess­ara mynda stóð að hún fékk stjörnur í augun. Það hafi gerst þegar leik­konan Michelle Pfeiffer, sem hefur haldið sig svo­lítið fjarri sviðs­ljós­inu síð­ustu ár, mætti í tökur og eins þegar allur stjörnu­leik­ara­hópur Marvel safn­að­ist saman fyrir stóra hóp­mynda­töku í tengslum við 10 ára kvik­mynda­fmæli Marvel-mynd­anna.

„Fæstir sem unnu að mynd­unum fengu að sjá hand­ritin. Við fengum bara reglu­lega afhent raf­ræn minn­is­blöð með útlistun á senum næsta dags og maður hafði bara nokkra klukku­tíma til að leggja þau á minnið áður en þau hurfu af skjánum,“ segir Heba, um gerð mynd­anna Avengers: Infinity War og Endgame, en sú síð­ar­nefnda er aðsókn­ar­mesta kvik­myndin í íslenskum bíó­húsum um þessar mundir.

„Í síð­ar­nefnda til­vik­inu farð­aði ég Paul Rudd, Hannah Kamen-Johnson og Tom Holland fyrir tök­una og fékk gæsa­húð við að sjá alla þessa stór­leik­ara sam­an­komna á einum stað, ásamt Kevin Feige, for­stjóra Marvel, og Stan Lee, skap­ara allra þess­ara hetja. Það var pinku súr­r­eall­ískt,“ játar hún. Maður upp­lifir svo­lítið eins og þetta sé orðin hálf­gerð fjöl­skylda þarna hjá Marvel, er það rétt? „Það er nátt­úr­lega mikið af sama fólk­inu í öllum mynd­unum, þannig að já, það er alveg rétt hjá þér. Það má alveg segja að þetta sé orðin stór­fjöl­skylda,“ segir hún.

Fjórar Marvel-myndir á einu bretti
Þegar Heba er innt út í það hvernig það hafi heilt yfir verið að vinna að stór­virki eins og Avengers: Endgame, segir hún það hafa verið gaman en krefj­andi líka og þá aðal­lega vegna þess hversu mikli leynd hvíldi yfir gerð mynd­ar­innar.

„Málið er að Infinity Wars og Endgame voru teknar upp sam­tímis í Atlanta undir einu nafni, Mary Lou og það tók heilt ár. Það sem meira er, fæstir sem unnu að mynd­unum fengu að sjá hand­ritin. Við fengum bara reglu­lega afhent raf­ræn minn­is­blöð með útlistun á senum næsta dags og maður hafði bara nokkra klukku­tíma til að leggja þau á minnið áður en þau hurfu af skjánum. Þannig að við vissum því í raun aldrei að hvorri mynd­inni við vorum að vinna hverju sinni, sem varð til þess að stundum var svo­lítið erfitt að átta sig á hvað væri að ger­ast í sög­unni. Maður varð bara að vona að förð­unin væri í sam­ræmi við sen­urnar, sem gat skilj­an­lega stundum verið svo­lítið áskorun,“ útskýrir hún og hlær.

Förð­un­ar­meist­ar­inn Heba Þór­is­dóttir. Mynd / Arnold Björns­son

Hún segir að málið hafi svo flækst enn frekar þegar hún var að auki beðin um að vinna að tveimur öðrum Marvel-myndum sem voru í tökum á svip­uðum tíma, þ.e. Captain Marvel og Ant-Man and the Wasp. Á tíma­bili hafi hún því verið á hálf­gerðu flakki á milli mynda en ára­löng reynsla úr brans­anum hafi auð­veldað henni verkið. „Svo hafði ég nú unnið áður með leik­stjórum Avengers: Infinity War og Endgame, bræðr­unum Anthony og Joe Russo og fram­leið­and­anum Michael Grillo að Captain America: Winter Soldier og þekkti þar af leið­andi til þeirra vinnu­bragða sem hjálp­aði líka.“

Þekkti bara Andrés önd
Það er auð­heyri­legt að vinna förð­un­ar­meist­ar­ans fer ekki ein­göngu fram á setti. Oft liggur líka mikil heim­ilda­vinna að baki, eins og í til­viki Marvel-mynd­anna þar sem Heba hefur þurft að kynna sér sög­urnar vel en hún við­ur­kennir að hafa ekki þekkt mikið til slíkra sagna þegar hún kom að sinni fyrstu Marvel-mynd, The Avengers, árið 2012.

„Captain Marvel. Mér fannst hrika­lega gaman að vinna að þeirri mynd,“ segir hún. „Meðal ann­ars af því að við vorum búin að bíða svo lengi eftir mynd um kven­hetju frá Marvel.

„Nei, enda las ég satt best að segja aldrei mynda­sögur á mínum yngri árum, nema þá kannski einna helst Andrés önd, sem ég fékk að glugga í hjá systur hennar ömmu. Þegar ég las hand­ritið að The Avengers í fyrsta sinn skildi ég til dæmis ekk­ert í því af hverju hetj­urnar hétu allar tveimur nöfnum, Hulk / Bruce Banner, Iron Man / Tony Stark og svo fram­vegis, botn­aði hvorki upp né niður í því,“ rifjar hún upp hlæj­andi. Í dag sé hún mun betur að sér í þessu öllu saman og seg­ist bara hafa nokkuð gaman af mynd­unum. „Mér fannst til dæmis Avengers: Endgame mjög skemmti­leg,“ segir hún. „Allir leik­ar­arnir fengu að baða sig í sviðs­ljós­inu í smá­stund og ég er ánægð og fegin yfir því að myndin skuli ekki hafa endað sem einn langur bar­dagi.“

Captein Marvel er upp­hálds Marvel-mynd Hebu, en hún hafði umsjón með förðun aðal­leikkon­unnar, Brie Larson, og þar fyrir utan stýrði hún að miklu leyti förð­un­ar­deild­inni fyrir mynd­ina.

Kveið fyrir við­brögðum aðdá­end­anna
Þetta er nú orð­inn langur listi af Marvel-myndum sem þú hefur unnið að, er ein­hver þeirra í sér­stöku upp­á­haldi? „Captain Marvel,“ svarar Heba hik­laust. „Mér fannst hrika­lega gaman að vinna að þeirri mynd,“ segir hún. „Meðal ann­ars af því að við vorum búin að bíða svo lengi eftir mynd um kven­hetju frá Marvel. Brie Larson, sem fer með aðal­hlut­verkið, valdi mig sem förð­un­ar­meist­ara sem var líka ánægju­legt og þar fyrir utan stýrði ég að miklu leyti förð­un­ar­deild­inni fyrir mynd­ina.“ Hún játar að það hafi verið svo­lítil áskorun að ákveða hvernig sögu­hetjan Captain Marvel ætti að líta út, bæði af því að hún sé sýnd á ólíkum aldri í mynd­inni, sem gerði að verkum að sam­ræma þurfti útlit hennar og svo séu til alls konar útgáfur af henni í blöð­unum. „En eftir að hafa lesið mér aðeins til um þessa per­sónu, sem elst upp við mót­læti, þarf að vinna enn harð­ari höndum að því að sanna sig af því að hún er kona og fer eigin leiðir þá fór ég að horfa svo­lítið til kven­frum­kvöðla í tón­list eins og Stevie Nicks, Chrissie Hynde og Patti Smith. Ég vildi að stelpur sem sæju mynd­ina gætu sam­samað sig og tekið sér til fyr­ir­myndar þessa kven­hetju sem getur allt og útkoman varð því svona aðeins rokk­aður upp­reisn­ar­seggur,“ lýsir hún og kveðst hafa beðið með önd­ina í háls­inum eftir við­brögðum aðdá­enda mynda­sagn­anna, því þarna hafi þessi útgáfa hetj­unnar verið að birt­ast í fyrsta sinn á hvíta tjald­inu. „Og sem betur fer var henni nú bara tekið nokkuð vel,“ segir hún fegin.

Heba hefur unnið að hverri mynd­inni á eftir annarri úr smiðju Marvel, en í sumar hoppar hún yfir til mynda­sögu­fyr­ir­tæk­is­ins DC þar sem hún mun vinna að Suicide Squad 2.

Margt spenn­andi á döf­inni
Heba er önnum kafin kona og þar sem ég heyri á henni að tím­inn er alveg að hlaupa frá okkur, ákveð ég að nota tæki­færði og spyrja í lokin hvort ein­hver spenn­andi verk­efni séu á döf­inni – til dæmis fleiri ofur­hetju­myndir. „Næst á dag­skrá er nú bara að skjót­ast aðeins til að Cannes til að vera við­stödd nýj­ustu mynd Quentins Tar­antino, Once Upon A Time In Hollywood, en ég hafði yfir­um­sjón með förð­un­inni í þeirri mynd. Og jú, talandi um ofur­hetju­myndir, þá er ég sem sagt í sumar að fara að stýra förð­un­ar­deild­inni fyrir Suicide Squad 2, myndar í leik­stjórn James Gunn og með Idris Alba og Margot Robbie í aðal­hlut­verkum. Sem sagt, hoppa frá Marvel og yfir til DC,“ segir hún létt í bragði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina