Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Hún fjallar um skuggahliðar ástarinnar“

Rit­höf­und­ur­inn Þóra Hjör­leifs­dóttir fjallar um skugga­hliðar ást­ar­innar í sinni fyrstu skáld­sögu.

Út er komin bókin Kvika eftir Þóru Hjör­leifs­dóttur og er það hennar fyrsta skáld­saga. Beðin um að lýsa bók­inni segir Þóra: „Hún fjallar um skugga­hliðar ást­ar­innar. Ef maður hugsar um ást­ina sem pen­ing þá er hrifn­ingin, gleðin og eft­ir­vænt­ingin ein hliðin en á hinni er óör­yggið og ótt­inn, við höfnun og að þú sért mögu­lega að setja hjartað í bland­ara. Það er þessi síð­ar­nefnda hlið sem ég var að skoða.“

Þegar Þóra er spurð út í hvaðan hug­myndin að sögu­þræði Kviku kemur segir hún sög­una byggja á bæði reynslu­sögum úr öllum áttum og einnig kjafta­sögum. „Í mínum vin­konu­hóp þá tölum við mikið um ást­ina, um sam­bönd og það að kom­ast á séns og við­halda séns­inum. Það er svona stóra umfjöll­un­ar­efnið. Og Kvika byggir í raun á ein­hverju sam­an­safni af kjafta­sögum og reynslu­sögum sem ég hef heyrt.“

Spurð út í hvort þetta sé mögu­lega hennar reynsla svara Þóra neit­andi. „Þetta er ekki byggt á minni reynslu en aðal­per­sónan heitir Lilja og ég held að hún sé mann­eskja sem allir hafa þekkt eða verið að ein­hverju leyti.“

Langaði að búa til rými til að tala um hlutina

Í Kviku dregur Þóra upp raun­sæja mynd af and­legu ofbeld­is­sam­bandi sem er litað af klám­væð­ingu sam­tím­ans. Aðal­per­sóna bók­ar­innar er Lilja sem er svo ást­fangin að hún er til­búin að leggja allt í söl­urnar til að þókn­ast mann­inum sem hún elskar.

Kvika eftir Þóru Hjör­leifs­dóttur.
Mig lang­aði kannski pínu að rjúfa þessa ein­angr­un­ar­til­finn­ingu og búa til eitt­hvað rými til að tala um hlut­ina.

„Þegar fólk er í sam­böndum sem ekki gengur vel, þar sem verið er að koma illa fram við það og því líður ekki vel, þá verður ein­angr­un­ar­til­finn­ingin svo mikil. En ég held reyndar að umræðan sé að aukast mikið núna.

Í gegnum tíð­ina var fólk, sér­stak­lega konur, meira í því að þegja bara og kyngja hlut­unum og þessar konur héldu jafn­vel að þær væru þær einu í heim­inum sem hefðu verið svona vit­lausar að koma sér í og velja það að dvelja í ein­hverjum þrot­uðum aðstæð­unum. Mig lang­aði kannski pínu að rjúfa þessa ein­angr­un­ar­til­finn­ingu og búa til eitt­hvað rými til að tala um hlut­ina.“

Kvika kom út á mið­viku­dag­inn. Spurð út í hvaða við­brögð hún hafi fengið við bók­inni segir Þóra: „Það hafa hrúg­ast inn skila­boð og bókin virð­ist hreyfa við fólki.“

Þóra hefur tekið þátt í að skrifa og gefa út ljóða­bæk­urnar Ég er ekki að rétta upp hönd (2017) og Ég er fagn­að­arsöngur (2018) með Svika­skáldum. Ljóðin eiga vel við hana og Þóra segir Kviku vera ljóð­ræna skáld­sögu.

„Ég lærði rit­list í Háskóla Íslands og útskrif­að­ist árið 2017. Þar fékk ég tæki­færi til að spreyta mig á alls konar rit­stílum. Ég próf­aði að skrifa kvik­mynda­hand­rit, leik­rit, smá­sögur og fleira en ég finn að ég er í mínu elem­enti þegar kemur að ljóðum. En ég er enn þá alveg að leita og leika mér, ætla ekki að steypa mig fasta í neitt form heldur halda áfram að flæða og sjá hvað kemur til mín.“

Kafli úr Kviku:

Netvinur II

Við erum eig­in­lega alltaf saman heima hjá honum, ég er farin að hanga þar líka þegar hann er ekki heima. Það er gott af því að hann býr svo nálægt háskól­anum og svo getur hann líka gengið að mér vísri þar. Ég veit að hann er stundum að tala við aðrar stelpur á net­inu, stundum njósna ég um hann og les yfir öxl­ina á honum við hverja hann er að tala. Honum finnst það óþol­andi. Hann er prí­vat, hann vill meira að segja ekki að ég noti tölv­una hans nema hann sé með mér. Hann er stundum að tala við þessa rauð­hærðu stelpu sem hann reið um dag­inn en hann segir að þau séu bara vinir. Ég á líka alveg karl­kyns vini, hann segir að ég þurfi að slaka á og sætta mig við að hann eigi vin­konur.

Mynd: Forlagið

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina