Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Meiri líkur á sigri nú en nokkru sinni fyrr

Óhætt er að segja að algjört Hatara-æði sé búið að grípa um sig meðal lands­manna, eftir að sveitin kom, sá og sigr­aði í keppn­inni á þriðju­dag og kom Íslandi upp úr und­ankeppn­inni í fyrsta sinn í fimm ár. Sumir eru meira að segja farnir að spá sveit­inni sigri í loka­keppn­inni í kvöld.

Meiri líkur á sigri nú en nokkru sinni fyrr
|||Sunna Mím­is­dóttir bíður í ofvæni eftir úrslita­kvöld­inu. |Svan­hildur Hólm ætlar meðal ann­ars að borða tóma vit­leysu

„Ég held að ég hafi bara ekki verið jafn­spennt yfir þess­ari keppni í 20 í ár. Við erum að fá þarna fín­ustu keppni á heild­ina litið, eig­in­lega bara allan glans­menn­ing­ar­skal­ann. Og í fyrsta skipti erum við með fram­lag sem er ekki bara lag, heldur hrika­lega flott atriði sem er þaul­hugsað fyrir sjón­varp. Ég fæ bara gæsa­húð um allan lík­amann í hvert sinn sem ég sé og heyri það,“ segir Sunna Mím­is­dóttir, kynn­ingar- og við­burða­stjóri Félags áhuga­fólks um Söngvakeppni evr­ópskra sjón­varps­stöðva, FÁSES OGAE Iceland.

Sunna getur ekki beðið eftir keppn­inni í kvöld og segir mikla til­hlökkun ríkja á heim­il­inu. „Börnin mín eru mjög spennt og farin að benda mér hvar best sé að fylgj­ast með Euro-umræð­unni á Youtube.“ Hún segir að áhugi barn­anna fyrir íslenska atrið­inu sé búinn að vera það mik­ill að fyrir ösku­dag hafi sjö  ára dóttir hennar heimtað að vera Hatari. Ég hef aldrei skemmt mér jafn vel við að búa til grímu­bún­ing,“ segir hún og hlær.

Sunna Mím­is­dóttir bíður í ofvæni eftir úrslita­kvöld­inu.

Til­hlökk­un­ina segir Sunna ekki síst til­komna vegna þess að hún trúi því ein­lægt að Íslend­ingar eigi, í fyrsta sinn, mögu­leika á sigri í keppn­inni. „Já, veistu, ég held að það séu meiri líkur á sigri Íslands núna en nokkru sinni fyrr. Þetta er bara svo flott lag út í gegn,“ lýsir hún og kveðst því alvar­lega vera farin að íhuga að heyra í yfir­manni sínum í vinn­unni til að tryggja sér frí í vinn­unni á næsta ári. Sér­stak­lega fari keppnin fram á Íslandi.

Alvöruinnistæða fyrir góðu partíi

Svan­hildur Hólm seg­ist sömu­leiðis vera spennt fyrir laug­ar­dags­kvöld­inu enda orðið mjög langt síðan Íslend­ingar hafi átt alvöru­inni­stæðu fyrir góðu Eurovision-partíi. „Spenn­ing­ur­inn teng­ist eðli­lega mest Hatara, enda get ég með góðri sam­visku sagt að mér finnst það lang­besta atriði keppn­innar í ár.“ Hún kveðst reyndar vera búin að spá Íslend­ingum 6. sæti í keppn­inni en finnst Hatari alveg eiga skilið að enda ofar.

Svan­hildur hefur alltaf haft gaman af Eurovision. Hún seg­ist til að mynda muna vel eftir því að hafa verið í heima­vist á Laugum í Reykja­dal í 9. bekk þegar Sigga og Grétar náðu 4. sæt­inu og Íslend­ingum fannst þeir hafa unnið. „Mamma tók keppn­ina upp fyrir mig og næst þegar ég fór heim horfði ég á hana aftur frá upp­hafi til enda, eðli­lega, því það voru aðeins of mikil læti á vist­inni til að njóta almenni­lega.“ Þetta ár var upp­á­halds­lagið hennar White and black blues með Joëlle Ursull sem hafi hafnað í 2. sæti, mjög óverð­skuldað að hennar mati, á eftir einu leið­in­leg­asta lagi sem hafi unnið Eurovision, Insieme 1992 frá Ítalíu. „Það fjallar um sam­ein­aða Evrópu, svo mér finnst alveg kom­inn tími til að kolefn­is­jafna inni­haldið og leið­indin með hressandi fram­lagi og sigri Hatara sem syngja um að Evrópa sundrist.“

Svan­hildur Hólm ætlar meðal ann­ars að borða tóma vit­leysu, skrá sig­ur­strang­leg­ustu lögin og segja lélega brand­ara á Twitter á meðan keppni stendur. Mynd/Aldís Páls­dóttir

Hún seg­ist að sjálf­sögðu ætla að njóta keppn­innar í botn í kvöld. „Já, ég ætla að horfa með fjöl­skyld­unni, borða tóma vit­leysu, skrá sig­ur­strang­leg­ustu lögin, segja lélega brand­ara á Twitter og svo auð­vitað bil­ast af þjóð­ern­is­ást og stemn­ingu þegar okkar fólk stígur á svið,“ segir hún hress.

Mun öskra úr sér röddina ef Hatari vinnur

Margrét Nils­dóttir, for­maður BDSM-félags­ins, er heldur ekki frá því að íslenska fram­lagið geti unnið í ár. Bæði lagið og keppnin eru henni að skapi. „Já, ég er hrifin af þessum óskapn­aði öllum, það verður að við­ur­kenn­ast. Ég er líka sett í strangar Euro-þjálf­un­ar­búðir fyrir hverja keppni, þar sem dóttir mín hefur allt að því sjúk­legan áhuga á keppn­inni. Hún spilar þá gjarnan lög og hlýðir mér yfir: „Hvaða land er þetta, mamma?“ Ef maður er ekki með svarið á hrað­bergi fær maður hneyksl­un­ar­augna­ráð og svo segir hún manni rétta svarið. Ég er líka með veikan blett fyrir ofur­dramat­ískum Balkan-kraft­ball­öðum. Er annað hægt?“

Margrét segir að senni­lega komi hún til með að öskra úr sér rödd­ina ef Íslandi vinni, því það yrði svo stórt skref í bar­áttu BDSM-fólks til að auka umræðu og afmá fáfræði og for­dóma um hneigðir þess. „Það er þegar búið að vera óend­an­lega skrítið og skemmti­legt að sjá tákn­myndir okkar not­aðar til að selja sæl­gæti, heyra fólk á RÚV spjalla um BDSM og hvað bún­ing­arnir séu flottir og lesa frétt um prest með gaddaól. Fólk er alla­vega óðum að læra að við erum til og að við erum ekki skemmd eða hjálp­ar­þurfi og von­andi skilar þetta sér í vit­und­ar­vakn­ingu um fjöl­breyti­leika kyntján­ingar. Þetta er allt verk Hatara.“

Hún seg­ist ætla að horfa á keppn­ina í faðmi fjöl­skyld­unnar í kvöld. „Ég ætla að horfa á ósköpin með fjöl­skyld­unni, samt ekki kall­inum því hann er of töff fyrir þetta, bara mömmu, systur minni og hennar börnum. Við skrifum niður topp 10 lista og giskum á end­an­lega röð og svona, gera það ekki allir?“ spyr hún og brosir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina